Morgunblaðið - 20.05.2006, Qupperneq 35
stöðvar Gestapo auk byrgisins þar
sem Hitler batt enda á líf sitt.
Segja má að lítil sem engin borg-
arþróun hafi átt sér stað í Berlín í
hartnær þrjá áratugi á meðan
Múrsins naut við. Nú er öldin önnur
og byggingakranarnir blasa við
hvarvetna. Berlínarbúar eru svo
sannarlega í byggingarham og
Burkhard biður íslenska gesti sína
að láta ekki blekkjast. „Þótt bygg-
ingar líti út fyrir að vera ævagamlar
er hér allt nýtt og enn er mikið verk
óunnið. Berlínarbúar ætla innan
fárra daga að taka í notkun glænýja
járnbrautastöð og stórfyrirtækin
Sony og Merzedes Benz hafa reist
glæsihýsi í miðborginni sem þjóna
m.a. sem verslunarmiðstöðvar og
skrifstofubyggingar. Uppbyggingin
er mest áberandi í kringum Potsda-
mer Platz, sem einu sinni var fjöl-
farnasta umferðartorg Berlínar og
er nú á ný orðið miðpunktur borg-
arlífsins með kaffihúsum, leik-
húsum, galleríum, bíósölum, görð-
um og gosbrunnum. Flestar
byggingar umhverfis torgið voru
jafnaðar við jörðu í stríðinu og síðar
lá Berlínarmúrinn um torgið þvert
þar sem mörk hernámssvæða Vest-
urveldanna og Sovétmanna lágu um
það.
Berlínarbúar skilja brandara
Tvöföld hellulögn í götum og
gangstéttum markar staðsetningu
Múrsins. „Við flýjum ekki fortíðina,
svo mikið er víst. Mér er fullkunn-
ugt um að Þjóðverjar eru ekki
þekktir fyrir gott skopskyn, en ég
skal trúa ykkur fyrir því að komist
þið í tæri við kíminn Þjóðverja hlýt-
ur hann að vera Berlínarbúi. Ég er
ekki að segja þetta mér til fram-
dráttar heldur var það nauðsynlegt
fyrir borgarbúa hér að þróa með sér
skopskyn til að komast af og þrífast
í borginni á árum áður, hvort heldur
sem var í austri eða vestri,“ segir
Heyl, sem var fimm ára þegar Múr-
inn birtist allt í einu fullskapaður.
Nú þjónar Berlín sem höfuðborg
Þýskalands og nú eru Berlínarbúar
bjartsýnir, bætir leiðsögumaðurinn
okkar við þegar við kveðjumst og
höldum á vit söngleiksins Casanova
í Friedrichstadtpalast.
Auk sögusviðsins Berlínar hefur
borgin upp á fjölbreytta menningu
að bjóða, hvert sem litið er, og þessa
dagana eru Berlínarbúar að und-
irbúa sig fyrir heimsmeistarakeppn-
ina í knattspyrnu. Þrjú óperuhús
eru starfandi auk fjölda leikhúsa.
Aðlaðandi verslunarkjarnar hafa
sömuleiðis sprottið upp víða um
borgina, m.a. við Kurfürstendamm,
Tauentzienstraâe, Potsdamer Platz
Arkaden, Friedrichstraâsse og Al-
exanderplatz. Þarna er að finna
flottustu merkjavöru heims auk
fjölda annarra verslana, sem versla
með vöru á viðráðanlegra verði.
Alls ekki má svo gleyma því að
njóta kyrrðarinnar í Berlín því um
þriðjungur af flatarmáli borg-
arinnar er þakin grænum svæðum
og vötnum. Upplagt er að rölta um
garða og gróin torg eða taka sér far
með fljótabáti á ánni Spree ef menn
eiga leið um Berlín.
Brandenborgar-hliðið í Berlínarborg.
TENGLAR
.....................................................
www.berlin-tourist-information.de
www.friedrichstadtpalast.de
join@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 35
FERÐALÖG
ustu af þessu tagi. Mjög falleg svæði
eru í nágrenninu eins og Jökulfirðir
og friðlandið á Hornströndum með
sína eyðifirði, fjöll, víkur og voga auk
Ísafjarðardjúps. Eins er nánast ekki
neins staðar styttra að fara til austur-
strandar Grænlands en frá Ísafirði
eða um 180 sjómílur, að sögn Rúnars
Óla Karlssonar hjá Skútusiglingum
ehf.
Skútan kom til hafnar á Ísafirði 9.
maí eftir siglingu frá Bretlandi. Sigl-
ingin gekk í alla staði vel og reyndist
skipið frábærlega vel, að sögn Sig-
urðar Jónssonar skipstjóra.
Skútu-
siglingar við
Vestfirði og
austurströnd
Grænlands
Í FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar
hafa verið teknar í notkun sex
sjálfsafgreiðslustöðvar, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Þar segir:
„Farþegar geta nú valið um að
innrita sig sjálfir á innan við mín-
útu og valið sitt eigið sæti eða
fengið hefðbundna þjónustu við
innritun.“ Jafnframt kemur fram
að einungis farþegar Icelandair
geta nýtt sér þessa þjónustu þar
sem um er að ræða svokallaðar
„single airline“-afgreiðslustöðvar.
FLUGSTÖÐVAR
Sjálfsafgreiðslu-
stöðvar
Icelandair