Morgunblaðið - 09.06.2006, Side 52

Morgunblaðið - 09.06.2006, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Þ að er óhætt að slá því föstu að framtíð hesta- mennsku á Íslandi sé björt. Unga fólkið sýnir það svo berlega að mikl- ar framfarir hafa orðið í reiðmennsku hérlendis og það er hreint ekki leið- inlegt að fylgjast með glæstum ung- um knöpum sem hafa margir hverjir sótt námskeið frá því þeir voru poll- ar. Að bera kunnáttu þeirra saman við luralegt reiðlag gamalla tíma er sláandi, ásetan hjá krökkunum er áberandi betri og þeir fá hrossin til dansa léttleikandi um völlinn. Og það er ekki hægt annað en að hrífast með. Ástríður Magnúsdóttir er ein þessara ungu krakka. Ríður út í tveimur landshlutum „Ég hef alltaf haft áhuga á dýrum. Ég eignaðist hund þegar ég var fimm ára að verða sex og eftir það hefur líf- ið snúist um þetta,“ segir Ástríður, sem er alltaf kölluð Ásta. Hún er 15 ára Garðbæingur, nemandi í Garða- skóla, og nýtir hverja lausa stund til að umgangast hesta – og fær áhuga- málið m.a.s. metið í skólanum. „Ég hef verið á knapamerkjanámskeiði í vetur sem var metið sem valfag og þarf því bara að vera í einu valfagi í skólanum. Ég er mjög ánægð með að skólinn skuli meta á þennan hátt áhugamál manns.“ Knapamerkja- nám er stigskipt samræmt nám og stigin eru alls fimm. Námið er metið sem val og til eininga í bæði grunn- og framhaldsskólum. Að taka tillit til áhugamála nemenda á þennan hátt hlýtur að vera jákvætt fyrir alla aðila og í tilviki Ástu markar þetta fram- tíðina því hún er handviss um hvað hún vill: „Mig langar að verða dýra- læknir og langar líka í Hólaskóla. Ég stefni nefnilega að því að búa í sveit í framtíðinni því lífið í sveitinni er langbest!“ segir Ásta – og hún nýtur allra kosta sveitarinnar í sumar því hún er í sveit á hinu kunna hestabúi Vatnsleysu í Skagafirði, hjá Birni Friðrik Jónssyni og Arndísi Björk Brynjólfsdóttur, og þau segja hana mjög áhugasama. „Ég kynntist Birni og Arndísi fyrir rúmum tveimur árum í gegnum frænda minn og fór að venja komur mínar hingað. Ég kom fyrir hálfum mánuði og er með þrjú hross sem ég á hérna og síðan er ég að hjálpa til. Hér á Vatnsleysu eru líka kindur, hundur og kettir en ég á sjálf tvo hunda fyrir sunnan. Mér líkar ágæt- lega við kindurnar og það eru þrír heimalningar núna á bænum sem ég á að sjá um,“ segir Ásta, hæstánægð með lífið. Ásta hefur haft í ýmsu að snúast í vetur því hún hefur stundað útreiðar í tveimur landshlutum; á suðvestur- horninu og á Norðurlandi. Ótrúleg seigla hjá ungri manneskju. „Ég var með eitt hross í Sörla í Hafnarfirði í vetur en hef farið nánast hverja ein- ustu helgi norður í Skagafjörð til að þjálfa hryssuna mína Hildu sem hef- ur verið hérna á Vatnsleysu. Þetta hefur bara gengið vel. Ég fæ oftast far norður en flýg annars á Sauðár- krók,“ segir Ásta sem finnst þetta landshlutaflakk ekkert strembið en viðurkennir að það sé stundum svo- lítið maus að koma sér norður. Á tvö hross undan Glampa Nú mætti halda að Ásta hafi um- gengist hesta og hestamenn frá blautu barnsbeini en það merkilega er að þessi áhugi virðist eins og sjálfsprottinn því hún er ein um hestadelluna í fjölskyldunni. „Ég fór á reiðnámskeið þegar ég var um sjö ára og þá bara fékk ég bakteríuna og hef verið í þessu síðan. Ég hjálpaði til á hestaleigu í Laxnesi í Mosfellsdal en fyrsta hestinn minn, Svip frá Hvolsvelli, fékk þegar ég var 12 ára í fermingargjöf svona fyrir- fram, rúmum tveimur árum áður en ég fermdist. Svipur er mjög góður hestur, þægur og ágætisreiðhestur en hann er bara „slarkarinn“ minn núna, ég nota hann við að smala og annað þess háttar. Í fyrrasumar eignaðist ég svo Hildu frá Vatnsleysu sem er undan Glampa frá Vatnsleysu og hún er keppnishrossið mitt í dag. Ég er að fara að keppa um helgina í úrtöku fyrir landsmótið hjá Stíganda hérna í Skagafirði. Það komast tveir áfram í mínu félagi í hverjum flokki og ég hef ágæta möguleika.“ Ásta hefur keppt á Hildu í vetur og hreppti t.d. fyrsta sætið í unglinga- flokki í fjórgangi og tölti á Héraðs- móti UMSS í maí. „Hilda er viljug og svolítið erfið, skapmikil, en mjög góð og er í 1. verðlaunum. Hún er alhliða- hross en ég hef núna bara riðið henni sem klárhryssu. Ég er að þjálfa Hildu á fullu og ég held þetta sé allt á réttri leið. Ég hef lært mjög mikið af henni og hún gerir kröfur til mín. Í haust fékk ég svo annað afkvæmi undan Glampa, Darra, sem er fínn reiðhestur. Ég hef líka prófað mörg góð hross hérna.“ Sveitin í öllu sínu veldi bíður Ástu eftir hádegishlé og símaviðtal við blaðamann sem enn fær ekki alveg skilið hvernig 15 ára unglingur gat púslað þessu öllu saman í vetur. Hvað með vinina? „Ég á góða vini sem skilja mig alveg. Ég hef reyndar engan með mér í þessu í skólanum en ég hef kynnst krökkum í Sörla og eins hér í Skagafirði þegar ég er að keppa. Ég fæ stundum Jenný, bestu vinkonu mína, með mér á hestbak og reyni að koma henni aðeins inn í þetta. Reyndar er hún stundum svo- lítið þreytt á því að ég fari alltaf norð- ur um helgar og spyr hvenær ég geti verið með sér, þá er það síminn. Ég kann bara svo vel við mig hérna fyrir norðan og þetta er alveg þess virði.“ Lífið í sveitinni er langbest Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Morgunblaðið/Björn Björnsson Garðbæingurinn Ásta í faðmi skagfirskra fjalla ásamt hryssunni sinni Hildu frá Vatnsleysu. Þetta efnilega par keppir um helgina á úrtökumóti Stíganda en Ásta þjálfaði hross norðan og sunnan heiða í vetur. NÚ gleðjast gumar væntanlega því það er komið sumar. Hestar eru líka hýrir á brún þessa dagana því þeir fá að njóta frelsis á ný eftir langan vetur. Hestamenn flykkjast þessa dagana í svokallaða sleppi- túra og fara ríðandi í misstórum hópum út í sumarhagann þar sem reiðhrossunum er sleppt. Margir létu slag standa og slepptu um hvítasunnuhelgina en aðrir vilja njóta hestanna aðeins lengur í júní- blíðunni. Búast má við mikilli umferð hestamanna um vegi landsins um helgina og er vert að minna öku- menn á að fara varlega í kringum hross og sýna tillitssemi. Auk þess er mikil umferð hestaflutninga- bifreiða og bifreiða með hestakerr- ur nú í sumarbyrjun með ótal hross á leið í keppni eða dóm – eða bara í sumarhagann. En ekki eru allir farnir burt úr bæ og enn aðrir þurfa ekki að leggja í neitt ferðalag því haginn er bara hinum megin við hesthúsvegg- inn. Þessi faxprúða hryssa undi sér vel með folaldi sínu í girðingu við hesthúsahverfið í Mosfellsbæ á dög- unum og lætur aðra um útstáelsið í bráð. Morgunblaðið/Eyþór Sleppi- túratíð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.