Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 39
UMRÆÐAN
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
Á undanförnum árum hafa orðið verulegar breyt ingar á starfs-
umhverfi íslenskra lögfræðinga, sem kalla á nýjar og markvissar
áherslur í laganámi. Við lagadeild Háskólans í Reykjavík er í
boði metnaðar fullt og nútímalegt laganám, sem miðar að því að
útskrifaðir nemendur verði framúrskarandi lög fræðingar og
í fremstu röð á sínu sviði.
Umsóknarfrestur er til 29. maí.
Allar nánari upplýsingar á
www.ru.is og hjá námsráðgjöfum
í síma 599 6200.
UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 29. MAÍ
OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK
HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 599 6200 • www.ru.is
METNAÐARFULLT OG
NÚTÍMALEGT LAGANÁM
„Ég tel þá ákvörðun mína að hefja nám við lagadeild Háskólans í
Reykjavík vera eina þá bestu sem ég hef tekið. Kennarar og aðrir
starfsmenn skólans eru vingjarnlegir og hjálpsamir í alla staði,
aðstaðan til fyrirmyndar og námið skemmtilegt og krefjandi. Sá
háttur að tengja námið við raunverulegar aðstæður strax frá
byrjun færir mann nær lesefninu og eykur skilning og áhuga.”
Bergþóra Halldórsdóttir, laganemi á 2. ári
í Háskólanum í Reykjavík.
UNDANFARIN misseri hafa
bæjaryfirvöld í Kópavogi þjarmað
að íbúum í Vatnsendahverfi sem
áttu þar heimili og eignir áður en
nýtt skipulag tók gildi. Um var að
ræða venjulega Kópavogsbúa á
heimilum og með land á leigu til
99 ára. Í dag eru nýir leigusamn-
ingar í Kópavogi til 50 ára og fyrir
þá greiðir fólk nokkrar milljónir,
þeir sem eru þá svo ótrúlega
heppnir að fá lóð. Því hljóta verð-
mæti að felast í slíkum samn-
ingum. Ekki er það þó skilningur
bæjaryfirvalda sem vilja yfirtaka
eldri lóðarleigusamninga á Vatns-
enda bótalaust. Það hefur þótt fá-
dæma frekja og yfirgangur íbúa
að krefjast bóta fyrir lóðaleigu-
samninga sem tryggja átti þeim
áframhaldandi afnotarétt lóða
sinna. Í mörg ár hafa íbúar reynt
að standa vörð um réttindi sín og
hafa ráðamenn bæjarins allan
þann tíma sagt að lóðarleigusamn-
ingar þeirra væru einskis virði,
Kópavogsbær ætti landið og því
óþarfi að greiða bætur vegna yf-
irtöku þess. Þetta land og jafnvel
heimili hafa nú verið brytjuð niður
og góðum hluta þess úthlutað til
braskara. Þeir hafa fengið að hag-
ræða skipulagi og hagnast vel á
þessu sama landi sem bærinn full-
yrðir að sé verðlaust. Matsnefnd
eignarnámsbóta hefur aftur á móti
komist að annarri niðurstöðu og
nýlega úrskurðað að leiguland á
þessu svæði skuli meta á um 4.000
kr./m2, sem er þó miklu lægra
verð en braskararnir hafa getað
þetta fengið fyrir þetta sama land.
Bæjaryfirvöld töldu matið allt of
hátt, það myndi sprengja upp lóð-
arverð og gerði það að verkum að
bærinn myndi eiga í erfiðleikum
með að kaupa meira land til frek-
ari uppbyggingar í bæjarfélaginu.
Það má e.t.v. skilja slík sjónarmið,
eigi maður að trúa því að bæjar-
félaginu sé í alvöru umhugað um
að fara vel með fjármuni bæj-
arbúa og vilji geta boðið upp á
ódýrt byggingarland í framtíðinni.
Því freista bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi þess nú að fá úrskurði mats-
nefndar hnekkt og vona þar með
að þeir geti fengið landið af íbúum
Vatnsenda fyrir lítinn eða engan
pening. Á meðan beðið er eftir
nýju mati er allt annað uppi á ten-
ingnum þegar yfirtaka á eignir á
Gustssvæðinu. Þar er ekki verið
að gæta aðhalds í fjármálum bæj-
arins, né þess að lóðarverð fari
upp úr öllu valdi. Þar ætlar bær-
inn að borga bröskurum 67.000
kr./m2 af landi eða um átjánfalt
meira en eignarnámsnefndin mat
land undir íbúðarhúsnæði á Vatns-
enda. Eru 50 ára lóðarleigusamn-
ingar undir hesthús svo miklu
verðmætari heldur en 99 ára
samningar undir íbúðarhúsnæði?
Hefðu íbúar á Vatnsenda fengið
sömu hröðu höfðinglegu fyrir-
greiðsluna hjá bænum ef þeir
gætu hneggjað eða væru alræmdir
braskarar? Hvernig fer með frek-
ari kaup á nýju landi ef á það hafa
verið settar svo ótrúlegir verð-
miðar? Hér hefur meirihlutinn í
Kópavogi endurtekið leikinn ofan
af Vatnsenda, með
nýjum afbrigðum
þó. Það er verið að
leika sér með eigur
bæjarbúa, verðmæt-
um er komið í hend-
ur braskara undir
því yfirskini að það
skapi virðisauka fyr-
ir bæinn og vegna
þess að braskar-
arnir voru að kom-
ast í þrot! Eykur
það virðingu Kópa-
vogsbæjar ef ráða-
menn bæjarfélagsins leggjast í
hjálparstarf við að aðstoða
óprúttna aðila við að leika sér með
eigur bæjarbúa, rústa starfsemi
heilu hestamannafélaganna svo
braskararnir geti grætt? Það er
eitthvað stórkostlegt að
forgangsröðun í þessu
bæjarfélagi. Meirihlut-
inn í Kópavogi hefur
skipað hagsmunum
braskara ofar en hags-
munum hins almenna
íbúa. Braskaraleikurinn
virðist sífellt endurtaka
sig í svæsnari myndum.
Kópavogsbúar! Lítið
eftir eignum ykkar,
hugsið um hvað verið
er að gera við fjármuni
bæjarins – það ganga
lausir ósvífnir braskarar, sem
bæjaryfirvöld fóðra með peningum
okkar Kópavogsbúa.
Er geggjað að geta hneggjað
í Kópavogi?
Jóhann Björgvinsson fjallar
um gamlar eignir og nýja tíma ’Meirihlutinn í Kópavogihefur skipað hagsmunum
braskara ofar en hags-
munum hins almenna
íbúa.‘
Jóhann Björgvinsson
Höfundur er verkfræðingur
og býr í Vatnsendahverfi.
Kristinn Pétursson: „Endur-
vinna gagnagrunna ICES og
Hafró“
Þorsteinn Gestsson fjallar um
vímuefni.
Kosningar 2006
www.mbl.is/kosningar
Magnús Helgi Björgvinsson:
„Framganga Sjálfstæðismanna í
Gustsmálinu.“
Edda Björgvinsdóttir: „Nötur-
legur Hafnarfjarðarbrandari.“
Svanur Sigurbjörnsson:
„Frjálslyndir besti kosturinn.“
Vilborg Halldórsdóttir: „Flug-
móðurskip Björns Inga“
Toshiki Toma: „Spurning til
allra frambjóðenda.“
Magnús Helgi Björgvinsson:
„Kópavogsbúar skuldsettir um
110 þúsund“
Gunnar G. Bjartmarsson:
„Kosningaloforðin“
Magnús Helgi Björgvinsson:
„Sjálfstæðismenn lesa Mogg-
ann“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar