Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 71
MENNING
Ítalskur funi
í Hafnarfirði
Sunnudaginn 21. maí
kemur Listahátíð í Reykjavík til Hafnarfjarðar.
Kammersveit Hafnarfjarðar flytur tónlist
eftir ítalska tónskáldið Nino Rota
í Hafnarborg kl. 17.00
undir stjórn Michele Marvulli
og Kvikmyndasafn Íslands sýnir hina frægu mynd
Fellinis La Strada frá árinu 1954
í Bæjarbíói kl. 20.00.
Einnig sýnd kl. 16.00 þann 20. maí.
Misstu ekki af einstökum viðburði!
Nánari upplýsingar í síma 585 5790
og á listahatid.is eða hafnarfjordur.is
Opin virka daga kl. 12 til 18, um helgar kl. 12 til 16.
Sími 552 8588 – Miðasala á netinu á www.listahatid.is
Miðasala við innganginn hefst klukkustund fyrir viðburð
Miðasalan Bankastræti 2:
Una Sveinbjarnardóttir fiðla, Einar Jóhannesson klarinetta, Víkingur Heiðar Ólafsson píanó
Efnisskrá: Píanókonsert nr. 25 í C-dúr,
Fiðlukonsert nr. 4 í D-dúr og Klarinettukonsert í A-dúr.
Langholtskirkju 21. maí kl. 20.00
Miðaverð: 2.500 kr.
Kammersveit Reykjavíkur
og þrír framúrskarandi einleikarar
Í DAG opna tvær listakonur sýningar í Listasafni
Árnesinga í Hveragerði.
Sýning Hrafnhildar Sigurðardóttur ber heitið Hér.
Hrafnhildur hlaut norrænu texílverðlaunin, The
Nordic Award in Textiles, 2005 og er sýningin í
Hveragerði að stærstum hluta verðlaunasýning henn-
ar sem sett var upp í textíllistasafninu í Borås í Sví-
þjóð þegar hún tók við verðlaununum. Myndverk
Hrafnhildar eru þrívíddarverk unnin með blandaðri
tækni. Með óheftri framsetningu hinna ýmsu efna,
samhliða sterkri tilvísun í hefðbundið handverk og
endurtekningu á sama hnútnum, hreyfingu eða að-
ferð, bregður Hrafnhildur á leik um leið og hún, með
ýmsum tilvísunum, vekur upp gagnrýna hugsun á
meðtekin gildi samtímans.
Formleikur – Geometría
Listakonan Sonja Håkansson lést fyrir þremur ár-
um, hún var þá tilbúin með þessa fyrstu einkasýn-
ingu sína en áður hafði hún tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hérlendis. Sýning Sonju sem opnar í dag
nefnist Formleikur – Geometría og getur þar að líta
minimalísk verk eða formstúdíur með frumformin
hring, ferhyrning og þríhyrning í rauðu, gulu og
grænu. Verkin eru lágmyndir á vegg úr MDF-
plötum og tveir frístandandi skúlptúrar úr gleri.
Sonja útskrifaðist úr skúlptúr- og málaradeild
Myndlista- og handíðaskóla Íslands í lok níunda ára-
tugarins.
Sýningarnar tvær opna í dag kl. 14 og standa til
18. júní. Safnið er opið alla daga kl. 11–17 og að-
gangur er ókeypis.
Myndlist | Listasafn Árnesinga
Verðlauna-
verk í textíl
Sýning Sonju Håkansson nefnist Formleikur – Geometría.
Hrafnhildur Sigurðardóttir er með sýninguna Hér.
SEM LIÐUR í burtfararprófum
við Söngskólann í Reykjavík munu
útskriftarnemendur skólans halda
einsöngstónleika næstu vikuna. Í
dag klukkan 14.00 mun Ásgeir Páll
Ágústsson baritón, ásamt Láru S.
Rafnsdóttur píanóleikara, halda
tónleika í Snorrabúð, Tónleikasal
Söngskólans. Á efnisskránni eru
ljóðaflokkar eftir Ralph Vaughan
Williams og Maurice Ravel, gam-
anvísur úr Ljóðakornum Atla
Heimis Sveinssonar og aríur og
dúettar úr ýmsum óperum. Þennan
sama dag klukkan 17.00 í Lista-
safni Sigurjóns mun Guðbjörg
Björnsdóttir sópran, við píanóund-
irleik Láru S. Rafnsdóttur, flytja
meðal annars íslenska og erlenda
ljóðasöngva ásamt þekktum aríum
úr óperum en þar má nefna aríur
Gildu í Rigoletto og Næturdrottn-
ingarinnar úr Töfraflautunni. Á
morgun, sunnudaginn 21. maí,
klukkan 18.00 munu Helga Björk
Arnardóttir sópran og Hólmfríður
Sigurðardóttir píanóleikari halda
tónleika í Salnum í Kópavogi. Af
efnisskrá þeirra má nefna ljóða-
flokkinn I Hate Music eftir Leon-
ard Bernstein, söngva úr Pétri
Gauti eftir Edvard Grieg og Hjálm-
ar H. Ragnarsson og aríur og
dúetta úr óperettum og óperum.
Í Salnum munu síðan Þórunn
Vala Valdimarsdóttir, Guðrún Árný
Guðmundsóttir og Rannveig Björg
Þórarinsdóttir, allar sópran, halda
einsöngstónleika á fimmtudag,
föstudag og sunnudag og mun
Iwona Ösp Jagla sjá um píanóund-
irleik á öllum þrennum tónleik-
unum. Á fimmtudaginn, uppstign-
ingardag, mun Þórunn Vala flytja
meðal annars Mignon-ljóð eftir
Schubert og Hugo Wolf, aríur úr
óperum og sígildar dægurperlur
eftir Oddgeir Kristjánsson og Sig-
fús Halldórsson. Daginn eftir,
föstudaginn 26. maí, mun Guðrún
Árný flytja meðal annars íslenska
og erlenda ljóðasöngva, söngva úr
þekktum söngleikjum og aríur og
dúetta úr óperum. Einsöngs-
tónleikar Rannveigar verða svo á
sunnudeginum 28. maí klukkan
16.00 og mun hún flytja ljóða-
söngva eftir Schumann, Berlioz,
Sibelius og Karl O. Runólfsson og
atriði úr óperu Verdis, La Traviata,
þar sem hún syngur hlutverk
Violettu. Þennan sama sunnudag
munu einnig Hrafnhildur Ólafs-
dóttir sópran og Kolbrún Sæ-
mundsdóttir píanóleikari halda ein-
söngstónleika klukkan 20 í
Langholtskirkju. Á efnisskránni
eru meðal annars ljóðasöngvar eftir
Schubert, Grieg og Jórunni Viðar
og verk eftir Purcell og Mozart.
Sjö einsöngstón-
leikar Söngskólans
SÍÐASTA sýning á Hafinu bláa
eftir Kikku og Þorvald Bjarna
verður klukkan 13.30 í Austur-
bæ í dag. Hafið bláa er barna-
og fjölskyldusöngleikur sem
segir frá Kletti litla karfa og
torfunni hans sem býr á Ís-
landsmiðum. Tónlist skipar
stórt hlutverk í sýningunni en
hún verið sýnd við miklar vin-
sældir í vetur. Aðalhlutverk
eru í höndum Ívars Arnar
Sverrissonar og Höllu Vil-
hjálmsdóttur. Aðrir leikarar
eru Selma Björnsdóttir, Jón
Jósep Snæbjörnsson og Matth-
ías Matthíasson ásamt fleiri
leikurum, söngvurum og döns-
urum. Leikstjóri er Agnar Jón
Egilsson.
Hafið bláa í síðasta sinn
Fréttir í tölvupósti