Morgunblaðið - 20.05.2006, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 20.05.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 47 UMRÆÐAN „HEYRÐU nú, mín heittelskaða Gunna,“ sagði Jón bóndi alveg yfir sig hrifinn yfir eigin ágæti og frá- bærri hugmynd. „Mér kom bara ekki dúr á auga í nótt og nú þurfum við bara að leggjast yfir þetta.“ Og svo fóru þau að spekúlera. Sko, þar sem ríkisstjórnin hefur lækkað skatta á alla sem eru með 400–500 þúsund á mánuði en hækkað á hina, þá er til ráð. Þeir vel stæðu gefa þessu umönnunarfólki með lúsar- launin það sem það þarf til þess að skrimta og geta jafnframt horfst í augu við það án þess að skammast sín. Auðmennirnir geta bara grætt enn meira og bætt sér upp tekju- missinn með alls konar nefndar- störfum og aukasporslum. Losna við gamlingjana Það er líka meira að græða á þessu en peningar. Nefnilega það að losna við að heimsækja þessi eldgömlu ættmenni og eyða dýrmætum tím- anum í að spjalla um daginn og veg- inn. Þessir láglaunuðu geta bara gert það. Þeir ríku gætu meira að segja fengið sér einhverja unglings- stúlku, eða gamlingja, til þess að hlaupa með börnin á barnaheimilin og fara með þau í allt það sem pass- ar fyrir þá hátt settu. Í sund, fim- leika, læra söng, hljóðfæraleik, golf og svoleiðis. Þau geta líka sent þá láglaunuðu, til þess að kaupa sund- föt og nógu dýrar gallabuxur á börnin svo þau séu ekki til skamm- ar gagnvart öllum hinum sem eiga sand af seðlum. Ekki veitti svo af að senda afkvæmin á sumarnámskeið í ensku, því að það er jú málið sem „blívur“ fyrir tilvonandi „business- menn“ Nei, athafnamenn er fínna orð. Stjórnvöld laga allt Það vefst auðvitað ekki fyrir al- þingi að kippa þessu öllu í liðinn, ef allir vilja ekki vera alveg svona gjafmildir. Ekki frekar en að laga hið margumtalaða eftirlauna- frumvarp fyrir æðstu menn þjóð- arinnar. Það er auðvitað búið að skipa nefnd. Allir vita hins vegar að sumir sofa oft á verðinum og aðrir fá alltaf kaup þótt þeir mæti aldrei á fundi. Það væri ekki gott að lág- launafólkið mætti aldrei í vinnuna, þótt ekki væri nema til að skipta á bleium á börnum og gamalmenn- um. En Pétur Blöndal er þó sá sem hefur getað lifað á 50 þúsund krón- um á mánuði. Hann vildi kannski senda okkur uppskriftina hvernig hann rekur bíl, borgar húsaleigu og hvað hann borðar. Sjálfsagt borðar hann bara hrísgrjónagraut í alla mata eins og Steingrímur Her- mannsson sagði þjóðinni að gera þegar hún átta að spara. En hver segir að þetta verði bara ekki allt í lagi. Kosningaár fram- undan, Allir lofa öllu fögru á okkar ríka Íslandi þar sem peningar vaxa á trjánum eða í áli. Þeir ríku laga lúsarlaunin Eftir Ernu V. Ingólfsdóttur Höfundur er hjúkrunarfræðingur og situr í miðstjórn Frjálslynda flokksins. Háskólanám í LBHÍ grunnur a› framtí› 7 júní Umsóknafrestur fyrir skólavist 2006 / 07 Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 www.lbhi.is Umhverfisskipulag Búvísindi Náttúru- og umhverfisfræ›i Skógfræ›i og landgræ›sla Kynntu flér námslei›ir vi› LBHÍ, www.lbhi.is ENN og aftur neyðist ég til að stinga niður penna og reka nokkrar rangfærslur ofan í Gunnstein Sig- urðsson bæjarfull- trúa Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi. Hann og félagar hans í Sjálfstæðis- flokknum seilast helst til langt í því að hagræða sannleik- anum til að verja þann vonda gjörn- ing sem samningur þeirra um upp- kaup á hesthúsum á svæði hestamannafélagsins Gusts er. Staðreyndir málsins eru einfaldar og tala sínu máli. Fjársterkir aðilar gerðu aðför að íþróttafélagi í bæn- um og byrjuðu að kaupa upp hest- hús. Bæjarstjórn Kópavogs lýsti því yfir öll að hún myndi standa við bak- ið á hestamannafélaginu. En á sama tíma áttu Gunnsteinn og Gunnar I. Birgisson í leynilegum viðræðum við hluta hestamannafélagsins um flutning á félaginu og jafnframt áttu þeir í viðræðum við fjárfesta sem stóðu á bak við uppkaupsmenn. Á sama tíma samþykktu bæjar- fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknar skipulag á Hnoðraholtssvæð- inu sem gerði Glaðheimasvæðið ónothæft sem hestamannahverfi. Gustur mótmælti því af miklum krafti og bæjarfulltrúar Samfylking- arinnar tóku undir málflutning fé- lagsins og studdi það dyggilega. Þá taldi Gunnsteinn enga ástæðu til að hlusta á hestamenn. Það er kannski rétt að benda á að aldrei hafa eins margir bæjarbúar mótmælt skipulagshugmyndum eins og á þeim tíma sem Gunnsteinn hefur setið sem formaður skipulags- nefndar. Gunnsteinn, Gunnar og félagar hafa lagt sig alla fram við að koma til móts við hagsmuni nokkurra fjár- glæframanna og tryggt þeim hundr- uð milljóna króna í hagnað. Sam- fylkingin stendur alfarið gegn slíku og hefur alltaf gert. Við höfum stutt Hestamannafélagið Gust og að það hafi góða aðstöðu fyrir sína starf- semi, Við viljum byggja upp góða framtíðaraðstöðu fyrir félagið. En við störfum fyrir opnum tjöldum og tökum ekki þátt í baktjaldamaki. Við hugsum um hagsmuni fólksins í bænum en myljum ekki undir braskara. Ef þau vinnubrögð verða til þess að Gunnsteinn sendir mér tóninn hér í Morgunblaðinu þá verð- ur svo að vera. Hann hefur vondan málstað að verja og málflutningur hans í því hefur verið ótrúlegur. Hann svaraði t.d. gagnrýni okkar á hið háa verð á hesthúsunum með því að spyrja af hverju hestamenn ættu að slá hendinni á móti Land Cruiser þegar þeim byðist hann! Hann ætti ekki að hæla sér af samráði eftir það sem á undan er gengið. Hann getur heldur ekki haldið því fram að ekk- ert sé athugavert við aðkomu hans og bæjarstjórans að málinu. Sveitarstjórnarlögin sýna annað með skýrum hætti, Félagsmálaráðu- neytið hefur staðfest vanhæfi bæjar- stjóra á öllum stigum málsins við undirbúning málsins og meðferð. Á því leikur enginn vafi. Bæjarstjór- inn og fylgismenn hans hafa gert lít- ið úr vanhæfni hans og gefið þannig þeim lagabókstaf sem á að tryggja heiðarlega meðferð mála langt nef. Almenningi í bænum er ljóst að í öllu þessu máli eru allt aðrir hags- munir en hagsmunir bæjarbúa og hestamanna sem ráða ferðinni. Gunnsteinn og félagar reyna að breiða yfir það með því að skamma mig. Rangfærslur Gunnsteins hraktar Eftir Flosa Eiríksson Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. KANN að vera að þessi fullyrðing sé nokkuð lang- sótt? En sannleikurinn er nú sá að leikskólinn er sá grunnur sem allt annað nám og önnur menntun bygg- ist á og lengi býr að fyrstu gerð. Það er því mikilvægt að tryggja góða leikskóla og að börn almennt eigi jafnan kost á leikskólagöngu án tillits til efnahags eða annarra aðstæðna. Þannig hefur það ekki alltaf verið og þannig er það ekki enn í dag, í upphafi 21. aldarinnar! Málefni leikskólanna hafa lengi verið okkur vinstrimönnum hugleikin. Margir muna enn ástand leikskólamála í Reykjavík þegar Sjálfstæðis- flokkurinn fór með meirihluta í borgarstjórn og hvernig grettistaki var lyft í þessum málaflokki eftir að félagshyggjuflokkar fengu umboð borgarbúa til að stjórna borginni. Þá fyrst var giftum foreldrum og sambýlisfólki heimilað að sækja um heilsdags leik- skóladvöl fyrir börnin sín. Áður fengu börn foreldra sem bjuggu saman aldrei meira en hálfsdagsdvöl. Árið 1994 voru aðeins um 20–30% rýma í leikskólum borg- arinnar heilsdagsrými, í dag lætur nærri að þau séu 80–90%. Markvisst er stefnt að því að borgin geti boðið öllum börnum 18 mánaða og eldri heilsdagsdvöl í leik- skólum og er óhætt að fullyrða að nokkuð vel gangi að ná því marki, þótt nokkuð vanti þar enn á, einkum í yngstu hverfum borgarinnar. Leikskólinn er nú viðurkenndur sem fyrsta skóla- stigið og nú er orðið tímabært að þetta skólastig verði foreldrum að kostnaðarlausu. Það eru í dag hærri skólagjöld í leikskólum en einkareknum háskólum. Við Vinstri græn teljum það ófært. Þegar hafa verið stigin fyrstu skrefin í þá átt í Reykjavík að gera leik- skólann gjaldfrjálsan og hafa barnafjölskyldur í borg- inni því fengið miklar kjarabætur. Það er grátbroslegt að fylgjast með viðbrögðum minnihlutans í borgarstjórn og félaga þeirra á Al- þingi, ekki síst fjármálaráðherrans, þingmanns Reykjavíkur, við áformum um gjaldfrjálsan leikskóla. Gremja þeirra yfir frumkvæði borgarinnar er með ólíkindum. Enda hefur Sjálfstæðiflokkurinn í borgar- stjórn lýst því yfir að hann styðji ekki gjaldfrjálsan leikskóla, hann mun sem sagt snúa við af þeirri braut, fái hann til þess umboð, og væntanlega leggja ný gjöld á þá sem nú þegar hafa fengið umtalsverða lækkun gjaldanna. Vinstri græn settu fyrst stjórnmálaflokka fram markmiðið um gjaldfrjálsan leikskóla. Sannleikurinn er sá að það hefur kostað nokkurt átak að sannfæra aðra um réttmæti þessa máls, jafnvel innan meirihlut- ans í borgarstjórn Reykjavíkur. En dropinn holar steininn og nú hafa aðrir flokkar tekið þetta stefnumál VG og gert að sínu aðrir en Sjálfstæðisflokkurinn. Það er vel. Hins vegar er sú hætta yfirvofandi að horfið verði frá áformum um gjaldfrjálsan leikskóla ef sjálf- stæðismenn ráða för í borginni. Vinstri græn munu berjast fyrir því að leikskólinn verði að fullu gjaldfrjáls á næsta kjörtímabili og þann- ig undirstrika að leikskólinn sé hornsteinn mennta- kerfisins. Látum ekki Sjálfstæðisflokkinn koma í veg fyrir það! Leikskólinn er hornsteinn menntakerfisins Eftir Árna Þór Sigurðsson Höfundur skipar 2. sæti V-lista vinstri grænna í Reykjavík. VELFERÐ fjölskyldunnar er eitt af forgangsmálum VG í Mosfellsbæ og þess vegna er brýnt að leikskóla- gjöld verði felld nið- ur í áföngum á næsta kjörtímabili. Vinstri grænir eru í fararbroddi hvað þennan málaflokk varðar með því að vera fyrsta stjórn- málaflið sem vill að leikskólinn sé gjaldfrjáls. Skólayfirvöld og al- menningur líta svo á að leikskólinn sé fyrsta skólastigið og það er tíma- skekkja að sveitarfélögin innheimti skólagjöld. Viðhorf til leikskólans end- urspeglast í þeim mismun sem gerð- ur er með því að innheimta gjald af foreldrum með börn á fyrsta skóla- stigi en ekki þeim sem eru með börn í grunnskóla og þessu vill VG breyta. Þess vegna mun VG í Mosfellsbæ beita sér fyrir því á næsta kjörtíma- bili að kennslu- og fæðisgjald í leik- skólum verði fellt niður í áföngum og jafnframt að gjald fyrir skóla- máltíðir í grunnskólum verði nem- endum að kostnaðarlausu. Þessi málaflokkur varðar kjör barnafjöl- skyldunnar þar sem um verulega kjarabót er að ræða. Þessar áætl- anir eru hreint ekki svo fjarstæðu- kenndar og vinstri grænir sjá ekki að 20% lækkun á leikskólagjöldum, sem tekur gildi 1. maí n.k. hér í Mosfellsbæ, jafni þann mismun sem gerður er á leik- og grunnskólum landsins. Fyrir börn, sem eru í sex tíma vistun í leikskólum Reykjavíkur, eru greiddar 17.630 á mánuði. Hins veg- ar borguðu foreldrar í Mosfellsbæ 21.450 á mánuði fyrir sama vistunar- tíma sinna barna áður en lækkun leikskólagjaldanna kom til sögunn- ar. Námsmenn eru einnig betur settir í Reykjavík, þar er veittur af- sláttur ef annað foreldrið er í námi en í Mosfellsbæ er einungis veittur afsláttur ef báðir foreldrarnir eru í fullu námi. Það má öllum vera ljóst að fjöl- skyldufólk, sem hyggst flytja í Mos- fellsbæ, horfir í þennan mismun á milli sveitarfélaganna. Neikvæður samanburður mun ekki verða hag- stæður fyrir bæjarfélagið. Það er ekki nóg að kappkosta að bjóða upp á barnvænt og aðlaðandi umhverfi fyrir fjölskylduna. Ungt fólk, sem er að fjárfesta í sínu fyrsta íbúðar- húsnæði ásamt því að ala önn fyrir börnum sínum, ber saman gjald- tökur bæjarins við nágrannasveit- arfélögin. Það er því keppikefli okk- ar í VG að álögum bæjarins verði stillt í hóf. En hvað mun niðurfelling leik- skólagjaldanna kosta bæjarsjóð? Í dag eru um 120 börn í fimm ára ár- ganginum og miðað við þá tölu væri bæjarsjóður að verða af 28.314.000 á ári. Það er hægt að stilla dæminu upp á ýmsan hátt, lóðaverð í Mos- fellsbæ hefur hækkað verulega hin síðari ár og nemur útgjaldaaukn- ingin um það bil söluverðmæti tveggja einbýlishúsalóða. Þetta er spurning um forgangsröðun og vilja bæjaryfirvalda til að rétta hlut leik- skólanna og jafnframt stuðla að því að fjölskyldurnar nái betur endum saman. Gjaldfrjáls leikskóli í Mosfellsbæ Eftir Bryndísi Brynjarsdóttur Höfundur er myndlistarkona og kennari, skipar 2. sæti á lista vinstri grænna í Mosfellsbæ. Fréttir í tölvupósti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.