Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 137. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Afmælisblað - 2006 Ókeypis eintak
Sjáið myndirnar!
Samúel Örn og
Ásta B.:
ÓLÉTT OG
ÁNÆGÐ!
Hildur Vala
og Jón Ólafs:
GIFTU SIG ÓVÆNT!
Annþór Karlsson,
handrukkari:
Einar Bárðar o
g Áslaug:
ÁSTFANGINN
Á HRAUNINU!
BARNIÐ KOMIÐ
Í HEIMINN!
Kolfinna
Baldvins:
KÁT Í KOSOVO
SKILIN!
NASA-hjónin:
Bara í
NÝTT
PAR!
EINTAKIÐ
ÞITT!
ÁRA Á ÞESSU ÁRI10
Sérstök afmælisútgáfa
SÉÐ OG HEYRT fylgir
Morgunblaðinu í dag
Jórunn Viðar
og tónlistin
Það kom aldrei neitt annað til
greina en að starfa við tónlist 24
Tímaritið og Atvinna
Tímaritið | Vön því að fá skelli Furðuverurnar Skoppa og Skrítla
Sumarkjólarnir Í ruslið eftir notkun Gall í iðrum húsnæðis
Atvinna | Fjölbreytt störf á öllum sviðum atvinnulífsins
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
FRAMBOÐIN í Reykjavík í sveitarstjórnarkosning-
unum í vor vilja öll gera átak í málefnum aldraðra og
meðal annars byggja ný hjúkrunarheimili, efla
heimaþjónustu og hækka laun umönnunarstétta.
„Það er lykilatriði að hækka laun þeirra sem sinna
umönnunarstörfum. Það er fjöldinn allur af hæfu
fólki sem myndi sækjast eftir slíkum störfum ef laun-
in væru mannsæmandi. Það er ekki hægt að sætta
sig við það lengur að þessi störf, sem eru að lang-
mestu leyti kvennastörf, séu ekki metin að verðleik-
um,“ segir Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðis-
manna, segir að sjálfstæðismenn leggi áherslu á mál
eldri borgara. „Það er sjálfsagt réttlætismál að leið-
rétta lægstu laun þeirra sem vinna að umönnun eldri
borgara enda er það algjör forsenda þess að hægt sé
að halda uppi fullnægjandi starfsemi á heimilum fyrir
aldraða. Einnig er mikilvægt að marka stefnu til
framtíðar um það hvernig við viljum búa að þeim sem
eldri eru. Sjálfstæðismenn vilja efla og samræma
heimaþjónustu og heimahjúkrun og gera stórátak í
byggingu hjúkrunarheimila í samvinnu við ríkið.“
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar,
segir að opinberir aðilar verði að viðurkenna skyldur
sínar í þessum efnum „og mega ekki velta óvissunni
yfir á einstaklinga og aðstandendur með því að ríkið
dragi við sig að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir
eða að veita eðlilegan stuðning. Því viljum við taka
upp svokallaða þjónustutryggingu, sem þýðir að ef
þjónustan dregst óeðlilega skapast réttur til greiðslu.
Þar með væri búið að innleiða fjárhagslegt aðhald á
stjórnvöld til að byggja upp þjónustukerfin á þeim
sviðum þar sem þjónustan er skilgreindur réttur ein-
staklinga.“
„F-listinn leggur áherslu á framkvæmdir í þágu
fólksins en ekki gæluverkefni. Við ætlum að lækka
fasteignagjöld aldraðra og öryrkja strax á næsta ári.
Í því skyni viljum við hækka tekjumörk fyrir nið-
urfellingu fasteignagjalda um 100% þegar á næsta
ári. Við teljum þetta raunhæfa aðgerð til að hjálpa
öldruðum og öryrkjum að búa í eigin húsnæði eins
lengi og þeir kjósa og að þetta fari vel saman við fyr-
irætlanir okkar um eflingu heimaþjónustu í borg-
inni,“ segir Ólafur F. Magnússon, oddviti Frjálslynda
flokksins.
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknar, segist
telja að efna þurfi til þjóðarátaks í málefnum aldraðra
„og ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að Íslend-
ingar þurfi að senda skýrari skilaboð um hvernig þeir
meti störf umönnunarstétta. Ég tel að flestir séu
þeirrar skoðunar að hækka beri laun þessara hópa,
en kalla um leið eftir ábyrgð þeirra sem tilheyra
hærri launahópum svo þeir komi ekki allir í fram-
haldinu og biðji um annað eins og jafnvel meira.“
Átak í málefnum aldraðra
Vilja hækka laun, reisa
heimili, lækka gjöld og
efla heimaþjónustu
Oddvitar framboðanna í Reykjavík
sitja fyrir svörum 40–42
Eftir Ómar Friðriksson og Hjálmar Jónsson
ÞYRLUÞJÓNUSTAN bætti nýlega við flugflota sinn
þegar fyrirtækið tók í notkun nýja þyrlu af gerðinni
Schweizer Hughes 300c. Að sögn Sigurðar Pálmason-
ar, framkvæmdastjóra Þyrluþjónustunnar, tekur þyrl-
an 2 farþega, auk flugmanns, og er flugdrægi hennar
um 5 klukkustundir. Hann sagði að þyrlan yrði aðal-
lega notuð í verkflug og útsýnisflug auk þess sem á döf-
inni er að nota hana í kennslu. Sigurður hefur ekki
flogið þyrlunni sjálfur en sagði að þeir flugmenn sem
hefðu gert það segðu hana láta vel að stjórn og vera
ljúfa í hreyfingum. Á myndinni sést þyrlan sveima yfir
Hengilssvæðinu í vikunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í gufumekki á Hengilssvæðinu
Bagdad. AFP, AP. | Íraska þingið sam-
þykkti í gær myndun fyrstu eigin-
legu ríkisstjórnar landsins eftir inn-
rás Bandaríkjamanna og banda-
manna árið 2003. Stjórninni er ætlað
að vera einskonar þjóðstjórn, en inn-
an hennar eru ráðherrar úr röðum
sjíta, súnníta og Kúrda.
Sjítinn Nuri al-Maliki, nýr for-
sætisráðherra Íraks, tilkynnti nýju
stjórnina í gær, fimm mánuðum eftir
kosningarnar í desember. Við það
tilefni sagði al-Maliki að megin-
markmið stjórn-
arinnar væri að
koma á stöðug-
leika, en leiddar
hafa verið líkur
að því að tóma-
rúmið í stjórn
landsins undan-
farna mánuði hafi
aukið á óstöðug-
leikann í Írak.
Dreifast 37 ráðherrastöður stjórn-
arinnar á milli þjóðarbrotanna
þriggja, en enn á eftir að skipa í emb-
ætti innanríkis- og varnarmálaráð-
herra. Fulltrúar helstu flokka hafa
ekki getað komið sér saman um þessi
embætti, sem þykja afar mikilvæg í
ljósi ótryggs ástands í landinu.
Gæti auðveldað brottflutning
Vonast Bandaríkjastjórn til að
myndun stjórnarinnar muni hjálpa
til við að koma á stöðugleika í Írak og
þannig skapa skilyrði fyrir brott-
flutningi bandarískra hermanna.
Írakar mynda ríkisstjórn
Nuri al-Maliki
UM 4.500 erlendir borgarar hafa
kosningarétt í komandi sveitar-
stjórnarkosningum og hefur sú
tala rúmlega tvöfaldast frá kosn-
ingunum 2002. Um 5 þúsund að
auki hafa fengið íslenskan
ríkisborgararétt á síðustu 20 ár-
um.
„Í sumum byggðarlögum eru at-
kvæði þeirra farin að skipta veru-
legu máli,“ segir Einar Skúlason,
framkvæmdastjóri Alþjóðahússins.
„Sumir hafa brennandi áhuga,
öðrum finnst þeim ekki koma
þetta við. Ég lít svo á að þetta sé
stór hluti af aðlögun þeirra að
samfélaginu; aðlögunin felst í því
að læra tungumálið, vinna eða
stunda nám, og taka þátt í kosn-
ingum – taka afstöðu.“ | 10
4.500 erlendir
borgarar með
kosningarétt
MÖRG hundruð víetnamskra sjó-
manna var í gær enn saknað eftir að
fellibylurinn Chanchu reið yfir Suð-
ur-Kínahaf í síðustu viku. Að
minnsta kosti 92 hafa farist af völd-
um hans í Suður-Asíu. Fellibylurinn
átti upptök sín yfir Kyrrahafi, en
hann skall á Filippseyjum og reið svo
yfir Suður-Kína.
Tölur um fjölda sjómanna sem er
saknað eru misvísandi og segir í
sumum fréttaskeytum að allt að 300
sé saknað, í öðrum 200. Lík 24 víet-
namskra sjómanna hafa þegar fund-
ist, en um er að ræða öflugasta felli-
byl sem nokkru sinni hefur mælst á
Suður-Kínahafi í maímánuði.
Sjómennirnir sem saknað er voru í
tveimur aðskildum bátaflotum þegar
fellibylurinn reið yfir, en talið er að
hann hafi sökkt 11 skipum.
Voru margir bátanna illa búnir
fyrir óveður, þ.m.t. bambusbátar
sem voru í samfylgd með stærri
skipum. Dregið hefur úr vindhraða
Chanchu sem var yfir Suður-Japan
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Hundraða
Víetnama
saknað
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is ÞEIR hópar sem helst eiga á hættu
að vera bágstaddir á Íslandi í fram-
tíðinni eru fátæk börn og önnur kyn-
slóð innflytjenda.
Rauði kross Íslands kannaði ný-
lega stöðu þeirra sem minnst mega
sín í samfélaginu og var niðurstaðan
sú að sjö hópar standa verst, ör-
yrkjar, einstæðar mæður, innflytj-
endur, aldraðir, karlar sem eru ein-
stæðingar, geðfatlaðir og börn sem
búa við erfiðar aðstæður.
Þegar sambærileg könnun var
gerð árið 2000 nefndu margir við-
mælendur Rauða krossins að hætt
væri við að börn innflytjenda myndu
eiga undir högg að sækja í framtíð-
inni.
„Sex árum síðar er sá spádómur
að rætast. Þróunin er því svipuð og í
nágrannalöndunum. Við erum hins
vegar komin skemmra á veg og í því
felast mörg tækifæri. Við ættum að
geta lært af reynslu annarra og gert
betur,“ segir Kristján Sturluson,
framkvæmdastjóri Rauða kross Ís-
lands.
Á brattann
að sækja hjá
börnum inn-
flytjenda
Fátækt, einangrun | 14