Morgunblaðið - 09.06.2006, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 09.06.2006, Qupperneq 30
Daglegtlíf Þegar þú beygir inn Whit-field Street í vesturhlutaLondon er lítill veitinga-staður þar rétt við horn- ið. Þetta er vel upplýstur staður en einhvern veginn er erfitt að átta sig á hvað er handan við hurð- ina. Lítil uppljómuð verönd er fyr- ir framan og þegar stigið er inn fyrir dyrnar heyrist skrítið hljóð því viðskiptavinir stíga á smásteina sem vekur furðu hjá ýmsum. Archipelago er veitingastaður sem á engan sinn líka og er mat- seðillinn blanda af matseld víðs- vegar að þó aðallega sé einblínt á Kyrrahafið. Staðurinn er málaður í dökkgrænum og rauðum litum og veggirnir eru þaktir af dóti frá öll- um heimshornum. Þarna ber m.a. að líta stór olíumálverk, búdda- styttur, afrískar grímur og landa- kort. Borðin eru troðin af alls lags dóti; blævængjum, páfuglsfjöðrum, styttum og kistlum og glösum af mismunandi stærðum og gerðum enda fær hver gestur ólíkt glas. Matseðlarnir eru annaðhvort á diskunum snyrtilega rúllaðir upp með rós eða geymdir í fjársjóðsk- istu. Niðri í kjallara er lítil skraut- leg setustofa og geta gestirnir í raun skemmt sér bæði þar og við borðin við að velja hvaða hluti þeim líst best eða verst á, svona til að stytta sér stundir ef umræðu- efnin eru af skornum skammti. Nú hefur Bruce Alexander, eig- andi staðarins, prentað á matseðl- ana að margir af hlutunum séu til sölu og ef að hlutir hverfi þá verði gestirnir rukkaðir um þá. Bruce líkir staðnum við háaloft gamallar frænku og það sé einmitt hug- myndin á bak við staðinn. Stað- urinn eigi að vera heimilislegur og fólki á að líða vel. „Þú getur borð- að með hnífapörum, prjónum eða hreinlega með puttunum allt eftir því hvað þú vilt – hér eru engar reglur og engir fordómar.“ Þar af leiðandi er heldur engin krafa gerð um formlegan klæðnað og gestir koma í gallabuxum og bolum eða í galakjólum allt eftir því hvernig liggur á þeim. Þjónustan er á hinn bóginn í há- gæðaflokki og ef fólk skreppur t.d. frá borðinu þá er búið að brjóta munnþurrkuna fallega saman þeg- ar fólk sest aftur að borðinu. Vegna þessa er Archipelago ein- staklega vinsæll staður og þekktir einstaklingar koma þangað gjarn- an eins og bresku prinsarnir Willi- am og Harry, tískuhönnuðirnir Julian MacDonald og John Gal- liano, fyrirsætan Kate Moss, Ken Livingstone borgarstjóri London og fyrrverandi tengdadóttir Ís- lands, Mel B. Viðskiptavinir mega staldra við eins lengi og þeir vilja en á mörgum stöðum í London er einfald- lega ætl- ast til að fólk sé farið inn- an tveggja stunda. Borð eru því aldrei tvíbókuð á kvöldin. Hráefnið í matargerðina er fengið hvaðanæva að en allt er það lífrænt rækt- að. Bruce er ekki kokkur en hann veit hvað hann vill bjóða upp á svo hann sér um að setja saman matseð- ilinn ásamt kokkinum. Þeir breyta matseðlinum um það bil fjórum sinnum á ári, samkvæmt árstíð- unum, þó að sumt sé alltaf á seðl- um þeirra. „Þegar við breytum matseðl- inum þá sest ég niður og segi hvað ég vil og hann eldar og svo smakka ég og þannig vinnum við saman þar til við erum báðir ánægðir.“ Krókódíll og eþíópískt lamb Á matseðlinum er m.a. krókódíll með taílenskri sósu, páfugl með tómata- og vanillumauki, eþíópískt lamb, froskalappir og kryddlegnar kengúrulundir með rótargrænmeti. Svo er hægt að fá hliðardiska með salati, hvítlauks- og pip- arkrydduðum kartöflum en einnig pöddusalat. Fyrir þá sem vilja ekki svona framandi mat þá er líka boðið uppá andabringur, fisk, svínakjöt og ýmsa grænmet- isrétti. „Við vilj- um ekki bjóða upp á neitt sem fólk hryllir við eins og augnasúpu í Indiana Jones-stíl. Eitt sinn vorum við með lunda á matseðl- inum en það var ekki sérlega vinsælt þar sem lundar eru taldir vera í útrýmingarhættu á Englandi.“ Eftirréttirnir eru líka skemmti- lega öðruvísi, þar sem m.a. er hægt að fá osta með ávöxtum eða frauð með gulli, en til að toppa allt þá geta viðskiptavinir pantað súkkulaðihúðaðan sporðdreka. Og fyrir þá sem þora þá er hægt að fá heimsókn frá lækninum. Lækn- irinn kemur með úttroðna ferða- tösku af alls lags áfengi, þar á meðal kanilvodka með gulli eða absinthe sem snákur hefur legið í og í lokin fá „sjúklingarnir“ pillu frá lækninum og vatnsskál svo að allir geti læknast og skemmt sér enn betur. Sumir biðja um heimsókn frá „lækninum“ sem kemur með troðna tösku af áfengi eins og kanilvodka með gulli eða „absinthe“ sem snákur hefur legið í.  LONDON Archipelago er veitingastaður í vesturhluta London sem verður að teljast alveg einstakur. Gestir staðarins koma ekki formlega klæddir nema þá langi til þess og þeir geta borðað með prjónum, hnífapörum nú eða bara puttunum. Borðað uppi á háalofti hjá gamalli frænku Það er sérstök upplifun að heimsækja veitingahúsið Archipelago í London þar sem fólk fær leyniorði úthlutað til að komast inn og gæðir sér svo á framandi réttum í skrautlegu umhverfi. Laila Sæunn Pétursdóttir heimsótti staðinn. Nauðsynlegt er að panta borð með fyrirvara. Við pöntun þarf að gefa upp greiðslukortanúmer og þá fær viðskiptavinurinn leyniorð sem veitir honum og hans félögum aðgang eins og þau séu að fara á leynifund. Síminn er 020 7383 3346. Krókódíl l að hætt i hússins . Krókódílarúllur Um það bil 10 rúllur 1 kg krókódílahalar (mega vera kjúklingabringur eða kjúklingalundir í staðinn) 125 ml kókosmjólk 40 g pálmasykur 15 ml fiskisósa 20 ml grænmetisolía 75 g rautt karrímauk 1 súraldinslauf vínlauf Karrímaukið sett í olíuna ásamt öllu innihaldinu fyrir ut- an krókódílinn eða kjúklinginn og þetta látið malla í 15 mín- útur og síðan leyft að kólna. Setjið kjötbitana út í kryddlög- inn og látið liggja í honum í að minnsta kosti einn dag. Rúllið hverjum bita inn í vín- lauf og gætið þess að allur krókódíllinn eða kjúklingabit- inn sé þakinn. Steikið krókódíl- inn á háum hita í 1–1 1/2 mín- útu á hvorri hlið, þangað til hann er svartur en kjúkling- urinn þarf lengri steikingu. Berið fram með því sem hentar. júní Höfundur hefur verið búsettur í London.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.