Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 83
FAGNAÐARLÁTUNUM ætlaði
aldrei að linna og lá við að gagnrýn-
andi yrði að grípa fyrir eyrun, svo
kröftug voru viðbrögð áhorfenda
undir lok tónleika stúlknadúettsins
CocoRosie á Nasa á fimmtudags-
kvöldið. Og eftir lágstemmda byrj-
un er ekki hægt að segja annað en
að systurnar Sierra og Bianca Cas-
sidy, ásamt gestalistamanni kvölds-
ins, Pascal Oly Oyong, eða Splinx,
hafi náð áhorfendum vel á sitt vald.
Lög á borð við Noah’s Ark, Tekno
Love Song og Beautiful Boyz, sem
Íslandsvinurinn Anthony tekur með
þeim systrum á nýjustu plötu
þeirra Noah’s Ark, fengu góðar við-
tökur áhorfenda, sem flestir voru
kvenkyns á aldrinum 18-25 ára og
vel með á nótunum.
Aldur eða ást á árgangstísku er
hins vegar ekkert skilyrði því það
er auðvelt að láta hrífast með þess-
um hæfileikaríku systrum. Tónlist
þeirra er seiðandi bræðingur ólíkra
menningarheima og tónlistarstefna.
Sérstæð, allt að því barnsleg rödd
Biöncu, sem á köflum minnir á
Björk, og kraftmikil rödd Sierru í
bland við hljóðgervla, hefðbundin
hljóðfæri, þroskaleikföng og raunar
hvaðeina annað sem þeim dettur í
hug að nota til tónlistarsköpunar,
skapar þeim sérstæðan og auð-
kennilegan stíl sama hvað tónlistar-
straumum og -stefnum líður. Lög á
borð við South 2nd, hipphopp--
skotna útgáfu af Noha’s Ark og svo
Armageddon, sem áhorfandi kallaði
eftir með miklum tilþrifum í upp-
klappi, eru góð dæmi ólík lög sem
þó eru öll mjög svo í stíl CocoRosie.
Tónlist CocoRosie er full fjöl-
breytilegra hljómbrigða og hljómar
fyrir vikið vel án utanaðkomandi
truflunar og það er ekki laust við að
hún fái á sig annan, en ekki endi-
lega verri, brag á tónleikum fyrir
fullum sal af fólki. Listakonurnar
eru líka ófeimnar við að leika sér
með tónlist sína og sníða að að-
stæðum og efnivið hverju sinni og
lögin fá þannig á sig nýjan og ólík-
an blæ, samanber Beautiful Boyz
sem tekið var á lægra tónsviði en
með Anthony. Uppi á hljóm- og
hljóðfærafullu sviðinu var heldur
ekki laust við að þær Bianca og
Sierra kölluðu fram í hugann ís-
lensku stúlknasveitina Aminu. Því
þó tónlistin væri ólík var samskon-
ar heimilislegt sýsl í gangi – hér
var líka bardúsað með hljóðgervla,
óhefðbundnar hljómmyndanir og
flakkað á milli hljóðfæranna á sama
látlausa hátt og stöllurnar í Aminu
gera, þó e.t.v. ekki á jafnagaðan
máta.
CocoRosie buðu áhorfendum
heldur ekki upp á þaulæfða dans-
rútínu heldur bjuggu „amatörlegar“
hreyfingar systranna yfir sjarm-
erandi einlægni sem færði áhorf-
endurna nær tónlistarmönnunum –
svona eins og að tónleikarnir færu
fram í stofunni heima – og var í af-
slappaðri mótsögn við skjálistaverk-
ið í bakgrunni sviðsins og vel skipu-
lagða dagskrá sem náði yfir
upphafs- og lokaklæðnað – tígu-
legan fjaðrahöfuðbúnað, grímu og
bleikan nælonmorgunslopp. Litrík
sviðssetning sem skilaði skemmti-
legum og einlægum tónleikum þó
ekki væri laust við að hún drægi at-
hyglina nokkuð frá fínlegum marg-
breytileika tónlistarinnar. Coco-
Rosie verður því áfram að mínu
mati tónlist til að hlusta á í einrúmi
– með ljósin slökkt.
Tilraunarómantík með
heimilislegum blæ
TÓNLIST
Nasa
Tónleikar CocoRosie á Nasa 17. maí,
Paul Lydon hitaði upp.
COCOROSIE Morgunblaðið/Eyþór
Sierra og Bianca Cassidy sem skipa CocoRosie skemmtu áhorfendum á
Nasa vel á fimmtudagskvöldið.
Anna Sigríður Einarsdóttir
Væntanleg er ný sólóplata fráGuðmundi Jónssyni, að-
allagasmiði og gítarleikara Sálar-
innar hans Jóns míns. Platan sem
kemur til með að heita Jaml, er
önnur platan í trílógíu hans er
hófst með disknum Japl og kom út
árið 2004.
Jaml inniheldur tíu glæný lög og
texta eftir Gumma sem í þetta
skiptið sér sjálfur um allan hljóð-
færaslátt, söng og upptökur, að
einu lagi frátöldu þar sem Gummi
syngur dúett með Magnúsi Þór
Sigmundssyni.
Þessa dagana er fyrsta lagið af
disknum á leið í spilun og er það
lagið „Fyrirgefðu“ sem ríður á vað-
ið. Í kjölfar útkomu plötunnar í
byrjun næsta mánaðar, mun
Gummi fara í einmennings-
tónleikaferð um land allt í júní og
júlí. Verður það auglýst síðar.
Fólk folk@mbl.is
Sími - 551 9000
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
eee
V.J.V Topp5.is
eee
H.J. Mbl
eee
J.Þ.B. Blaðið
Mannbætandi og þrælfyndin
rómantísk gamanmyndmeð
með Uma Thurman og Meryl
Streep í fantaformi!
BYGGT Á METSÖLUBÓK ASTRID LINDGREN
Skrolla og Skelfir
Á SALTKRÁKU
FRÁBÆRT ÆVINTÝRI FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
400krVERÐ
ÍSLENSKT TAL
HROTTALEGASTA
MYND ÁRSINS
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Cry Wolf kl. 8 B.i. 16 ára
Banditas kl. 8 og 10
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 3 og 6
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 3 og 6
Prime kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
The Hills Have Eyes kl. 10 B.i. 16 ára
kl. 2 og 4 ÍSL. TAL
Sýnd kl. 4 íslenskt tal
BYGGT Á METSÖLUBÓK ASTRID LINDGREN
Skrolla og Skelfir Á SALTKRÁKU
FRÁBÆRT ÆVINTÝRI FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
400krVERÐ
ÍSLENSKT TAL
-bara lúxus
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10:50 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10, B.i. 10 ára
FRÁBÆR GRÍNSPENNUMYND FRÁ
SNILLINGNUM LUC BESSON
EFTIRSÓTTUSTU BANKARÆNINGJAR
VILLTA VESTURSINS ERU MÆTTIR
Salma hayekpénelope cruz
Leitið
sannleikans.
Byggð á vinsælustu skáldsögu veraldar.
Stærsta
frumsýning ársins!
„...einn útsmognasti, frumlegasti
og vitrænasti spennutryllir ársins“
eeee- SV, MBL
„Pottþétt skemmtun“
eeee-LIB, Topp5.is
eeee
-MMJ kvikmyndir.com
kl. 2 ÍSL. TAL
kl. 5.40, 8 og 10:20 B.i. 16
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU