Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 47
MENNING
Heimsferðir bjóða frábær tilboð til Rimini í maí og júní. Njóttu lífs-
ins í sumar á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Rimini er
ekki aðeins frábær áfangastaður út af fyrir sig heldur eru ótrúlega
spennandi valkostir í næsta nágrenni, vilji menn kynnast mörgum
andlitum Ítalíu í einni ferð.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Rimini
Vinsælasti sumarleyfisstaður Ítalíu
Síðustu sætin í maí og júní
frá kr. 29.995
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
Verð kr.34.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð í
viku. Stökktu tilboð 24. og 31. maí. Flug, skattar,
gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr.
10.000.
Verð kr.29.995
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í viku. Stökktu tilboð 24. og 31. maí.
Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Aukavika kr. 10.000.
Niðurstöður endurmælingar
grunnstöðvanetsins 2004
Hótel Loftleiðum, þingsal 4,
miðvikudaginn 24. maí kl. 13:00 - 16:00.
Fjallað verður um niðurstöður endurmælingar
landshnitakerfisins 2004 og gerður samanburður
við niðurstöður mælinganna frá 1993
Dagskrá:
13:00 Setning fundar.
13:10-13:40 Skipulag og framkvæmd endurmælingar
landshnitakerfis og framtíð þess.
Þórarinn Sigurðsson, Landmælingum Íslands.
13:40-14:10 Niðurstöður mælinganna og ný viðmiðun fyrir Ísland.
Guðmundur Valsson, Landmælingum Íslands.
14:10-14:40 Notkun landshnitakerfisins við mælingar fyrir sveitarfélög.
Páll Bjarnason, Verkfræðistofu Suðurlands.
14:40-15:10 Kaffihlé.
15:10-15:40 Jarðskorpuhreyfingar á Íslandi út frá
jarðeðlisfræðilegu sjónarmiði.
Halldór Geirsson, Veðurstofu Íslands.
15:40-16:00 Umræður.
Fundarstjóri: Páll Einarsson, Jarðvísindastofnun Háskólans.
Skráning: lisa@ust.is, í síðasta lagi 23. maí.
Þátttökugjald: Kr. 2.500 fyrir félagsmenn - kr. 3.500 fyrir aðra.
Einn af viðburðum Listahá-tíðar í Reykjavík sem ferfram í dag er sýning í
Kvikmyndasafni Íslands klukkan
20 á myndinni La Strada eftir
ítalska leikstjórann Federico Fell-
ini. Þessi merka mynd er sýnd í
kjölfar tónleika Kammersveitar
Hafnarfjarðar í Hafnarborg þar
sem flutt verður tónlist eftir Nino
Rota en hann samdi tónlist fyrir
flestallar myndir Fellinis. Örlítil
skoðun á Federico Fellini er því
vel við hæfi í dag og slíkt mun
vera efni þessa pistils.
Fellini fæddist árið 1920 íferðamannaborginni Rimini
á Ítalíu, Adríahafsmegin. Margir
halda því fram að það séu fáir
leikstjórar sem hafi verið eins
sjálfsævisögulegir í listsköpun
sinni og hann en sem krakki
heillaðist Fellini mjög af fjöl-
leikahópum sem gjarnan heim-
sóttu heimabæinn og bera myndir
hans sterkan keim af því. Ekki
síst La Strada. Eins mun kaþólsk
skólaganga Fellinis hafa haft
mikil áhrif á seinni tíma verk
hans sem eru að einhverju leyti
gagnrýnin á kaþólsku kirkjuna
en á sama tíma bera þessar
myndir mikinn andlegan blæ.
Áður en Fellini fór að vinna við
kvikmyndir hafði hann starfað
eitthvað við blaðamennsku og
hann fékkst auk þess aðeins við
að teikna skopmyndir. Fyrsta
reynsla hans í leikstjórastólnum
var myndin Luci del varietà sem
kom út árið 1950 en það var ekki
fyrr en fjórum árum seinna, með
kvikmyndinni La Strada, sem
Fellini öðlast alþjóðlega við-
urkenningu. La Strada er yf-
irleitt talin meistarastykki Fell-
inis og er eflaust í hópi
áhrifamestu kvikmynda sög-
unnar. Fyrir þessa mynd hlaut
hann sín fyrstu óskarsverðlaun
en alls hlaut hann fimm slíkar
styttur á ferlinum. Önnur ósk-
arsverðlaunin fékk Fellini fyrir
myndina Le Notti di Cabiria árið
1957. Ein af þekktustu myndum
hans, La Dolce Vita, færði honum
Gullpálmann í Cannes árið 1960
og svo hlaut hann þriðja óskarinn
fyrir myndina Otto e Mezzo árið
1963. Fjórðu óskarsverðlaunin
fékk hann árið 1973 fyrir mynd-
ina Amarcor og svo hlaut hann
sérstök heiðursverðlaun fyrir ár-
angursríkt ævistarf í þágu kvik-
myndalistarinnar á óskarsverð-
launahátíðinni 1993. Það sama ár
lést Fellini, 73 ára að aldri, eftir
að hafa legið í tvær vikur í dái.
La Strada gerist í örbirgðinnieftir seinna stríð og segir
frá einfaldri bóndadóttur, Gel-
sominu, sem er seld af fjölskyldu
sinni til grimma aflraunamanns-
ins Zampano sem ferðast með
fjölleikahúsi um sveitir Ítalíu. Á
milli Gelsominu og Zampano
myndast síðan sérstakt samband
sem hefur í för með sér mikla
óhamingju beggja aðila. Myndin
er afskaplega ljóðræn og harm-
ræn í lýsingu sinni á örlögum
þeirra og hún ber með sér mörg
af helstu kennileitum Fellinis.
Tónlist Nino Rota er mjög stór
þáttur í áhrifamagni La Strada.
Þá má sérstaklega nefna hið ang-
urværa lag Gelsominu, sem er
jafnframt grunnstefið í myndinni,
en það stef hverfur seint úr
minni áhorfandans. Í kjölfar La
Strada hófst gjöfult samstarf
Rota og Fellinis sem entist allt til
dauðadags þess fyrrnefnda árið
1979 og eru flestir sammála um
að tónlist Nino Rota hafi ávallt
verið veigamikill þáttur í mynd-
um Fellinis.
Fyrir sýninguna á La Strada
ætlar kammersveit Hafnarfjarðar
að flytja tónverk eftir Rota, eink-
um úr umræddri kvikmynd.
Hljómsveitarstjórn verður í hönd-
um Michele Marvulli, fyrrverandi
nemanda í tónsmíðum hjá Nino
Rota, en hann hefur útsett ball-
ettsvítu sem byggir á stefjum La
Strada og mun hún hljóma í
Hafnarborg í dag.
Woody Allen lét eitt sinn þau
orð falla um Fellini að hann hefði
verið „frumlegasti leikstjóri okk-
ar tíma“ og eflaust eru margir
sem taka undir það. Hvað sem
öðru líður er Fellini einn áhrifa-
mesti leikstjóri kvikmyndasög-
unnar og er La Strada ein af
helstu ástæðum þess.
Meistarastykki Fellinis
’Þá má sérstakleganefna hið angurværa lag
Gelsominu, sem er jafn-
framt grunnstefið í
myndinni, en það stef
hverfur seint úr minni
áhorfandans.‘
Federico Fellini
AF LISTUM
Þormóður Dagsson
thorri@mbl.is
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
HAFT hefur verið eftir Chopin að
ekkert sé fallegra en einn gítar;
nema tveir bætti Sveinbjörn I. Bald-
vinsson seinna við. Þar sem ég er
ekki mikill gítargeggjari væri mín
viðbót að þrír gítarar væru heldur
betri, því þá væri auðveldara að
svinga hressilega og ætti slíkt heima
í djassi þegar flutt væri klassísk
djassefnisskrá eins og Gítartríóið
gerði þetta kvöld.
Í fararbroddi tríósins var Jón Páll
Bjarnason, sem ásamt Erni Ár-
mannssyni var helstur sporgöngu-
maður Ólafs Gauks, fyrsta íslenska
djassgítareinleikarans. Með Birni
Thoroddsen varð önnur bylting og
nú eru góðir djassgítarleikarar á
hverju horni, s.s. Andrés Þór og
Guðmundur Péturs og þeir sem léku
með Jóni Páli: Ásgeir Ásgeirsson í
B3 og Eðvard Lárusson úr Stór-
sveitinni m.m.
Tónleikarnir hófust á klassískum
söngdansi Arthurs Schwartz, Alone
Together, og var þar mörkuð hin
músíkalska lína kvöldsins. Einn
þeirra félaga lék laglínuna meðan
annar sló undir hljóma og hinn þriðji
lék bassa. Síðan fékk hver um sig að
spinna. Þetta gekk vel upp í söng-
dönsum með innborna sveiflu einsog
Alone Together og Have You Met
Miss Jones? eftir Richard Rodgers.
Aftur á móti var Satin Doll Elling-
tons heldur líflaus, en það lag, sem
var síðasti stórsmellur tónsnillings-
ins, hefur jafnan reynst djass-
mönnum erfið listnáma. Annað var
upp á teningnum í Don’t Get Around
Much Anymore sem Ellington samdi
upp úr dvergkonserti sínum Never
No Lament. Þar lék Jón Páll frá-
bært blúsmettað sóló en í ópus
meistara hans Parkers, Anthropo-
logy, vitnaði hann í föður rafgítars-
ins, Charlie Christian. Þar átti Eddi
Lár sterkt hljómandi sóló. Ásgeir
vitnaði snilldarlega í áttundarstíl
Wes Montgomerys í sóló sínum í
West Coast-blúsi Montgomerys og
annar klassískur djassblús var leik-
inn, Sandu eftir Clifford Brown. Aft-
ur á móti var mest gaman að túlkun
þeirra á mollblúsi Coltranes, Mr.
P.C, og svo skal þess getið að þeim
tókst að leika morgunsömbu Bonfa
úr Orfeus Negro af listfengi, en það
hefur vafist fyrir mörgum Íslend-
ingnum.
Þarna var margt vel gert þótt
stundum hafi skort á samhæfingu og
þegar best lét var sveiflan heit og
tónauðug.
Gítarsveifla
DJASSTÓNLIST
Múlinn í Þjóðleikhúskjallaranum
Jón Páll Bjarnason, Ásgeir Ásgeirsson og
Eðvard Lárusson á gítara. Miðvikudags-
kvöldið 10.5. 2006.
Gítartríó
Vernharður Linnet