Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 20
Vík í Mýrdal | Nemendur úr 7.–8. bekk Grunnskóla
Mýrdalshrepps urðu í fyrsta sæti í samkeppninni
„Reyklaus bekkur“. Gerðu þau stuttmynd þar sem
notaðir voru leirkarlar til að túlka boðskapinn.
Verðlaunin voru utanlandsferð fyrir allan bekkinn.
Hólar urðu í öðru sæti og Rimaskóli í því þriðja.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sigruðu í tóbaksvarnakeppni
Forvarnir
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Dagar vona og væntinga ríkja núna,
hafa gert það undanfarna daga og verður
svo áfram til bæjarstjórnarkosninganna
næstkomandi laugardag, 27. maí. Mikil
áhersla er lögð á að sýna eldra fólki að
það sé munað eftir því og allir segja ég
vil og ég ætla. Svo er það fólksins að
velja hver getur. Þetta á líka við um aðra
málaflokka svo sem íþrótta- og æsku-
lýðsmál en Selfoss ku hafa dregist aftur-
úr varðandi fjárveitingar til íþróttamála
sem er ekki gott. Nú hafa Selfyssingar
sett kúrsinn á að koma upp sterku knatt-
spyrnuliði af miklum metnaði og verður
gaman að fylgjast með hvernig það
gengur. Þeir unnu fyrsta leikinn enda
komnir með markaskorara úr Vest-
mannaeyjum í liðið. Það sem skiptir máli
er að hafa vilja til að sigra og ná árangri.
Núna liggur fyrir að nokkuð raunhæft
er að vonast eftir því að fleiri hjúkr-
unarpláss verði að veruleika á Selfossi
með hækkun nýbyggingar Heilbrigðis-
stofnunar Suðurlands um eina hæð. Þó
segist fólk ekki trúa því fyrr en það er
orðið að veruleika. Þetta er dæmigert
um tiltrú á stjórnmálamönnum.
Vegurinn um Hellisheiði er enn í
brennidepli en fulltrúar í sveitarstjórn-
um austan fjalls vilja allir sem einn að
ríkið gangi til samninga við Sjóvá-Al-
mennar um að tvöfalda og lýsa veginn
milli Reykjavíkur og Selfoss. Samgöngu-
ráðherra er tregur í taumi og staður í
þessu máli og hefur ekki sýnt mikla til-
burði í að hreyfa sig í áttina að Sjóvá.
Sunnlendingar bíða eftir niðurstöðu ráð-
herrans varðandi tilboð Sjóvár. Hafni
hann tilboðinu verður sú afstaða há-
pólitísk í aðdraganda alþingiskosninga
sem framundan eru næsta ár og erfið
stjórnarflokkunum.
Nú hefur bæjarstjórnin í Sveitarfé-
laginu Árborg selt Vigdísarreitinn við
útivistarsvæði Selfoss þar sem frú Vig-
dís Finnbogadóttir hugðist á sínum tíma
reisa sér sumarhús en ekkert varð af en
nafnið hélst á reitnum. Bæjarstjórnin
skipti á reitnum og lóð við hlið slátur-
hússins og kom þar þúfa á móti þúfu.
Þykir mörgum að góður biti hafi þar far-
ið fyrir lítið enda glæsilegt útsýni af Vig-
dísarreitnum austur yfir Ölfusá.
Úr
bæjarlífinu
SELFOSS
EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA
Vel viðraði til svif-flugs um síðustuhelgi og tókst
svifflugköppum að
fljúga langar leiðir.
Á laugardag flaug
Daníel Stefánsson frá
Sandskeiði til Geysis og
þaðan til Flúða og til
baka á Sandskeið. Sam-
tals um 165 km og náði
þar með vegalengd fyrir
silfur C áfanga í svif-
flugi. Daníel flaug svif-
flugu af gerðinni LS-4
sem er plastsviffluga
með 15 metra vænghaf.
Sama dag flaug Stein-
þór Skúlason svifflugu
sinni, TF-SIS, samtals
356 km, um 4 punkta, og
er það lengsta flug á Ís-
landi í hitauppstreymi
frá upphafi. Flugið var
eins styttra en í þetta
skipti eftir fyrirfram
ákveðinni braut sem gef-
ur fleiri stig. Flugið var
320 km að lengd og er
vegalengd fyrir gull C í
svifflugi og í fyrsta
skipti sem því er náð í
hitauppstreymi hér á
landi.
frá Sandskeiði að Blá-
felli við Hvítavatn, það-
an til Bláfjalla og svo til
Geysis og endað úti á sjó
út af Hafnarfirði áður
en lent var á Sandskeiði.
Sviffluga Steinþórs er af
gerðinni Lak-12. Á
sunnudag bætti Steinþór
um betur og flaug að-
Nýta sér góðar aðstæður
Óskar Björnsson áNorðfirði hefur ásér orð fyrir að
hagmæltur, draumspakur
og ódrepandi. Og er hald-
inn ólæknandi söfnunar-
áráttu. Hann safnaði orð-
um í vísu á ensku, sem
hann hugsaði sér að fyndi
sér stað um borð á enskum
togara í þorskastríðinu:
All the crew aboard the ship
in the cabin gather,
ask the gracious God this trip
give us cod our father.
Ragnar Ó. Sigurðsson
íslenskaði vísuna:
Allir krjúpa á einu skipi
aumingjar frá Bretaveldi;
láttu drottinn leka hripi
lánast veiði á hinsta kveldi.
Og Birgir Stefánsson
þýddi einnig vísuna:
Áhöfn af skipinu allri um sinn
inn var í káetu troðið.
Geistlegi herra guðfaðir minn
gefðu okkar þorsk í soðið.
Af þorski og skipi
pebl@mbl.is
Grindavík | Stefnuskrá Sjálfstæðisflokks-
ins í Grindavík vegna komandi bæjar-
stjórnarkosninga er birt í heild á fjórum
tungumálum í kosningablaði flokksins,
Hrungni. Er það óvenjulegt og segist Sig-
mar Eðvarðsson, efsti maður listans, ekki
vita til þess að það hafi áður verið gert
með þessum hætti.
„Við viljum sýna þessum íbúum að þeir
eru hluti af samfélaginu,“ segir Sigmar.
Hann segir að á milli 40 og 50 ein-
staklingar sem hafi erlend tungumál að
móðurmáli hafi kosningarétt í Grindavík,
mest Pólverjar og Taílendingar. Stefnu-
skráin er gefin út á þessum málum, auk
ensku. Í kosningablaði sem gefið var út
fyrir skömmu var stefnuskráin birt á ís-
lensku.
Frambjóðendurnir Sjálfstæðisflokksins
fóru heim til fólksins í fyrrakvöld og af-
hentu blaðið þar sem þýðingar á stefnu-
skránni eru birtar og segir Sigmar að
fólkinu hafi þótt það skemmtilegt og lýst
ánægju sinni með þetta framtak fram-
bjóðendanna.
Stefnuskráin í
heild á fjórum
tungumálum
Eyjafjörður| Verið er að sameina sex sóknir
í Dalvíkurprestakalli undir eina kirkju-
garðssókn og fjórar sóknir í Laugalands-
prestakalli í Eyjafirði undir aðra kirkju-
garðsstjórn. Tilgangurinn er að einfalda
rekstur kirkjugarða og gera hann hag-
kvæmari.
Frumkvæðið kom frá heimamönnum,
segir í fréttatilkynningu. „Stjórn Kirkju-
garðasambands Íslands (KGSÍ) hvatti
óspart til sameiningar enda er það eitt af
brýnustu verkefnum KGSÍ að stuðla að
sameiningu kirkjugarðastjórna og aðstoða
heimamenn.“
Kirkjugarðastjórnir á landinu eru 250
talsins, þar af 190 stjórnir í dreifbýli, flestar
í sóknum með færri en 100 íbúa. Að jafnaði
er jarðsett í þessum görðum annað eða
þriðja hvert ár og verkleg umsvif eru því að-
allega umhirða yfir sumartímann og viðhald
á eignum, aðallega á girðingum umhverfis
garðana. Fram kemur að auðvelt er að auka
rekstrarhagkvæmni með því að sameina
kirkjugarðastjórnir þar sem landfræðilegar
aðstæður leyfa. Eftir sameiningu er auð-
veldara en áður að ná góðum samningum við
garðyrkjuverktaka til að annast umhirðu og
verktaka sem annaðist grafartöku. Þess má
geta að KGSÍ heldur aðalfund sinn á Kea-
hóteli á Akureyri í dag, laugardag, og þar
verða sameiningarmál m.a. á dagskrá.
Stjórnir
kirkjugarða
sameinaðar
♦♦♦
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Sími 575 8500 Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
SMIÐJUSTÍGUR 11A
OPIÐ HÚS
FRÁ KL. 13.30-14:30
Í einkasölu 4ra herbergja
92,4 fm íbúð á 2. hæð í
þríbýlishúsi á þessum
vinsæla stað í miðbænum.
Íbúðin skiptist m.a. í stofu,
borðstofu, þrjú svefnher-
bergi, eldhús, baðherbergi
o.fl. Íbúðinni fylgir sérbílastæði.
Áhv. 10,9 millj. með 4,15% vöxtum. Verð 23,3 millj.
Sölumaður Fasteignamiðlunar tekur á móti gestum.
OPIÐ
VIRKA DAGA
FRÁ KL. 9-18
SMIÐJUSTÍGUR 11A