Morgunblaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 21
ÚR VERINU
Sjóvélar ehf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 553 3311• Fax: 553 3336 • Netfang: sjo@sjo.is • www.sjo.is
Til hamingju með daginn
íslenskir sjómenn
KRÓKAR • LÍNUR • ÁBÓT • BEITNINGA
VÉLA
KER
FI
SJÓMANNADAGSBLAÐ Snæfells-
bæjar kemur út núna fyrir sjómann-
dagshelgina og er blaðið fjölbreytt
að vanda. Viðtal
er við Sveinbjörn
Benediktsson,
fyrrverandi póst-
og símstöðv-
arstjóra á Hellis-
sandi, en hann
lést á síðast-
liðnum vetri. Á
sínum tíma gerði
Sveinbjörn út
skipið Skarðsvík SH 205 með hinum
fræga aflamanni Sigurði Kristjóns-
syni.
Fjallað er um stofnun Hraðfrysti-
húss Ólafsvíkur árið 1939 í grein eft-
ir Ásgeir Jóhannesson og í grein eft-
ir Gísla Ágúst Gunnlaugsson segir
frá upphafi vélbátaútgerðar í Ólafs-
vík. Þá svarar Einar Kristinn Guð-
finnsson, sjávarútvegsráðherra,
spurningum frá valinkunnum skip-
stjórum við Breiðafjörð.
Sjómanna-
dagsblað
Snæfellsbæjar
TÓLFTI árgangur Sjómannadags-
blaðs Austurlands er kominn út,
undir ritstjórn Kristjáns J. Krist-
jánssonar frá
Norðfirði. Blaðið
er tæpar 100 síð-
ur og skartar vel
á annað hundrað
ljósmyndum.
Á meðal efnis
er umfjöllun í
máli og myndum
um átök Breta og
Íslendinga í
þriðja þorskastríðinu. Í blaðinu er
einnig að finna viðtal við sjómann-
inn, sögumanninn og Norðfirðinginn
Kristin Pétursson, sem bjó lengi á
Hornafirði.
Utan Austurlands er m.a. hægt að
nálgast blaðið í Grandakaffi og
verslunum Pennans-Eymundssonar.
Sjómanna-
dagsblað
Austurlands
komið út
SLYSAVARNADEILD kvenna í
Reykjavík verður með sjómanna-
dagskaffi sem er aðalfjáröflun deild-
arinnar. Á sjómannadaginn verða
seldar vöfflur í tjaldi á miðbakka og í
björgunarskipinu Sæbjörg.
Í félagsheimilinu Höllubúð, Sóltúni
20, er hægt að setjast niður og fá sér
af tertuhlaðborði. Einnig verður í
fyrsta sinn kaffihlaðborð í tengslum
við tækjasýningu Björgunarsveitar-
innar Ársæls í Gróubúð, Grandagarði.
Sjómanna-
dagskaffi í
Reykjavík
ÞÓTT þorskaflaheimildir í Barents-
hafi verði ekki skornar jafnmikið nið-
ur og bráðabirgðatillögur Alþjóðahaf-
rannsóknarráðsins (ICES) kveða á
um, má búast við að framboð á þorski
á næsta ári muni dragast töluvert
saman. Minna framboð þýðir jafn-
framt hærra þorskverð á mörkuðum.
Á norska netmiðlinum intrafish.no
er fjallað um áhrif minni þorskveiða
við Barentshaf, en þar er veiddur
stærsti hluti þess þorsks sem seldur
er Evrópumarkað. Þar kemur jafn-
framt fram að eftirspurn eftir þorski
hafi vaxið mikið á undanförnum árum
samhliða því að framboðið hafi verið
að dragast saman.
Finnbogi Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandic í Evrópu,
segir að nú þegar sé fiskverð mjög
hátt og óttast að frekari hækkanir
gætu þýtt minnkandi markaðshlut-
deild.
„Í dag er verð á öllum þorskafurð-
um, saltfiski, frystum flökum sem og
ferskum, mjög hátt. Þetta á reyndar
við um flestar fisktegundir; t.d. hækk-
aði verðið á laxi um 75% frá áramót-
um til páska á þessu ári.
Það er alveg ljóst að það verður
mjög erfitt að hækka verðið enn frek-
ar. Fiskur er í samkeppni við aðra
matvöru og ég óttast að viðskiptavinir
okkar fari að leita eitthvert annað. Við
verðum að passa að sprengja ekki
kúnnann með þessum háu verðum.
Þegar menn hafa skipt yfir í aðrar
vörur þá er mjög erfitt að fá þá aftur
að borðinu,“ segir Finnbogi.
Óttast að hærra þorsk-
verð sprengi markaðinn
Hátt fiskverð Fiskverð hefur hækkað mikið það sem af er ári og óttast nú
sumir að neytendur kunni að leita í aðrar vörur hækki það ennfrekar.
♦♦♦
♦♦♦