Morgunblaðið - 20.05.2006, Side 24

Morgunblaðið - 20.05.2006, Side 24
24 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR ÁRBORGARSVÆÐIÐ SUÐURNES Grindavík | Grindavíkurbær og Sigl- ingastofnun hafa gert samkomulag við Almenna byggingafélagið ehf. um að steypa bryggju á Svíragarði í Grindavíkurhöfn og leggja lagnir. Verktakinn var lægstbjóðandi í út- boði og tekur verkið að sér fyrir rúm- ar 47 milljóni r kr. en það er um sex milljónum kr. undir kostnaðaráætlun. Svíragarður er við fiskimjölsverk- smiðju Síldarvinnslunnar hf. sem eyðilagðist í bruna fyrir rúmu ári. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um enduruppbyggingu verksmiðj- unnar en bæjaryfirvöld ákváðu þó að ljúka uppbyggingu bryggjunnar sem byrjað var á meðan verksmiðjan var enn í gangi. „Þetta er hluti af því að halda þessum mannvirkjum í lagi. Við erum vongóðir um að verksmiðjan verði endurbyggð,“ segir Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri. Sverrir Vil- bergsson hafnarstjóri segir að næg not verði fyrir þessa bryggju. Það vanti bryggjupláss fyrir bátana. Bryggjan verði notuð til löndunar og einnig til að skipa upp salti. Verklok eru áætluð 1. september í haust. Bryggja verður steypt á Svíragarði Njarðvík | Frumherji hf. efnir til mótorhjóladags í samvinnu við Bifhjólaklúbbinn Erni, næstkomandi laugardag. Opið verður hjá Frumherja í Njarð- vík frá kl. 10 til 16. Er þetta sjötta árið sem þessi háttur er hafður á þar sem mótorhjólakappar geta komið með hjólin sín í skoðun á laugardegi og um leið átt góða stund með öðru hjólafólki. Mótorhjóla- dagur Frumherja Hveragerði | Niðurstöður dómnefndar í samkeppni um rammaskipulag byggðar aust- an Varmár í Hveragerði verða kynntar á morgun, sunnudag, klukkan 14. Í kjöl- farið verður opnuð sýning á innsendum tillögum í bóka- safni Hveragerðisbæjar í verslunarmiðstöðinni Sunnu- mörk. Byggt á 80 hektara landi Samkeppnin var samstarfs- verkefni Eyktar ehf., Hvera- gerðisbæjar og Arkitekta- félags Íslands. Efnt var til hennar í framhaldi af samn- ingi Hveragerðisbæjar og Eyktar ehf. sem undirritaður var í febrúar sl. um skipulag og uppbyggingu á 80 hektara landsvæði austan Varmár í Hveragerði. Með samkeppninni var leit- ast við að fá fram góðan grunn að deiliskipulagi í sam- ræmi við þau markmið sem samningsaðilar settu sér um yfirbragð og eðli byggðar á svæðinu. Valið á milli sex tillagna Alls bárust sex tillögur inn í keppnina, og mun dómnefnd kynna niðurstöðu sína og af- henda verðlaun við opnun sýningarinnar sem verður op- in til 2. júní næstkomandi. Kynna niðurstöð- ur sam- keppni um skipulag Barnaskákmót á Selfossi | Hrókurinn og Landsvirkjun standa fyrir barnaskákmóti á Hót- el Selfossi sunnudaginn 21. maí klukkan 14. Mótið er opið öllum grunnskólabörnum og er þátttaka ókeypis en fjölmörg verðlaun í boði. Þá verður efnt til happ- drættis, svo allir eigi möguleika á vinningi. Skráning keppenda hefst á Hót- el Selfossi klukkan 13 á sunnudag- inn. Tefldar verða sex umferðir og er 7 mínútna umhugsunartími í hverri skák. Veitt eru verðlaun fyrir bestan árangur barna í 1.–3. bekk, 4.–6. bekk og 7.–10. bekk. Þrír efstu í hverjum flokki fá verðlaunapening og sigurvegari mótsins fær veg- legan bikar. Mótið á Selfossi er liður í syrpu Hróksins og Landsvirkjunar „Virkjum framtíðina – börnin eru mikilvægasta auðlind Íslands“. Landsvirkjun hefur stutt dyggi- lega við barnastarf Hróksins í vet- ur og búið er að halda hátíðir á Akureyri og Selfossi. Selfoss | „Kosturinn við þetta samstarf sem byggist á samningnum er sá að unnið er saman án tillits til stærðar fyrirtækja eða sveitarfé- laga. Fyrirtækin sem eru í samkeppni geta engu að síður átt samstarf á ákveðnum svið- um,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra meðal annars í ávarpi á kynningarfundi á Hótel Selfossi í tilefni af út- komu skýrslu um Vaxtarsamning fyrir Suður- land. Það er niðurstaða verkefnisstjórnar um skýrsluna að Suðurland eigi sér mikla mögu- leika til vaxtar og þróunar og aukinnar sam- keppnishæfni, sem mun auka fjölbreytni og lífs- kjör á svæðinu. Það er jafnframt mat verkefnisstjórnar að fyrir árið 2020 verði íbúa- tala Suðurlands komin í um 26.500, sem sam- svarar árlegri fjölgun íbúa um 1,2%. Gerður verði vaxtarsamningur Tillögum verkefnisstjórnar er skipt í þrjá flokka, uppbyggingu helstu byggðakjarna svo sem Árborgarsvæðis, Vestmannaeyja og jað- arsvæða, tillögur um að gerður verði vaxt- arsamningur fyrir Suðurland og tillögur um beinar aðgerðir á einstaka sviðum. Má þar nefna menntun og rannsóknir, ferðaþjónustu og menningu, matvælaframleiðslu og sjávarútveg og loks samgöngur, þar sem tekið er undir allar áherslur Samtaka sveitarfélaga svo sem um fjögurra akreina veg milli Reykjavíkur og Sel- foss. Markmið tillagnanna er fyrst og fremst að auka hagvöxt svæðisins, fjölga atvinnutækifær- um og treysta byggðakjarna á svæðinu. „Ráðuneytið mun kalla eftir samráði viðeig- andi aðila á næstunni, s.s. önnur ráðuneyti og aðra aðila með það að markmiði að meta þessar tillögur og hrinda þeim í framkvæmd eftir því sem tilefni, möguleikar og aðstæður leyfa. Samstillt átak sveitarstjórna, atvinnulífs og ríkisvalds er nauðsynlegt til að skila árangri. Ég tel æskilegt að vinna hratt og undirbúa stofnun Vaxtarsamnings Suðurlands í samstarfi við aðila á Suðurlandi og aðra. Með því að hefja rekstur Vaxtarsamnings sem fyrst, er ábyrgð þessara mála í meira mæli í höndum heimaaðila á Suðurlandi og þannig á það að vera,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir. Íbúar Suðurlands verða 26.500 eftir 14 ár Selfoss | „Ég vil að verkið verði sjálfu sér og staðnum til sóma. Það er alltaf þannig að hver og einn sér það sem hann vill sjá í þessu verki sem öðrum. Það sem mér finnst skemmtilegast er umræða og for- vitni fólks. Ég vil gera fólk forvitið en listsköpunin byggist á forvitn- inni og það glatast mikið ef for- vitnin hverfur og það er alveg á hreinu að myndlist er fyrir alla,“ sagði Sigrún Ólafsdóttir, myndlist- arkona frá Selfossi, en næstu daga mun sérstök nefnd á vegum bæj- arstjórnar Árborgar velja milli tveggja tillagna hennar um lista- verk sem komið verður fyrir á um- ferðareyjunni á Tryggvatorgi á Selfossi, við brúarsporð Ölfus- árbrúar. Sigrún vill að fólk njóti þess listaverks sem valið verður á torgið og hvetur alla til að tjá sig um verkið þegar það er komið upp. Verkið byggist á hreyfingu og eigi líka að koma hreyfingu á hugann og umræðu fólks. Starfar í Þýskalandi Sigrún ólst upp á Selfossi, fór í menntaskóla í Reykjavík, síðan til Bandaríkjanna sem skiptinemi og lauk svo menntaskólanámi í Breið- holti. Hún fór í Myndlista- og handíðaskólann og hefur starfað í Þýskalandi frá 1990 er hún fór þangað í mastersnám í myndlist og starfar nú í Saarbrücken þar sem hún er með vinnustofu. „Ég hef alltaf verið á leiðinni heim aftur en örlögin voru þannig að ég fékk allt- af fleiri og fleiri verkefni til að vinna og þess vegna framlengdi ég alltaf dvölina. Þetta voru verkefni fyrir opinberar byggingar, banka og stofnanir. Þarna úti get ég lifað á list minni,“ sagði Sigrún sem hef- ur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum í Þýskalandi. Gerð var bók um verk Sigrúnar sem ber heitið Force and Tender- ness. Verkin voru á þremur sýn- ingum auk verka sem hún hafði gert áður. Í bókinni er fjallað um verkin og einkenni listsköpunar- innar sem Sigrún beitir. Á heima- síðu hennar www.sigrun-olafs- dottir.de er fjallað um hana sem listakonu og þar segir Richard W Gassen: „Hvort sem er í skúlptúr- verkum eða teikningum, snúast listræn kerfi Sigrúnar Ólafsdóttur ævinlega um jafnvægi í hreyfingu, um að jafna út andstæð lögmál, um samruna hreyfingarleysis og krafts. Alveg eins og mörg skúlpt- úrverk hennar virðast standa í óhugsandi jafnvægi, þannig styðja einstakir þættir í myndum hennar hver við annan.“ Hreyfing er megininntakið Sigrún verður hér á landi næstu mánuði, til loka júlí, og vinnur þá að því verki sem valið verður á Tryggvatorg. „Þetta atvikaðist þannig að ég var beðin að koma með hugmyndir að listaverki á torgið. Mín fyrsta hugsun var hreyfingin en þetta er í alfaraleið með mikilli umferð, síðan kemur vindurinn, Ölfusá er í nágrenninu með kraftinn í náttúrunni og það er náttúran sem mótar okkur. Ég hef unnið að þessum tillögum síðan í nóvember. Ég vinn upp módel sem verða að standast burðarþol og því vinn ég í samstarfi við verk- fræðinga og smiði,“ sagði Sigrún en módel af verkunum tveimur eru til sýnis í Bæjar- og héraðs- bókasafninu á Selfossi. Annað verkanna nefnist Strengur og hitt Strókur. Hún segir verkin snúast um hreyfingu og jafnvægi sem eigi rætur að rekja til sérstöðu ís- lenskrar náttúru sem sé sveiflu- kennd og óútreiknanleg. „Jú, jú, ég er líka í öðrum verkefnum, er til dæmis með í verkefni sem byggist á friðarvegi í gegnum Evrópu eftir hugmynd Otto Freundlich, „Strasse des Friedens.“ Vegurinn verður varðaður listaverkum en um er að ræða gönguleiðir og hjólaleiðir. Eitt leiðir af öðru „Ég byrjaði í þessu sem krakki, var alltaf að gera eitthvað og búa eitthvað til. Það er mjög gefandi að vinna við þessa listsköpun, ég fæ ákveðinn stöðugleika út úr þessu, þetta er krefjandi og togar mann niður á miðjuna sem er upphaf alls. Í þessari vinnu leiðir oft eitt af öðru sem gerir þetta spennandi og maður finnur fyrir mikilli ánægju þegar vel tekst til. Bestu verkin mín verða oft til í lok vinnu- dags og þá fyllist ég krafti og eld- móð, þegar hugmyndin kemur er ekki annað hægt en takast á við hana. Maður verður þá að hafa seiglu til að gefast ekki upp, mér finnst oft eins og það sé í þessu einhver galdur sem nær tökum á manni og maður losnar ekki úr álögunum fyrr en maður hefur lok- ið verkinu. Erlendis finnst mörgum verkin mín mjög norræn og að þau séu full af krafti og minni á víkingaskip í eiginleika sínum,“ sagði Sigrún Ólafsdóttir. Listsköpunin byggist á forvitninni Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Heima Sigrún Ólafsdóttir myndlistarkona með líkön af verkunum Stróki og Streng sem valið verður um til að prýða Tryggvatorg á Selfossi. Eftir Sigurð Jónsson HLÍÐARHJALLI 61 - KÓP. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 13-15 Í einkasölu sérstaklega falleg og rúm- góð 2ja herb. útsýnisíb. á 2. h. í góðu fjölbýli í á þessum vinsæla stað í suð- urhlíðum Kóp. Eldhús með beykiinn- réttingu. Stofa með útgengi á suður- svalir með miklu útsýni. Herbergi með skápum. Baðherb. með baðkari. Parket og flísar. Í kj. er sérgeymsla (líklega ekki með í heildar fmtölu.) Hús var málað að utan sl. sumar. Ásett verð 15,9 millj. VERIÐ VELKOMIN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.