Morgunblaðið - 21.05.2006, Side 42
42 SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Afmælisrit Örnólfs Thorlaciusar
Þann 9. september næstkomandi verður Örnólfur Thorlacius,
fyrrverandi rektor Menntaskólans í Hamrahlíð, 75 ára. Af því tilefni
hafa vinir og velunnarar hans tekið höndum saman og ákveðið að
gefa út vandað afmælisrit honum til heiðurs. Þar kennir margra
grasa, eins og vænta mátti, og verður þarna að finna fjölmargar
greinar, gamlar og nýrri, en allar þó úr safni afmælisbarnsins, og
koma sumar þeirra ekki fyrir almenningssjónir fyrr en í bók þessari.
Ritstjóri afmælisritsins er Sigurður Ægisson, guðfræðingur og
þjóðfræðingur, og er það ósk allra sem að því standa að
heillaóskaskráin (Tabula gratulatoria), sem verður þar fremst, verði
sem lengst og glæsilegust. Verð ritsins er kr. 5.900 (sendingargjald
innifalið í verði) og er það innheimt fyrirfram, enda miðast upplag
bókarinnar við áskrifendafjöldann.
Bókaútgáfan Hólar annast útgáfu afmælisritsins og er hægt að
panta það í netfangi: holar@simnet.is og í síma 587 2619.
Nafn/nöfn (prentstafir)
Kennitala:
er fylgir hér með,
ellegar fá sendan gíróseðil
Gildistími korts:
Ef greitt er með greiðslukorti, þá:
Kortnúmer (16 stafir)
Sendist til: Bókaútgáfan Hólar, pósthólf 9089, 121 Reykjavík.
Einnig má skrá sig á heillaóskaskrá í síma 587 2619
eða á holar@simnet.is
eða Visa/Mastercard:
Heimilisfang:
Vinsamlegast setjið X þar sem við á:
Ég óska eftir að greiða bókina út í hönd með reiðufé/ávísun
Telurðu þörf á að
bæta almenn-
ingssamgöngur í
borginni og kem-
ur til greina að
breyta gjaldtöku
Strætó eða að
fella niður far-
gjöld ákveðinna
hópa?
„Ég hef lýst því yfir að ég telji
óviðunandi að greiða háar fjárhæðir
með Strætó á hverju ári og horfa
upp á nýtingu vagnanna komna nið-
ur fyrir 10% og mikla fækkun far-
þega ár frá ári. Ég tel þörf á við-
horfsbreytingu í þessum efnum og
við framsóknarmenn höfum kynnt
hugmyndir okkar um ókeypis strætó
fyrir börn, námsmenn, aldraða og
öryrkja til þess að hvetja borgarbúa
með jákvæðum hætti til að nýta sér
þennan samgöngumáta og fjölga
þannig farþegum.“
Ætlar þú að beita þér fyrir auknu
íbúalýðræði í borginni á næsta
kjörtímabili?
„Já, ég hefði mikinn áhuga á því.
En ég teldi jafnframt skynsamlegt
að setja skýrar reglur um atkvæða-
greiðslur og þess háttar svo liggi
fyrir að eitthvað eigi að gera með álit
íbúanna. Mér finnst miður að kalla
eftir sjónarmiðum íbúa ef ekki
stendur til að gera neitt með þau.“
Telurðu þörf á að
bæta almenn-
ingssamgöngur í
borginni og kem-
ur til greina að
breyta gjaldtöku
Strætó eða að
fella niður far-
gjöld ákveðinna
hópa?
„Já, við viljum bæta almennings-
samgöngur í borginni og höfum lagt
fram margar tillögur í þeim efnum á
kjörtímabilinu. Við lögðumst t.d.
gegn þeirri þjónustuskerðingu sem
fjölmargir farþegar hafa orðið fyrir
með nýja leiðakerfinu og komum
með tillögur til úrbóta. 5. mars síð-
astliðinn voru endurbætur gerðar á
leiðakerfinu og tillit tekið til margra
ábendinga okkar en alls ekki allra.
Við munum gera frekari breytingar
á leiðakerfinu og freista þess að
fjölga farþegum með því að ná til
nýrra hópa og ekki síður að ná aftur
þeim farþegum sem hrakist hafa úr
Strætó með vanhugsuðum breyt-
ingum R-listans. Þá viljum við bæta
aðstæður farþega með ýmsum hætti,
t.d. með því að setja upp lokuð og
upphituð biðskýli á fjölförnum bið-
stöðvum og upplýsingaskilti um
komutíma vagna.
Við munum endurskoða gjald-
skrármál Strætó en lofum því ekki
að fella niður fargjöld ákveðinna
hópa enda hefur slíkt fyrirkomulag
ekki gefið góða raun þar sem það
hefur verið reynt erlendis.“
Ætlar þú að beita þér fyrir auknu
íbúalýðræði í borginni á næsta
kjörtímabili?
„Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-
vík telur mikilvægt að auka samráð
við íbúa, sérstaklega í málefnum
sem tengjast nærþjónustu borg-
arinnar. Þannig viljum við færa
valdið í skólamálum í ríkara mæli til
hverfanna sjálfra, bæta aðgengi for-
eldra að skólastarfi barna sinna og
tryggja stórbætt aðgengi þeirra að
upplýsingum varðandi skólastarf.
Við teljum einnig mikilvægt að
auka verulega samráð við íbúa
vegna skipulagsmála, en það er
hægt með betri kynningu, skilvirk-
ari þjónustu og formlegri aðkomu
íbúa að ákvörðunum. Fyrst og
fremst viljum við þó auka val íbúa á
sem flestum sviðum, sem að sjálf-
sögðu mun leiða til þess að vald
borgarbúa eykst og áhrif þeirra á
þjónustuna og ákvarðanir í borginni
aukast.“
Hvernig vilt þú að
staðið verði að
lagningu Sunda-
brautar?
„Við viljum
leggja Sunda-
braut í sátt við
íbúana. Umferð-
arþungi eykst
stöðugt í borginni
og því er nauðsynlegt að efla stofn-
brautir. F-listinn vill líka að lega
Sundabrautar taki mið af þróun til
framtíðar og að hún verði lögð í sátt
við íbúa borgarinnar. Kostir ytri leið-
ar verði kannaðir til hlítar. Við val á
útfærslu verði lögð áhersla á að
tryggja vellíðan íbúa og náttúru-
vernd. Því verði Sundabraut lögð
þannig að íbúar verði sem minnst var-
ir við umferðarþungann. Sundabraut
verði í göngum með góðum teng-
ingum við stofnbrautakerfi borgar-
innar. Fyrsti áfangi Sundabrautar
verði í göngum undir Elliðavog með
uppkomu við Gufunes. Þá taki við brú
yfir í Geldinganes, til að varðveita við-
kvæma náttúru, en þar fari Sunda-
braut aftur í göng undir Leiruvog
með uppkomu í Víðinesi og loks á brú
yfir Kollafjörð. Með þessari útfærslu
er komið til móts við óskir íbúa og
sjónarmið náttúruverndar jafnframt
höfð að leiðarljósi. “
Telurðu þörf á að bæta almennings-
samgöngur í borginni og kemur til
greina að breyta gjaldtöku Strætó
eða að fella niður fargjöld ákveðinna
hópa?
„Ítarlega er fjallað um almennings-
samgöngur á heimasíðunni www.f-
listinn.is. F-listinn í borgarstjórn hefur
þrívegis lagt fram tillögur um frítt í
strætó fyrir börn, unglinga, aldraða og
öryrkja, sem R-listaflokkarnir þrír
hafa ávallt fellt. Við ætlum líka að end-
urskipuleggja starfsemi strætó sér-
staklega með þarfir ungmenna og
eldra fólks að leiðarljósi. Þannig viljum
við koma á hverfisstrætóum með
hringakstri í hverju hverfi borg-
arinnar. Slíkt myndi auðvelda fólki að
sækja þjónustu á borð við frístund-
astarfsemi hvers konar, skóla, heilsu-
gæslu o.fl. í sínum hverfum. Aðrir
vagnar væru svo látnir fara stofn-
brautir.“
Ætlar þú að beita þér fyrir auknu
íbúalýðræði í borginni á næsta
kjörtímabili?
„F-listinn leggur ríka áherslu á að
aðkoma íbúa að ákvarðanatöku í um-
hverfis- og skipulagsmálum verði
tryggð mun fyrr í ferlinu en nú er. Þá
verði íbúum hverfa tryggt meira sjálf-
ræði um ákvarðanir í nærumhverfi
sínu, enda þekkir það enginn betur en
þeir. Það er hægur vandi á tímum
tölvutækni að leita álits borgaranna á
sem flestum ágreiningsefnum og
sjálfsagt að gera það í meira mæli en
hefur verið gert til þessa.“
Oddvitar framboðslistanna í Reykjavík svara spurningum Morgunblaðsins um borgarmálefni
ingin leggur því
til að Reykjavík-
urborg og ríkið
stofni sameig-
inlegt félag um
flutning flugvall-
arins og þróun
Vatnsmýr-
arinnar. Skipulag
svæðisins mun
byggja á niðurstöðum yfirstandandi
hugmyndasamkeppni um heildar-
skipulag svæðisins þar sem við njót-
um fulltingis nokkurra af fremstu
arkitektum heims. Til að tryggja enn
frekar fjölbreytta uppbyggingu
svæðisins er stefna Samfylking-
arinnar að að minnsta kosti fjórð-
ungur íbúða í Vatnsmýri verði leigu-
íbúðir og stúdentagarðar.“
Hvernig vilt þú að staðið verði að
lagningu Sundabrautar?
„Ég hef veitt samráðsferli um
lagningu Sundabrautar forystu og í
mínum huga er Sundabraut í jarð-
göngum ótvírætt fyrsti kostur og að
honum er nú unnið. Ég tel fullreynt
að aldrei náist sátt um útfærslu
Sundabrautar á innri leið sem Sjálf-
stæðisflokkurinn og samgöngu-
ráðherra hafa haldið á lofti. Þeir átta
milljarðar sem nú hafa verið tryggðir
til framkvæmdarinnar af símafé eru
vissulega fagnaðarefni. Þeir duga þó
aðeins fyrir hraðbraut hálfa leið.
Samgönguráðherra hefur reyndar
valið sér sérkennilegt hlutskipti að
gera lítið úr yfirstandandi samráðs-
ferli. Ráðherrann ætti auðvitað að
láta af hótunum í garð Reykvíkinga
og verja tíma sínum í að tryggja fjár-
magn til bestu leiðar Sundabrautar –
alla leið, því það er löngu tímabært
að Reykjavík fái sinn eðlilega hlut af
vegafé. Þangað til ríkisstjórnin hefur
komið sér saman og tekið af skarið
um fulla fjármögnun verkefnisins
standa spjótin á henni.“
Telurðu þörf á að bæta almennings-
samgöngur í borginni og kemur til
greina að breyta gjaldtöku Strætó
eða að fella niður fargjöld ákveðinna
hópa?
„Það er brýnt að efla almennings-
samgöngur í borginni þannig að
strætó verði raunhæfur valkostur.
Reykvíkingar geta ekki búið við
sveltistefnu nágranna sinna í al-
menningssamgöngum. Með upptöku
rafrænna greiðslna í Strætó verða
boðin hvetjandi afsláttarfargjöld til
að koma til móts við þarfir mismun-
andi hópa.“
Ætlar þú að beita þér fyrir auknu
íbúalýðræði í borginni á næsta kjör-
tímabili?
„Samfylkingin stendur fyrir aukið
lýðræði. Ég hef leitt stefnumörkun
til að efla íbúalýðræði á yfirstandandi
kjörtímabili og tel tímabært að
breyta samþykktum Reykjavík-
urborgar á þann veg að þriðjungur
borgarbúa geti krafist atkvæða-
greiðslu um einstakar ákvarðanir
borgarstjórnar. Jafnframt á að fjölga
beinum atkvæðagreiðslum um meg-
inmál og bæta samráð í skipulags-,
umhverfis- og skólamálum. Í því efni
hefur Reykjavíkurborg verið ótví-
ræður brautryðjandi. Með því að
greiða götur íbúanna að ákvörðunum
er viðurkenndur réttur einstaklinga
til upplýsinga og þátttöku í að móta
nánasta umhverfi sitt. Með nýrri
tækni má skapa vettvang fyrir aukna
umræðu og samráð borgarbúa og
borgarstjórnar. Við höfum verið
framsækin og þetta skiptir máli fyrir
þróun lýðræðis á 21. öld.“
Telurðu þörf á að
bæta almenn-
ingssamgöngur í
borginni og kem-
ur til greina að
breyta gjaldtöku
Strætó eða að
fella niður far-
gjöld ákveðinna
hópa?
„Já, það þarf að gera átak í að bæta
almenningssamgöngur í borginni og
gera um þær stefnu til framtíðar. Í
þeim efnum höfum við Vinstri græn
lagt fram mótaðar tillögur. Þær
ganga út á það að þétta beri netið,
bæta við leiðum, fjölga ferðum og
auka forgang strætó í umferðinni.
Náist ekki samstaða við nágranna-
sveitarfélögin um þessar breytingar
viljum við endurreisa SVR. Þessar
breytingar munu stuðla að minni
mengun í borginni og skilvirkara um-
ferðarkerfi. Varðandi gjaldtöku höf-
um við markað þá stefnu að það eigi
að vera á færi allra að taka strætó,
þess vegna eigi gjaldtöku að vera
stillt mjög í hóf. Við erum ekki fylgj-
andi því að skipta fólki í sérmerkta
hópa, sem þiggi frímiða frá þeim sem
halda uppi velferðarkerfinu. Allir
eiga rétt á því að lifa með reisn og
greiða fyrir sig í sund og strætó.“
Ætlar þú að beita þér fyrir auknu
íbúalýðræði í borginni á næsta
kjörtímabili?
„Já. Við Vinstri græn erum stað-
ráðin í því að auka þátttöku borg-
arbúa í ákvörðunum er þá varða. Til
þess að svo megi verða þarf að auka
aðgengi íbúanna að borginni. Þetta á
jafnt við um aðgengi að opinberum
byggingum sem og aðgengi að þjón-
ustu. Við viljum t.d. bæta mjög að-
gengi allra að upplýsingum um þjón-
ustuna sem í boði er. Til þess þarf að
gera heimasíður borgarinnar að-
gengilegar t.d. fyrir blinda og sjón-
skerta og fyrir innflytjendur svo
dæmi séu tekin. Auk þess sem koma
þarf upplýsingum til þeirra sem á
þurfa að halda. Í okkar huga er að-
gengi lykillinn að þátttöku og þátt-
taka tryggir lýðræði.“
Morgunblaðið/RAX
Björn Ingi Hrafnsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Ólafur F. Magnússon Dagur B. Eggertsson
Svandís Svavarsdóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111