Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 11 FRÉTTIR GJALDFRJÁLS leikskóli, lækkuð fasteignagjöld og fríar ferðir með strætisvögnum eru meðal stefnu- mála Framsóknarflokks og óháðra í Hafnarfirði sem kynnt voru í verslunarmiðstöðinni Firði í gær. Öldrunarmálin eru einnig ofar- lega á baugi hjá flokknum sem vill vinna af fullum krafti við að útfæra þær hugmyndir sem fram komu í skýrslu nefndar heilbrigðisráð- herra um öldrunarmál í bænum. Forgangsverkefni er að efla heima- þjónustuna og reyna þannig að gera öldruðum kleift að búa eins lengi í eigin húsnæði og mögulegt er. Flokkurinn vill einnig styðja myndarlega við tómstundastarf barna og ungmenna með svoköll- uðum frístundakortum. „Við viljum útfæra stuðninginn með öðruvísi hætti en gert hefur verið og erum að tala um fasta fjárhæð sem við köllum frístundakort. Það er fimm- tíu þúsund króna fjárhæð á barn alveg til átján ára aldurs,“ segir Sigurður Eyþórsson, oddviti flokksins. „Það þýðir að hægt er að niðurgreiða kostnað við íþrótta- starf en einnig við listnám, tónlist- arnám og annað það starf sem börnin kjósa að stunda,“ segir Sig- urður en flokkurinn hyggst jafn- framt gera vel við foreldra yngstu íbúanna með því að afnema vist- unargjöld á leikskólum í þrepum út kjörtímabilið. Auk þess hefur því verið heitið að fasteignagjöld í bænum hækki ekki og leitað verð- ur allra leiða til lækka þau á næsta kjörtímabili. Jarðgöng undir Setbergsháls? Stækkun álversins í Straumsvík hefur mikið verið rædd í Hafn- arfirði að undanförnu og er hitamál fyrir kosningarnar. Framsóknar- flokkurinn og óháðir hafa lýst því yfir að vera fylgjandi þeirri stækk- un og telja ákvörðunina í raun nán- ast hafa verið tekna. Í skipulags- málum ber annars hæst að reyna fá meira líf í miðbæ Hafnarfjarðar og telja flokksmenn því best borgið með hugmyndasamkeppni um skipulagið. Segir Sigurður þangað vanta fleiri kaffihús, veitingahús og listasmiðjur svo fátt sé nefnt. Jafnframt vill flokkurinn freista þess að leysa umferðarvandann sem skapast á annatíma í bænum. Stefnt er að samráði við nágranna- sveitarfélög til að finna lausnir en Sigurður bendir m.a. á þá hug- mynd að leggja jarðgöng undir Setbergsháls og tengja umferð úr nýjum hverfum við Reykjanes- braut þannig. Einnig vill flokkur- inn leita samninga við aðra rekstr- araðila að Strætó bs. um að afnema gjaldtöku í strætisvagna. Morgunblaðið/Eyþór Guðbjörg Fjóla Halldórsdóttir, sem skipar 2. sæti listans, Sigurður Eyþórs- son oddviti og Hildur Helga Gísladóttir, 5. sæti, kynna stefnumál listans. Framsóknarflokkur og óháðir kynna stefnumál sín í Hafnarfirði Hlynntir stækk- un álversins í Straumsvík Eftir Andra Karl andri@mbl.is Í helgar- blaði Dag- blaðsins 19. maí er und- irrituð bendluð við skrif á Mál- efni.com. Ég hef aldrei skrifað stakt orð þar né á aðrar spjall- rásir netsins. Það sem ég hef skrifað, hef ég skrifað undir nafni og í Morgunblaðið. Guðrún Guðlaugsdóttir. Yfirlýsing Guðrún Guðlaugs- dóttir blaðamaður. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald yf- ir fjórum karlmönnum sem grun- aðir eru um aðild að stóru fíkni- efnamáli frá því í byrjun apríl. Munu þeir sitja í varðhaldi til 2. júní nk. Þrír mannanna eru ís- lenskir en sá fjórði hollenskur og voru þeir staðnir að því að taka á þriðja tug kílóa af amfetamíni og hassi úr bensíntanki bifreiðar sem fluttur var hingað til lands frá Hollandi. Einnig var framlengt gæslu- varðhald yfir karlmanni frá Lithá- en sem tekinn var á Keflavíkur- flugvelli með þrjár flöskur af amfetamínvökva í byrjun ársins. Gæsluvarðhald framlengt yfir fimm mönnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.