Morgunblaðið - 09.06.2006, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 09.06.2006, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ D weezil Zappa og fé- lagar hans eru komnir til landsins en tón- leikar tileinkaðir föður hans, undir nafninu Zappa Plays Zappa, fara fram í Hafnarhúsinu í kvöld. Með í för eru þeir Napoleon Murphy Brock, Terry Bozzio og Steve Vai; allt með- spilarar Frank Zappa á sínum tíma. Hér á eftir fer spjall við þann síð- astnefnda. Heyra má í Steve Vai í fyrsta sinn á Zappa plötu árið 1981, en þá kom Tinsel Town Rebellion út. Vai hafði verið ráðinn til starfa af Zappa að- eins átján ára gamall (Vai er fædd- ur 1960) sem hafði hrifist af hæfi- leikum þessa unga manns, en Vai hafði sent Zappa nótnaútskriftir af gítarsólóunum hans. Fáir standa enda Vai snúning hvað tæknilega færni á gítar varðar og toppar hann iðulega lista gítartímarita yfir bestu gítarleikara heims. Frank Zappa kallaði Vai „Litla ítalska virtúósinn“ sinn og var sagður leika á glæfragít- ar („stunt guitar“) á plötunum. Vai hringdi í blaðamann frá Manchest- er, en tónleikarnir fóru fram þar að kvöldi 1. júní. Tímalaus – Hvernig hefur túrinn gengið hingað til? „Þetta er búið að ganga mjög vel get ég sagt þér og ég er eiginlega hálfhissa. Átti ekki von á að þetta myndi ganga svona smurt. Dweezil er virkilega að finna sig og það er mjög gott að hafa Napoleon (Brock) og Terry (Bozzio) með í þessu. Við fáum mjög góð viðbrögð úr saln- um.“ – Ég ætlaði einmitt að spyrja … hvernig er áhorfendahópurinn sam- settur? „Þetta virðast mestmegnis vera Frank Zappa aðdáendur. Ekki það að allir séu þarna yfir fimmtugt, ég myndi segja að þetta væri svona 25 ára og upp úr. Maður sér líka að foreldrar eru að koma með af- kvæmin sín með sér.“ – Já, tónlist Zappa virðist lifa góðu lífi í dag … „Þetta er tímalaus tónlist, það er nú það sem er. Þannig tónlist samdi Zappa. Hann stóð utan við alla tísku, var í eigin heimi sem hefur valdið því að tónlist hans lifir áfram.“ – Hvernig brástu við þegar Dweezil hafði samband við þig? „Ég varð strax spenntur, úr því að þetta kom frá honum og fór þeg- ar að velta því fyrir mér hvernig hægt væri að útfæra þetta nægilega smekklega. Svo þurfti ég að athuga hvort ég gæti losað mig á þessum tíma, og sem betur fer gat ég opnað pláss í dagbókinni. Ég elska að spila tónlistina hans Frank og þetta því kjörinn vettvangur til þess.“ – Þú varst mikill aðdáandi Zappa áður en þú gekkst til liðs við hann var það ekki? „Jú, mjög mikill. Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á að semja tónlist og skapa hana, í raun meiri en að spila á hljóðfæri. Ég var eitthvað að bisa við að blanda spotti og spéi við þessar smíðar mínar þannig að þeg- ar ég heyrði í Zappa í fyrsta skipti var það algerlega málið. Ég hafði heyrt um manninn áður, en það var ekki fyrr en á unglingsárum sem ég fór að komast inn í tónlistina hans.“ – Og svo gekkstu í sveitina hans? „Já. Ég var afskaplega ungur. Var átján ára þegar ég byrjaði að vinna fyrir hann og tvítugur þegar ég fór að spila með honum.“ – Og hvernig var að vinna fyrir þennan mann? „Fyrstu árin var ég algerlega út- slitin, allir þessir túrar og enda- lausar æfingar. Zappa hafði mjög ákveðna sýn á hlutina, það var allt á hreinu og hann sætti sig aldrei við að ekki væri hægt að koma ein- hverju í gegn, sem var eitt af því fjölmarga í hans fari sem veitti manni innblástur. Ég gaf mig 100% í þetta og meira til, ég lagði mig fram við að skila meiru af mér en ætlast var til. Málið var að ef þú varst að standa þig þá varstu „inni“. Zappa var góður yfirmaður, hann ræddi við þig rólega og gaf af sér og hlustaði jafnframt á allt það sem þú hafðir fram að færa.“ Kaffi takk – Sumir myndu segja að þetta væri þversögn, að rokk og ról gangi ekki út á agaðar æfingar þar sem menn drekka bara kaffi. Mér hefur alltaf þótt merkilegt að Zappa snerti aldrei áfengi eða eiturlyf, sér- staklega miðað við tónlistina sem hann var að gera í upphafi ferils síns … „Já, þetta er nefnilega ekki svona einfalt. Ég þekki brjálaða rokkara sem eru skraufþurrir og svo verð- bréfasala sem eru alkóhólistar. Ég þekki menn sem ráða vel við drykkjuna og eru að gera góða hluti í tónlist og svo edrú fólk sem er ein- hvers staðar út í móa. Ég sjálfur snerti ekki á neinum eiturlyfjum. En hvað tónlist Zappa varðar kom eitthvað sull ekki til greina. Í fyrsta lagi, hann hefði séð það strax og rekið þig á staðnum og í öðru lagi er ekki hægt að spila þessa tónlist undir áhrifum. Hún er einfaldlega það krefjandi.“ – Hvaða Zappa-plata sem þú spil- aðir inn á er í uppáhaldi hjá þér? „Húfff! … já þú segir nokk- uð … látum okkur sjá … The Man from Utopia og Ship Arriving Too Late to Save a Drowning Witch eru fínar en annars á ég erfitt með að pikka út einhverja eina.“ – Nú ert þú sjálfur á fullu sem sólólistamaður, kom ekki plata út í fyrra? „Jú jú, hún (Real Illusions: Reflections) er fyrsti hluti verks sem verður í þremur hlutum. Eftir Zappa play Zappa fer ég svo heim til að ganga frá upptökum frá Hol- landi, en ég og Metropole sinfón- íusveitin fluttum efni eftir mig í Hollandi í maí 2004. Ég var mjög ánægður með útkomuna úr því.“ – Þegar þú horfir til baka, myndir þú segja að samstarf þitt við Frank Zappa hafi virkað sem stökkpallur á þinn eigin feril? „Vissulega, en á svo margvíslega vegu. Að hafa spilað með Frank Zappa veitir öllum sem það hafa gert ákveðið brautargengi, því fylgir gæðastimpill. Ég sem hljóð- færaleikari bætti mig gríðarlega en maður öðlaðist líka hollt og gott vinnusiðferði. Frank Zappa var ótrúlegasti maður sem ég hef á ævi minni kynnst, sannur snillingur. Hann hafði magnaða sýn á það hvernig átti að fara að hlutunum og oft fylgdist maður einfaldlega agn- dofa með og reyndi að láta þetta hafa áhrif á sig. Hann var „með þetta“ („He was On it!“) ef þú veist hvað ég meina …“ Tónlist | Steve Vai spilar á Zappa plays Zappa-tónleikunum sem fram fara í Hafnarhúsinu í kvöld „Ótrúlegasti maður sem ég hef á ævi minni kynnst“ Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ’Þetta er tímalaus tón-list. Þannig tónlist samdi Zappa. Hann stóð utan við alla tísku.‘ Fáir standa Steve Vai snúning hvað tæknilega færni á gítar varðar og toppar hann iðulega á lista gítartímarita yfir bestu gítarleikara heims. Miðasala á Zappa plays Zappa fer fram í Máli og menningu á Lauga- vegi, Pennanum á Akureyri, Hljóð- húsinu á Selfossi, Hljómvali í Keflavík, Tónspili í Neskaupstað og á citycentre.is. Tónleikarnir fara fram í Hafnarhúsinu í kvöld. Húsið verður opnað kl. 20 og tón- leikarnir hefjast um hálftíma síðar. www.rr.is. Hvað segirðu gott? Höfuðið er viðkvæmt þar sem ég eyddi sjö tímum í hárgreiðslu í gær, annars er ég brött. Á ekki að skella sér á Ritskoð- arann sem sýndur er í nýbyggðu leikhúsi úti á Granda? (spurt af síð- asta aðalsmanni, Stefáni Halli Stef- ánssyni leikara) Flugið er ansi langt en ég skal hugsa málið. Kanntu þjóðsönginn? Heldur betur. Hef kunnað hann frá unga aldri og það gefur mér mikið ljós í hjarta að syngja hann. Hef sjaldan fengið tækifæri til þess upp á síðkastið svo ég verð að búa það til. Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert? Ja, þar sem ég bý í Los Angeles, þá verð ég að segja til Íslands. Voða fal- legt, það ættu allir að gefa sér tíma til að fara þangað. Uppáhaldsmaturinn? Ferskur fiskur og íslenskur lakkr- ís. Þó ekki saman. Bragðbesti skyndibitinn? Twister-máltíðin á KFC. Fæst á flestum KFC-stöðum í heiminum. Besti barinn? Dimmir staðir sem selja ákavíti. Það er oftast heima hjá mér. Voða kósí. Hvaða bók lastu síðast? Datt í nokkrar í einu eftir tvo sælu- daga í uppáhaldsbókabúðinni minni í LA, Book Soup: The Wisdom of the Heart eftir Henry Miller, Gods and Myths of Northern Europe eftir H.R. Ellis Davidson, Story of O eftir Pauline Reage og Lee Miller, A Life eftir Carolyn Burke. Hvaða leikrit sástu síðast? Maríubjölluna hjá LA. Það er ósköp fátt um góð leikhús í Borg englanna. Enda hafa flestir leikarar svo mikið að gera á kaffihúsum. En kvikmynd? Baraka, Ron Fricke-mynd. Uppá- haldsmynd manns sem ég er að reyna að heilla. Gengur hægt. En það var nú varla spurt að því. Einstök mynd. Hvaða plötu ertu að hlusta á? Voodoo Child, Jimi Hendrix, og The Best of Massive Attack. Uppáhaldsútvarpsstöðin? Útvarpið hér gerir mig alveg vit- lausa. Besti sjónvarpsþátturinn? House med Hugh Laurie. Hann er sniðugur. Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveruleikaþætti í sjónvarpi? Nei, það er ekki „upp mitt stræti“ eins og sagt er á fínni íslensku. Er stundum límd yfir þeim sjálf, helst American Idol. G-strengur eða venjulegar nær- buxur? G-strengur. Alltaf. Það verður horft á rassinn á mér því hann er svo lögulegur, ekki af því að hann prýða nærbuxnalínur. Sjáðu til, lífið snýst um að forgangsraða. Maður á að gefa sér tíma til að hugsa út í svona hluti. Helstu kostir þínir? Ég er þolinmóð og ákveðin. Lít út fyrir að vera sallaróleg en verð svo vitlaus þegar þú átt síst von á því. Svo er ég trygg mínum nánustu. En gallar? Þegar mér finnst ég vera svikin er ég stundum fljót að bíta frá mér. Þrjósk, stolt og stundum svolítið tor- tryggin en það er nauðsynlegt í mínu starfi. Besta líkamsræktin? (Aníta ræskir sig) Jóga held ég bara, eða flamenco. Allt verður að vera voða stinnt. Hvaða ilmvatn notarðu? Það heitir Black Tuberose, kemur í afar fallegri lítilli flösku með skrúf- tappa sem fer svo inn í svarta leð- urpyngju. Er allt of dýrt en ilmar al- veg undarlega vel. Ertu með bloggsíðu? Nei. Þeir sem þurfa að vita um mínar ferðir gera það þegar. Pantar þú þér vörur á netinu? Ég panta bækur á Amazon, svo er síða sem selur kasmírvörur á 50% af- slætti sem ég nota stundum þegar ég er einmana, sem er mjög sjaldan. Flugvöllinn burt? Ætli það sé ekki kominn tími á það. Tímarnir breytast og mennirnir með. Hvers viltu spyrja næsta að- alsmann? Mállaus prins eða vinsæll úti- gangsmaður? Íslenskur aðall | Aníta Briem Mikill bókaormur Aðalskona vikunnar er ung og upprennandi leik- kona sem var á dögunum ráðin til að leika á móti Brendan Fraser í kvikmyndinni Journey 3-D sem gerð er eftir frægri skáldsögu Jules Vernes, Æv- intýri Snæfellsjökuls: för í iður jarðar. Áætlað er að myndin verði frumsýnd næsta sumar. „Ferskur fiskur og íslenskur lakkrís. Þó ekki saman.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.