Morgunblaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 68
OFURSPORTBÍLLINN Ford GT var frumsýndur opinberlega
á Íslandi í gær á flugvellinum á Akureyri. Arngrímur Jó-
hannsson flugstjóri fékk fyrstur að keyra tryllitækið á flug-
Morgunblaðsins í dag en Fordinn er talinn einn þekktasti
kappakstursbíll síðari tíma. Var hann fyrst kynntur til sög-
unnar fyrir rúmum fjörutíu árum.
brautinni og flaug að því loknu á listflugvél sinni yfir bílinn
þegar annar kappsamur ökuþór var sestur undir stýri.
Nánar er fjallað um þetta hraðskreiða ökutæki í Bílablaði
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Arngrímur flýgur fram úr ofursportbíl
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
GRUNNSKÓLAKRÖKKUM í
Hamraskóla og lögregluþjónum í
Grafarvogi var í gær boðið til
pylsuveislu við verslun 10–11 í
Hamrahverfi. Tilefni veislunnar
var að grunnskólakrakkarnir höfðu
staðið við orð sín um að hætta ólát-
um fyrir utan verslunina.
Í vetur bárust lögreglu margar
kvartanir vegna óláta krakka, sem
flestir voru nemendur í Hamra-
skóla, fyrir utan verslunina. Brugð-
ið var á það ráð að halda fund þar
sem komu saman nokkrir krakk-
anna ásamt fulltrúum foreldra,
verslunarinnar og lögreglu. Á
fundinum var ákveðið að ef ólát-
unum lyki og krakkarnir héldu
friðinn myndi verslunin standa fyr-
ir pylsuveislu fyrir þá og lögregl-
una. Auk þess var ákveðið að
fulltrúar lögreglu heimsæktu nem-
endur 4.–7. bekkjar Hamraskóla og
fræddu þá um lögin.
Vonandi árlegur viðburður
Samningurinn virðist hafa verið
efndur að fullu því að í gær gæddu
nemendur skólans og lög-
regluþjónar sér á pylsum og héldu
upp á þessar sögulegu sættir. Að
sögn Sævars Ström, versl-
unarstjóra 10–11 í Hamrahverfi, er
ekki útilokað að veisla sem þessi
verði að árlegum viðburði.
Vonandi munu krakkarnir halda
góðri hegðun áfram en ekki hugsa
sem svo að nú séu samningar laus-
ir. Átakið í Hamrahverfinu, sem
virðist hafa tekist með eindæmum
vel, gæti orðið öðrum skóla-
umdæmum góð fyrirmynd í fram-
tíðinni.
Morgunblaðið/Golli
Grunnskólakrakkar, lögregluþjónar og starfsmenn verslunarinnar í
pylsuveislunni, sem hugsanlega verður árlegur viðburður hér eftir.
Hættu ólátum í Hamrahverfi
og fengu pylsuveislu að launum
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
LANDEIGENDUR við Jökulsá á
Brú, Jökulsá á Fljótsdal og Kelduá
á Fljótsdalshéraði fara fram á 60
til 96 milljarða bætur vegna vatns-
réttinda fyrir Kárahnjúkavirkjun.
Landsvirkjun metur þessar bætur
á 375 milljónir króna hið hæsta.
Hér er um geysilegan mun á bóta-
fjárhæð að ræða sem orsakast af
mismunandi aðferðafræði við út-
reikning. Lögmenn landeigenda
segja grundvallaratriði að mats-
nefnd sem skipuð hefur verið til að
úrskurða um málið finni heppileg-
ustu aðferðafræðina til grundvallar
mats á endurgjaldi til landeigenda,
en um nokkrar leiðir sé þar að
velja og þurfi að horfa til þess
hvort reikna eigi út frá núvirtu
sjóðstreymi virkjunarinnar eða nú-
virtum arði.
Forsendur útreikninga hafi
breyst í kjölfar nýrra raforkulaga
og þess að stofnkostnaður virkj-
unarinnar sé hugsanlega um 20
milljörðum lægri en áætlun Lands-
virkjunar gerði ráð fyrir, m.a.
vegna hagstæðs gengis á undan-
förnum misserum. Landsvirkjun
telur kröfur landeigenda óraun-
hæfar með öllu og byggir það mat
á eldri fordæmum, almennum laga-
sjónarmiðum og sérsjónarmiðum
varðandi virkjunina.
Tuga milljarða munur
á vatnsréttindakröfum
Telja 60 milljarða | 12
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
KVENNAHLAUP ÍSÍ, í samstarfi
við Sjóvá og UNIFEM, fer fram á
morgun og er gert ráð fyrir því
að hátt í 18.000 konur taki þátt í
því. Konurnar á hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni tóku forskot á sæl-
una í gær og hlupu fyrsta
Kvennahlaupið í ár. Síðasta
hlaupið er fyrirhugað í Kanada
24. júní nk. en flest hlaupin sem
íslenskar konur erlendis skipu-
leggja fara fram 17. júní og eru
þá fléttuð saman við mannamót
Íslendingafélaga á þjóðhátíð-
ardaginn. | 14.
Tóku forskot
á Kvenna-
hlaupið
LANDSFLUG ehf. hefur ekki staðið
skil á greiðslum í eftirlaunasjóð flug-
manna félagsins síðan um síðustu
áramót og ekki greitt félagsgjöld í
stéttarfélagið eins og því ber sam-
kvæmt kjarasamningi, að því er
fram kemur í nýjasta fréttabréfi Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna. Þá
sé útlit fyrir að Landsflug leggi upp
laupana í núverandi mynd en rekst-
ur félagsins hafi verið seldur til
Flugfélags Vestmannaeyja.
Í fréttabréfinu segir jafnframt að
um síðustu mánaðamót hafi einn
flugmanna félagsins ekki fengið
greidd laun, skömmu eftir að allir
sem sinna innanlandsflugi félagsins,
11 flugmenn, fengu uppsagnarbréf.
„Ástæða uppsagnanna er sögð
vera sala á rekstrinum til Flugfélags
Vestmannaeyja, en slík uppsögn er
ólögleg samkvæmt mati lögfræðings
FÍA,“ segir þar ennfremur.
Telja upp-
sagnir hjá
Landsflugi
ólögmætar