Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 72
72 SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristín Arn-finnsdóttir fæddist í Lambadal ytri í Dýrafirði 17. júní 1908. Hún lést á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnar- firði 26. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Arn- finnur Kristján Magnús Jónsson, bóndi í Lambadal ytri og Dröngum í Dýrafirði, f. 14. jan- úar 1862, d. 20. september 1946 og kona hans Ingibjörg Jóna Sigurlínadóttir, f. 8. ágúst 1879, d. 24. október 1973. Þau eignuðust 16 börn og þar af náðu 10 fullorðinsaldri. Kristín var 8. í systkinaröðinni. Kristín giftist árið 1943 Jóni Höjgaard Magnússyni, bif- reiðastjóra, f. í Höfnum á Reykja- nesi 9. ágúst 1905, d. 9. ágúst 1968. Foreldrar hans voru Magn- ús Guðmundsson, formaður í Höfnum, og kona hans Guðný Þórðardóttir. Sonur Kristínar og Jóns er Þórður, f. 13. september 1944. Kona hans er Ingibjörg Ólafsdótt- ir, f. 25. apríl 1950. Foreldrar hennar eru Ólafur Torfa- son Hjaltalín og Vil- borg Guðríður Jónsdóttir í Stykk- ishólmi. Þórður og Ingi- björg búa í Reykja- vík. Dóttir þeirra er Kristín Vilborg, f. 3. desember 1978. Maður hennar er Ingi Björn Ágústsson, verslunarstjóri. Sonur hans er Ágúst Örn Inga- son. Kristín og Jón stofnuðu heimili í Höfnum árið 1943 en fluttu ári síðar til Keflavíkur. Árið 1971 flutti hún til Reykjavíkur þar sem hún átti heimili allt til þess að hún flutti á Hrafnistu. Útför Kristínar var gerð í kyrrþey, að ósk hennar. Kristín Arnfinnsdóttir, móður- systir okkar, er látin á 98. ári. Kristín, eða Stína, eins og hún var kölluð innan fjölskyldunnar, var hluti af lífi okkar systkinanna frá því við fæddumst. Hún var stoð og stytta móður okkar, systur sinnar, í frumbernsku okkar og alla tíð mjög náið með þeim. Þær voru fæddar og ólust upp í stórum systkinahópi vestur í Dýrafirði, alls 16 systkini, en 10 náðu fullorð- insaldri, barnasjúkdómar tóku hin. Systurnar héldu suður til Reykja- víkur, þegar þær fóru að sjá um sig sjálfar, eins og fleiri systkini þeirra. Árið 1943 giftist Stína Jóni Höj- gaard Magnússyni, ættuðum úr Höfnum. Þau stofnuðu heimili í Höfnum en fluttu ári síðar til Keflavíkur þar sem Jón starfaði sem vörubílstjóri. Sambúð þeirra var sérlega farsæl, en Jón lést árið 1968. Árið 1944 eignuðust þau tví- bura, dreng og stúlku. Fæðingin var afar erfið og stúlkan dó, en drengurinn, Þórður, lamaðist. Segja má að líf Stínu hafi eftir það snúist um að hlúa að syni sínum. Hann hefur hins vegar snúið far- arnesti sínu út í lífið sér í vil á ótrúlegan hátt og bætt sér upp lík- amlega fötlun með miklum kjarki og framtaki, ferðast út um heim og starfað þar, en einkum staðið fyrir eigin atvinnurekstri árum saman. Saga hans, „Sorry, mister boss“, kom út árið 1994. Eitt það sem einkenndi Stínu öðru fremur var sterk og einlæg guðstrú hennar. Hún var bænheit og bað fyrir mörgum. Trú sinni fann hún farveg í Guðrúnarsöfn- uði, sem svo er nefndur. Stína frænka var vönduð kona til orðs og æðis, hún hafði fastmót- aðar skoðanir og sterka siðferð- iskennd. Ung að árum, þegar fjöl- skylda hennar bjó á Dröngum í Dýrafirði, lenti hún í snjóflóði, var hætt komin og varð aldrei söm eft- ir. Þrátt fyrir takmarkaða heilsu fram eftir ævi lifði hún lengst systkina sinna og náði hæstum aldri þeirra. Það má án efa m.a. þakka því að hún stundaði sund og gönguferðir fram á tíræðisaldur, auk þess sem hún var alla tíð grönn og létt á fæti. Við þökkum Stínu langa sam- fylgd og allan góðan hug hennar til okkar og flytjum fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Guðbjörg og Matthías Eggertsbörn. Elskuleg frænka mín hefur kvatt þetta jarðlíf. Ég heyrði móð- ur mína oft nefna nafnið hennar er ég á barnsaldri bjó ásamt fjöl- skyldunni vestur á fjörðum. Auður móðir mín og Kristín, eða Stína eins og hún var oftast kölluð, voru systur og á líkum aldri, mjög tengdar systra- og vináttuböndum. Þá var hún ung stúlka flutt suður á land og farin að vinna og kynnt- ist þar manninum sínum, Jóni Höjgaard Magnússyni, ættuðum úr Höfnum. Þegar ég flutti suður til Reykja- víkur 11 ára gömul urðu samfundir tíðari. Stína og Jón stofnuðu heim- ili sitt fyrst í Höfnum og síðar í Keflavík. Þau komu oft til móður minnar og fjölskyldu en þar bjuggu afi Arnfinnur og amma Ingibjörg. Man ég hversu glöð þau voru að hittast og njóta samvista. Þau Stína og Jón eignuðust tví- bura. Mikil mistök áttu sér stað við fæðingu barnanna sem var mjög erfið. Þetta voru stúlka sem dó í fæðingu og drengur sem er fatlaður frá fæðingu. Stína var lengi mjög veik en komst til heilsu á ný. Hún helgaði syninum og eig- inmanni alla sína krafta og tókst á við mikla erfiðleika vegna drengs- ins. Þau hjón voru afar samhent og var yndislegt að sjá þau saman. Það geislaði hamingja og vænt- umþykja af þeim. Þegar Stína missti mann sinn skyndilega árið 1968 var það henni mikill missir. Hún tókst þó á við breytingarnar af miklum dugnaði og bjó um sinn í Keflavík. Hún vann úti við fisk- verkun. Þar kom að hún seldi hús- ið sitt og flutti til Reykjavíkur. Hér í borg bjó hún svo þar til hún flutti á Hrafnistu í Hafnafirði. Ég var hjá Stínu um tíma er ég var unglingur. Þá bjuggu þau í Hafn- argötu í Keflavík. Hún var ynd- isleg kona, mér fannst hún alltaf ung. Þó aldurinn færðist yfir hana. Hún var létt og lipur í hreyfingum. Hún hafði bjartan svip með gleði- glampa í augum. Stína var afar myndaleg í öllum sínum verkum og meistarakokkur. Allt sem hún gerði var gert af alúð og natni. Hún var hreinskiptin í viðmóti og sönn. Ung að aldri eignaðist hún lif- andi trú á Drottinn sinn og frels- ara. Samkvæmt trúnni lifði hún, var lifandi vitnisburður um mátt Hans til að lifa lífinu, þó áföll og erfiðleikar steðji að. Hún þakkaði guði sínum fyrir allt það góða sem hún naut og var mikil bænakona. Hún bað fyrir sínu fólki og öllum sem báðu um fyrirbæn. Þegar ég kom til hennar síðast var biblían hennar opin á borðinu. Sú bók var henni lifandi lind sem hún sótti styrk og næringu í allt sitt líf. Ég kveð elskulega frænku mína með kærri þökk fyrir samveruna, hún hefur nú farið heim til Drott- ins síns. Það hefur verið henni mikill fögnuður. Orðin í Lúkas- arguðspjalli, 2.29, eiga þar vel við: „Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, eins og þú hefur heitið mér, því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt.“ Blessuð sé minning Kristínar frænku minnar. Karen L. Guðmundsdóttir. KRISTÍN ARNFINNSDÓTTIR Ástkær systir, mágkona og frænka, JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, áður Stigahlíð 32, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landakotsspítala mánu- daginn 15. maí, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 22. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Valgerður Þ. Kristjánsdóttir, Gunnar J. Kristjánsson, Erla Kristjánsdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ÓLAFSDÓTTIR frá Vindhæli, Hléskógum 5, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hólaneskirkju á Skaga- strönd laugardaginn 27. maí kl. 14.00. Jarðsett verður í Höskuldsstaðakirkjugarði. Guðrún Guðmannsdóttir, Bjarni Jóhannsson, Anna Guðmannsdóttir, Sigurður Halldórsson, Einar Guðmannsson, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Ólafur Guðmannsson, Magnús Guðmannsson, Erna Högnadóttir, Halldóra Guðmannsdóttir, Ísleifur Jakobsson, barnabörn og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÍNA SIGRÍÐUR JÚLÍUSDÓTTIR, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, sem lést mánudaginn 15. maí, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 22. maí kl. 15.00. Sigríður Karlsdóttir, Jóhann Ólafur Ársælsson, Þorvaldur Karlsson, Rakel Ingvarsdóttir, Karitas Rósa Karlsdóttir, Júlíus Karlsson, Þóra Vilbergsdóttir, Guðmundur Karlsson, Björg Gilsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, HREFNA MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju mánudaginn 22. maí kl. 11.00. Hrefna Freyja Friðgeirsdóttir, Ásthildur Friðgeirsdóttir, Oddrún Lára Friðgeirsdóttir, Hrefna Árnadóttir, Ásdís Elín Guðmundsdóttir, Claus H. Magnússson, Anna Guðmundsdóttir, Árni S. Unnsteinsson, aðrir aðstandendur og vinir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR, sem andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 14. maí, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. maí kl. 15.00. Magnús Skúlason, Margrét Skúladóttir, Halldór Ármannsson, Páll Skúlason, Auður Birgisdóttir, Þórgunnur Skúladóttir, Hörður Halldórsson, Skúli Skúlason, Sólrún Harðardóttir, barnabörn og langömmubörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, systir, amma og langamma, HEIÐDÍS EYSTEINSDÓTTIR, sem lést mánudaginn 15. maí, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 24. maí kl. 13.30. Steinunn Klara Guðjónsdóttir, Páll Jóhannesson, Sigríður Dykesteen og fjölskylda, Heiðar Ingi Svansson, Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir, Birna Klara Björnsdóttir, Þorgrímur Jónsson, Heiðdís Björnsdóttir, Þorvaldur Gísli Kristinsson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, REGÍNU THORARENSEN, f. 29. apríl 1917, d. 22. apríl 2006, og heiðrað hafa minningu hennar með ýmsum hætti. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hulduhlíðar á Eskifirði fyrir ein- staklega góða umönnun og hlýhug sem þið sýnduð Regínu í nær 10 ár. Hilmar F. Thorarensen, Ingigerður Þorsteinsdóttir, Guðbjörg K. Karlsdóttir, Guðrún E. Karlsdóttir, Rúnar Kristinsson, Emil K. Thorarensen, Bára Rut Sigurðardóttir og fjölskyldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.