Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ ER ekki einleikið hve margir fá
svipaða hugmynd á sama tíma á mis-
munandi stöðum án þess að vita af
hinum. Á nokkrum dögum sá ég leik-
rit Skagaleikflokksins, Hlutskipti,
um fjögur systkini sem koma saman
til þess að skipta eigum foreldra
sinna en móðirin er heilabiluð og fað-
irinn látinn; ég sá líka leikrit Hug-
leiks, Systur, sem er um þrjár systur
sem koma saman til þess að skipta
eigum af æskuheimilinu en móðirin
er látin og faðirinn liggur fyrir dauð-
anum; ég sá leikhópinn Frú Emelíu
sýna verkið Hundrað ára hús sem
fjallar að mestu um lífið á hjúkr-
unarheimili aldraðra og heilabilaðra
og svo heyrði ég útvarpsleikritið Það
er kominn maður um miðaldra konu
sem er ásótt af látnum eiginmanni
sínum. Í öllum verkunum er reynt að
gera upp við fortíðina með mis-
jöfnum árangri og í öllum verkunum
er með einum eða öðrum hætti vikið
að ofbeldi, kúgun, vanrækslu og
þögn um það sem skiptir máli. Í sam-
félaginu ríkir augljóslega þörf fyrir
umfjöllun af þessu tagi.
Hlutskipti er splunkunýtt verk eft-
ir Kristján Kristjánsson sem hefur
tvisvar sinnum áður skrifað fyrir
Skagaleikflokkinn. Leikritið er vel
samið, einkum hvað varðar bygg-
inguna, en farið er reglulega aftur í
tímann fyrir tilstilli yngstu syst-
urinnar sem vill koma systkinum sín-
um í skilning um hvað gerðist undir
því yfirborði sem foreldrarnir vildu
hafa á hlutunum. Eftir því sem
lengra er farið inn í fortíðina því fús-
ari verða hin systkinin til þess að
taka þátt í sannleiksleitinni og er að-
dragandi upprifjunarinnar mjög
smekklega skrifaður. Það er einnig
mjög haganlega byggt upp hvernig
móðirin er sýnd fyrst sem heilabiluð í
hjólastól og að lokum, þegar áhorf-
endur verða forvitnir um uppruna
hennar og ástæður fyrir lífsferli
hennar, er hún aftur komin í stólinn,
orðin að barni.
Inga Bjarnason leikstjóri á marg-
ar sýningar að baki í atvinnu- og
áhugaleikhúsi. Leikstjórn hennar
hér er feikna örugg og skemmtileg
hvað varðar rýmisnotkun þar sem
leikmyndin er svo stór hluti af sýn-
ingunni; hvað varðar persónusköpun
og ekki síst hvað varðar afar góðan
stuðning við texta höfundarins og
góða samvinnu við lýsingar- og bún-
ingahönnuð. Hún skapar látlaust en
sprelllifandi leikhús þar sem auðvelt
er að gleyma stund og stað með per-
sónunum sem mjög misreyndir leik-
ararnir skapa. Aðeins á einum stað
hefði leikstjórinn mátt skera niður
texta höfundarins en það er atriði úr
fortíðinni þegar móðirin vekur
yngstu dóttur sína um nótt til þess að
þvinga upp á hana harm sinn.
Hlutverk systkinanna og móð-
urinnar eru draumahlutverk drama-
leikaranna. Einkum er hlutverk
móðurinnar stórt en það lék Guð-
björg Árnadóttir dæmalaust vel.
Hún sýndi móðurina á ýmsum ald-
urskeiðum, alltaf ákveðna en þó kúg-
aða, glaða, dapra eða örvænting-
arfulla. Yngsta dóttirin sem kemur
öllu af stað var leikin af Þórdísi Ingi-
bjartsdóttur, hún skapaði eftir-
minnilega persónu sem óx og dýpk-
aði eftir því sem á leið. Sigríður
Birgisdóttir lék elstu systurina af ör-
yggi og Vala Bergland var mjög af-
slöppuð og örugg í hlutverki þeirrar í
miðið sem hafði snemma farið sína
leið. Bróðirinn var vel leikinn af Gísla
Baldvini Gunnsteinssyni, hann kom
auðveldlega út bæði hlátri og tárum
áhorfenda.
Það er óhætt að hvetja Skaga-
menn og aðra til að sjá þetta nýja
frumsamda leikrit um íslenskan
veruleika því að hópurinn sem að því
stendur skildi mig eftir hugsi yfir
hlutskipti mannanna og ánægða yfir
því hvað sýningin fer djúpt á hin list-
rænu mið.
Lögunum flett af
LEIKLIST
Skagaleikflokkurinn
Höfundur: Kristján Kristjánsson. Leik-
stjóri: Inga Bjarnason. Ljósahönnun:
Hlynur Eggertsson. Búningar: Steinunn
Björnsdóttir og leikhópurinn.
Sýning 4. maí 2006.
Hlutskipti
Hrund Ólafsdóttir
ELFAR Guðni hefur opnað
sýningu í Lista- og menningar-
verstöðinni Hafnargötu 9,
Stokkseyri. Á sýningunni eru
myndir málaðar með olíulitum
á striga. Flestar eru myndirnar
málaðar við hafið, í þeim sí-
breytileika sem þar er. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14 til 18 alla
daga. Henni lýkur 11. júní.
Olíumálverk
Elfars Guðna
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar um helgina
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill ásamt tilboðsseðli öll kvöld.
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Í dag kl. 14 UPPS. Su 21/5 kl. 14 UPPS.
Su 28/5 kl. 14 UPPS.
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR
FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP
Su 21/5 kl. 20 UPPS. Fi 25/5 kl. 20 UPPS.
Fö 26/5 kl. 20 UPPS. Fö 26/5 kl. 22:30 UPPS.
Su 28/5 kl. 20 UPPS. Fi 1/6 kl. 20 UPPS.
Fö 2/6 kl. 20 UPPS. Fö 2/6 kl. 22:30 UPPS.
Má 5/6 kl. 20 Þri 6/6 kl. 20 UPPS.
Fö 9/6 kl. 20 UPPS. Fö 9/6 kl. 23
Má 12/6 kl. 20 Þri 13/6 kl. 20
VILTU FINNA MILLJÓN?
Su 21/5 kl. 20 Fi 25/5 kl. 20
Fö 26/5 kl. 20 Mi 31/5 kl. 10 UPPS.
Fö 2/6 kl. 20 Lau 3/6 kl. 20
Má 5/6 kl. 20 Fi 8/6 kl. 20 UPPS.
Fö 9/6 kl. 20 Lau 10/6 kl. 20
HLÁTURHÁTÍÐ
Fi 25/5 kl. 22:30
BANANABIKARINN MIÐAVERÐ 1.000
Leikarar frá Leikfélagi Reykjavíkur og Leik-
félagi Akureyrar, keppa í leikhússporti.
Su 28/5 kl. 20:00
HLÁTURNÁMSKEIÐ MIÐAVERÐ 1.000
Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helgason
kenna hláturjóga.
BELGÍSKA KONGÓ
Mi 24/5 kl. 20 UPPS.
SÍÐUSTA SÝNING
NAGLINN
Fi 1/6 kl. 20
SÍÐASTA SÝNING
TENÓRINN
Lau 27/5 kl. 20
SÍÐASTA SÝNING
25 TÍMAR
DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN 2006
9 verk verða frumsýnd sem keppa til
verðlauna.
Fi 8/6 kl. 20
Teldu mig með. Höf. Ólöf Ingólfsdóttir og
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman.
Elsku bróðir. Höf. Steinunn Ketilsdóttir.
Blind ást. Höf. Rebekka Rán Samper.
Tommi og Jenni. Höf. Elma Backman, Stefán
Hallur Stefánsson ogHalldóra Malín Pétursd.
Boðorðin 10. Höf. Marta Nordal.
Guðæri. Höf. Ólafur Darri Ólafsson og Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir
Dillir dó og Dummi. Höf. Benóný Ægisson.
Shoe size nine months. Höf. Peter Anderson.
Stigma. Höf Andreas Consantinou.
MIÐAVERÐ 2.500. Miðasala hafin.
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
MIÐASALA OPIN
ALLAN SÓLAR-
HRINGINN Á NETINU.
Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september!
Vegnar mikillar aðsóknar: Aukasýningar í september!
Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Lau 9/9 kl. 19 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Sýningar í fullum gangi.
Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sýningar í fullum gangi.
Leiklistarnámskeið á Akureyri í júní.
! " #
$$$
%
! "
# $
% # &'()*++,
% #
-.. &// )().(01 23 -'145(, '&0-60(0
$
# &'()*++,
&'()*++,
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Laugarnesskóli 70 ára
Sögusýning í sal skólans laugardag
og sunnudag kl. 11-16.
Kosningarminjar fyrri ára
Sýning í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15,
1. hæð. Opin kl. 13-17.
Ókeypis aðgangur – allir velkomnir
100 ára hús
eftir Jón Atla Jónasson
Lokasýningar í Reykjavík
Aukasýningar vegna mikillar
eftirspurnar
Miðvikudagur 24. maí kl 22:00
Fimmtudagur 25. maí kl 22:00
Föstudagur 26. maí kl 22:00
Takið eftir óvenjulegum
sýningartíma
Sýnt á Ylströndinni í Nauthólsvík
Munið hlýlegan klæðnað
í vorstemningunni
Miðasala í síma 899 8163
fruemilia@simnet.is
og við innganginn.
www.100arahus.blogspot.com
OPNAÐ hefur verið fyrir
sumarið á Minjasafni Aust-
urlands og nýja grunnsýn-
ingin, „Sveitin og þorpið“,
ásamt sýningu á forn-
munum frá Þjóðminjasafni
Íslands, er nú opin alla
daga frá kl. 11–17. Enn-
fremur er vakin athygli á
þeirri nýjung að aðgangur
er ókeypis á miðviku-
dögum, og á þeim dögum
frá 14. júní til 30. ágúst
verða þjóðháttadagar viku-
lega kl. 17.30–20. Þátttaka
í handverki á þjóðhátta-
dögum kostar 500 kr. Að-
gangseyrir í safnið er 400
kr. á mann og frítt er inn
fyrir börn. Afsláttur er
veittur hópum og eldri
borgurum.
Morgnblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Frá Minjasafni Austurlands.
Sumaropnun í
Minjasafni Austurlands