Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 136. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Leyndardómur Angelite Búlgarskur kór sem byggir á aldagamalli sönghefð | Menning Lesbók | Hvað er Silvía Nótt?  Hinn óþarfi svefn Börn | Ljónið og músin  Verðlaunaleikurinn Íþróttir | Blakstúlkur lögðu Skota  Vangaveltur um framtíð Eiðs Smára M-ið | Veisla fyrir bragðlaukana SPÆNSKA stjórnin bað í gær Evr- ópusambandið um aðstoð við að hemja straum ólöglegra innflytjenda og flóttafólks frá meginlandi Afríku til Kanaríeyja sem heyra undir Spán. Alls komust um 1.500 manns á áfangastað í vikunni. Fólkið er að jafnaði bláfátækt og oft illa haldið eft- ir erfiða siglingu á lélegum og yfirfull- um smábátum yfir hafið. Vitað er að síðustu mánuði hafa hundruð manna drukknað á leiðinni. Meðal flóttamannanna, sem vonast til að fá dvalarleyfi á Spáni eða í öðr- um ESB-ríkjum, eru mörg lítil börn. Fólkið kemur frá mörgum Afríku- löndum en einkum frá ýmsum V-Afr- íkulöndum sem eru næst eyjaklasan- um. Alls hafa um 7.400 flóttamenn kom- ist til Kanaríeyja það sem af er árinu en allt árið í fyrra voru þeir um 4.750. „Það er ljóst að þeir sem koma til Spánar eru um leið komnir til Evr- ópu,“ sagði Maria-Teresa Fernandez de la Vega, aðstoðarforsætisráðherra Spánar, í gær. „Þess vegna höfum við lengi verið staðráðin í að félagar okk- ar í ESB leysi vandann með okkur vegna þess að hann snertir okkur öll.“ Hert eftirlit úr lofti Stjórnvöld í Madríd hafa að und- anförnu hert eftirlit úr lofti til að reyna að stemma stigu við straumn- um. Skýrt var frá því í gær að rúm- lega 650 flóttamenn hefðu komið til Kanaríeyja á aðeins einum sólar- hring. Reuters Bátur innflytjenda og flóttafólks frá Afríku við Tenerife í gær. Vilja hjálp vegna flóttafólks Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is LANDSBANKI Íslands hefur sam- hliða ákvörðun um vaxtahækkun, sem tekur gildi næstkomandi mánudag, ákveðið að taka upp vinnureglu sem gerir ráð fyrir að almennt viðmið varðandi hámarksveðsetningu íbúða- lána verði 70%. „Starfsfólk okkar mun starfa samkvæmt þessu viðmiði þótt hið formlega viðmið bankans geri enn ráð fyrir 80% veðhlutfalli sem há- marksveðsetningu ef aðstæður leyfa,“ segir Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans í samtali við Morgunblaðið. „Landsbankinn hefur ávallt sýnt varfærni í sínum lánaviðskiptum, og var til að mynda fyrstur til að lækka hámarksveðhlutfall úr 90% í 80%. Við teljum mikilvægt að á þenslutímum eins og nú eru taki allir á markaði höndum saman til að ná tökum á verð- bólgunni.“ Bendir Halldór á að um 85% af skuldum heimilanna séu verðtryggð- ar og því sé það hagsmunamál allra að halda verðbólgunni í skefjum. „Eins og áður segir teljum við mik- ilvægt að vinna saman að því að ná tökum á verðbólgunni, og bendum sérstaklega á stjórnvöld og Íbúða- lánasjóð í þeim efnum,“ segir Halldór. „Sjóðurinn hefur ekki sýnt nægilega ábyrgð varðandi vaxtaákvarðanir og veðhlutföll. Hafa ber í huga að það var pólitísk ákvörðun að hækka hámarks- veðsetningarhlutfall á lánum frá sjóðnum í 90% en ekki bankaleg við- mið. Teljum við mikilvægt að umbót- um á íbúðalánamarkaði verði hraðað og að hætt verði ríkisstyrktri sam- keppni á íbúðalánamarkaði,“ segir Halldór „Þetta er eitt það brýnasta í hagstjórninni eins og Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn benti á í skýrslu sinni nú í vikunni.“ Almenn hækkun vaxta Helstu lánastofnanir hækkuðu inn- og útlánsvexti í kjölfar hækkunar stýrivaxta, Glitnir á fimmtudagskvöld og Landsbanki, KB banki og SPRON í gær. Hækkuðu óverðtryggð inn- og útlán um allt að 0,75 prósentustig og verðtryggð lán um allt að 0,30 pró- sentustig. Vextir á íbúðalánum verða eftir breytingar 4,90% hjá áðurnefnd- um lánastofnunum að KB banka und- anskildum, þar sem þeir verða 4,75%. Miðað við 70% há- marksveðsetningu Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is  Vextir | 16 SUÐUR-AFRÍSKA söngkonan Miriam Makeba sagðist aldrei hefðu trúað því að hún myndi fá tækifæri til þess að sækja Ísland heim. Hún er nú stödd hér á landi og syngur í kvöld í Laugardalshöll á vegum Listahátíðar í Reykjavík á sínum síð- ustu tónleikum. Makeba er vel- gjörðarsendiherra Sameinuðu þjóð- anna og hitti aðstandendur Unicef á Íslandi á Hótel Nordica í gær. „Ég er afar lánsöm að hafa fengið tækifæri til þess að heimsækja Ís- land,“ sagði hún þegar hún ræddi við blaðamenn. Makeba hefur í áraraðir verið í fremstu röð listamanna heims og er af mörgum talin áhrifamesti sendi- herra Suður-Afríku. Hún lýsti starfi velgjörðarsendiherra og kvaðst vera glöð yfir því að Unicef á Íslandi ynni að þróunaraðstoð í Afríku, þá sér- staklega í þágu stúlkna og kvenna. Makeba kvaðst vera kölluð ýms- um nöfnum í Afríku í þakkarskyni fyrir stuðning sinn við íbúa álfunnar, m.a. „Mama Africa“. „Af hverju vill einhver setja heila heimsálfu á axlir mér? Hún er of þung,“ sagði Makeba og hló. „En fólk kallar mig þetta af væntumþykju því það telur að ég hafi kannski gert eitthvað fyrir álfuna.“ | 4 og 28 Morgunblaðið/Ómar Söngkonan víðfræga Miriam Makeba hitti forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, á Bessastöðum í gær. Miriam Makeba sækir Ísland heim Washington. AFP. | Átök urðu milli fanga og fangavarða í bandaríska herfangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu í fyrradag en talsmaður her- yfirvalda skýrði frá málinu í gær. Brutust átökin út eftir að verðir reyndu að koma í veg fyrir það að einn fanginn hengdi sig. Fangarnir notuðu viftur og ljósa- búnað sem barefli á verðina, að sögn talsmannsins, Roberts Durands, en ekki mun hafa þurft að beita miklu afli til að kveða niður átökin. Fyrr um daginn reyndu þrír fangar að fyrirfara sér með því að taka inn hættulega mikið af lyfjum. Mennirn- ir fjórir fengu allir læknishjálp og eru ekki í lífshættu. Skýrt var frá málinu skömmu eftir að Sameinuðu þjóðirnar hvöttu Bandaríkjamenn til þess að loka fangabúðunum. Slegist við fanga í Guantanamo  Ættu að | 18 London. AFP. | Alan John- son, menntamálaráð- herra Breta, hefur sent frá sér nýjar viðmið- unarreglur um næring- argildi skólamáltíða og verður matur sem inni- heldur mikið af salti og fitu bann- aður frá haustinu. Skyndibita- eða ruslfæði er því gert útlægt. Ekki verður lengur að finna súkkulaði, kartöfluflögur, gos eða annars flokks kjötafurðir í skóla- máltíðum frá og með haustinu. Að- eins má bjóða tvo skammta af frönskum í viku. Frá og með september munu kokkar í grunn- skólum sjá til þess að fyrsta flokks kjöt og fisk- ur verði reglulega á boð- stólum. Nemendur eiga að fá minnst tvo skammta af ávöxt- um og grænmeti með hverri máltíð og djúpsteiktan mat má aðeins bjóða tvisvar í viku. Matur í breskum grunnskólum varð mikið umræðuefni sl. vetur í kjölfar þáttaraðar sjónvarpskokks- ins Jamies Olivers. Ruslfæði bannað í skólum BANDARÍSKIR vísindamenn hafa uppgötvað aðferð til að vinna efnið sem notað er í Tamiflu, lyf sem slær á einkenni fuglaflensu, úr algengri trjá- tegund, að sögn Jyllandsposten. Um er að ræða svonefnt ambra-tré og vex það víða í Bandaríkjunum. Áður hefur virka efnið í lyfinu, shikimi-sýra, verið fengið úr trjátegund sem aðeins vex í Kína og Víetnam. Vísindamenn hafa óttast að skortur yrði á shikimi-sýru ef fuglaflensa yrði heimsfaraldur meðal fólks. Ávextir ambra eru nefndir „gúmmíboltar“ og í fræjunum er mikið af sýrunni. Einn- ig finnst efnið í berki og blöðum. Geta fram- leitt nóg af Tamiflu ♦♦♦ Lesbók, Börn , Íþróttir og M-ið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.