Morgunblaðið - 20.05.2006, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 75
SILVÍA Nótt hafði ekki erindi sem erfiði í undankeppninni í
Aþenu á fimmtudaginn. Baulað var á Silvíu þegar atriðið
byrjaði og eftir að laginu lauk mátti einnig heyra baul og
blístur. Þó voru víst margir í Ólympíuhöllinni sem fögnuðu
og klöppuðu en þeir áttu greinilega ekki mörg skoðana-
systkini í Evrópu allri. Lokatölur yfir atkvæði verða þó ekki
kunngjörðar fyrr en að lokakeppninni liðinni í kvöld.
Eins og sást í tíufréttum Ríkissjónvarpsins og í blöðunum í
gær var Silvía harmi slegin þegar úrslit voru ljós og gremj-
an leyndi sér ekki. Í viðtali við Morgunblaðið í gærmorgun
hafði hún þetta að segja:
„Þessi gríska þjóð laug upp á mig og sagði að ég hefði
sagt eitthvað sem ég sagði ekki. Hérna eru allir ógeðslega
vondir við mig en pabbi minn er búinn að kaupa handa mér
litla eyju þar sem ég ætla að vera áður en ég kem heim.“
Og Silvíu fannst atriðið heppnast mjög vel:
„Þetta var langtöffaðasta atriðið en þeir sem ganga í
Buffalo-skóm og eru með pinna í tungunni og eru frá ein-
hverju landi sem enginn hefur heyrt um kunna ekki að meta
svona atriði.“
Hvað tekur nú við?
„Ég er búin að fá ógeðslega mikið af tilboðum frá alvöru
plötufyrirtækjum og er að fara að taka upp pltötuna mína,
sem verður ógeðslega töff. Ég ætla til LA að taka hana upp
þar.“
Tónlist | Silvía segir grísku þjóðina hafa logið upp á sig
Ætlar að taka upp plötu í Los Angeles
Reuters
„Congratulations.“ Evrópa tók ekki undir
með Silvíu í þetta skiptið.
Hvernig fannst þér Silvía standa sig í
Aþenu?
Mér fannst hún standa sig mjög vel. Hún
var æðisleg og atriðið var frábært en það
heyrðist á henni að hún var móð. Það kom
aðeins niður á söngnum.
Hún var ekki eins kraftmikil og hér
heima.
Átti hún skilið að fara áfram í loka-
keppnina?
Sko, ég held með Silvíu og þess vegna
finnst mér að hún hafi átt það skilið að fara áfram. Lokakeppn-
in hefði að minnsta kosti verið skemmtilegri. Ef til vill fannst
fólki þetta of mikið.
Eigum við að hætta að taka þátt í Evróvisjón?
Nei, ég hef sagt það lengi og segi það aftur; við eigum að
senda Leoncie.
Ragnheiður Eiríksdóttir
Eigum að
senda Leoncie Hvernig fannst þér Silvía standa sig í
Aþenu?
Mér fannst hún standa sig ótrúlega vel,
miðað við það að eftir 20 lög sem öll hlutu
lófaklapp var baulað á hana. Ég hugsaði
áhorfendum í Aþenu þegjandi þörfina.
Silvía er karakter sem á að fara yfir strikið,
annars væri hún ekki Silvía Nótt. Ég veit
ekki hvað ég hefði gert í hennar sporum ef
ég hefði fengið svona viðbrögð.
Átti hún skilið að fara áfram í lokakeppnina?
Já. Hún hafði alveg jafnmikla ástæðu til að fara áfram eins
og hver annar. Þetta er orðið hálfgert Balkanvisjón eða Júgó-
visjón og við eigum einfaldlega við ofurefli að etja.
Eigum við að hætta að taka þátt í Evróvisjón?
Nei, ég sé enga ástæðu til þess. Þetta er búið að krydda
þjóðfélagið með frábærum hætti. Ég tek ofan fyrir Ágústu
Evu og fylgdarliði hennar. Þau stóðu sig öll frábærlega. Skítt
með það þótt við höfum ekki komist áfram.
Jón Jósep Snæbjörnsson
Balkanvisjón
Hvernig fannst þér Silvía Nótt standa
sig í Aþenu?
Bara eins og búast mátti við. Þetta er
einn risastór gjörningur og það var ekk-
ert sem kom mér á óvart. Ég bjóst við
því að hún myndi detta út. Fólk í Úkr-
aínu skildi þetta greinilega ekki.
Átti hún skilið að fara áfram í loka-
keppnina?
Ég veit það ekki. Það er svo margt
sem fólk á skilið en gengur ekki eftir. Ég verð bara að
segja pass.
Eigum við að hætta að taka þátt í Evróvisjón?
Nei, nei. Alls ekki. Það er gaman að þessu. Þetta er einn
af þessum föstu liðum þar sem fjölskyldan sameinast og
vinir hittast og gleðjast. Það er næg ástæða til að halda
áfram. Þetta er mjög spes en í grunninn er mjög falleg
hugsun á bak við þessa keppni. Evrópa sameinast í söng í
stað þess að sundrast í stríði.
Ólafur Páll Gunnarsson
Risastór gjörningur
Sími - 551 9000
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
eee
J.Þ.B. Blaðið
Mannbætandi og þrælfyndin
rómantísk gamanmyndmeð
með Uma Thurman og Meryl
Streep í fantaformi!
BYGGT Á METSÖLUBÓK ASTRID LINDGREN
Skrolla og Skelfir
Á SALTKRÁKU
FRÁBÆRT ÆVINTÝRI FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
400krVERÐ
ÍSLENSKT TAL
HROTTALEGASTA
MYND ÁRSINS
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Cry Wolf kl. 8 B.i. 16 ára
Banditas kl. 8 og 10
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 3 og 6
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 3 og 6
Prime kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
The Hills Have Eyes kl. 10 B.i. 16 ára
kl. 2 og 4 ÍSL. TAL
Sýnd kl. 4 íslenskt tal
BYGGT Á METSÖLUBÓK ASTRID LINDGREN
Skrolla og Skelfir Á SALTKRÁKU
FRÁBÆRT ÆVINTÝRI FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
400krVERÐ
ÍSLENSKT TAL
-bara lúxus
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10:50 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10, B.i. 10 ára
FRÁBÆR GRÍNSPENNUMYND FRÁ
SNILLINGNUM LUC BESSON
EFTIRSÓTTUSTU BANKARÆNINGJAR
VILLTA VESTURSINS ERU MÆTTIR
Salma hayekpénelope cruz
Leitið
sannleikans.
Byggð á vinsælustu skáldsögu veraldar.
Stærsta
frumsýning ársins!
„...einn útsmognasti, frumlegasti
og vitrænasti spennutryllir ársins“
eeee- SV, MBL
„Pottþétt skemmtun“
eeee-LIB, Topp5.is
eeee
-MMJ kvikmyndir.com
kl. 2 ÍSL. TAL
kl. 5.40, 8 og 10:20 B.i. 16
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU