Morgunblaðið - 21.05.2006, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 73
MINNINGAR
Við gamlir sigling-
arfélagar á Lagarfossi
viljum minnast Krist-
jáns S. Júlíussonar með nokkrum
orðum. Farmenn sem sigldu eftir
stríð, sérstaklega á árunum 1950 til
1960, hafa margir haldið vinskap í
gegnum árin. Enda var þetta sá ára-
tugur, sem stendur upp úr í íslenskri
farmennsku, þar sem skip voru lengi
í höfn ólíkt því sem er í dag. Vörur
voru þá annaðhvort skammtaðar eða
fengust ekki á Íslandi. Farmenn
höfðu aðgang að ýmsu, sem ekki stóð
öðrum til boða. Þessi forréttindi
settu farmenn í sérflokk, en árið
1960 kom ný stjórn og breytti Íslandi
með viðreisn, sem varð öllum lands-
mönnum til bóta.
Hjá farmönnum er eins og sum
skip verði þeim kærari en önnur.
Eitt þessara skipa er Lagarfoss,
einn af svo kölluðum „þrílembing-
um“. Þar réðst Kristján í skipsrúm á
fyrri hluta sjötta áratugins, sem há-
seti og síðar timburmaður. Í fyrsta
túrnum hjá Kristjáni lentum við í
leiðinlegu veðri, þegar við björguð-
um Selfossi úti í Faxaflóa og drógum
hann til hafnar. Þá sýndi Kristján
hvílíkur afl- og verkmaður hann var.
Eftir þá nótt litum við ungu menn-
irnir upp til Kristjáns, sem ekki
minnkaði, þegar í ljós kom að hann
væri fv. Íslandsmeistari í boxi í
þungavigt. Áður en Kristján kom á
Lagarfoss, hafði hann verið á tog-
urum.
Gaman er rifja upp eina sögu frá
þessum árum, þegar Lagarfoss var í
klössun í Hamborg. Þá var í gangi
fjölbragðaglímukeppni, sem við fé-
lagarnir fylgdumst með á hverju
kvöldi. Þá bar svo við eitt kvöldið að
einn þjálfarinn kom til Kristjáns og
bauð honum, ef hann hefði áhuga að
koma og æfa fjölbragðaglímu. Hann
bæri nefnilega með sér kraftanna.
Allt líður áfram. Kristján hætti í
siglingum og réð sig á smíðaverk-
stæði Þjóðleikshúsins og síðar var
hann þar sviðsmaður fram að starfs-
lokum.
Kristján var smiður af guðs náð.
Hann var eftirsóttur af öllum, enda
með afbrigðum hjálplegur maður.
Sumarbústað byggði hann uppi í
Hvalfirði, sem var honum og fjöl-
skyldu hans sem paradís. Eftir að
Kristján kvæntist Eddu töluðu vinir
þeirra hjóna alltaf um þau í sömu
andrá, sem segir mikið.
Fyrir nokkrum árum hitti Krist-
ján gamlan skipsfélaga Ólaf Val Sig-
urðsson fv. skipherra og sagði við
hann að gaman væri að fá sér kaffi
saman. Úr þessu varð að fv. Lag-
arfossmenn og konur þeirra hafa
hittst í Perlunni mánaðarlega yfir
vetrartímann. Þegar við hittust í lok
apríl sl. voru Kristján og Edda ekki
mætt. Okkur var hálf brugðið, þegar
við fréttum að Kristján væri kominn
á spítala. Þetta varð hans síðasta
ferð.
KRISTJÁN SAMÚEL
JÚLÍUSSON
✝ Kristján Sam-úel Júlíusson
fæddist í Reykjavík
14. nóvember 1923.
Hann lést á Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúsi við
Hringbraut 12. maí
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju
19. maí.
Við kveðjum góðan
dreng í Guðs friði. All-
ur hópurinn sendir
innilegar samúðar-
kveðjur til eiginkonu
hans Eddu og fjöl-
skyldu.
F.h. skipsfélaga á
Lagarfossi
Björn Pálsson.
Það var á vordögum
2001 að íbúar Barða-
staða 7 fóru að hreiðra
um sig, hver á sinn
hátt og hver á sinni syllu. Fljótlega
kom í ljós að öðrum fremur handlag-
inn, glöggur og greiðvikinn maður
hafði ásamt konu sinni komið sér
notalega fyrir á 5. hæð. Þetta voru
hjónin Kristján og Edda. Kristján
var orðinn heimavinnandi þegar
þetta var og satt best að segja var
hann „heimavinnandi“ fyrir mörg
okkar í blokkinni. Eftir því sem mán-
uðirnir liðu komu kostir Kristjáns í
ljós, t.d. það að allt sem hann gerði
gerði hann af vandvirkni, með bros á
vör og hljóðlátt. Þannig bætti hann
umhverfi okkar á Barðastöðum 7
bæði efnislega og með nærveru
sinni.
Það gerðist stundum að annars-
huga íbúar fóru úr lyftunni á rangri
hæð og reyndu að ganga eða jafnvel
gengu inn í ranga íbúð. Þetta olli nú
bara léttleika og kátínu en til að auð-
velda okkur lífið útbjó Kristján
merki á hverja hæð, í stigaganginum
og á móti lyftudyrunum, svo nú vill-
umst við ekki milli hæða enda merk-
ingin vönduð og verulega til bóta.
Nú kveðjum við Kristján Júl-
íusson með söknuði og þakklæti en
búast má við að hann fari fljótlega á
stjá til að merkja fyrir okkur sem á
eftir komum, á sinn alúðleg hátt,
leiðina svo við villumst nú ekki úr
„lyftunni“ á rangri hæð.
Með kærleikskveðju.
Stjórn Húsfélagsins.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Minningargreinar
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug,
vináttu og stuðning við andlát og útför ástkærs
sonar okkar, bróður og unnusta,
JÓNATANS HELGA RAFNSSONAR,
Vesturtúni 26,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem studdu okkur
og veittu okkur styrk á þessum erfiða tíma.
Brynhildur Brynjúlfsdóttir, Rafn Pálsson,
Páll Ívar Rafnsson, Helena Rut Einarsdóttir,
Snorri Benedikt Rafnsson,
María Ósk Einarsdóttir.
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
!
"# $ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæru
HREFNU MAGNÚSDÓTTUR,
Fannborg 8,
áður Melgerði 16,
Kópavogi.
Rögnvaldur Ólafsson, Sigríður Júlíusdóttir,
Lára Ingibjörg Ólafsdóttir,
Fríður Ólafsdóttir,
Sigrún Ólafsdóttir, Halldór Jónsson,
Sigríður Ólafsdóttir, Þórður Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar okkar ástkæru
DAGBJARTAR DAVÍÐSDÓTTUR
frá Borgarlandi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks elli- og hjúkrunar-
heimilisins Grundar fyrir frábæra umönnun og
hlýju.
Halldóra Davíðsdóttir,
Kristín Davíðsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Kæru ættingjar og vinir.
Alúðarþakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ELÍSABETAR BENEDIKTSDÓTTUR
frá Erpsstöðum, Dalasýslu,
Álfheimum 36,
Reykjavík.
Einnig þökkum við öllum þeim sem sýndu henni vináttu og hlýhug í
gegnum öll árin.
Guðs blessun fylgi ykkur öllum.
Anna Margrét Albertsdóttir, Hildiþór Kr. Ólafsson,
Guðrún Albertsdóttir, Páll Björnsson,
Svanhildur Albertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför mannsins míns, föður, tengda-
föður og afa,
ÓLAFS BJÖRGÚLFSSONAR hdl.
fv. skrifstofustjóra
Tryggingastofnunar ríkisins,
Miðleiti 5,
Reykjavík.
Marta Marteinsdóttir,
Björg M. Ólafsdóttir, Friðrik Skúlason,
Marta Kristín Friðriksdóttir.
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu hlýhug
og vinarþel við fráfall eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
JÓNS BERGÞÓRS ARNGRÍMSSONAR.
Sérstakar þakkir til Þorgils Sigurðssonar heilsu-
gæslulæknis.
Jónína Axelsdóttir,
Sigurður Bergþórsson, Hrafnhildur Eiríksdóttir,
Guðrún Bergþórsdóttir, Jón Magnússon,
Þórhallur Bergþórsson, Ásdís Rögnvaldsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför okkar ástkæra
MAGNÚSAR INGVARS JÓNASSONAR,
Unnarbraut 26,
Seltjarnarnesi.
Áslaug Jónsdóttir,
Jón Oddur Magnússon, Ragnheiður M. Þórðardóttir,
Magnús Ingi Magnússon, Aðalheiður Olgudóttir,
Inga Lára Hjaltadóttir, Elías Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn
13. maí, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 23. maí kl. 15.00.
Rannveig Bjarnadóttir, Óskar B. Benediktsson,
Sigríður Kolbrún Bjarnadóttir, Guðmundur Aronsson,
Kolbeinn Bjarnason, Bjarni Kolbeinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.