Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Ístærstu borg Evrópu, hvaðummál snertir, miðast tíma-talið gjarnan við árið 1989þegar Berlínarmúrinn féll og
íbúar austursins gátu loks eygt von
um nýja framtíð eftir 28 ára ein-
angrun í fyrirmyndarríki sósíalism-
ans. Berlínarmúrinn var reistur árið
1961 til að koma í veg fyrir fólks-
flótta frá austri til vesturs og það er
ekki síst sú nútímasaga, sem fylgir
gestum borgarinnar hvert fótmál.
Sagan er allt að því ágeng við gest-
ina því á hverju götuhorni eru minj-
ar um styrjaldir, alræðishyggju,
kúgun, nazisma og sósíalisma.
„Við megum aldrei falla í þá
gryfju að gleyma sögunni. Við þurf-
um að gæta þess vel að uppfræða
komandi kynslóðir svo að sagan
endurtaki sig ekki,“ svarar Berl-
ínarbúinn og leiðsögumaðurinn
Burkhard Heyl þegar hann er innt-
ur eftir þörf Berlínarbúa fyrir að
halda „neikvæðum“ minnismerkjum
á lofti.
Berlín þekur um 900 ferkílómetra
landssvæði og eru íbúarnir nú um
fjórar milljónir talsins.
60% borgarinnar eyðilögðust
Seinni heimsstyrjöldin lék borg-
ina grátt því sprengjuregn eyðilagði
um 60% hennar. „Ferðamenn koma
ekki til Berlínar til að njóta feg-
urðar því aðrar borgir státa af mun
meiri fegurð en Berlín. Þeir koma
hingað af allt öðrum hvötum enda
stíga menn hér inn í sögusvið á
hverju götuhorni,“ útskýrir Heyl
hinn þýski og biður áheyrendur að
stíga út úr rútunni við leifar af Berl-
ínarmúrnum við enda Ebertstraâe.
„Við þurfum alltaf að útskýra tilvist
Múrsins fyrir öllum okkar gestum.
Það er mjög mikilvægt að skýra
þeim frá ástæðum þess að Múrinn
var reistur og hvernig hann leit út.
Múrinn, sem skipti borginni í tvennt
og var 155 km langur, var í reynd
merki aðskilnaðar Berlínar og tákn
kalda stríðsins.
Múrinn var í reynd tveir múrar
með ræmu einskismannslands og
gaddavírsgirðingum á milli sem
Vestur-Þjóðverjar kölluðu „dauða-
svæðið“ en Austur-Þjóðverjar „ör-
yggissvæðið“. Áttatíu þúsund aust-
ur-þýskir vel þjálfaðir hermenn
gættu þess að drepa landa sína
reyndu þeir flótta. Tvö hundruð
manns höfðu fallið í valinn þegar yf-
ir lauk, sá síðasti aðeins skömmu áð-
ur en Múrinn féll.
Byggingarkranar og ný borg
Nú eru aðeins eftir leifar af
Múrnum fyrir ferðamenn að mynda.
Menn ganga nú hindrunarlaust í
gegnum Brandenborgarhliðið, sem
áður var tákn um aðskilnað Evrópu
og staðsett á dauðasvæðinu, en er
nú ímynd endursameiningar. Vin-
sælt er að taka myndir á Checkpo-
int Charlie, sem þjónaði sem landa-
mærastöð ásamt Alfa og Bravo. Hið
sögufræga þinghús Reichstag hefur
nú verið nútímavætt undir nýju
hvolfþaki og sameinað nýbygg-
ingum, en það þjónar nú sem aðset-
ur þýska þingmannasambandsins.
Geysistór minnisvarði um helför
gyðinga, sem þekur svæði á við þrjá
fótboltavelli, fer ekki fram hjá nein-
um. Aðsetur Hermanns Görings er
skammt undan, fyrrum höfuð-
ÞÝSKALAND | Nær þrjátíu ára saga Berlínarmúrsins kostaði miklar fórnir
Bjartsýni og byggingar-
kranar í Berlínarborg
Vinsælt er að fara í siglingu um ána Spree. Hér er það Dómkirkjan sem er í baksýn.
Afslappað andrúmsloft er á þessu
útikaffihúsi í Berlín.
Í Berlín miðast tímatalið
við „fyrir“ og „eftir“ Múr-
inn. Ásýnd borgarinnar
hefur nú gjörbreyst eftir
að íbúar Austur-Berlínar
réðust með sleggjum á
Múrinn fyrir sextán ár-
um. Enn er uppbygg-
ingin þó í gangi, en sagan
fylgdi Jóhönnu Ingv-
arsdóttur hvert fótmál í
Berlínarborg.
og refi, ævintýraferðir með sjókajak-
siglingum í Jökulfjörðum og við Horn-
strandir og snorkköfun við Reykja-
nes, fjallaferðum, fjallahjólaferðum
og jökulgöngu á Drangajökul. Á
haustin verður skútan færð í Breiða-
fjörðinn og þaðan boðið upp á styttri
siglingar, allt að Látrabjargi.
Skútan, sem smíðuð var í Bretlandi,
var áður notuð í kappsiglingar kring-
um jörðina og mun taka 8–10 farþega
þegar endurskipulagningu á rýminu
verður lokið næsta vor. Skútan mun
vera sú stærsta á Íslandi og þykir Ísa-
fjörður vel staðsettur fyrir ferðaþjón-
NÝTT ferðaþjónustufyrirtæki á
Ísafirði, sem fengið hefur nafnið
Skútusiglingar ehf., ætlar bjóða
ævintýraþyrstum ferðalöngum upp
á seglskútusiglingar við Vestfirði
og austurströnd Grænlands.
Í þeim tilgangi hafa verið fest
kaup á 60 feta skútu og verða farn-
ar nokkrar prufuferðir fyrstu mán-
uðina til að prófa nýja og spenn-
andi ferðakosti. M.a. er áformað að
bjóða upp á skíðaferðir á vorin,
náttúruskoðun með áherslu á fugla
Fjórar skútur frá
Ísafirði auk lóðs-
bátsins og björg-
unarbátsins Gunn-
ars Friðrikssonar
tóku hlýlega á móti
nýju skútunni þegar
hún kom til hafnar á
Ísafirði sl. þriðju-
dagskvöld.
SIGLINGAR
Fréttir á SMS
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com