Morgunblaðið - 29.07.2006, Side 1
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skráðu þig núna
á www.glitnir.is
Stóðu undir
væntingum
Tónleikar Belle & Sebastian fá
fimm stjörnur | 60
Lesbók | Hægri grænn Illugi Gunnarsson Ljóðið Höfn í nýrri þýðingu
Börn | Álfasögur í Hellisgerði Myndasögur
Íþróttir | Sigmundur og Helena halda forystunni Valur áfram í bikarnum
ÞORFINNUR Ómarsson, talsmaður nor-
rænu eftirlitssveitanna á Sri Lanka,
SLMM, sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að líklegt væri að fjölgað yrði í liði ís-
lensku eftirlitsmannanna í landinu á næst-
unni, í kjölfar þess að Finnar og Danir
hefðu kallað fulltrúa
sína heim frá eyjunni.
„Menn bíða spenntir
eftir því hvað Svíar
gera,“ sagði Þorfinnur.
„Þegar það er á hreinu,
þá munu Norðmenn og
Íslendingar væntan-
lega komast að sameig-
inlegri niðurstöðu. Það
verður að hafa hraðar
hendur.“
Auk Íslendinga og Norðmanna taka Sví-
ar, Danir og Finnar þátt í eftirlitsstarfi
SLMM. Eftir að Evrópusambandið skil-
greindi tamílsku Tígranna sem hryðju-
verkasamtök í maí gerðu uppreisnarmenn
þá kröfu að þrjár síðastnefndu þjóðirnar,
sem allar eiga aðild að ESB, drægju sig út
úr eftirlitinu. Jafnframt sögðust þeir ekki
geta ábyrgst öryggi eftirlitsmanna frá
þessum þjóðum eftir 1. september nk.
Að sögn Þorfinns hefur ástandið í land-
inu ekki batnað að undanförnu.
„Tígrarnir lokuðu fyrir vatnsstreymi til
ákveðinna svæða í vikunni,“ sagði Þorfinn-
ur. „Stjórnin ákvað að svara því með loft-
árásum á búðir Tígranna í Trincomalee.“
Alls hafa 57 eftirlitsmenn verið á Sri
Lanka á vegum SLMM og eru 15 frá Nor-
egi, fimm frá Íslandi og 15 frá Svíþjóð.
Rætt við deiluaðila
Spurður um hvenær ákvörðun yrði tekin
um að fjölga í liði Íslendinganna á Sri
Lanka sagði Þorbjörn Jónsson, sendiráðu-
nautur í utanríkisráðuneytinu, að ekki
væri búið að taka ákvörðun í málinu.
„Erindreki Norðmanna, Jon Hanssen-
Bauer, mun fara til Sri Lanka til að ræða
við deiluaðila,“ sagði Þorbjörn. „Þegar
hann snýr til baka verður staðan rædd
frekar. Það eru Norðmenn sem stjórna
þessu ferli.“
„Bíðum
spenntir
eftir Svíum“
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorfinnur
Ómarsson
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti sagði í gær eftir fund
með Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, að þeir væru
sammála um senda þyrfti fjöl-
þjóðlegt herlið sem fyrst til suð-
urhluta Líbanons.
Bush og Blair hvöttu ekki til
þess að komið yrði tafarlaust á
vopnahléi en sögðu að markmið
þeirra væri að koma á „varan-
legum friði“ milli Ísraela og Hiz-
bollah-hreyfingarinnar í Líb-
anon.
Jan Egeland, sem samhæfir
hjálparstarf Sameinuðu þjóð-
anna, hvatti til þess að komið
yrði á þriggja daga vopnahléi til
að hægt yrði að flytja hjálpar-
gögn til nauðstaddra Líbana,
flytja sært fólk á sjúkrahús og
forða börnum og öldruðu fólki af
átakasvæðunum.
Yfir 600 borgarar fallnir
Egeland sagði að yfir 600 al-
mennir borgarar, meirihlutinn
konur og börn, hefðu beðið bana
í Líbanon frá því að Ísraelsher
hóf árásir á landið fyrir sautján
Bush sagði að fjölþjóðlega
herliðið ætti að starfa með her
Líbanons og aðstoða við að
dreifa hjálpargögnum. Condo-
leezza Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fer til Mið-Aust-
urlanda í dag til að ræða við
ráðamenn í Ísrael og Líbanon
um leiðir til að koma á var-
anlegum friði.
Bush og Blair skýrðu einnig
frá því að viðræður hæfust í höf-
uðstöðvum Sameinuðu þjóðanna
í New York á mánudag um að
koma á fót fjölþjóðlegu herliði
sem yrði sent til Líbanons.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna á síðan að koma saman í
næstu viku til að ræða sérstaka
ályktun um ráðstafanir til að
binda enda á blóðsúthellingarn-
ar.
Hizbollah-hreyfingin sagði í
gær að liðsmenn hennar hefðu
skotið nýrri eldflaug sem nefnist
Khaibar-1 og er langdrægari en
flaugarnar sem hreyfingin hefur
beitt til þessa. Hermt er að eld-
flaugin hafi lent sunnan við ísr-
aelsku borgina Haifa.
dögum. Hann áætlaði að um 200
börn væru á meðal þeirra sem
hefðu látið lífið og taldi að tala
látinna myndi hækka vegna þess
að ekki hefði enn verið leitað að
líkum í öllum húsarústunum.
Bush hvetur til fjölþjóð-
legs herliðs í Líbanon
Áætlað að 200 börn hafi beðið bana í árásum Ísraelshers
Reuters
Öldruð kona hvílir sig í Týrus eft-
ir að hafa flúið frá heimabæ sín-
um í Suður-Líbanon.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Ástandið hræðilegt | 9
Vaxandi stuðningur | 19
Á SJÖTTA hundrað manna
þegar mest var stóð mót-
mælastöðu við sendiráð
Bandaríkjanna í gær, að
sögn lögreglu. Tilefnið var
stríðið í Líbanon, en Samtök
herstöðvaandstæðinga stóðu
fyrir aðgerðunum.
Mótmælendur hlýddu á
ávörp Stefáns Pálssonar,
formanns samtakanna og
Ögmundar Jónassonar,
þingflokksformanns Vinstri
grænna. Tíu lögreglumenn
stóðu vaktina við sendiráðið
en þess utan voru fleiri í við-
bragðsstöðu. „Þetta er allt
mjög friðsamlegt og gott,“
sagði einn lögreglumanna á
vettvangi.
Guðrún Margrét Guð-
mundsdóttir mannfræð-
ingur var meðal mótmæl-
enda í gær en hún bjó lengi í
Mið-Austurlöndum. „Von-
irnar sem bresta og áhrifin á
þjóðarsálina í Líbanon eru
gífurleg. Hvað hugsa frjáls-
lyndir arabar og múslimar
um allan heim núna? Það er
verið að afhjúpa hina sönnu
valdastöðu Vesturlanda
gagnvart heimi múslima og
áhrifin af því verða meiri en
við nokkurn tímann getum
ímyndað okkur.“
Í ræðu sinni sagði Stefán
Pálsson að Bandaríkin væru
það ríki sem mesta ábyrgð
bæri á þeirri stöðu sem nú
væri komin upp og stæði
gegn því að alþjóðasam-
félagið gripi inn í. Ögmund-
ur Jónasson spurði hverjir
það væru sem vildu taf-
arlaust vopnahlé í Líbanon.
„Það voru Sameinuðu þjóð-
irnar og [fjöldi einstakra
ríkja]. Nú fyrir skömmu
bættist Ísland í þann hóp.
Það eru góð tíðindi,“ sagði
hann og vísaði til bréfs utan-
ríkisráðherra til kollega síns
í Ísrael. „Ef stríð væri leiðin
til friðar hefðu menn unnið
fyrir friði í þessum heims-
hluta sem ætti að duga til
enda veraldar,“ sagði Ög-
mundur jafnframt. „Við
virðum og elskum gyðinga,
en ekki Ísraelsríki eins og
það hagar sér... Stöðvið
stríðið, stöðvið stríðsglæp-
ina, stöðvið mannréttinda-
brotin. Okkar krafa er:
Stöðvið morðin núna!“
voru lokaorð hans en þau
endurtóku viðstaddir fullum
hálsi.
„Stöðvið
stríðið!“
Morgunblaðið/ÞÖK
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
Í NOKKRUM sveit-
arfélögum í Noregi og
Svíþjóð þurfa nú eig-
endur útiveitingahúsa,
sem nota hvíta plast-
stóla, að velja á milli
þess að hætta að bjóða
upp á veitingar utan-
dyra og þess að kaupa
fínni húsgögn.
Ástæðan er sú að hvítir plaststólar hafa
verið bannaðir í sveitarfélögunum, meðal
annars í Risør og Stafangri í Noregi, að
sögn fréttavefjar Aftenposten.
„Ef útiveitingahúsin fara ekki eftir
reglunum fá þau ekki veitingaleyfi,“ er
haft eftir yfirmanni skipulagssviðs Staf-
angursborgar. „Hvítu plaststólarnir eru
ótótlegir og við gerðum þetta til að bæta
útisvæði veitingahúsanna.“
Veitingahúsin í Stafangri hafa verið
fljót að laga sig að nýju reglunum og
engu þeirra hefur verið hótað leyfissvipt-
ingu.
Hvítir plaststólar
bannaðir
♦♦♦
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag
STOFNAÐ 1913 204 . TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is