Morgunblaðið - 20.05.2006, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 65
FRÉTTIR
ÚTGÁFUTEITI Fyrstu skrefanna
var haldið nýlega í Veröldinni okk-
ar í Smáralind. Útbjuggu börn sem
þar voru listaverk sem Landsbank-
inn keypti fyrir 250.000 kr. Halldór
Kristjánsson, bankastjóri Lands-
bankans, afhenti ávísunina sem stíl-
uð var á félagið Einstök börn og
tvær fjölskyldur, sem komið hafa í
viðtal í Fyrstu skrefunum, tóku við
henni fyrir hönd félagsins.
Á myndinni eru, efri röð frá
vinstri: Schumann og Heidi Didrik-
sen, Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, Heiða Kristín
Harðardóttir og Sigursteinn Sig-
urðsson. Neðri röð frá vinstri: Guð-
rún Heimisdóttir ritstjóri, Fyrstu
skrefanna, Beinta Didriksen, Krist-
ófer og Hörður Sigursteinssynir.
Keypti listaverk
eftir börn
POKASJÓÐUR verslunarinnar hef-
ur úthlutað 90 milljónum á sjóðnum
til ýmissa verkefna. Þetta er í 11.
sinn sem úthlutað er og fengu hátt í
eitt hundrað einstaklingar, félaga-
samtök og stofnanir framlag úr
sjóðnum. Frá upphafi hefur sjóður-
inn úthlutað um 600 milljónum
króna.
Sjóðurinn fær tekjur af sölu plast-
burðarpoka í verslunum. Í dag
greiða um 100 verslanir víða um land
í sjóðinn.
Hlutverk sjóðsins er að leggja lið
málum sem horfa til almannaheilla á
sviði umhverfismála, mannúðar- og
heilbrigðismála, menningar og lista
og íþrótta og útivistar. Stærstu
framlög úr sjóðnum hafa farið til
Skógræktarfélaganna sem hafa
fengið samtals 72 milljónir króna. Þá
hefur Húsgull, sem unnið hefur að
uppgræðslu á Hólasandi, fengið 48
milljónir króna.
Sjö hundruð umsóknir bárust til
sjóðsins í ár og námu óskir um fram-
lög um 750 milljónum króna.
Morgunblaðið/Eyþór
Bjarni Finnsson frá Pokasjóðnum afhenti fulltrúum Vímulausrar æsku styrk. Við honum tóku Elísa Wium, fram-
kvæmdastjóri Vímulausrar æsku, (t.v.) og Jórunn Magnúsdóttir, forstöðukona foreldrahúss Vímulausrar æsku.
90 milljónum úthlutað úr Pokasjóði HEKLA frumsýnir nýjan Mitsub-ishi L-200 pallbíl í dag, laugardaginn
20. maí kl. 10–16. L-200 pallbíllinn
frá Mitsubishi Motors er nýr bíll –
hannaður frá grunni. Meðal nýjunga
er hljóðlát 2,5 lítra CommonRail, 136
hestafla dísilvél, nýr fjöðrunarbún-
aður, Super Select 4WD drifkerfi,
sem er þekkt úr Mitsubishi Pajero-
jeppanum, auk þess sem innra rými
er rúmbetra og íburðarmeira en í
eldri gerðinni.
Nýja hönnunin á L-200 bílnum
gerir hann lipran í akstri og státar
hann af minnsta beygjuradíus í sín-
um stærðarflokki. Hægt er að velja
um 5 gíra handskiptan gírkassa eða
4 þrepa sjálfskiptingu og kostar bíll-
inn frá 2.960.000 þúsund krónum.
Hann er fáanlegur í tveimur út-
færslum, Invite og Instyle og er sú
síðarnefnda meðal annars búinn leð-
urinnréttingu, dökkum hliðarrúðum
og stöðugleikastýringu.
Nýr Mitsubishi frumsýndur
VERALDARVINIR hreinsuðu sl.
fimmtudag strandlengju Mosfells-
bæjar ásamt börnum úr Lágafells-
skóla, leikskólanum Huldubergi og
hópi erlendra sjálfboðaliða. Hóp-
urinn hittist í fjörunni fyrir neðan
golfskála Kjalar í Mosfellsbæ.
Veraldarvinir ætla á næstu sex
árum að hreinsa alla strandlengju
Íslands og hefur umhverfisráðu-
neytið ákveðið að styrkja verkefnið
og var umhverfisráðherra við-
staddur þetta fyrsta verkefni sum-
arsins, segir í fréttatilkynningu.
Á myndinni má m.a. sjá Sigríði
Önnu Þórðardóttur umhverfis-
ráðherra með börnum úr Lágafells-
skóla.
Veraldarvinir hreinsuðu í Mosfellsbæ
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
SAMKEPPNIN Reyklaus bekkur
er runnin á enda á þessu skólaári.
Þetta er sjöunda árið sem íslenskir
grunnskólar taka þátt í þessu verk-
efni ásamt 21 öðru Evrópulandi. Í ár
voru um 320 bekkir skráðir til leiks
en þátttakan hefur verið góð öll árin.
Bekkirnir staðfestu reykleysi sitt 6
sinnum í gegnum vefsíðu Lýðheilsu-
stöðvar.
Á skólaárinu voru dregnir út vinn-
ingar og það sem bekkirnir þurftu
að gera til að vera með í útdrætt-
inum var að staðfesta reykleysi sitt.
Vinningar voru bakpokar og geisla-
diskar. Allir þátttakendur fengu
senda litla gjöf sem í ár voru litríkir
sundpokar.
Til að eiga möguleika á að vinna til
fyrstu verðlauna þurftu bekkirnir að
senda inn áhugavert efni tengt tób-
aksvörnum. Nánari útfærsla var
ekki tilgreind til að þrengja ekki
hugmyndir að verkefnum. Í ár, eins
og áður, bárust mjög mörg vel unnin
verkefni og var fjögurra manna
dómnefnd að velja sigurvegara. Alls
bárust 70 lokaverkefni og voru mörg
frábærlega unnin, bæði hvað varðar
hugmyndir og útfærslu.
Úrslitin eru eftirfarandi:
Grunnskóli Mýrdalshrepps, 7.–8.
bekkur, varð í 1. sæti og hlaut utan-
landsferð fyrir bekkinn. Þau gerðu
stuttmynd sem var afraksturinn af
hóp- og þemavinnu. Myndin fjallar
um hvernig reykingarnar gjör-
breyta lífi sögupersónunnar. Á
heimasíðu Lýðheilsustöðvar,
www.lydheilsustod.is, er hægt að
skoða stuttmyndina ásamt grein-
argerð með verðlaunaverkefninu.
2. sæti, iPod shuffle fyrir nem-
endur bekkjarins, hlaut Grunnskól-
inn að Hólum, 7.–8. bekkur, fyrir
ráðstefnuna „Reyklaus framtíð-
arsýn fyrir Skagafjörð“. Ráðstefnan
var tvíþætt, annars vegar fyrirlestur
og hins vegar sýning nemenda þar
sem hver nemandi bar ábyrgð á einu
viðfangsefni.
3. sæti, dagsferð innanlands fyrir
bekkinn (75.000 kr.), hlaut Rima-
skóli, 8. R., fyrir Reykingaskrímslið.
Nemendur gengu í hús, söfnuðu
„stubbum“ og buðu spjald með
hvatningu um að hætta tóbaks-
notkun. „Stubbarnir“ voru svo not-
aðir til að fylla upp í Reykinga-
skrímslið.
Úrslit í sam-
keppninni
„Reyklaus
bekkur“
Verkefni barnanna voru fjölbreytt.
STJÓRN Verkalýðsfélagsins Hlífar
í Hafnarfirði vill að þak verði sett á
laun hálaunafólks. Tilefni ályktunar
stjórnar félagsins er lagafrumvarp
um kjararáð, sem ætlað er að leysa
af hólmi núverandi kjaradóm og
kjaranefnd. Verkefni kjararáðs
verður að ákveða laun og starfskjör
alþingismanna, ráðherra, dómara og
annara ríkisstarfsmanna sem ekki
ráðast með samningum. Í frumvarp-
inu er ákvæði um tengingu við
launavísitölu.
„Stjórn Hlífar er á móti hvers
konar einhliða ákvörðunum um kaup
og kjör hálaunaðra manna sem ekki
eru miðaðar við umsamin laun fólks-
ins sem vinnur framleiðslu-, þjón-
ustu- og umönnunarstörfin í landinu
eða við önnur láglaunastörf sem eru
hornsteinar þjóðfélagsins. Því miður
hefur Kjaradómur haft aðra við-
miðun og þess vegna hafa laun þing-
manna, ráðherra, dómara og ann-
arra embættismanna, sem Kjara-
dómur úrskurðar um, hækkað
verulega umfram almenna kaup-
taxta verkalýðsfélaganna.“
Þak verði sett á laun hálaunafólks