Morgunblaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 54
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG ÉR
ÓGURLEGUR
HUNDUR!
EN ÞAÐ LÍKAR ÖLLUM
VEL VIÐ ÞIG!
ÉG ER MIS-
HEPPNAÐUR!
HANN
ER EKKI
SVO
HARÐUR!
ÉG FANN
HANA!
ÉG FANN BÓKINA! ÉG
LEIT INN Í ÍSSKÁP OG
ÞAR VAR HÚN! ÉG FANN
BÓKINA!
ÉG FANN BÓKINA!
MÉR ER BORGIÐ! ÉG
FANN HANA! JÁ, ÉG
FANN HANA! MÉR ER
LOKSINS BORGIÐ!
ÞAÐ ER FÁTT SEM GERIR
MENN JAFN HAMINGJU SAMA
EINS OG ÞAÐ AÐ SLEPPA
FYRIR HORN!
TIL
HAM-
INGJU!
ÞÚ TEKUR ALLT PÁSSIÐ!
GEFÐUR MÉR PLÁSS!
AUM-
INGJA ÞÚ!
HUGSARÐU NOKKURN
TÍMAN UM DETTIFOSS?
FLEIRI, FLEIRI LÍTRA AF
FLÆÐANDI VATNI!
HANN ER
BRÖGÐÓTTUR!
ÉG BAKAÐI KÖKU SEM ÉG ÆTLAÐI
AÐ SKIPTA NIÐUR TIL AÐ SÝNA YKKUR
HVERSU MIKILL PENINGUR FER, Í MAT,
FÖT OG HÚSASKJÓL...
...EN ÁÐUR EN ÉG GAT
SKORIÐ HANA NIÐUR...
ÞÁ ÁT HANA
EINHVER?
NEI, ÞÚ MÁTT
EKKI FARA ÚT
AÐ LEIKA
STRAX! ÞÚ ERT
EKKI BÚINN AÐ
BORÐA
HEIMAVINNUNA
ÞÍNA!
HVERNIG VAR Á
ÆFINGU?
MÖG GAMAN!
HLJÓMSVEITIN SMALL
ALVEG SAMAN
SVO VEL AÐ MIG LANGAR
AÐ TAKA MÉR FRÍ Í VINNUNNI
OG EINBEITA MÉR AÐ TÓNLIST
ÞAÐ
MUNDI EKKI
GANGA
UPP!
NEI, EN
ÞAÐ ER
GÓÐUR
DRAUMUR!
HANN ER AÐ BRALLA EITT-
HVAÐ EN M.J. TRÚIR MÉR EKKI
HANN STEFNIR
BEINT Á MIG!
HVAÐ EF
KRAVEN VILDI AÐ
KRÓKÓDÍLARNIR
SLIPPU SVO HANN
GÆTI VERIÐ
HETJA?
Dagbók
Í dag er föstudagur 9. júní, 160. dagur ársins 2006
Enn og aftur sér Vík-verji fulla ástæðu
til að efast um að yf-
irvöld séu nógu íhalds-
söm í útgáfu
meiraprófsskírteina.
Þau virðast rata í
hendur manna, sem
vafasamt er að eigi að
hafa bílpróf, hvað þá
réttindi til að stjórna
tuga tonna ökutækj-
um.
Á Fréttavef Morg-
unblaðsins var sem
sagt í gær greint frá
því að bílstjóri risa-
stórs flutningabíls
hefði ekið inn í Hvalfjarðargöngin
með stóra gröfu á pallinum. Grafan
skagaði 75 sentimetra upp fyrir þá
hæð, sem er leyfileg á farmi, sem
fluttur er í gegnum göngin. Fram
kemur í fréttinni að um 100 metra frá
gangamunnanum séu hæðarslár yfir
akbrautunum, sem bílstjórar geti
miðað hæðina á farmi sínum við.
Myndir úr öryggismyndavélum
ganganna sýna að bílstjórinn hægði
ekki einu sinni á sér við slárnar, held-
ur ók á þær á fullri ferð. Hann stanz-
aði ekki fyrr en grafan rakst í stálbita
í gangamunnanum af fullu afli.
Það fer ekki á milli mála að þessi
maður hefði getað
valdið stórslysi. Menn
missa bílprófið fyrir að
aka fullir. En missa
þeir það þegar þeir aka
eins og vitleysingar?
x x x
Nú er heimsmeist-arakeppnin í fót-
bolta framundan. Vík-
verji hefur ekki áhuga
á fótbolta. Hann gerir
ráð fyrir að vinna fulla
vinnu jafnvel þótt
spennandi leikir verði á
vinnutíma. Víkverja
finnst raunar alveg
sjálfsagt að hann leggi ýmislegt á sig
aukalega til að vinnufélagar hans geti
horft á boltann í friði. Það eina, sem
hann gerir kröfu um í staðinn, er að
hann fái að fylgjast óáreittur með
heimsmeistarakeppninni í fluguveiði,
sem verður haldin í Portúgal í nóv-
ember (og einhver sjónvarpsstöðin
hlýtur að senda beint frá). Hann
kynni sömuleiðis að meta það að fá að
nota vinnutímann til að fylgjast vel
með alþjóðlegu frímerkja- og mynt-
safnarasýningunni í Köln í október.
Víkverja finnst nefnilega alveg sjálf-
sagt að menn sinni áhugamálum sín-
um í vinnutímanum.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Fótbolti | Goethe-stofnunin og þýska sendiráðið í Reykjavík bjóða í dag kl.
15.30 til athafnar í Borgarleikhúsinu vegna byrjunar heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu í Þýskalandi.
Atli Eðvaldsson opnar formlega ljósmyndasýninguna „Heimsmálið fótbolti“
og kl. 16.00 verður opnunarleikur HM, Þýskaland gegn Kosta Ríka, sýndur
beint á Litla sviði leikhússins, með viðeigandi stemningu.
Ljósmyndirnar á sýningunni sýna menningartengd tengsl við knattspyrnu.
Einkunnarorð hennar eru „Heimurinn er gestur hjá vinum“ og sýnir hún að
knattspyrna er heimsríkjandi áhugamál, sem þekkir hvorki þjóðleg né menn-
ingarleg landamæri. Myndirnar eru eftir þekkta ljósmyndara eins og Henri
Cartier-Bresson, Abbas, Martin Parr, Herbert List og fleiri sem hafa reynslu
og gleði af leikjum, ásamt ferðum gegnum óteljandi viðfangssvið sem eru
tengd fótbolta: heiðarleika, kynhlutverkum, verslunarháttum, trúarbrögðum
og svo framvegis.
Sýningin stendur í forsal Borgarleikhússins til loka heimsmeistaramótsins.
Reuters
Boltað í Borgarleikhúsi
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Enginn skapaður hlutur er honum hulinn, allt er bert
og öndvert augum hans. Honum eigum vér reikningsskil að gjöra.
(Hebr. 3, 13.)