Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 80
'  &  ( " )  4 . *E '%*M% .#M 0      &2 *       N N N N N N SÁRASÓTTAR- eða sýfilistilfellum hefur fjölgað hér á landi síðustu árin en sjúkdómurinn var sárasjaldgæfur hér á landi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Ekki eru fyrirliggj- andi einhlítar skýringar á orsökum þessa en sambærilega þróun má greina í nágrannalöndunum. Frá árinu 2000 hafa greinst hér 2–9 tilfelli árlega, flest á árabilinu 2000–2002. Flest eru tilfellin meðal innflytjenda sem smitast erlendis og greinast við eftirlit við komu til landsins, að því er fram kemur í far- sóttarfréttum landlæknisembættis- ins. Flestir eru einstaklingarnir á aldrinum 20–39 ára og virðist sjúk- dómurinn algengari á meðal karla en kvenna. Getur verið erfiður sjúkdómur Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir að embættið verði vart við fleiri tilfelli en áður og vilji vekja athygli almennings á þessu. Stök tilfelli hafi greinst hér áður fyrr, en smitanirnar undanfarin ár séu langt umfram það sem búist hafi verið við. „Menn sjá þetta svolítið í ná- grannalöndunum líka og þetta virð- ist tengjast karlmönnum frekar en konum,“ sagði Haraldur. Hann bætti við að menn væru að velta fyrir sér hvort þetta tengdist sérstaklega samkynhneigðum karl- mönnum, en sjúkdómsins gætti líka hjá konum. „Það er almennt viss aukning í þessum efnum og það er eitthvað sem verður að hafa í huga,“ sagði hann ennfremur. Hann sagði að í sjálfu sér væri ein- falt að meðhöndla sárasótt, en sjúk- dómurinn gæti verið erfiður í grein- ingu, sérstaklega ef hann greindist ekki á frumstigi þegar staðbundið sár kæmi fram. Sárið hyrfi og ef sjúkdómurinn væri ekki meðhöndl- aður færi hann yfir á annað stig sem gæti verið mjög erfitt í greiningu. Ef það væri ekki meðhöndlað færi sjúk- dómurinn yfir á þriðja stig og yrði krónískur sjúkdómur sem legðist á æða- og miðtaugakerfið. Það væri því mjög mikilvægt að greina sjúk- dóminn og meðhöndla strax. Haraldur benti jafnframt á að kynsjúkdómar væru því marki brenndir að þeir kæmu í bylgjum. „Við viljum auðvitað reyna að stöðva þetta og koma í veg fyrir að þetta verði að faraldri. Til þess þarf að greina sjúkdóminn og meðhöndla strax, því það er leiðin til að stöðva útbreiðslu hans,“ sagði Haraldur. Hann bætti því við að fólk þyrfti almennt að viðhafa varúð við skyndi- kynni og nota smokkinn. Sárasótt- artilfellum fjölgar hér á landi Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. www.xf.is www.f-listinn.is KALT hefur verið á landinu undan- farna daga og hefur kuldinn haft áhrif á sprettu hjá bændum, að sögn Ólafs Dýrmundssonar, ráðunautar hjá Bændasamtökum Íslands. Ólafur segir að eftir hlýindaskeið í fyrstu og annarri viku maí hafi kólnað og verið fremur þurrt í veðri. Því kaldara sé eftir því sem norðar dregur. Kuldinn hafi þau áhrif að lítið spretti. „Það var svolítið farið að spretta um daginn, sérstaklega í túnum, en enn er eiginlega engin spretta í út- haga,“ segir Ólafur. Hann bendir á að víða sé sauðburð- ur enn í fullum gangi en sums staðar sé honum lokið. Erfitt sé fyrir ærnar að vera með lambféð mjög lengi á húsi. Þá skipti miklu þegar féð kemur úr húsi að gróður hafi sprottið. „Nú vonast bændur innilega eftir því að það fari að hlýna og rigna svo- lítið líka,“ segir Ólafur einnig. Á þess- um árstíma muni um hvern dag fyrir bændur, meðal annars vegna tún- anna. „Menn eru farnir að bera á tún, sem skiptir máli upp á það hvenær þeir geta byrjað heyskap. Þeir sem eru með skógrækt og trjáplöntur hugsa líka um veðrið,“ segir hann. Ólafur segir að undanfarin ár hafi verið töluvert um milda vetur. Vorið hafi farið vel af stað en svo hafi komið kuldaskeið. Í fyrra hafi vorað seint en menn voni að svo verði ekki í ár. „Mér finnst þetta líta heldur betur út núna,“ segir Ólafur. Hann kveðst telja að almennt eigi bændur nóg fóður. Hafa beri þó í huga að á norðanverðu landinu hafi vetrað mjög snemma og bændur því þurft að bæta um mánuði við hefð- bundinn fóðurgjafartíma. „Það er hugsanlegt að núna séu heybirgðir orðnar litlar hjá einum og einum bónda. En í heildina hygg ég að það sé allt í góðu lagi og hjá flestum bændum séu nægileg hey.“ Minni spretta vegna kulda Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ærin Þoka vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar allt í einu fór að snjóa og komið langt fram í maí. Þegar frétta- ritari rakst á hana var að stytta upp aftur og Þoka var að athuga hvort ekki væri einhvers staðar gras að hafa. LAUFEY Blöndal, nemi í 8. bekk í Austurbæjar- skóla, sló í vetur met í lestri bóka þegar hún las um 28 þúsund blaðsíður yfir veturinn, en lest- urinn var hluti af námsefninu í bókasafnstímum skólans. „Til að fá okkur til að lesa þá urðum við að lesa 2000 síður fyrir lok ársins til að fá ein- kunn,“ sagði Laufey. Hún sló met sem sett var fyrir tveimur árum. Þá las stúlka 60 bækur yfir veturinn en Laufey las um helmingi fleiri eða 120 bækur. Laufey sagði að hún hefði helst lesið skáldsögur í vetur þar sem henni leiddust fræði- bækur og ekki hefði mátt skrá skólabækur á lestraryfirlitið. Aðspurð um hvaða bækur hún hefði lesið sagði Laufey að hún hefði m.a. lesið sjöttu Harry Pott- er-bókina, Wuthering Heights og bækur eftir Meg Cabot, sem væri hennar uppáhaldsrithöf- undur. Skemmtilegastar þættu henni ævintýra- bækur og unglingabækur en Laufey sagðist einnig hafa lesið bækur á ensku og bætti því við að henni þætti best að lesa bækurnar á uppruna- lega tungumálinu fremur en þýddar bækur. Lesturinn fór fram bæði heima og í skólanum en vinkonur hennar bönnuðu henni að lokum að lesa í frímínútum þar sem ekki hafi verið hægt að ná sambandi við hana, en hún las að jafnaði sex bækur í viku. Laufey bætti því við að henni þætti skemmtilegra að lesa á kvöldin heldur en að horfa á sjónvarpið en hún taldi mikinn lestur bóka ekki vera algengan á meðal krakka á henn- ar aldri, sumar bekkjarsystur hennar læsu tölu- vert en hún greindi ekki mikinn áhuga hjá bekkjarbræðrum sínum. Laufey sagðist ekki skrifa mikið sjálf en hún hefði reynt það nokkr- um sinnum. „Ég hef lesið það mikið að alltaf þeg- ar ég ætla að skrifa eitthvað þá hugsa ég að ég hafi lesið það.“ Um framtíðina taldi Laufey líklegt að hún myndi starfa við eitthvað tengt bókmenntum, t.d. sem bókasafnsfræðingur eða bókmennta- fræðingur, en það væri óráðið að svo stöddu. Hún væri a.m.k. staðráðin í að slá metið að ári. Las 28 þúsund blaðsíður í vetur Morgunblaðið/Ómar Laufey Blöndal við bókaskápinn heima. Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is BJÖRK Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi og formað- ur velferðarráðs Reykjavíkurborgar, hefur efa- semdir um það fyrirkomulag að fasteignafélagið Nýsir hf. hafi tekið yfir byggingu þriggja fjölbýlis- húsa með 78 íbúðum fyrir aldraða á Markarreitn- um á Suðurlandsbraut, en Reykjavíkurborg út- hlutaði sjálfseignarstofnuninni Markarholti lóðum einvörðungu gegn greiðslu gatnagerðargjalda. „Þegar svona lóðum er úthlutað þá er það með lágmarks gatnagerðargjöldum vegna þess að gert er ráð fyrir samfélagslegri uppbyggingu. Það var sjálfseignarfélag sem fékk úthlutunina og það má ekki hagnast á þessu,“ segir Björk. „Félagið var þarna til að þjóna ákveðnum hópi borgarbúa, þ.e. öldruðum. Ef félagið framselur þessa eign yfir til hlutafélagsins Nýsis þá verðum við að skoða hvort það sé í lagi. Að sjálfsögðu hef ég efasemdir um þetta því að þegar borgin úthlutar lóð til að ýta undir uppbyggingu þjónustuíbúða í borginni þá liggur náttúrlega ekki sú hugsun að baki að velvild borgarinnar verði framseld til fjármagnsfyrirtæk- is sem hagnast af því. Þetta var hugsað sem þjón- ustuíbúðir sem yrðu í tengslum við hjúkrunar- heimili og þá þjónustu sem þarna yrði byggð upp. En ég veit ekki hvaða hugmyndir Nýsir hefur um slíka uppbyggingu og auðvitað vil ég skoða það.“ Keypti félagið háu verði Nýsir keypti Mörkina eignarhaldsfélag ehf. og tók við verkinu fyrir fáeinum vikum og herma heimildir Morgunblaðsins að það hafi verið gert að beiðni Landsbanka Íslands. Gert hefur verið ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar verið tilbúnar í ársbyrjun 2007, en það var áður en Nýsir tók við. Að sögn Sigfúsar Jónssonar, framkvæmdastjóra Nýsis, má búast við að þessi áætlun standist með því að íbúð- irnar verði tilbúnar á fyrri hluta næsta árs. Hann segir Nýsi hafa keypt Mörkina eignahaldsfélag ehf. á háu verði en kaupverðið sé trúnaðarmál. Hlutafélagið og byggingaráfangann hafi Nýsir keypt og tekið yfir skuldir félagsins um leið. Þessa dagana er Nýsir í miðjum klíðum við yf- irtökuna og eftir er að ljúka málinu gagnvart Reykjavíkurborg að sögn Sigfúsar. Viðræður við borgina standa yfir um það hvernig ljúka eigi ferl- inu. Hann segir það mikið hagsmunamál fyrir borgina að byggja upp almennilega þjónustu og gott samfélag fyrir aldraða á staðnum. Hann segir umræddar lóðir alltaf verða í eigu Reykjavíkur- borgar en lóðaleigusamning við borgina sé eftir að klára. Um það hvort Nýsir hafi með þessu komist yfir mikið fyrir lítið vísar hann til þess að kaup- verðið hafi verið hátt og áreiðanleikakönnun standi yfir um þessar mundir. Formaður velferðarráðs með efasemdir vegna yfirtöku Nýsis á íbúðum fyrir aldraða Á ekki að framselja vel- vild til fjármálafyrirtækis Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.