Morgunblaðið - 09.06.2006, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
NÁÐU SÁTTUM
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, og Guðni
Ágústsson varaformaður náðu í gær
fullum sáttum og eru sammála um
að hvetja til einingar á miðstjórn-
arfundi flokksins í dag.
Fuglaflensa greindist í önd
Afbrigði af fuglaflensu hefur
greinst í rauðhöfðaönd á Mývatni.
Fuglaflensan er ekki af H5 eða H7
stofni, en það eru skæð afbrigði sem
óttast er að geti ógnað heilsu manna.
Fara fram á tugi milljarða
Landeigendur við Jökulsá á Brú,
Jökulsá á Fljótsdal og Kelduá á
Fljótsdalshéraði fara fram á 60 til 96
milljarða bætur vegna vatnsréttinda
fyrir Kárahnjúkavirkjun. Lands-
virkjun metur bæturnar á 375 millj-
ónir króna hið hæsta.
Al-Zarqawi felldur
Abu Musab al-Zarqawi, æðsti
maður al-Qaeda-hryðjuverka-
samtakanna í Írak, var felldur í gær.
Hafði Bandaríkjamönnum borist
njósn af því að hann væri staddur í
húsi við borgina Baquba og gerðu þá
loftárás á það. Hefur tíðindunum
verið fagnað víða en enginn býst þó
við að óöldinni í Írak muni linna í
bráð. Steinar Þór Sveinsson, upplýs-
ingafulltrúi NATO í Bagdad, segir
að dauði al-Zarqawis sé mikilvægur
áfangi en löng barátta sé fram-
undan.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 34
Fréttaskýring 8 Bréf 37
Erlent 16 Minningar 38/48
Viðskipti 18 Hestar 52
Úr verinu 20/21 Myndasögur 54
Minn staður 22 Dagbók 54/57
Höfuðborgin 24 Víkverji 54
Akureyri 24 Staður og stund 56
Suðurnes 26 Leikhús 58
Austurland 26 Bíó 62/65
Menning 28/29 58/59 Ljósvakamiðlar 66
Daglegt líf 30/31 Veður 67
Umræðan 31/37 Staksteinar 67
* * *
Kynningar – Sjómannadagsblaðið
fylgir Morgunblaðinu í dag.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann
Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús
Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri,
sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
KONA á fimmtugsaldri slasaðist alvarlega í umferð-
arslysi á mótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafn-
arvegar á ellefta tímanum í gærmorgun. Konan var
ökumaður jeppabifreiðar sem ekið var í veg fyrir hóp-
ferðabíl en farþegi í jeppanum, stúlka undir tvítugu,
slasaðist einnig og voru þær báðar fluttar á slysadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi.
Konan var flutt á gjörgæsludeild og samkvæmt
upplýsingum frá lækni er hún með töluvert mikla
áverka. Stúlkan var hins vegar útskrifuð eftir rann-
sóknir.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi voru tildrög slyss-
ins á þann veg að jeppabifreiðinni var ekið í veg fyrir
hópferðabílinn á gatnamótunum með þeim afleið-
ingum að bifreiðarnar rákust saman af mikilli hörku.
Allt tiltækt lögreglulið og sjúkrabílar frá Selfossi voru
send á vettvang auk tækjabíls frá slökkviliðinu í
Hveragerði en klippa þurfti til að ná ökumanni og far-
þega úr jeppanum. Ökumaður hópferðabílsins var
einn á ferð og sakaði ekki.
Loka þurfti þjóðveginum í u.þ.b. tvær og hálfa
klukkustund meðan á aðgerðum stóð og lögregluþjón-
ar, fulltrúar Rannsóknarnefndar bílslysa og Bílgreina-
sambandsins rannsökuðu vettvang. Bifreiðarnar voru
báðar mikið skemmdar eftir áreksturinn og þurfti
dráttarbifreið til að fjarlægja þær af vettvangi.
Morgunblaðið/Júlíus
Slasaðist alvarlega í umferðarslysi
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
Guðbjarti J. Sigurðssyni, sem
ákærður var fyrir tilraun til mann-
dráps með því að hafa lagt til leigu-
bílstjóra með eggvopni á meðan bíl-
stjórinn beið greiðslu á ökugjaldi.
Hlaut leigubílstjórinn 18 cm langan
skurð, aðallega vinstra megin á háls-
inum. Er Guðbjarti gert að sæta
fangelsi í fimm ár og greiða leigubíl-
stjóranum um 1,7 milljónir í miska-
bætur.
Ákærði neitaði sök og sagðist hafa
verið kominn töluvert frá bílnum
þegar leigubílstjórinn gekk í átt að
honum, þá hafi verið búið að leggja
til hans. Sagðist ákærði hafa orðið
mjög hræddur og því lagt á flótta. Í
niðurstöðu héraðsdóms kemur fram
að eggvopnið sem beitt var hafi ekki
fundist og að framburður vitna hafi
ekki varpað neinu ljósi á hvort
ákærði hafi haft slíkt vopn undir
höndum. Einnig hafi verið gerð ít-
arleg rannsókn á fatnaði ákærða en
ekkert blóð hafi þar fundist úr leigu-
bílstjóranum.
Hæstaréttardómarinn Jón Stein-
ar Gunnlaugsson skilaði inn sérat-
kvæði þar sem fram kemur að hann
telji það ekki hafið yfir skynsamleg-
an vafa að ákærði hafi veitt leigubíl-
stjóranum áverkann sem um ræðir.
Telur hann sakargiftir á hendur
ákærða ósannaðar og því beri að
sýkna hann af kröfu ákæruvaldsins.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Hrafn
Bragason, Ingibjörg Benediktsdótt-
ir, Jón Steinar Gunnlaugsson og
Markús Sigurbjörnsson.
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari
sótti málið en Sveinn Andri Sveins-
son hrl. varði manninn.
Fimm ára fangelsi fyrir
tilraun til manndráps
MAÐURINN sem lést í umferðar-
slysi á Elliðavatnsvegi á þriðju-
dagskvöld hét Hallgrímur Páll
Guðmundsson, til heimilis í Hegra-
nesi 25 í Garðabæ.
Hallgrímur Páll var fæddur 12.
nóvember 1971, hann var ókvæntur
en lætur eftir sig fjögurra ára son.
Lést í
umferðarslysi
ÁSGRÍMUR S. Björnsson, björg-
unarbátur Landsbjargar í Reykja-
vík, fór til aðstoðar bensínlausum
sportbát á tólfta tímanum í gær-
kvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá
Vaktstöð siglinga var báturinn
staddur um hálfa mílu vestnorð-
vestur af sjöbaujunni, sem staðsett
er vestan við Engey, þegar beiðnin
um aðstoð barst. Tveir menn voru
um borð í sportbátnum.
Fóru til bjargar
bensínlausum bát
VERJENDUR tveggja sakborninga
í Baugsmálinu hafa krafist þess að
Sigurður Tómas Magnússon, settur
ríkissaksóknari í málinu, beri vitni
fyrir dómi, ásamt Helga I. Jónssyni,
dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur.
Verður málið tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag, en í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi sagðist
Sigurður Tómas mótmæla kröfu
verjendanna. Verður því málflutning-
ur um þetta atriði í réttarsal í dag þar
sem tekist verður á um hvort Sig-
urður Tómas og Helgi muni bera
vitni eða ekki.
Það voru þeir Gestur Jónsson,
verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, og Jakob Möller, verjandi
Tryggva Jónssonar, sem kröfðust
þessara vitnaleiðslna.
Ef dómurinn telur ástæðu til að
Sigurður Tómas og Helgi beri vitni,
munu verjendur spyrja þá um sam-
skipti þeirra áður en endurákærur í
Baugsmálinu voru gefnar út, og til-
drög þess að Pétur Guðgeirsson hér-
aðsdómari var ekki skipaður dóms-
formaður í þeim hluta Baugsmálsins
sem er tilkominn vegna endurákæra í
málinu, segir Gestur.
Pétur Guðgeirsson var dómsstjóri í
fyrri hluta Baugsmálsins, þar sem
ákærðu voru sýknaðir af öllum
ákæruliðum, og er því vel inni í máls-
gögnum, sem eru afar umfangsmikil.
Gestur segir að með þessari kröfu sé
ekki verið að setja út á skipun Arn-
gríms Ísbergs héraðsdómara sem
dómsstjóra í málinu.
Í dag mun héraðsdómur einnig
skipa sérfræðinga til að meta tölvu-
pósta, að kröfu verjenda Jóns Ás-
geirs, Tryggva og Kristínar Jóhann-
esdóttur.
Settur ríkissaksókn-
ari í Baugsmálinu
í vitnastúku?
DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN 25
tímar fór fram í Borgarleikhúsinu í
gærkvöldi. Fullur salur áhorfenda
beið með mikilli eftirvæntingu eftir
úrslitum kvöldsins og það mátti
heyra saumnál detta þegar dóm-
nefndin undir forystu Kirsten Dehl-
holm tilkynnti úrslitin. Vinnings-
verk kvöldsins var verkið Boðorðin
10 eftir Mörtu Nordal og hlaut hún
250 þúsund krónur í verðlaun.
Dansleikhússamkeppnin er sam-
starfsverkefni Leikfélags Reykja-
víkur og Íslenska dansflokksins.
Þetta er fjórða árið sem keppnin
fer fram og að sögn aðstandenda er
hún komin til að vera.
Boðorðin 10
sigruðu í dansleik-
hússamkeppni
Morgunblaðið/Golli