Morgunblaðið - 09.06.2006, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Skráning skuldabréfa
Sparisjóðs Mýrasýslu
í Kauphöll Íslands hf.
Skilmálar skuldabréfanna
Skuldabréfin eru 5 ára vaxtagreiðslubréf með einni greiðslu
höfuðstóls þann 19. apríl 2011. Af höfuðstól skuldarinnar
eins og hann er á hverjum tíma ber að greiða árlega 5,4%
fasta vexti.
Skráningardagur
Kauphöll Íslands hf. tekur bréfin á skrá þann 12. júní 2006,
enda uppfylli þau skilyrði skráningar.
Auðkenni Útgáfudagur
SPM 06 2 19.04.2006
Selt Heildarstærð flokks
500.000.000 kr. allt að 1.000.000.000 kr.
Skuldabréfaflokkur SPM 06 2
500.000.000 kr.
Umsjón með sölu og skráningu í Kauphöll Íslands hf. hefur
Fyrirtækjasvið MP Fjárfestingarbanka hf., Skipholti 50d,
105 Reykjavík.
Skráningarlýsing og önnur gögn sem vitnað er til í
lýsingunni er hægt að nálgast hjá MP Fjárfestingarbanka hf.
og á heimasíðu félagsins www.mp.is.
Skipholti 50d | 105 Reykjavík | sími 540 3200 | www.mp.is
JOHN Bolton, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
hefur gagnrýnt harkalega ræðu sem
næstráðandi Kofi Annans, fram-
kvæmdastjóra samtakanna, hélt fyrr
í vikunni. Næstráðandinn, Bretinn
Mark Malloch Brown, sakaði stjórn
George W. Bush forseta í Wash-
ington m.a. um að upplýsa ekki
Bandaríkjamenn um allt það góða og
jákvæða sem SÞ beittu sér fyrir og
reyna ekkert að hamla gegn nei-
kvæðum áróðri gegn SÞ. Fullyrðir
hann að marga gruni að Bandaríkja-
stjórn vilji reyna að grafa undan
samtökunum. Talsmaður Annans
segir að framkvæmdastjórinn sé
sammála Malloch Brown.
Bolton krafðist þess að Annan for-
dæmdi ummælin í ræðunni og gaf
jafnvel í skyn, að sögn AP-fréttastof-
unnar, að framtíð SÞ gæti verið í
húfi. Sjálfur sagði Malloch Brown á
miðvikudag að kjarninn í ræðunni
hefði verið að SÞ gætu ekki virkað
vel án þess að Bandaríkin gegndu
þar grundvallarhlutverki. Hann
hefði gert markvissa tilraun til að
ýta undir umbótaferlið sem hefur
stöðvast vegna valdabaráttu milli
ríkra og fátækra aðildarríkja.
„Menn verða að taka virkan þátt í
starfinu og leggja sig fram um að
gera þessa stofnun betri,“ sagði Mal-
loch Brown. „Og vonandi hef ég leyfi
til að segja að menn verða að hafa
áhrif á almenningsálitið í eigin landi
og útskýra betur hvers vegna SÞ
skipta máli fyrir hagsmuni Banda-
ríkjanna.“ Hann sagði bandarísk
stjórnvöld reiða sig á SÞ í alþjóða-
samskiptum þegar þeim hentaði en
ekki verja þau fyrir gagnrýni íhalds-
samra stjórnmálaskýrenda og þátta-
stjórnenda eins og Rush Limbaugh
heima fyrir. Einnig sagði Malloch
Brown Bandaríkjamenn vera of
kröfuharða í samningum á vettvangi
SÞ, þeir gerðu ekki nóg af því að
leita málamiðlana. Margar þjóðir
hefðu á tilfinningunni að markmiðið
væri að veikja SÞ til að auka líkur á
að stjórnvöld í Washington réðu
fremur ferðinni í alþjóðamálum.
Samþykkt hefur verið þak á út-
gjöld SÞ sem ekki verður lyft nema
umbætur verði að veruleika og getur
farið svo að samtökin lendi í miklum
fjárhagsvanda vegna þeirrar sam-
þykktar. Bandaríkjamenn greiða
hærra framlag til samtakanna en
nokkur önnur þjóð.
Óvenjuleg gagnrýni
Mjög óvenjulegt er að embættis-
menn SÞ gagnrýni stórveldin eins og
Malloch Brown gerði. Þess má geta
að John Bolton fór á sínum tíma, áð-
ur en hann varð sendiherra hjá SÞ,
afar hörðum orðum um verkstjórn
og skipulag samtakanna. Sagði hann
meðal annars eitt sinn að þótt tíu
efstu hæðirnar í húsakynnum aðal-
stöðvanna í New York hyrfu myndi
það ekki valda neinum óskunda í
starfinu, svo óskilvirk væru samtök-
in.
Fullyrt er að það hafi einkum gert
mönnum í stjórn Bush heitt í hamsi
að Malloch Brown skyldi segja að í
kjarna Bandaríkjanna, þ.e. sam-
bandsríkjum langt inni á meginland-
inu, vissi fólk almennt ekki neitt um
hlutverk SÞ. Umrædd svæði eru ein-
mitt helstu vígi repúblikana og Bush.
Bolton sagði ræðu Malloch Browns
vera afar slæm mistök.
„Ég ræddi við framkvæmdastjór-
ann [Annan] í morgun og sagði við
hann: ég hef þekkt þig síðan 1989 og
get sagt þér að þetta eru verstu mis-
tök sem ég veit til að háttsettur emb-
ættismaður hjá SÞ hafi gert á öllum
þessum árum,“ sagði Bolton á mið-
vikudag. Þótt markmið Malloch
Brown hefði verið að gagnrýna
Bandaríkin gæti svo farið að hið end-
anlega fórnarlamb yrði fremur SÞ,
sagði Bolton. Tónninn í ræðu næst-
ráðandans hefði verið „lítillækkandi“
og hann hefði talað niður til banda-
rísku þjóðarinnar. „Þegar öllu er á
botninn hvolft og það er hryggilegt,
var þetta gagnrýni á bandarísku
þjóðina, ekki ríkisstjórn hennar, af
hálfu starfsmanns alþjóðlegra sam-
taka,“ sagði Bolton.
Fram kom í Gallup-könnun í mars
að 64% Bandaríkjamanna teldu SÞ
standa sig illa og hafa samtökin aldr-
ei fyrr komið jafnilla út úr slíkri
könnun vestra. Hins vegar sagðist
meirihluti aðspurðra samt sem áður
vilja að SÞ gegndu stóru hlutverki í
alþjóðamálum.
Bandaríkjamenn reiðir
vegna gagnrýni SÞ
Bolton sendiherra krefst þess að Kofi Annan fordæmi ummæli næstráðanda síns
John Bolton Mark Malloch Brown Kofi Annan
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
!
"#
$
% !
$
&
'
(
!)
*
+ ,
- &(%
")
*
&.
/
!
01
2
!
3! $ 4
55 6'
7&8'
")
%
$
/ &
6 %!
(/ % !
9
6
6 :
!
;#9<=98
0
;
7
>
8
9
/
/
!"
#"
$%
&&''"
()!"*$+
,
$
'&(
(-&."+
"
$&&/0$$'
!
/
#/.
-'.1
(
"""'#.!$&'
./"&/
'0$ 0""+.
2
("
* 6
$
?
%!
Stríðsherrar
heita að berjast
til síðasta manns
Íslamistar hafa öll völd í Mogadishu
Mogadishu. AFP. | Íslamistar sem á
þriðjudag tóku öll völd í höfuðborg
Sómalíu, Mogadishu, voru í gær
sagðir búa sig undir að ráðast á síð-
asta vígi Bandalags um frið og bar-
áttu gegn hryðjuverkum, samtök
stríðsherra sem njóta stuðnings
stjórnvalda í Washington.
Stríðsherrarnir hafa stjórnað
Sómalíu sl. fimmtán ár. Þeir ráða
enn ríkjum í Jowhar, um 90 km
norður af Mogadishu, en íbúar
þeirrar borgar hafa tekið að flýja
hana af ótta við að íslamistar efni
þar til árásar þar sem engu yrði eirt.
Hafa stríðsherrarnir enda heitið því
að berjast uns yfir lýkur í Jowhar.
Forystumenn Íslamska dómstóla-
bandalagsins, samtaka íslamista,
hafa þó sent frá sér misvísandi
skilaboð; hundruð íslamskra víga-
manna sitja nú um Jowhar en sjeik-
inn Sharif Ahmed, sem fer fyrir Ísl-
amska dómstólabandalaginu, lét
hafa eftir sér að engin áform væru
uppi um að ráðast gegn Jowhar. Ísl-
amistar myndu aðeins láta vopnin
tala ef á þá yrði ráðist.
Innleiða sharia-lög
Íslamska dómstólabandalagið
hefur þegar hafist handa við að inn-
leiða sharia-lög í Mogadishu. Ah-
med sjeik sendi á hinn bóginn vest-
rænum stjórnarerindrekum í
Mogadishu bréf á miðvikudag þar
sem þeir voru fullvissaðir um að ný
stjórn í Sómalíu hygðist alls ekki
veita hryðjuverkamönnum öruggt
skjól.
Bandaríkjamenn hafa ekki stað-
fest, að þeir hafi stutt fjárhagslega
við bakið á stríðsherrabandalaginu í
því augnamiði að draga úr vaxandi
áhrifum íslamista í Sómalíu. En
George W. Bush Bandaríkjaforseti
sagði hins vegar á þriðjudag að
hann myndi tryggja að Sómalía yrði
ekki felustaður fyrir liðsmenn al-
Qaeda-hryðjuverkasamtakanna.
Afstýrðu árás á þotu
Bern. AFP. | Svissnesk yfirvöld skýrðu
frá því í gær að þeim hefði tekist að
afstýra árás hryðjuverkahóps frá
Norður-Afríkulandi á ísraelska far-
þegaþotu. Hefðu sjö manns verið
handteknir í sambandi við málið.
Fólkið var handtekið í tveim að-
gerðum sem hófust 12. maí í Zürich
og Basel eftir að rannsókn hafði leitt í
ljós að það hafði gert áætlanir um
árás á þotu í eigu El Al, ísraelska
flugfélagsins. Ekki var skýrt frá
nöfnum hinna handteknu og vísað
var á bug fréttum svissneskra fjöl-
miðla um að lagt hefði verið hald á
sprengjubyssur og flugskeyti.
Fjölmiðlarnir sögðu að hugmyndin
hefði verið að skjóta niður farþega-
þotu í flugtaki frá vellinum í Genf eða
þegar hún væri að lenda.
Denver. AP. | Koparþjófnaður
hefur verið stundaður lengi
víða um lönd enda málmurinn
í háu verði en það segir sína
sögu um hækkandi verð á hrá-
efnum almennt, að nú eru
þjófarnir, til dæmis í Banda-
ríkjunum, farnir að ásælast ál.
Heimsmarkaðsverðið á því
hefur ekki verið hærra í átján
ár.
Nú í vor var álstólum fyrir
um 300.000 kr. stolið úr
skemmtigarði í Ohio og ekki
er óalgengt, að vegrið úr áli
séu rifin burt og jafnvel heilu
ljósastaurarnir. Er lögreglan
jafnvel farin að leggja gildrur
fyrir málmþjófana og þá ekki
síður fyrir brotamálmsfyr-
irtækin, sem af þeim kaupa.
Sem dæmi um það má nefna,
að nýlega fóru óeinkenn-
isklæddir lögreglumenn með
álbekki úr skemmtigarði í
Denver í eitt slíkt fyrirtæki og
seldu fyrir 2.500 kr. stykkið. Í
kjölfarið var fyrirtækið kært
og það síðan sektað fyrir að
kaupa þýfi.
Eftirspurnin
vex hratt í Kína
Það er einkum mikil eft-
irspurn í Kína, sem hefur kynt
undir hærra verði á málmi og
annarri hrávöru. Segja sér-
fræðingar, að námaiðnaður-
inn hafi ekki verið búinn undir
eftirspurnaraukninguna og
því muni þetta ástand vara í
einhvern tíma enn. Mest er
ásóknin í kopar og ál.
Þjófarnir
sækja
í álið