Morgunblaðið - 20.05.2006, Síða 16

Morgunblaðið - 20.05.2006, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF VIÐSKIPTABANKARNIR þrír og SPRON hafa hækkað inn- og útláns- vexti sína í kjölfar 0,75 prósentustiga stýrivaxtahækkunar Seðlabanka á fimmtudag. Vextir á óverðtryggðum inn- og útlánum hækka um allt að 0,75 prósentustig hjá bönkunum öll- um og SPRON, en hækkanir á verð- tryggðum inn- og útlánum eru mis- munandi eftir fjármálastofnun. Taka breytingarnar gildi 22. maí næstkom- andi. Landsbanki hækkar vexti á verð- tryggðum inn- og útlánum um allt að 0,20 prósentustig, og eru vextir á nýj- um íbúðalánum þar meðtaldir og verða þeir eftir breytingu 4,90%. Hjá KB banka hækka vextir á verð- tryggðum inn- og útlánum um 0,10– 0,20 prósentustig, og hækka vextir á nýjum íbúðalánum um 0,15 prósentu- stig og verða eftir breytingu 4,75%. Hjá SPRON munu vextir á verð- tryggðum inn- og útlánum hækka um allt að 0,30 prósentustig og verða vextir á íbúðalánum hækkaðir sem því nemur og verða eftir breytingu 4,90%. Eins og sagt var frá í Morg- unblaðinu í gær hækkaði Glitnir vexti á verðtryggðum inn- og útlánum um allt að 0,30 prósentustig, þar með taldir vextir á íbúðalánum sem verða eftir breytingu 4,90%. Í öllum tilvik- um er aðeins um að ræða breytingu á vöxtum nýrra lána og hafa vaxta- breytingarnar engin áhrif á kjör þeirra sem þegar hafa tekið íbúðalán hjá viðkomandi lánastofnunum. Viðskiptavinir fari varlega Íbúðalánasjóður breytir vöxtum og lánakjörum sínum aðeins í kjölfar út- boða á íbúðabréfum og ekki liggur fyrir hvenær næsta útboð íbúðabréfa verður haldið. Munu vextir sjóðsins því haldast óbreyttir að svo stöddu. Í fréttatilkynningu frá Landsbank- anum, þar sem vaxtabreytingin var kynnt, segir að ein mikilvæg forsenda þess að ná tökum á verðbólgu, sé að íbúðalán séu veitt á vöxtum sem taki mið af markaðsvöxtum. Með vaxta- hækkun nú vilji Landsbankinn leggja sitt af mörkum til að stöðugleiki nái að ríkja í íslensku efnahagslífi en verðbólgustig hafi mikil áhrif á mán- aðarlega greiðslubyrði íbúðalána og því hafi lántakendur mikla hagsmuni af því að verðbólgu verði haldið niðri. „Í ljósi væntinga um verðbólguþróun á næstunni ráðleggur Landsbankinn viðskiptavinum sínum að fara varlega við lántökur og reyni að halda skuld- setningu innan við 70% af verðmæti eigna,“ segir í tilkynningunni. Lánastofnanir bregðast við stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands Vextir íbúðalána 4,75–4,90% Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is                !  "# #                                    !" #$%  &'   &"    %  #%  () %" %  '%* #% + %*  ,  ,  &  %  -./01 &21#%  3        %   & .0 + %*   4 %*  4. 02%   5 %*   ( "%   672  89& % 8. :;"" %". 0  0 %  < %%   0 %      !" & * =;220   -1>" -0%*  !#$  %& 5?=@ -A0   0 0                     /  /   / /   / / / / ; %" 1 ;  0 0 / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / B /CD B /CD B / CD B /CD B CD B  CD B /CD / B / CD / B CD B /CD B /CD B / CD B /CD / / / / / / / / / / / / 4 * 0   *" % : #0 A  *" E ( -                         /  /   / /  / / / /                                                    < 0   A )$   :4 F "%  &2 *  0         /  /  / /  / / / / ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● FÆREYSKA olíufélagið Atlantic Petroleum, sem er skráð í Kauphöll Íslands, tapaði 2,3 milljónum danskra króna, 28 milljónum ís- lenskra króna, á fyrsta fjórðungi árs- ins. Á sama tímabili í fyrra nam tap félagsins 46,6 milljónum danskra króna, 473 milljónum íslenskra króna. Í frétt frá félaginu er haft eftir Wil- helm Petersen, forstjóra Atlantic Petroleum, að afkoman sé í takt við væntingar félagsins. Jafnframt að framkvæmdir á Chestnut- og Ettrick- svæðunum gangi samkvæmt áætl- un. Félagið mun fara í almennt hluta- fjárútboð á yfirstandandi ársfjórð- ungi, samkvæmt tilkynningu. Atlantic Petroleum með 28 milljóna tap ● NASDAQ-kauphöllin jók í gær hlut sinn í Kauphöllinni í Lund- únum (LSE) um 2,2 milljónir hluta og á nú 25,1% í kauphöllinni. Með- alverð á hvern hlut var 23,1 dalur. Fjórðungseign þýðir að Nasdaq hef- ur öðlast rétt til að beita neit- unarvaldi við ýmsar ákvarðanir kauphallarinnar. Hluturinn er hins vegar ekki nægilega stór til að Nasdaq geti stöðvað yfirtökuboð frá öðrum stórum hluthöfum. Forstjóri Nasdaq, Robert Grei- feld, sagðist í stuttri yfirlýsingu ánægður með að eign fyrirtækisins í kauphöllinni væri nú komin yfir hið mikilvæga 25% mark. Nasdaq gerði opinbert í apríl síðastliðnum að fyrirtækið hefði safnað sér 14,99% hlut í kauphöllinni og væri orðinn stærsti staki hluthafi henn- ar. Nasdaq með fjórðungshlut í LSE ● TAP Spalar ehf. eftir skatta fyrir tímabilið 1. október 2005 til 31. mars 2006 nam 81 milljón króna, en tap á sama tímabili árið áður nam 188 milljónum króna. Tap Spalar eftir skatta á öðrum árs- fjórðungi félagsins, sem er 1. jan- úar 2006 til 31. mars 2006, nam 63 milljónum króna. Á sama tíma árið á undan nam tapið 326 millj- ónum króna. Reikningsár Spalar er 1. október til 30. september ár hvert. Í tilkynningu til Kauphallar Ís- lands er haft eftir Gylfa Þórðarsyni, framkvæmdastjóra Spalar, að upp- gjörið sé í takt við áætlanir félags- ins. Framundan séu umferðarmestu mánuðir ársins sem að öllu jöfnu skili mestum tekjum. Afkoma Spalar batnar milli ára ● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um 0,48% í gær og er lokagildi hennar 5.574,97 stig. Velta í Kauphöllinni nam 34,9 milljörðum króna en af hlutabréfaviðskiptum þá voru mest viðskipti með Glitni eða fyrir 19 millj- arða króna. FL Group hækkaði um 0,5% en Atorka lækkaði um 1,8%, Mosaic og Straumur Burðarás lækkuðu um 1,2%. Gengi krónunnar styrktist um 0,6% í gær. Við opnun markaða stóð gengisvísitala krónunnar í 127 stig- um en við lokun var hún 126,30 stig. Rúmlega 25 milljarða viðskipti voru á millibankamarkaði með gjaldeyri í dag. Gengi dollars er 71,65 krónur, pundið er 134,38 krónur og evran er 91,33 krónur. Hlutabréf lækka en krónan hækkar DANÍEL Ólafsson ehf. og Sensa ehf. eru Fyrirtæki árs- ins 2006 samkvæmt könnun VR meðal ríflega tíu þúsund starfsmanna á almennum markaði. Danól vann í hópi stærri fyrirtækja. Í öðru sæti varð Hönnun hf., sigurveg- arinn frá því í fyrra, og Applicon í því þriðja. Sensa bar sigur úr býtum í flokki minni fyrirtækja og var Heilsa ehf. í öðru sæti og Hagvangur í því þriðja. Rúmlega 10.600 starfsmenn hjá 1.900 fyrirtækjum víða um land tóku þátt í könnun VR á Fyrirtæki ársins 2006 og kemur fram í fréttatilkynningu að aldrei hafa jafnmargir tekið þátt frá því félagið hóf fyrst að kanna viðhorf fé- lagsmanna til vinnustaða sinna fyrir meira en áratug. Danól og Sensa fyrirtæki ársins Viðurkenning Valgerður Skúladóttir frá Sensa ehf. og Ólöf Októsdóttir og Einar Kristinsson frá Danól tóku við viðurkenningu VR fyrir hönd fyrirtækjanna tveggja, en þau voru valin fyrirtæki ársins af félagsmönnum VR. MILESTONE ehf. hefur selt alla hluti sína í Actavis hf. til Sjóvár-Al- mennra trygginga hf. Um er að ræða 32,9 milljónir að nafnvirði og voru kaupin gerð á genginu 67,1. Eru við- skiptin því um 2,2 milljarða króna virði. Í fréttatilkynningu segir að um sé að ræða viðskipti milli tveggja fjár- hagslega tengdra aðila Karli Wer- nerssyni, stjórnarmanni í Actavis. Kaupandinn, Sjóvá-Almennar trygg- ingar hf. er dótturfélag Milestone ehf. og í 100% eigu þess. Þá hefur Sjóvá selt bréfin til Glitnis banka og jafn- framt gert framvirkan samning á þeim hlutum sem hér um ræðir, með lokadegi 19. ágúst 2006. Sjóvá mun halda atkvæðisrétti að hlutunum og viðskiptin hafa ekki áhrif á heildar- eign félaga í eigu innherja. Sjóvá að fullu í eigu Milestone Þá fór í gær fram uppgjör á kaup- um Milestone ehf. á 33,4% hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. af Glitni banka hf. Sjóvá-Almennar tryggingar er nú 100% dótturfélag Milestone ehf., en kaupin voru að meginhluta fjármögnuð með eigin fé Milestone ehf. og að hluta með láni frá J.P. Morgan. Segir í tilkynningu að Sjóvá-Al- mennar tryggingar hf. og Glitnir banki hf. muni halda áfram samstarfi sínu um sölu á vátryggingum og ann- arri fjármálaþjónustu eins og verið hafi. Eftir kaupin á Milestone ehf. 22,2% hlut í Glitni banka, að því er segir í til- kynningu til Kauphallar Íslands. Milestone selur alla hluti í Actavis FJÁRVAKUR – fjármálaþjónusta, dótturfélag Icelandair Group, hef- ur fest kaup á fyrirtækinu Airline Services Estonia í Tallinn í Eist- landi. Fyrirtækið er sérhæft í fjár- málaþjónustu fyrir flugfélög. Magnús Kr. Ingason, fram- kvæmdastjóri Fjárvakurs, segir í tilkynningu að kaupin á ASE í Eistlandi séu liður í framþróun starfseminnar og hagræðingu. „Sú starfsemi sem ASE hefur sérhæft sig í, sem er umsjón sölu- og tekju- bókhalds fyrir flugfélög, er mikil- vægur þáttur í þeirri þjónustu sem Fjárvakur vill veita. Við sjáum fram á að ná fram umtalsverðri kostnaðarlækkun með því að sinna þessum þáttum með starfsemi í Eistlandi.“ Í kjölfar kaupanna verður ein- hver fækkun starfsfólks hér á landi og segir Magnús að um fimmtán til tuttugu stöðugildi flytjist út. „Það mun hins vegar ekki gerast fyrr en seint í haust og höfum við því fjóra mánuði til undirbúnings og til að útvega þeim starfsmönnum störf hjá samstæðunni sem vilja.“ Kaup- verðið er trúnaðarmál. Fjárvakur fjárfestir í Eistlandi HAGNAÐUR Icelandic Group nam einni milljón evra (um 87 milljónum króna) á fyrstu þremur mánuðum ársins en á sama tíma- bili í fyrra var hann 2,4 milljónir evra. Heildareignir samstæðunnar nema 72,5 milljörðum króna, eig- infjárhlutfall er 22,0% og arðsemi eigin fjár 2,2%. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Ielandic Group, segir rekstur fé- lagsins á réttri leið og að árangur af endurskiplagningarvinnu undan- farinna mánaða sé farinn að skila sér. „Hátt hráefnisverð gerði fram- leiðslufyrirtækjum okkar erfitt fyrir í fjórðungnum og á það sér- staklega við um Icelandic Asia og Pickenpack í Þýskalandi. Í heild erum við sáttir við árangurinn í fjórðungnum og höldum okkur við rekstrarmarkmið fyrir árið 2006 sem við kynntum í mars.“ Aukning hlutafjár Stjórn Icelandic Group hf. sam- þykkti á fundi í gær að nýta heim- ild til að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 5.116.330 að nafn- verði með útgáfu nýrra hluta. Verða hinir nýju hlutir afhentir í skiptum fyrir rekstur MAT Pacific í Seattle í Bandaríkjunum, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Icelandic með 87 milljóna hagnað 6 *G -H8      C C &:-= ! I       C C ? ? J,I       C C J,I ( % 6        C C 5?=I !K L%    C C

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.