Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 59 UMRÆÐAN í fögru umhverfi við Elliðavatn Álfkonuhvarf 53-55 www.bygg.is Íbúðir af ýmsum gerðum til sölu. Upplýsingar gefa sölumenn. Byggingafélag Gylfa og Gunnars byggir 4ra hæða fjölbýlishús með lyftum við Álfkonuhvarf við Elliðavatn. Í húsinu eru 3ja - 4ra herbergja íbúðir með sérinngangi á svalagangi. Íbúðirnar verða búnar vönduðum innréttingum úr eik. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum. Í bílageymsluna er innangengt úr húsinu. Fallegur sameiginlegur suðurgarður. Húsið er með varanlegum utanhússfrágangi. E N N E M M / S IA / N M 19 9 7 9 Sölusýning í dag kl. 14-16 www.fjarfest.is Sími 594 5000 STÓRHÖFÐI 27 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Ránargata - glæsileg Vorum að fá í einkasölu glæsi- lega 6 herbergja 128 fm íbúð ásamt tveimur herbergjum í kjallara. Íbúðin er á tveimur hæðum. Sérinngangur. Á neðri hæðinni er forstofa, gangur, eldhús, baðherbergi og stór stofa. Á efri hæðinni eru fjögur stór herbergi. Íbúðin er mjög glæsileg og hefur verið stand- sett á vandaðan hátt. Gegnheilt eikarparket og flísar á gólfum. Lóðin er nýstandsett, með nýrri grasflöt og hellulögn. Verð 39,5 millj. ÞAÐ er ekki liðin vika frá því eldri borgarar máttu þola þá óbilgirni og það óréttlæti að vera ekki sinnt nema að ein- hverjum hluta vegna þess að hjúkrunarfólk hafði kosið að beita því fyrir vagninn til frekari kauphækkana. Einu máli gilti þótt hinir sömu eldri borg- arar hefðu greitt að fullu fyrir umönnun, öll gjöld til þeirrar stofnunar er þeir dvöldu á auk þess ótölulega fjölda sem greiðir allt að 75% af lífeyrisgreiðslum til ríkisins. Eldri borg- arar eru tvískattaðir hvað þessar greiðslur varðar. Ég heyrði ein- hvern tíma talað um einhverja stjórn er færi fyrir málefnum eldri borgara. Ég veit að þeir hafa gert athugasemdir við þetta fyr- irkomulag en hvar voru þeir þegar hjúkrunarfólk/umönnunarfólk bundið sérstökum samningum tók sig til og fór í setuverkfall? Hvar í ósköpunum voru þeir? Eru þeir báðum megin borðsins, eru þeir múlbundnir sem skólastjórar grunnskólanna sem einnig sitja báð- um megin borðsins? Þögn þeirra var hrópandi, þýlyndi þeirra með ólíkindum, – varðandi þær strengja- brúður sem skólastjórar nefnast kemur ekkert á óvart. Ekki tekur síðan betra við því nú skulu fatlaðir fá að finna til tevatnsis. Það er stórmannlegt hvern- ig þetta fólk velur and- stæðinga sína! Það er stórmannlegt að koma þannig fram við skjól- stæðinga sína! Sagt var forðum tíð að Sigmund Freud hefði komist að þeirri niðurstöðu að psychoanalysan eða sál- greiningin væri ekki annað en brauð. Leit á vinnu sína sem hvert annað einskisvert strit. Eru fatlaðir orðnir brauð, – eru þeir brauð sem menn éta en er að öðru leyti hjartanlega sama um? Er það þetta sem þessi söfnuður sem fjórfyllir kirkjur á aðfangadag jóla lærir af prestum eða er svo komið að jafnvel sá dagur er ekki annað en smurningin á steikina til að geta fyllt öll vit af hamborg- urum og grísasteik með góðri sam- visku? Þá er nú betra að ganga hreint til verks og breyta þessum samkunduhúsum í ölstofur eins og dæmin eru um. Þeir sem tóku að sér umönnun eldri borgara og fatlaðra skrifuðu undir kjarasamninga. Hafi þeir ver- ið svo vitlausir og svo frávita og ut- angátta að hafa skrifað undir samn- ing sem þeir ætluðu sér aldrei að standa við þá ber að víkja þessu sama fólki tafarlaust og án upp- sagnarrétts úr starfi því það hefur hvorttveggja í senn svikið umbjóð- endur sína sem og vinnuveitendur. Það á að manna þessar stöður þeg- ar í stað af fólki, jafnvel erlendis frá; ekki bíða eitt andartak með það. Það er eins með þá fötluðu sem eldri borgara að allt hefur þetta fólk borgað himinháar upphæðir fyrir umönnun sem það ýmist ekki fær eða ekki stendur til að það fái. Hvar í ósköpunum eru málsvarar þessa fólks, því þegja þeir þunnu hljóði? Verða það síðan verkalýðsfélög og umsemjendur þessa fólks sem greiða eldri borgurum og fötluðum þær upphæðir til baka sem þegar hafa verið hafðar af þeim og stend- ur til að gera? Ætla hinir þegjandi þursar, sem að eiga að heita mál- svari eldri borgara og fatlaðra, að láta við það sitja að framkoma við þessa hópa sé með þessum hætti? Ber að trúa því að þeir ætli ekki í mál við ríkið til að krefjast þeirra upphæða sem hafðar hafa verið sannanlega af eldri borgurum? Það heyrist ekki eitt einasta orð frá þessu fólki einu sinni! Hvílíkur aumingjaháttur! Það er staðreynd að undanfarin ár hefur kvenfólk fyllt umönn- unarstéttir meira og minna sem orðið hefur til að stórskerða öll kjör. Langt yfir 90% þeirra er starfa við grunnskólann eru kven- fólk og launakjör og virðing sam- kvæmt því. Er ef til vill komið að því að umönnunarstéttir þurfi að at- huga það í fullri alvöru hvort ekki sé kominn tími til að fara í kyn- skiptaaðgerð eða einhverja þá með- höndlun með testósterónum eða karlhormónum að menn gangi inn- an mánaðar sem úlfhundar til starfa sinna. Má vera að einhver vaknaði upp við að taka beri mark á þessu fólki. – Umönnunarstéttir í kynskiptaaðgerðir? Guðni Björgólfsson fjallar um kjör umönnunarstétta ’Langt yfir 90%þeirra er starfa við grunnskól- ann eru kvenfólk og launakjör og virðing sam- kvæmt því.‘ Guðni Björgólfsson Höfundur er kennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.