Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frú dómari Guðrún Erlendsdóttir á morgun  „Bíðið augnablik.“ Allir litu við. „Ég þarf að mála á mér varirnar.“ HJÁ plastbátasmiðjunni Seiglu ehf. á Grandagarði var á mánudaginn dregin út nýjasta smíði fyrirtækisins, sú 25. í röðinni. Um er að ræða ferðamanna- og veiðibát fyrir Reimar Vilmundarson, skipstjóra í Bolungar- vík, sem fengið hefur nafnið Sædís ÍS 67. Að sögn Hrannar Ásgeirsdóttur hjá Seiglu ehf. er þessi nýi bátur, Seigur 1250, smíð- aður með hátæknilegri lofttæmingaraðferð og hannaður með farþegavænu lundanefi til að minnka högg í brælu. Báturinn er 12,3 m langur, 1,45 m mælist 14,91 brúttótonn og sameinar fiski- og farþegabát fyrir 30 manns. Lestin tekur 13 stk. af 660 lítra fiski- körum. Í lúkarnum er svefnpláss fyrir 4 til 5 menn. Hámarksganghraði er 30 sjómílur, þægilegur ferðahraði er 23 til 25 sjómílur og olíueyðslan er u.þ.b. 3 lítrar á sjómílu. Hann er með Volvo Penta D-12 715 hp vél, gír ZF-325 IV og niðurgírun er 2,0. Hrönn segir að báturinn hafi fengið gælunafnið Seigur 1250 LC (Limited Convertible) en hann er þannig útbúin að mjög auðvelt er að taka aft- ari hluta yfirbyggingarinnar af og setja þil í staðinn og er lestarkarmur einnig umskipt- anlegur fyrir hleðslulúgu fyrir farangur. „Hann er búin fellikili sem er 4,5 x 0,4 m, sem hefur mikið vægi fyrir sjóhæfni báta. Okkur hjá Seiglu þykir þetta bráðsnjöll hug- mynd hjá Reimari að sameina bát fyrir fisk- veiðar og farþegasiglingar og teljum að það sé stækkandi markaður fyrir svona báta, þar sem kvótinn fer minnkandi og ferðamennska eykst. Nú þegar hefur komið fyrirspurn um annan svona útbúinn bát,“ segir Hrönn. Reimar er ánægður með bátinn og segir að þegar sé búið að bóka á hann 1200 far- þega og þeir fyrstu séu farnir að bíða fyrir vestan. „Við verðum með bátinn í ferðum með far- þega á Hornstrandir, frá Norðurfirði í Reykjafjörð og Hornvík á sumrin, og einnig í styttri sérferðum með farþega, en næsta vet- ur er hugmyndin að setja hann á netaveiðar og veiða ýsu í Djúpinu, segir Reimar. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Bátar Eigendur Seiglu ehf., Hrönn Ásgeirsdóttir, Sverrir Bergsson og Sigurjón Ragnarsson, ásamt Reimari Vilmundarsyni, eiganda bátsins, og stýrimanninum Sigurði Stefánssyni. Nýr Seigur, ferðamanna- og veiðibátur til Bolungarvíkur Eftir Kristin Benediktsson krben@internet.is FISKISTOFNAR á alþjóð- legum hafsvæðum eru of- veiddir og eru í útrýming- arhættu. Skýringin er ólöglegar fiskveiðar og veiðar í botntroll á úthöf- unum, samkvæmt skýrslu frá alþjóðlegu náttúru- verndarsamtökunum WWF. Í skýrslunni segir að nú- verandi svæðisstjórnun dugi ekki til að bregðast við vandanum, þar sem ekki sé nóg að gert til að framfylgja settu hámarki um afla og uppbyggingu fiskistofna sé ekki sinnt. Sagt er að fiskitegundir eins og túnfiskur og búri séu í verulegri hættu. „Í ljósi hættuástands um heim allan og stöðugrar ógnunar við lífkerfi hafsins vegna ofveiði og notkunar veiðarfæra, sem eru skaðleg fyrir náttúruna, er nauðsynlegt að alþjóðasam- félagið grípi til tafarlausra aðgerða,“ segir Simon Cripps, stjórnandi sjávardeildar WWF. Í skýrslunni segir að ólöglegar veiðar mjög hreyfanlegs flota undir stjórn alþjóðlegra fyr- irtækja sé mesta ógnunin við lífríki sjávarins. En ríkisstjórnum er líka sendur tóninn vegna ofveiða. Gífurleg umframveiðigeta fiskiskipa- flotanna, ofveiði og áhugaleysi um uppbygg- ingu fiskistofna, skortur á varkárni, þar sem upplýsingar séu af skornum skammti sé lýs- andi um þá fiskveiðistjórnun sem nú sé ríkjandi. Fjallað er um skýrsluna á fréttavef BBC og þar segir fréttamaðurinn Matt McGrath að á úthöfunum, þar sem eftirlit skorti sé staða fiskistofna verst. Stjórnun veiða á þessum al- þjóðlegu hafssvæðum sé í höndum sérstakra svæðisstjórna, sem séu skipaðar af þeim þjóð- um sem hagsmuni eigi að verja. Samkvæmt WWF, hefur fæstum þessara svæðisstjórna tekizt að stjórna veiðunum á sjálfbæran hátt. Ákvörðunartaka sé slæm og svæðisstjórnirnar skorti úrræði til að hafa stjórn á skipum frá löndum sem hunzi reglugerðir um veiðarnar. Skýrsluhöfundar beina því til Sameinuðu þjóðanna að þær endurskoði afstöðu sína til veiða á úthöfunum og styrki möguleika svæð- isbundinna yfirvalda til að taka á brotum þeirra sem virða lög og reglur að vettugi. „Þetta verður að stöðva og þar verður að gera fljótt. Það er von, ef það tekst að koma veiði- stjórnunni í rétt horf og fylgja henni eftir,“ segir Cribbs. Vara við ofveiði á úthöfunum Ljósmynd/Landhelgisgæzlan Veiðar Landhelgisgæzlan fylgist með ólöglegum veiðum skipa á Reykjaneshrygg. Afskipti af þeim eru ólögleg utan landhelgi. ÚR VERINU „VIÐ viljum hindra að sjálfstæðis- menn komist í leikskólana,“ sagði Kjartan Due Nielsen, formaður Ungra jafnaðarmanna, þar sem fólk úr þeirra röðum var búið að stilla sér upp framan við hliðið að leikskólan- um Tjarnarborg í gær. Með uppstillingunni vildu unglið- arnir vekja athygli á stefnu Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, SUS, um leikskóla. „Við viljum vekja athygli á þeirri ógn sem leikskólum Reykjavíkur stafar af stefnu ungra sjálfstæðismanna og erum á tákn- rænan hátt að verja leikskólann,“ sagði Kjartan. Ungt samfylkingarfólk er með þessu að hefja auglýsingaherferð til að kynna stefnu ungra sjálfstæðis- manna, m.a. í leiksskóla-, orku- og menningarmálum. „SUS hefur verið að álykta um alls konar hluti sem okkur finnast óhugnanlegir. Það hef- ur komið fram, að þeir telja opinbera styrki til menningar- og menntamála ekki eiga rétt á sér, segja að leik- skólar séu tímaskekkja og vilja selja Orkuveitu Reykjavíkur,“ sagði hann og bætti við að ungliðar í sínum flokki vildu gjaldfrjálsa leikskóla og frekari styrki til menningarmála. „Við vildum vekja athygli á því hvaða málefni brenna á ungum sjálf- stæðismönnum, því nokkrir úr þeirra hópi, eins og Bolli Thorodd- sen og Helga Kristín Auðunsdóttir, eru ofarlega á lista til borgarstjórn- arkosninga, auk þess sem Gísli Mar- teinn Baldursson er ein helsta von- arstjarna þeirra.“ Ungir jafnaðarmenn gagnrýna unga sjálfstæðismenn Morgunblaðið/Jim Smart „Viljum verja leikskólana“ MEIRA en sexfaldur munur var á hæsta og lægsta tilboði í vinnu við að girða meðfram Jökulsá á Dal en til- boð voru nýverið opnuð. Boðið var út í tvennu lagi, annars vegar girðingu með Jökulsá á neðra svæði en þar felst verkið í að reisa um 22 km langa rafgirðingu í Hróarstungu og 1,5 km netgirðingu ásamt endurbótum á 6,7 km girðingu á Neðra-Jökuldal. Einnig var boðin út girðing meðfram Jökulsá á efra svæði. Þar felst verkið í að reisa 23 km langa rafgirðingu á Efri-Jökuldal innan Brúar. Lægsta tilboð í bæði verkin átti girðingafyrirtækið Girðir ehf. sem bauð rúmar fjórtán milljónir króna í verkið á neðra svæði en tæpar tólf milljónir króna í verkið á efra svæð- inu. Næsthæsta tilboð á neðra svæði hljóðaði upp á rúmar 45 milljónir króna og hæsta tilboðið upp á tæpar 90 milljónir króna. Hóflegri voru boðin í verkið á efra svæði en þar var næsthæsta tilboð 16 milljónir króna og hæsta verðið hljóðaði upp á 60 milljónir króna. Árni G. Svavarsson, forstjóri Girð- is, segir tilboð fyrirtækisins afar raunhæf og una þeir sáttir við útboð- ið. Aðspurður gat hann hins vegar ekki skýrt hvers vegna svo gríðar- legur munur var á tilboðum í útboð- inu en benti þó á að hin fyrirtækin sérhæfðu sig ekki í girðingavinnu. Girðir ehf. var stofnað árið 1995 og er alhliða girðingaverktaki. Fyrir- tækið sérhæfir sig í margskonar girðingum, s.s. öryggisgirðingum, skjólveggjum og rafmagnsgirðing- um. Árni segir að um leið og gengið verði frá samningum verði farið í vinnu við að girða við Jökulsá og er áætlað að verkið taki um tvo mánuði. Sexfaldur munur á tilboðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.