Morgunblaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 30
Daglegtlíf
Þegar þú beygir inn Whit-field Street í vesturhlutaLondon er lítill veitinga-staður þar rétt við horn-
ið. Þetta er vel upplýstur staður
en einhvern veginn er erfitt að
átta sig á hvað er handan við hurð-
ina. Lítil uppljómuð verönd er fyr-
ir framan og þegar stigið er inn
fyrir dyrnar heyrist skrítið hljóð
því viðskiptavinir stíga á smásteina
sem vekur furðu hjá ýmsum.
Archipelago er veitingastaður
sem á engan sinn líka og er mat-
seðillinn blanda af matseld víðs-
vegar að þó aðallega sé einblínt á
Kyrrahafið. Staðurinn er málaður í
dökkgrænum og rauðum litum og
veggirnir eru þaktir af dóti frá öll-
um heimshornum. Þarna ber m.a.
að líta stór olíumálverk, búdda-
styttur, afrískar grímur og landa-
kort. Borðin eru troðin af alls lags
dóti; blævængjum, páfuglsfjöðrum,
styttum og kistlum og glösum af
mismunandi stærðum og gerðum
enda fær hver gestur ólíkt glas.
Matseðlarnir eru annaðhvort á
diskunum snyrtilega rúllaðir upp
með rós eða geymdir í fjársjóðsk-
istu. Niðri í kjallara er lítil skraut-
leg setustofa og geta gestirnir í
raun skemmt sér bæði þar og við
borðin við að velja hvaða hluti
þeim líst best eða verst á, svona til
að stytta sér stundir ef umræðu-
efnin eru af skornum skammti.
Nú hefur Bruce Alexander, eig-
andi staðarins, prentað á matseðl-
ana að margir af hlutunum séu til
sölu og ef að hlutir hverfi þá verði
gestirnir rukkaðir um þá. Bruce
líkir staðnum við háaloft gamallar
frænku og það sé einmitt hug-
myndin á bak við staðinn. Stað-
urinn eigi að vera heimilislegur og
fólki á að líða vel. „Þú getur borð-
að með hnífapörum, prjónum eða
hreinlega með puttunum allt eftir
því hvað þú vilt – hér eru engar
reglur og engir fordómar.“
Þar af leiðandi er heldur engin
krafa gerð um formlegan klæðnað
og gestir koma í gallabuxum og
bolum eða í galakjólum allt eftir
því hvernig liggur á þeim.
Þjónustan er á hinn bóginn í há-
gæðaflokki og ef fólk skreppur t.d.
frá borðinu þá er búið að brjóta
munnþurrkuna fallega saman þeg-
ar fólk sest aftur að borðinu.
Vegna þessa er Archipelago ein-
staklega vinsæll staður og þekktir
einstaklingar koma þangað gjarn-
an eins og bresku prinsarnir Willi-
am og Harry, tískuhönnuðirnir
Julian MacDonald og John Gal-
liano, fyrirsætan Kate Moss, Ken
Livingstone borgarstjóri London
og fyrrverandi tengdadóttir Ís-
lands, Mel B.
Viðskiptavinir mega staldra við
eins lengi og þeir vilja en
á mörgum stöðum í
London er
einfald-
lega ætl-
ast til að
fólk sé
farið inn-
an tveggja
stunda.
Borð eru
því aldrei
tvíbókuð á
kvöldin.
Hráefnið í
matargerðina
er fengið
hvaðanæva að
en allt er það
lífrænt rækt-
að. Bruce er
ekki kokkur en
hann veit hvað
hann vill bjóða
upp á svo hann
sér um að setja saman matseð-
ilinn ásamt kokkinum. Þeir breyta
matseðlinum um það bil fjórum
sinnum á ári, samkvæmt árstíð-
unum, þó að sumt sé alltaf á seðl-
um þeirra.
„Þegar við breytum matseðl-
inum þá sest ég niður og segi hvað
ég vil og hann eldar og svo
smakka ég og þannig vinnum við
saman þar til við erum báðir
ánægðir.“
Krókódíll og eþíópískt lamb
Á matseðlinum er m.a. krókódíll
með taílenskri sósu, páfugl með
tómata- og vanillumauki, eþíópískt
lamb, froskalappir og kryddlegnar
kengúrulundir með rótargrænmeti.
Svo er hægt að fá hliðardiska
með salati, hvítlauks- og pip-
arkrydduðum kartöflum
en einnig pöddusalat.
Fyrir þá sem vilja
ekki svona framandi
mat þá er líka boðið
uppá andabringur,
fisk, svínakjöt og
ýmsa grænmet-
isrétti. „Við vilj-
um ekki bjóða
upp á neitt
sem fólk
hryllir við
eins og
augnasúpu
í Indiana
Jones-stíl.
Eitt sinn
vorum
við með
lunda á
matseðl-
inum en það var
ekki sérlega
vinsælt þar sem lundar eru
taldir vera í útrýmingarhættu á
Englandi.“
Eftirréttirnir eru líka skemmti-
lega öðruvísi, þar sem m.a. er
hægt að fá osta með ávöxtum eða
frauð með gulli, en til að toppa allt
þá geta viðskiptavinir pantað
súkkulaðihúðaðan sporðdreka. Og
fyrir þá sem þora þá er hægt að fá
heimsókn frá lækninum. Lækn-
irinn kemur með úttroðna ferða-
tösku af alls lags áfengi, þar á
meðal kanilvodka með gulli eða
absinthe sem snákur hefur legið í
og í lokin fá „sjúklingarnir“ pillu
frá lækninum og vatnsskál svo að
allir geti læknast og skemmt sér
enn betur.
Sumir biðja um heimsókn frá „lækninum“ sem kemur með troðna tösku af
áfengi eins og kanilvodka með gulli eða „absinthe“ sem snákur hefur legið í.
LONDON
Archipelago er veitingastaður í vesturhluta London sem verður að teljast alveg einstakur. Gestir staðarins koma
ekki formlega klæddir nema þá langi til þess og þeir geta borðað með prjónum, hnífapörum nú eða bara puttunum.
Borðað uppi á háalofti hjá gamalli frænku
Það er sérstök upplifun að heimsækja veitingahúsið
Archipelago í London þar sem fólk fær leyniorði
úthlutað til að komast inn og gæðir sér svo á
framandi réttum í skrautlegu umhverfi. Laila
Sæunn Pétursdóttir heimsótti staðinn.
Nauðsynlegt er að panta borð
með fyrirvara. Við pöntun þarf að
gefa upp greiðslukortanúmer og
þá fær viðskiptavinurinn leyniorð
sem veitir honum og hans félögum
aðgang eins og þau séu að fara á
leynifund.
Síminn er 020 7383 3346.
Krókódíl
l að hætt
i hússins
.
Krókódílarúllur
Um það bil 10 rúllur
1 kg krókódílahalar (mega
vera kjúklingabringur eða
kjúklingalundir í staðinn)
125 ml kókosmjólk
40 g pálmasykur
15 ml fiskisósa
20 ml grænmetisolía
75 g rautt karrímauk
1 súraldinslauf vínlauf
Karrímaukið sett í olíuna
ásamt öllu innihaldinu fyrir ut-
an krókódílinn eða kjúklinginn
og þetta látið malla í 15 mín-
útur og síðan leyft að kólna.
Setjið kjötbitana út í kryddlög-
inn og látið liggja í honum í að
minnsta kosti einn dag.
Rúllið hverjum bita inn í vín-
lauf og gætið þess að allur
krókódíllinn eða kjúklingabit-
inn sé þakinn. Steikið krókódíl-
inn á háum hita í 1–1 1/2 mín-
útu á hvorri hlið, þangað til
hann er svartur en kjúkling-
urinn þarf lengri steikingu.
Berið fram með því sem
hentar.
júní
Höfundur hefur verið
búsettur í London.