Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 67
DAGBÓK
Strákurinn Bogi.
Norður
♠K987
♥K54 V/NS
♦107
♣10843
Vestur Austur
♠DG ♠Á6532
♥G2 ♥9
♦965 ♦ÁDG942
♣DG9762 ♣K
Suður
♠104
♥ÁD108763
♦K3
♣Á5
Norðmaðurinn Boye Brogeland er
atvinnumaður í brids og fastagestur á
íslensku bridshátíðinni. Hann fer víða
og var í New York í síðustu viku að
spila í Cavendish-mótinu.
Eitt er víst um Boga – hann er alltaf
til í þrjú grönd. Hér er dæmi frá
Cavendish, en Boye var í suður með
sjölitinn í hjarta:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 tígull 1 hjarta
2 lauf 2 hjörtu 2 spaðar 3 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
Það er ekki hægt að hreyfa við
þremur gröndum og Boye fékk reynd-
ar ellefu slagi. Út kom spaðadrottning,
sem hann dúkkaði. Hann lagði á spaða-
gosann í næsta slag og austur skipti í
örvæntingu yfir í tíguldrottningu -
kóngur upp og 1150 í NS.
Þriggja granda sögnin er vel hugs-
uð, enda hönd suðurs grandleg þrátt
fyrir sjölitinn í hjarta. Og úr því að
spaðinn er þriðji litur andstöðunnar er
ekki óraunhæft að gera ráð fyrir ein-
hverjum styrk hjá makker þar.
Fjögur hjörtu fara niður með bestu
vörn, en unnust þó á nokkrum borðum
eftir spaðadrottningu út. Ef sagnhafi
dúkkar spaðadrottninguna missir
vörnin allt samband og laufslagurinn
fer fyrir lítið.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. d4 d5 3. c4 e6 4. Rc3 Be7
5. Bg5 0-0 6. e3 h6 7. Bh4 Re4 8. Rxe4
dxe4 9. Bxe7 Dxe7 10. Rd2 f5 11. Be2
b6 12. 0-0 Bb7 13. Rb3 Rd7 14. Hc1 c5
15. Dc2 cxd4 16. Rxd4 e5 17. Rb3 f4 18.
exf4 exf4 19. f3 exf3 20. Bxf3 Bxf3 21.
Hxf3 Re5 22. Hh3 f3 23. De4 Had8 24.
Kh1 Dg5 25. gxf3 Rd3 26. De6+ Kh8
27. Hf1
Staðan kom upp á skákmóti öðlinga
sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12.
Bjarni Sæmundsson (1810) hafði svart
gegn Bernard J. Scudder (1725). 27. ...
Rf2+! og hvítur gafst upp þar sem
hann verður mát eftir 28. Hxf2 Hd1+.
Bjarni hefur unnið ötullega að því að
slá inn skákir sem tefldar hafa verið á
íslenskum skákmótum, þ. á m. á skák-
mótum öðlinga. Hægt er að nálgast
skákirnar á Netinu á síðunni: http://
www.mmedia.is/~bjarnism/skak/
abc.htm.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Háskóli Íslands býður næsta haust upp ánýtt meistaranám í alþjóðasam-skiptum. Háskólinn hefur fengið hing-að til lands doktor Michael T. Corgan
sem kenna mun tvö námskeið á komandi vetri:
„Nám í alþjóðasamskiptum er sniðið að þörfum
þeirra sem vilja starfa við ríkis- og alþjóðastofn-
anir og samtök sem fást við verkefni á alþjóð-
legum vettvangi, svo sem friðargæslu, umhverf-
ismál, uppbyggingu stofnanakerfis og heil-
brigðiskerfis, svo nokkuð sé nefnt. Alþjóða-
samskipti fást einnig við viðskipti og markaði í
hnattrænu samhengi auk þess að fjalla um stað-
bundin stjórnmál og menningar- og mannfræði,“
segir Michael.
„Um er að ræða þverfaglegt nám sem er sam-
runi hefðbundinna utanríkismálafræða, stjórn-
málasögu, hagfræði, lögfræði, sögu, mannfræði og
stjórnunarfræða.“
Sem fyrr segir mun Corgan kenna tvö nám-
skeið næsta vetur. Hið fyrra er á meistarastigi,
„Global Governance and Global Hegemony“ (Al-
þjóðleg stjórnun og forysta): „Námskeiðinu er
ætlað að veita lengra komnum sýn á þær mörgu
stefnur sem finna má um stjórnun og samruna al-
þjóðastofnana. Fjallað er um helstu hreyfingar og
atburði frá lokum síðari heimsstyrjaldar,“ segir
Michael.
Hitt námskeiðið ber heitið „International Law
and International Organization“ (Alþjóðalög og
-stofnanir) og er á grunnstigi. „Námskeiðið fjallar
um þær stofnanir og grundvallarlög sem gegna æ
mikilvægara hlutverki í heimsmálum. Rætt er um
hvernig stofnanir og lög munu þróast og styrkjast
og helstu vandamálum tengd þeirri þróun gerð
skil.“ Michael Corgan hefur átt fjölbreyttan feril
og fékk áhuga á alþjóðasamskiptum strax á unga-
aldri þegar hann bjó í Vestur-Þýskalandi ekki
löngu eftir seinna stríð. Faðir hans var liðsforingi
í Bandaríska hernum og var fjölskyldan iðulega á
faraldsfæti:
„Sjálfur gekk ég til liðs við sjóherinn og skoðaði
heiminn gegnum það starf. Styrktist áhugi minn á
alþjóðamálum enn frekar við þau tilgangslitlu
hernaðarverkefni sem ég var látinn sinna. Þá sá
ég nauðsyn þess að skilja hvernig heimurinn
gengur fyrir sig, ef takast ætti að bæta þau skil-
yrði sem fólk þarf að búa við.“
Michael kom fyrst til Íslands fyrir 40 árum, þá
starfandi við varnarliðið. Hann gegndi Fullbright-
kennslustöðu við Háskóla Íslands 2001: „Alþjóða-
samskipti skipta ekki síst sköpum fyrir smáar
þjóðir líkt og Ísland. Velferð smárra ríkja veltur á
að í heiminum ríki stöðugleiki og réttlæti. Smáríki
geta ekki þvingað fram slíkar aðstæður heldur
hafa sem sitt sterkasta vopn samningaviðræður,
opna umræðu og að veita góða fyrirmynd.“
Nánari upplýsingar um námið má finna á
heimasíðu Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands,
www.felags.hi.is.
Menntun | Nýtt framhaldsnám í alþjóðasamskiptum í boði við Háskóla Íslands í haust
Alþjóðakerfið grannskoðað
Michael Thomas
Corgan fæddist í Pitts-
burgh í Pennsylvaníu
1941. Hann lauk BS-
prófi í skipaverkfræði
frá Akademíu banda-
ríska sjóhersins 1963,
MPA-prófi frá Wash-
ington-háskóla 1975 og
doktorsgráðu í stjórn-
málafræði frá Boston-
háskóla 1991. Michael
starfaði fyrir sjóherinn frá 1963–1988. Hann
hefur fengist við ýmis fræðastörf, síðast sem
dósent í alþjóðasamskiptum við Boston-
háskóla frá 1996. Michael er kvæntur Sallie K.
Riggs og eiga þau fjórar dætur.
Evróvisjónáfall!
ÞAÐ var áfall að sjá að framlagi Ís-
lands var hafnað í forkeppninni sl.
fimmtudagskvöld í Evróvisjón í
Grikklandi. Hafi Silvía Nótt ekki
verið háttvís í sínum leik og fram-
setningu var framkoma tónleika-
gesta móðgun við hana og Íslend-
inga.
Það að púa á hana þegar hún
kom inn á sviðið er bara dónaskap-
ur og ekkert annað! Þess vegna
legg ég til að við hér á Íslandi tök-
um EKKI þátt í atkvæðagreiðsl-
unni nk. laugardagskvöld. Fyrir því
eru tvær ástæður; ónærgætni og
dónaskapur við Silvíu Nótt í út-
sendingunni frá Aþenu – svo hitt;
óhóflega hátt gjald fyrir að greiða
atkvæði hér heima 100 kr. Það
kostar t.d. aðeins 3 kr. ísl. að greiða
atkvæði í síma í Danmörku!
Sýnum samstöðu; mótmælum
dónaskap Grikkja og höfnum háum
símakostnaði við að greiða atkvæði
í Evróvisjón.
Sjónvarpsáhorfandi.
Sviss og Ísland
ÉG get ekki látið ógert að bregðast
við bréfi til blaðsins eftir Jakob
Björnsson, „Enn um ferðamenn til
Sviss“ frá 7. maí sl. Þar er ólíku
saman að jafna, Íslandi og Sviss.
Sviss er gróðursælt land. Þegar
náttúruhamfarir dynja yfir, svo sem
snjó- eða vatnsflóð og aurskriður,
sjást varla ummerki um þær að ári
liðnu, því gróðurinn er óvenju fljót-
ur að gróa og græða sárin.
Hafa ber í huga að á Íslandi er
hins vegar viðkvæm jörð, nánast
gróðurlaus, veðráttan er öllu harð-
ari en á meginlandi Evrópu.
Hvaða fólk sækir Sviss heim?
Mestmegnis Japanir, efnaðir
Bandaríkjamenn, Hollendingar á
húsbílum, því Sviss er dýrt ferða-
mannaland. En það hvílir einhver
dýrðar- og ríkidæmisljómi yfir
landinu. Nei, í Sviss eru svo sann-
arlega engin „ósnortin víðerni“,
öðru nær! Það er morandi í mann-
virkjum, maður sér varla í náttúru
fyrir þeim. Ef mann langar að vera
í friði fyrir hávaða og háreysti þarf
að fara langar leiðir inn til dala.
Fólk sem vill sækja Ísland heim
er að stórum hluta til af öðrum
toga: Það sækir í ósnortna náttúru,
en Ísland er ekki allra.
Ég tel mig heppna að hafa
kynnst Íslandi fyrir um 15 árum,
þar var enn einhvert „sakleysi“ á
sveimi.
Ingrid,
Íslandsvinur frá Austurríki,
búsett í Sviss.
Silfurarmband týndist
SILFURARMBAND með lauf-
blaðamunstri týndist sl. miðvikudag
eða fimmtudag. Skilvís finnandi
hringi í síma 553 6168 eða 847 0022.
Lítil kisa í óskilum
LÍTIL, svört og hvít læða ca 6
mánaða er í óskilum á Baldursgötu
25. Hún er ómerkt og ólarlaus.
Upplýsingar í síma 552 5859 og
847 1064.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Í dag, 20. maí, eráttræð Sarah Ross Helgason,
Hvassaleiti 30, Reykjavík. Af því til-
efni munu börn hennar halda henni
veislu í veislusal Kiwanishússins að
Engjateigi 11, milli kl. 15 og 18. Allir
vinir og vandamenn velkomnir.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Hlín, Harpa og Hrund, héldu tombólu
og söfnuðu 4.150 kr. til styrktar fyrir
söfnun Rauða kross Íslands, fyrir
krakka í Afríku. Á myndina vantar
Rannveigu.
Hlutavelta
dagbók@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Lækjargata 2a 101 Reykjavík sími 511-5001 opið 9.00 - 22.00 alla daga
Tvær
saman
4.990,-
Tilboð
gildir út
maí.
3,990,-
2,990,-
30 %
afsl.
Til sölu
nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir
í grónu hverfi, 2ja, 4ra og 5 herbergja
• Tveggja herbergja 80 m²
• Fjögurra herbergja 135 m²
• Fimm herbergja 143 m²
Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og
fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum.
Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum.
Stofurnar eru 30-40 m². Á gólfum eru flísar og gott eikarparket.
Stórar svalir á móti
suðri og sérstaklega
fallegt útsýni.
Stutt í golfvöll.
Hrauntún ehf. byggir
Uppl. gefur Örn Ísebarn byggingameistari
í símum 896 1606 og 557 7060.
Dæmi um
5 herb. íbúð