Morgunblaðið - 20.05.2006, Side 4
4 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LJÓN og ljónynja bætast í hóp dýr-
anna í Veiðisafninu á Stokkseyri á
næstunni. Páll Reynisson, annar
stofnenda safnsins, felldi stórt karl-
ljón í Kimberley í Suður-Afríku í gær.
Hann hafði áður fellt ljónynju 11. maí
síðastliðinn. Morgunblaðið náði tali af
Páli í gær og var hann ánægður með
vel heppnaða veiðiferð þeirra Fríðu
Magnúsdóttur, konu hans og hins
stofnanda Veiðisafnsins.
„Ég er fimmtugur í dag, 19. maí, og
hét því fyrir 25 árum að fella ljón á
fimmtugsafmælisdaginn,“ sagði Páll.
„Í þetta fóru reykingapeningarnir
sem ég hef sparað frá 1993 – en ég
fékk mér þó vindil í tilefni dagsins, en
bara einn.“
Ljónin felldi Páll með sömu
skammbyssunni, en hann hefur sér-
hæft sig í veiðum með skamm-
byssum. Byssan sem hann notaði er
af gerðinni Thompson Center Encore
fyrir skothylki .375-06 JDJ.
Þau Fríða höfðu í gær fellt 8–9
antilópur af ýmsum tegundum í þess-
ari veiðiferð. Páll sagði að Fríða hefði
einnig lagt af velli gríðarstóran fjalla-
sebra, sem er sérstök deilitegund
sebradýra og mun fágætari en
sléttusebrarnir.
Páll og Fríða stunda svonefndar
verðlaunagripaveiðar (trophy hunt-
ing), sem eru mikilvægur atvinnu-
vegur í mörgum Afríkulöndum.
Veiðunum er stýrt með grisjun villi-
dýrastofna að markmiði og veiði-
leyfin seld. Veiðimennirnir lúta
föstum reglum og sækjast eftir dýr-
um sem bera einkenni aldurs og lík-
amsþroska á borð við stærð horna og
annarra líkamshluta. Þessi dýr eru
gjarnan þau elstu í hjörðunum og
hafa oftar en ekki lokið hlutverki sínu
við viðhald stofnsins.
Páll Reynisson á villidýraveiðum í Suður-Afríku
Felldi ljón á fimmtugsafmælinu
Ljósmynd/Morgan Harris
Páll Reynisson við karlljónið sem hann felldi með skammbyssu á afmælinu.
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands
hefur sent frá sér tilkynningu þar
sem það fagnar yfirlýsingum frá
fulltrúum Samfylkingarinnar,
Vinstri – grænna, Frjálslyndra og
Framsóknarflokksins um að engin
áform séu uppi hjá þeim um að
leggja á bílastæðagjöld við háskóla
og framhaldsskóla. Ánægja ríki í
ráðinu með þá þverpólitísku sam-
stöðu allra flokka sem myndast hef-
ur um málið.
Í tilkynningunni kemur ennfrem-
ur fram að í ályktun ráðsins frá 17.
maí síðastliðnum lýsi ráðið sig mót-
fallið upptöku bílastæðagjalda og
bendi á aðrar leiðir sem vel væru til
þess fallnar að bæta samgöngur
borgarinnar. Þær felist í að huga vel
að skipulagi borgarinnar og þétta
byggð, auðvelda gangandi fólki og
hjólreiðafólki að komast leiðar sinn-
ar, standa myndarlega að almenn-
ingssamgöngum, t.d. með því að
veita stúdentum afslátt eða gera þær
gjaldfrjálsar, og að nauðsynlegt sé
að fjölga stúdentaíbúðum í nágrenni
háskólans.
Stúdentar
fagna yfir-
lýsingum
flokkanna
SUÐUR-AFRÍSKA söngkonan
Miriam Makeba sagðist aldrei hafa
trúað því að hún myndi fá tækifæri
til þess að sækja Ísland heim, en hún
er nú stödd hér á landi og syngur í
dag fyrir Íslendinga í Laugardals-
höll, á tónleikum sem eru á vegum
Listahátíðar í Reykjavík. Hún hitti
aðstandendur Unicef á Íslandi á
Hótel Nordica í gær en Makeba er
velgjörðarsendiherra Sameinuðu
þjóðanna.
„Ég er afar lánsöm að hafa fengið
tækifæri til þess að heimsækja Ís-
land svo ég gæti sagt: „Halló og
bless“,“ sagði söngkonan þegar hún
ræddi við blaðamenn.
Makeba hefur í áraraðir verið í
fremstu röð listamanna heims og er
af mörgum talin áhrifamesti sendi-
herra Suður-Afríku. Hún greindi
stuttlega frá starfinu sem velgjörð-
arsendiherra og hún kvaðst vera af-
ar glöð yfir því að Unicef á Íslandi
væri að vinna að þróunaraðstoð í
Afríku, þá sérstaklega hvað varðar
aðstoð handa stúlkum og konum.
Makeba benti á að allar þessar
stúlkur yrðu eflaust mæður ein-
hverra einn góðan veðurdag. „Þess-
ar mæður skipta okkur öll miklu
máli því þær halda á okkur, fæða
okkur og sjá um okkur þangað til við
erum orðin fær um að sjá um okkur
sjálf. Og jafnvel ef þær eiga drengi
þá annast þær þá þar til þær af-
henda þá öðrum konum sem munu
halda áfram að annast þá, en þá sem
eiginkonur þeirra,“ sagði Makeba
glottandi. „Án mæðra er engin þjóð
til,“ bætti söngkonan við.
Vill hjálpa ungum
stúlkum í Afríku
Makeba sagðist vera kölluð ýms-
um nöfnum í Afríku af þeim sem
vilja þakka henni fyrir stuðning
hennar við íbúa álfunnar, m.a.
„Mama Africa“. „Af hverju vill ein-
hver setja heila heimsálfu á axlir
mér; hún er of þung,“ sagði Makeba
og hló. „En fólk kallar mig þetta af
væntumþykju því það telur að ég
hafi kannski gert eitthvað fyrir álf-
una.“
Hún segist hafa tekið þá ákvörðun
á sínum tíma að hún vildi einbeita
sér að því að hjálpa ungum stúlkum í
Afríku. Hún segir margar þeirra
eiga hvergi höfði að að halla, hafi
verið misnotaðar og margar hafi
hlaupist að heiman í leit að betra lífi.
„Ég ákvað að stofna sérstakt heimili
fyrir stúlkur sem kallast „Miðstöð
Makeba fyrir stúlkur“,“ sagði hún
og bætti því við að miðstöðin, sem er
í Suður-Afríku, væri þriggja ára
gömul. Unnið væri að því að safna fé
svo hægt væri að byggja fleiri skýli
fyrir stúlkur, en miðstöðin getur
hýst 18 stúlkur í einu. Hún segir að
þetta gangi ágætlega en þó ekki bar-
áttulaust.
Við upphaf fundarins notaði Glitn-
ir tækifærið og afhenti Unicef gjöf
að upphæð 1,1 milljón króna. Fram
kom að á sjávarútvegssýningunni í
Brussel í síðustu viku hafi Glitnir
efnt til uppboðs á áritaðri treyju
knattspyrnugoðsins Ronaldinho og
tveimur miðum á úrslitaleik Meist-
arakeppni Evrópu í knattspyrnu.
Treyjan og miðarnir seldust á 5.500
evrur og skuldbatt Glitnir sig til að
koma með sama mótframlag til
Unicef. Stefán Ingi Stefánsson,
framkvæmdastjóri Unicef, þakkaði
Glitni fyrir framlagið og greindi í
framhaldinu stuttlega frá starfi
Unicef í Afríku.
Undir lok fundarins brast Makeba
í söng, enda sagðist hún vera betri
söngkona en ræðumaður, og það
þótti við hæfi að hún syngi óð til
móðurinnar.
Glöð að fá tækifæri til þess
að kasta kveðju á Íslendinga
Morgunblaðið/Jim Smart
Listamaðurinn Miriam Makeba
syngur í dag í Laugardalshöll.
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
MEIRIHLUTI Samfylkingar og
Framsóknarflokks í Árborg er fall-
inn ef marka má niðurstöður skoð-
anakönnunar Gallups hér að lút-
andi. Flokkarnir tapa miklu fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn vinnur veru-
lega á og einnig VG. Samkvæmt
könnuninni fengi Sjálfstæðisflokk-
urinn rúmlega 43% atkvæða og
fjóra menn kjörna, en hann fékk
25% atkvæða fyrir fjórum árum og
tvo menn kjörna. Samfylking nýtur
stuðnings 26% aðspurðra og fengi
tvo bæjarfulltrúa. Flokkurinn fékk
rúmlega 40% atkvæða og tvo menn
kjörna síðast.
Framsókn fengi 18,5% atkvæða
og tvo bæjarfulltrúa, en flokkurinn
hefur nú þrjá og fékk 28% atkvæða
árið 2002. Vinstri grænir, sem ekki
eiga bæjarfulltrúa í Árborg, fara úr
rúmum 6% 2002 í 12% samkvæmt
könnun Gallup og fá einn mann
kjörinn.
Samkvæmt könnuninni munar
ekki miklu á því að þriðji maður
Samfylkingar eða fimmti maður
Sjálfstæðisflokks fari inn á kostnað
Framsóknar.
30% aðspurðra segja að ölvunar-
akstur Eyþórs Arnalds dragi úr lík-
um á að þeir kjósi Sjálfstæðisflokk-
inn, en tveir þriðju aðspurðra sögðu
að það hefði engin áhrif.
Skoðanakönnun Gallup
Meirihlut-
inn í Ár-
borg fallinn
TVEIMUR nýjum spákortum hef-
ur verið bætt á veðurvef mbl.is.
Annars vegar korti sem sýnir hita-
stig og
loftþrýst-
ing og
hins veg-
ar korti
sem sýnir úrkomu og loftþrýsting.
Um er að ræða fimm daga spár
sem eru endurnýjaðar tvisvar á
sólarhring, kl. 6 að morgni og síð-
an kl. 18.00. Hægt er að skoða
kortin með því að smella á myndir
sem er að finna á upphafssíðu veð-
urvefjarins. Þá er sýnd stærri út-
gáfa af kortinu en fyrir neðan er
síðan að finna smærri kort er sýna
spár fram í tímann. Hægt er að
smella á viðkomandi kort til að
skoða stærri útgáfu eða smella á
hnappinn Næsta eða Fyrri til að
færa sig á milli kortanna. Spákort-
in eru fengin hjá Veðurstofu Ís-
lands.
Ný spákort
á veður-
vef mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur fellt úrskurð óbyggðanefndar að
því varðar þjóðlendu á Stórhöfða í
Mýrdalshreppi úr gildi og viður-
kennt kröfu stefnenda um að svæðið
sé ekki þjóðlenda.
Stórhöfði er sameignarland fimm
jarða sem nefndar eru Péturseyjar-
jarðir. Fyrr á öldum var þar aðeins
ein jörð, Pétursey, og Stórhöfðinn
því talinn eign hennar. Péturseyjar-
jarðir hafa um aldir nýtt Stórhöfða
til beitar í stórum stíl enda er lítið
beitiland við Péturseyjarbæina.
Eignarréttur ekki fallið niður
Landið hefur bæði verið nýtt til
sumarbeitar og vetrarbeitar og jafn-
framt hafa Péturseyjarbændur nýtt
þar fýlatekju og veiði. Nú eru um tvö
til þrjú hundruð fjár á Stórhöfða á
sumrin.
Í úrskurði óbyggðarnefndar frá
10. desember 2004 segir að nefndin
telji ekkert benda til þess að Stór-
höfði hafi nokkurn tíma verið nýttur
til annars en beitar og annarra
þröngra nota. Þegar landsvæðisins
sé getið í skriflegum heimildum sé
það tengt upprekstri og afréttarnot-
um. Nefndin taldi jafnframt líkur á
því að Stórhöfði væri innan upphaf-
legs landnáms í Mýrdal og hafi þann-
ig orðið undiropinn beinum eignar-
rétti. Ekkert lægi hins vegar fyrir
um hvernig Péturseyjarjarðir væru
að landsvæðinu komnar.
Rannsókn óbyggðanefndar leiði til
þeirrar niðurstöðu að þar sé þjóð-
lenda.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
fram að í dómi sýslumanns frá 10.
júní 1776, sem mun vera elsta heim-
ild sem fundist hefur um Stórhöfða,
segi m.a. að hann hafi „alltíð verið
fullkominn eigindómur Péturseyjar
að fráteknu því ítaki, sem Keldudal-
ur kunni þar í eiga og enginn megi
sér greint pláts hagnýta framar en
lands-drottinn eður Péturseyjar-
ábúðenda leyfi það eftirláti.“
Dóminum þótti að stefnendur
hefðu haft réttmætar væntingar til
þess að Stórhöfði væri eignarland
þeirra og þótti stefnda ekki hafa tek-
ist að færa sönnur á það að eign-
arréttur hefði fallið niður. Úrskurð-
ur óbyggðanefndar var því felldur úr
gildi og krafa stefnenda um að landið
teldist ekki þjóðlenda viðurkennd.
Viðurkennt að Stórhöfði
sé ekki þjóðlenda
♦♦♦