Morgunblaðið - 20.05.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 20.05.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 29 MENNING SÝNINGARSALURINN í kjallara Listasafns Einars Jónssonar á Skólavörðuholti er trúlega með þeim minnstu sem notaðir hafa verið til tónlistarflutnings á höfuðborgar- svæðinu eða aðeins um 20 sæta. Það segir því ekki til um mikla aðsókn að hann hafi verið sem næst fullsetinn á tónleikum Laufeyjar Sigurðardóttur og Elísabetar Waage á sunnudag. Var aðsóknin þó vonum framar, að því að Elísabet sagði við upphaf leiks, miðað við óhagstæða tímasetn- ingu og frábært útivistarveður. Verkin voru að manni skildist öll frumsamin fyrir hina óvenjulegu áhöfn fiðlu og konserthörpu. Harpan hefur þar rúma yfirhönd í styrk frá náttúrunnar hendi, og veitir því ekki af safaríkum fiðluhljómi til mótvæg- is. Það átti því miður ekki við frekar mjósleginn tón Laufeyjar, jafnvel þótt fiðluröddin nyti sín talsvert bet- ur í verki Daníels Bjarnasonar þökk sé einkum fínlegum rithætti þess. Að vísu var furðugóður endurómur úr litla salnum þrátt fyrir smæð hans, en það stoðaði jafnvæginu lítt, þar eð harpan varð fyrir vikið helm- ingi sterkari og víða nærri því glymjandi. Annars var ánægjulega létt yfir dagskránni, er kalla mátti vandaða sumarmúsík við hæfi. Tvíþætt són- ata F.A. Boildieus (1775–1834), er starfaði um skeið við hirð Rússakeis- ara í Pétursborg, var í auðþekktum vínarklassískum stíl. Fjórar árstíðir [12’] Daníels út frá japönskum hæk- um eftir Yosa Buson reyndist býsna fjölbreytt verk, andríkt og dável flutt, og af Deux Préludes Roman- tiques eftir M. Tournier (1879–1951) var sú fyrri ljóðræn og sæt en sú seinni dreymandi áferðar. Loks komu Tilbrigði um búlg- arskt (þjóðlaga)stef eftir hinn lítt kunna J.B. Beauchamp, er ku að sögn trompetleiðari í einhverri sin- fóníuhljómsveit. Skiptust þar á líð- andi þrakneskar hjarðpípustemmn- ingar og blóðheitir balkandansar, og leiddi fjörlega samstillt túlkun þeirra stallna hlustendur út í vorið í sólskinsskapi. Sumar- músík í safni TÓNLIST Listasafn Einars Jónssonar Verk eftir Boildieu, Daníel Bjarnason, Tournier og Beauchamp. Laufey Sigurð- ardóttir fiðla og Elísabet Waage harpa. Laugardaginn 14. maí kl. 16. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Í ANDDYRI Hallgrímskirkju sýn- ir Sigrún Eldjárn málverkaraðir, hálfgildings innsetningu sem hún tengir lauslega Hallgrími Péturs- syni og Passíusálmunum. Málverk Sigrúnar eru landslagsmálverk sem þó geta einnig vísað til sálar- ástands eða andlegs landslags enda hefur landslag í gegnum tíð- ina mikið verið notað bæði sem lík- ing fyrir guðdóminn og mátt Guðs á jörð og sem lýsing á sálrænu ástandi. Sigrún vísar til Hallgríms Pét- urssonar með því að mála brot úr eiginhandarriti Hallgríms Péturs- sonar frá 1659 inn á tvö verkanna, annars vegar áritun Hallgríms, ár- tal og nafn og hins vegar fyrstu setninguna sem segir frá fyrsta sálmi; „Um herrans kristí útgang í grasgarðinn“. Að sögn Sigrúnar sýna málverkin smáan gróður á svörtum söndum og í þessu sam- hengi má túlka slíkt myndefni sem líkingu fyrir mátt Guðs sem fær jafnvel eitthvað til að vaxa í eyði- mörk. Þegar málverkin eru skoðuð er myndefnið þó meira flæðandi og svífandi en þetta gefur til kynna og bakgrunnur sumra myndanna minnti mig meira á djúp himin- geimsins en svartan sand. Það er í góðu samræmi við vísun hennar í handrit Hallgríms að Sigrún setur myndir sínar fram sem myndraðir og ljær þeim þannig frásagnar- kenndan blæ. Málaður textinn minnir á sálma Hallgríms og einn- ig má sjá líkingu með myndefninu, smágerðum gróðrinum í eyðimörk- inni, og sálmunum sjálfum. Sigrún Eldjárn hefur mikla reynslu af vinnu með samspil texta og mynda og hér bregst henni ekki bogalistin frekar en fyrri daginn. Þetta eru ekki átakamiklar myndir hjá lista- konunni en hugvitssamlega unnar og uppsetning þeirra vandlega ígrunduð. Þó gæti hver mynd hæg- lega staðið ein og sér utan þess samhengis sem verður óhjákvæmi- lega til í kirkjunni. Sigrúnu tekst hér á látlausan og hógværan máta að gefa verkum sínum merkingu og tengja þau íslenskri menning- arsögu, á sama tíma standa mynd- ir hennar ágætlega fyrir sínu sem litlar landslagsmyndir með óræðu ívafi. Grös og jurtir grænar MYNDLIST Anddyri Hallgrímskirkju Til 30. maí. Málverk, Sigrún Eldjárn Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Ásdís Frá sýningu Sigrúnar Eldjárn í anddyri Hallgrímskirkju. Grill Kebab E N N E M M / S ÍA / N M 2 18 3 7 600 g fituhreinsa› lambakjöt, t.d. bógur e›a lærisnei›ar, skori› í u.fl.b. 2-3 cm bita. 1/2 dl ólífuolía safi úr einni sítrónu Ra›i› kjötinu á pinna, pensli› me› Hoi Sin sósu og strái› sesamfræjum yfir pinnana. Grilli› í u.fl.b. 8-12 mín. og snúi› nokkru sinnum á me›an. Bori› fram me› t.d. kús-kús og salati. Setji› kjöti› í skál ásamt ólífuolíu, sítrónusafa, salvíu og óreganó og láti› standa í u.fl.b. 3 klst. 1 msk. salvía, smátt söxu› 1/2 msk. óreganó (ferskt), saxa› Hoi Sin sósa (kínversk grillsósa, fæst í flestum bú›um 3 msk. sesamfræ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.