Morgunblaðið - 20.05.2006, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í MAÍ
Sími: 50 50 600 • www.hertz.is
www.hertz.is
Bókaðu
bílinn heima
- og fáðu 500
Vildarpunkta
Vika í
USA
21.200*
San Fransisco
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.*
17.800*
Florida
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
*
23.300*
Boston
kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.*
Verð miðað við gengi 1. maí 2006.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
25
46
05
/2
00
6
VEGABRÉF Númer eitt er auð-
vitað að hafa vegabréfið í lagi, því án
þess kemst maður hvorki lönd né
strönd. Eftirfarandi upplýsingar eru
á símsvara Útlendingastofnunar:
„Almenn afgreiðsla vegabréfs tekur
tíu virka daga frá greiðsludegi og
kostar 5.100 krónur fyrir 18 ára til
67 ára en 1.900 krónur fyrir aðra.
Umsækjandi vegabréfs getur óskað
eftir hraðari málsmeðferð en þarf þá
að greiða 10.100 krónur fyrir 18 ára
til 67 ára en 3.750 krónur fyrir aðra.
Skila þarf inn einni nýrri passamynd
og eldra vegabréfi. Lögráða ein-
staklingur sem sækir um vegabréf
þarf að koma sjálfur og sækja um.“
Jafnframt er tekið fram að gefa þarf
rithandarsýnishorn og ýmsar upp-
lýsingar eru um hvernig skal hegða
sér þegar sótt er um vegabréf fyrir
ólögráða einstaklinga. Við þetta er
því að bæta að þær upplýsingar
fengust á skrifstofu lögreglustjórans
í Reykjavík að innan skamms mun
útgáfa vegabréfa færast til lög-
reglustjóraembættisins og þá verð-
ur það jafnframt regla að mynd
verður tekin á staðnum, sem ætti að
hafa hagræði í för með sér fyrir
flesta. Á höfuðborgarsvæðinu og
annars staðar en í Reykjavík mun
útgáfa vegabréfa vera í höndum
sýslumannsembættanna á hverjum
stað fyrir sig. Einnig er gott að hafa
í huga ef ferðast skal til landa sem
erfitt er að komast inn í að hafa allar
áritanir í lagi.
ÖKUSKÍRTEINI Margir sem
ferðast til útlanda taka bíl á leigu.
Eldgamla bleika ökuskírteinið dugar
enn sums staðar en á skrifstofu lög-
reglustjóra var upplýst að rétt sé
fyrir ökumenn að hafa litlu öku-
skírteinin með í för. Þau falla að
Evrópustöðlum en ef fólk er á leið út
fyrir Evrópu er mælt með því að
taka með svokallaða ökubók. Af-
greiðsla hennar tekur einn dag og
bókin kostar 1.000 kr. Bókin er í
raun þýðing á ökuskírteininu og í
henni kemur fram hvaða réttindi
ökumaðurinn hefur. Í ökubókinni er
mynd og gildistími er eitt ár.
BÓLUSETNING Þegar ferðast er
til annarra landa en Evrópulanda,
Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu,
Nýja-Sjálands og Japans er skyn-
samlegt að vera með gildar bólu-
setningar gegn fleiri sjúkdómum en
þeim sem bólusett er fyrir í grunn-
skólum. Algengast er að bólusetja
við sjúkdómum sem smitast með
mat og drykk, eins og lifrarbólgu A
og taugaveiki. Nauðsynlegt er að
bóka tíma hjá heilsugæslunni með
góðum fyrirvara til að fá bólusetn-
ingu tímanlega og samtímis bólu-
setningunni fræðslu um heilsuvernd.
Frekari upplýsingar eru á veffangi
heilsugæslunnar www.hr.is (bólu-
setningar vegna ferðalaga) og
www.cdc.gov (travellers health).
SÓLARVÖRN Fyrir sólarsjúka
Íslendinga er ákaflega varhugavert
að vanáætla styrk sól-
arvarnarinnar. Al-
mennt er öruggast fyr-
ir fólk að vera með vörn
í hæsta styrk allan tím-
ann sem dvalið er á sól-
arströnd. Vörn með
vatnsvernd er heppileg-
ust og rétt er að smyrja
bara nógu oft á sig.
VASAORÐABÓK
Snjallt er að hafa að-
gengilega litla vasaorða-
bók sem í eru algengustu
spurningar og orð á ýmsum
tungumálum. Fást t.d. í Pennanum-
Eymundsson, bók með 12 tungu-
málum kostar 1.500 kr., en bók með
16 tungumálum kostar 2.990.
LYFJAVESKI Þegar kríthvítir
Íslendingarnir flykkjast til útlanda
er hætta á að þeir fái í magann eða
verði stungnir af móskítóflugum. Þá
er ekki ónýtt að hafa í farteskinu t.d.
immodium sem stoppar niðurgang í
flestum tilfellum. Fæst í apóteki án
lyfseðils, lesa ber þó leiðbeining-
arnar vel. 16 töflur eru í hverjum
pakka. Alls kyns kælandi smyrsl
fæst líka sem dregur úr kláða vegna
móskítóbits, einnig er hægt að fá
áburð til að fæla ófögnuðinn frá, t.d.
mygge, sem er nokkurs konar roll-
on, og er borið á viðkvæm svæði.
TRYGGINGAR Ekki veitir af að
hafa tryggingarnar í lagi. Fólki er
ráðlagt að kanna hjá sínu trygginga-
félagi hvort ferðatryggingar séu
innifaldar í fjölskyldutryggingum
þess – án aukakostnaðar. Þeir sem
ekki hafa ferðatryggingar inni í fjöl-
skyldutryggingum sínum geta keypt
sér sjálfstæðar ferðatryggingar fyr-
ir hvert einstakt ferðalag.
Kaupa þarf tryggingu fyrir hvern
ferðalang og má gera ráð fyrir að
það kosti 2–3.000 kr. á mann.
Ef ferð er greidd að helmingi eða
meira með kreditkorti er korthafi
tryggður að ýmsu leyti. Gull- og
platínukort bera í sér víðtækari
tryggingu en venjuleg kort. Einnig
er korthöfum bent á að athuga gild-
istíma korts tímanlega fyrir brott-
för, fá leyninúmer kortanna ef þau
eru gleymd og leggja á minnið.
Geyma svo aldrei leyninúmerið
óvarið eða nálægt kortinu.
FERÐALÖG | Líða tekur að sumarfríinu og ekki er ráð nema í tíma sé tekið
Ertu klár í ferðina?
Morgunblaðið/Ómar
Remi Spilliaert, líffræðingi ílyfjaþróunardeild Íslenskr-ar erfðagreiningar, fannst
full ástæða til að skipuleggja frjáls-
íþróttamót fyrir starfsfólk ÍE sem
yrði úrtökumót fyrir AluCup, en það
er frjálsíþróttamót skipulagt af ÍR.
AluCup var haldið 1. apríl sl. á milli
stærri fyrirtækja á Íslandi.
„Úrtökumótið sem haldið var á
vegum Íslenskrar erfðagreiningar
er algjörlega mitt barn,“ segir Remi.
„Ég hjálpaði til við að undirbúa Alu-
Cup,“ útskýrir hann og bætir við að
það komi til af því að hann er í stjórn
frjálsíþróttadeildar ÍR. „Að sjálf-
sögðu var það skylda ÍE að senda
lið, ekkert annað var hægt. Í stað
þess að velja fólk innan fyrirtækisins
sem ég vissi að væri íþróttafólk
ákvað ég að halda þetta úrtökumót.“
Remi sá til þess að Laugardalshöllin
var leigð fyrir mótið og sér ekki eftir
því.
„Ég fékk mjög góðan stuðning frá
starfsmannafélaginu, það borgaði
upp í kostnað, sem þó var í lágmarki.
Þátttakan var mjög góð, um fimmtíu
manns kepptu.“
Allir fengu að vera með sem vildu
Remi reyndi að fá sem flesta til að
keppa í úrtökumótinu. „Ég smalaði
sem víðast, en meðalaldurinn í fyr-
irtækinu er um 30–35 ár. Þannig að
þú sérð að hér er mest ungt fólk og
flestir stunda íþróttir.“ 10–15 starfs-
menn voru á mótinu og um fimmtíu
keppendur. Með áhorfendum voru
þannig um 100 manns í Laugardals-
höllinni frá ÍE þessa kvöldstund.
„Við gátum þess vegna valið í góð
lið, en ég setti suma í b-lið sem
kannski komust ekki í a-liðið, en
langaði samt að vera með.“
Íslensk erfðagreining lenti svo í
fjórða sæti á AluCup sem verður að
teljast góður árangur, en 25 fyrir-
tæki kepptu. Remi lítur svo á að ÍE
hafi í raun náð bestum árangri fyr-
irtækja en í sætunum fyrir ofan voru
m.a. Lögreglan og keppendur frá
Kennaraháskólanum þar sem þraut-
þjálfað íþróttafólk starfar.
Eflir andann
Mótin tvö hafa eflt starfsandann í
húsakynnum ÍE. „Margir vildu
kasta kúlu í mótinu, allt að 30
manns, ég veit nú ekkert af hverju
svona margir vildu kasta kúlu,“ seg-
ir Remi og er hálfundrandi á þessum
mikla kúluvarpsáhuga.
„Ég var rosalega ánægður með
hvað mótið gekk vel. Það myndaðist
stemning og var mikill áhugi. Það er
mjög hvetjandi. Það er líka fullt af
fólki sem maður heilsaði varla áður,
bara fyrir tveimur vikum. Eftir að
hafa tekið þátt í mótinu með þessu
fólki, þar sem var faðmast ef góður
árangur náðist, það breytir bara
andanum í húsinu.“ Remi telur að
svona uppákomur séu nauðsynlegar
til að mynda tengsl milli starfsfólks
innan fyrirtækja.
Remi er áhugamaður um íþróttir
almennt og hann hafði forgöngu um
að góð þátttaka var í átakinu hjólað í
vinnuna í fyrrasumar. „Það voru
hundrað manns sem voru skráðir í
það hjá okkur. Allir voru að safna
kílómetrum og við vorum langbest af
öllum fyrirtækjum í okkar flokki.
Einn daginn hjóluðu t.d. fimm
manns í vinnuna í gegnum Selfoss,
bara til að safna kílómetrum.“
Keilumót er líka haldið á vegum
ÍE árlega og þar er alltaf góð þátt-
taka. „Þá eru stofnuð lið og ákveðin
hefð hefur skapast í kringum þetta.
Fólkið sem keppir er farið að mæta í
búningum og svona.“
Remi telur að innanhússmót ÍE í
frjálsum íþróttum verði líka árlegur
viðburður héðan í frá. „Já, já, Alu-
Cup verður haldið áfram og ég stefni
á að skapa hefð í kringum þetta.
Fyrsta skiptið er alltaf erfiðast.“
ÁHUGAMÁLIÐ | Skipulagði frjálsíþróttamót fyrir starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar
Fólkið kynnist á annan hátt
Morgunblaðið/Eyþór
Remi Spilliaert er líffræðingur á
lyfjaþróunarsviði Íslenskrar erfða-
greiningar. Hann hefur búið á Ís-
landi í 20 ár.
Remi telur að skipulagðir viðburðir innan fyrirtækja efli andann og styrki tengslin.
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
Hlíðasmára 11, Kóp.
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar