Morgunblaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
29. júlí kl. 12.00:
Bine Bryndorf, orgel.
30. júlí kl. 20.00:
Bine Bryndorf, organisti
frá Kaupmannahöfn,
leikur verk m.a. eftir
Buxtehude, Couperin, Mozart og
Holmboe.
Tónleikarnir verða haldnir í Reykholtskirkju.
Miðapantanir í síma 891 7677.
Miðasala við innganginn.
Nánari upplýsingar www.vortex.is/festival
Opnunartónleikar föstudaginn 28. júlí kl. 20.00
Tónlist eftir W. A. Mozart. Meðal flytjenda er hljómsveitin
Virtuosi di Praga. Stjórnandi Oldrich Vlcek.
Miðdegistónleikar laugardaginn 29. júlí kl. 15.00
Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur íslensk og ítölsk lög og óperuaríur.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur með á píanó.
Tríó tónleikar laugardaginn 29. júlí kl. 20.00
Trio Polskie flytja verk eftir Beethoven, Brahms, Haydn og Shostakovich.
Lokatónleikar sunnudaginn 30. júlí kl. 16.30
Virtuosi di Praga flytja m.a. verk eftir Respighi, Dvorak og Samuel Barber.
Einnig verður flutt Adagio og Rondo eftir Schubert.
10 ára
ehf
v
Sígild tónlist í sögulegu umhverfi
28.-30. júlí 2006
Stuðbandalagið frá
Borgarnesi
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA
Í SÍMA 437 1600
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
LEIKHÚSTILBOÐ!
Tvíréttaður kvöldverður og
leikhúsmiði kr. 4.300 - 4.800
Lau. 29. júlí kl. 20 uppselt
Sun. 30 júlí kl. 15 örfá sæti laus
Sun. 30. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Fös. 4. ágúst kl. 20
Lau. 5. ágúst kl. 20
Sun. 6. ágúst kl. 15
Sun. 6. ágúst kl. 20
Lau. 19. ágúst kl. 20
Sun. 20. ágúst kl. 15
Sun. 20 ágúst kl. 20
Fös. 25. ágúst kl. 20
Sun. 27. ágúst kl. 15
Sun. 27. ágúst kl. 20
ALÞJÓÐLEGT orgelsumar heldur
áfram í Hallgrímskirkju um helgina
þegar Bine Katrine Bryndorf, sem
er prófessor í orgelleik við Kon-
unglega Tónlistarsháskólann í
Kaupmannahöfn mun leika á tvenn-
um tónleikum. Hún er á meðal
þekktustu orgelleikara Dana, hefur
sérstaklega lagt sig eftir túlkun bar-
okktónlistar og mestum tíma varið í
tónlist Dietrich Buxtehude, sem var
organisti í fæðingarbæ hennar áður
en hann færði sig til Lübeck. Hún
hefur nú þegar hljóðritað öll org-
elverk hans. Bryndorf hefur unnið
til verðlauna í orgelkeppnum í Inn-
sbruck, Brügge og í Óðinsvéum og
hefur hún einnig unnið til verðlauna
í kammertónlistarkeppnum í Melk
og Kaupmannahöfn.
Á fyrri tónleikunum, sem hefjast
kl. 12 í dag, mun Bryndorf eingöngu
leika barokktónlist. Hún byrjar á því
að flytja sónötu nr. 5 í C-dúr eftir
J.S. Bach og í framhaldi A Voluntary
for ye Duble Organ eftir Henry Pur-
cell, en það verk hefur aldrei áður
heyrst hér á landi. Tónleikunum lýk-
ur svo með prelúdu í D-dúr eftir
Dietrich Buxtehude.
Síðari tónleikarnir hefjast annað
kvöld kl. 20 og eru rammaðir inn af
tveimur prelúdíum eftir Buxtehude,
þeir byrja á BuxWV 139 í D-dúr og
þeim lýkur á BuxWV 140 í d-moll.
Bryndorf leikur svo inn á milli til
skiptis tónlist frá 18. og 20 öld. Gest-
ir munu meðal annars fá að heyra
Andante í F-dúr eftir W.A. Mozart
og tvo þætti úr Les Corps Glorieus
eftir Olivier Messiaen.
Þetta er fjórða helgin í röð þar
sem kvenkyns orgelleikari heldur
tónleika í Hallgrímskirkju en nú
þegar hafa þær Guðný Einarsdóttir,
Ji-Young Han og Sophie-Véronique
Chauchefer-Choplin leikið fyrir
gesti í kirkjunni en konur hafa ekki
áður skipað jafn stóran sess á Al-
þjóðlegu orgelsumri.
Danskur orgelleik-
ari í Hallgrímskirkju
Bine Katrine Bryndorf
www.hallgrimskirkja.is
Í UMSÖGN Önnu Jóa um afmæl-
issýningu Landsbankans í blaðinu í
gær var Guðbrandur Magnússon
prentari ranglega nefndur Guð-
mundur.
Þá misritaðist nafn myndlist-
armannsins Serge Comte á nokkr-
um stöðum í viðtali við hann í sama
blaði.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
Leiðrétt
SÍÐUSTU tónleikar sumarsins í
tónleikaröðinni við Mývatn verða
haldnir í Reykjahlíðarkirkju í kvöld
kl. 21. Flytjendur eru Margrét
Bóasdóttir sópran og Björn Steinar
Sólbergsson orgel og eru tónleik-
arnir tileinkaðir 20 ára samstarfi
þeirra við sumartónleika í kirkjum
á Norðurlandi.
Þau Margrét og Björn Steinar
munu ennfremur ljúka sum-
artónleikaröðinni í Akureyr-
arkirkju í ár ásamt sellóleik-
ararnum Nicole Völu Cariglia á
tónleikum sem haldnir verða í
kirkjunni á morgun kl. 17. Þeir tón-
leikar munu vera þeir hundruðustu
sem haldnir eru í tónleikaröðinni í
Akureyrarkirkju frá upphafi tón-
leikahaldsins árið 1987.
Hvorir tveggja tónleikarnir
standa í eina klukkustund og er að-
gangur ókeypis.
Björn Steinar og Mar-
grét á tvennum loka-
tónleikum fyrir norðan
Björn Steinar
Sólbergsson
Margrét
Bóasdóttir
NÍUNDU og
næstsíðustu
sumartónleikar
á Sólheimum
verða í dag kl.
13.30. Að þessu
sinni munu
hjónin Eyþór
Gunnarsson og
Ellen Kristjáns-
dóttir flytja
mörg af þekktustu lögum Ellenar.
Ellen hefur lengi verið ein af ást-
sælustu söngkonum Íslands, en Ey-
þór hefur leikið við góðan orðstír í
vinsælum hljómsveitum á borð við
Mezzoforte og Stuðmenn.
Aðgangur er ókeypis.
Ellen og Eyþór á
Sólheima
TRÍÓ Björns Thoroddsen leikur í
dag á Jómfrúnni við Lækjargötu
ásamt söngkonunni Andreu Gylfa-
dóttur. Þetta verða níundu tón-
leikar sumartónleikaraðar veit-
ingahússins.
Á dagskrá verður meðal annars
efni á nýútkominni plötu sem nefn-
ist Vorvindar. Plötuna vann tríóið í
samstarfi við Andreu og gaf út í
vor. Í tríói Björns Thoroddsen leika
Jón Rafnsson kontrabassaleikari og
Jóhann Hjörleifsson trommuleikari
auk Björns.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og
standa til kl. 18. Leikið verður ut-
andyra ef veður leyfir, en annars
inni á Jómfrúnni. Aðgangur er
ókeypis.
Vorvindar á Sum-
ardjassi Jómfrúarinnar
Tríó Björns Thoroddsen og Andrea
Gylfadóttir verða með tónleika á Jóm-
frúnni í dag.
HANN VAR að leika sitt prógramm
í Egilsbúð í Neskaupstað í gær-
kvöldi. Við mótmælabúðir á Kára-
hnjúkum fyrr um daginn. Síðastliðið
fimmtudagskvöld í Pakkhúsinu á
Höfn í Hornafirði.
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins nær tali af Dean Ferrell er hann í
miðjum klíðum að pakka niður bass-
anum og í bakgrunni heyrast máva-
hlátur og skruðningar. Það er lík-
lega ekkert grín að koma
kontrabassanum fyrir, en samt er
hann viðræðugóður og til í spjall.
Í dag ætlar Dean nefnilega að
leika fyrir gesti og gangandi á Reyð-
arfirði kl. 18 á stað sem kallast FTV
og er nálægt álverinu þar. Keyrslan
heldur svo áfram og kl. 20 ætlar
hann að vera í Menningarmiðstöð
Skaftfells með óvenjulegan tón-
gjörning í farteskinu.
Bassinn klæðist sautjándu ald-
ar búningi eins og hann sjálfur
„Uppistaða tónleikanna er ensk
tónlist frá 1605 eftir málaliða sem
hét kapteinn Tobias Hume,“ segir
Dean. „Hume var samtímamaður
Shakespeares, og vel þekktur fyrir
að spila á pöbbum og krám á sínum
tíma. Hann reyndi að koma sér inn í
tónlistarelítuna í byrjun 17. aldar, en
þótti of grófur fyrir samtíma sinn og
endaði alltaf á að fara aftur í her-
inn.“
Shakespeare sjálfur hæddist að
Tobiasi Hume í leikritinu Þrett-
ándakvöldi en persónan Andrew
Aguecheek byggist á honum. Hume
hefur á síðustu árum hlotið uppreisn
æru fyrir ýmsa tilraunastarfsemi
sem fræg tónskáld hafa síðar tekið
upp eins og t.a.m. Stravinsky.
Dean er sérfræðingur í barokk-
tónlist. Hann hefur til dæmis rann-
sakað stillingar á hljóðfærum eins
og víólóne, formóður kontrabassans,
í um 20 ár. „Ég spila mikið af eldri
tónlist á upprunaleg hljóðfæri og
klæðist þá gjarnan búningi. Bassinn
er líka klæddur í búning,“ segir
Dean. Hann á þó ekki við að bassinn
sé uppstrílaður með hárkollu, á síðri
skyrtu með skrauthnöppum eða svo-
leiðis. „Ég færi bassann í sautjándu
aldar stílinn. Ég set strengi úr görn-
um í bassann og stilli hann á annan
hátt en nútímabassa; í óreglulegri
Barokkið sam-
einað bítnikki
Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson
hsb@mbl.is
Stund milli stríða hjá
Dean Ferrell kontra-
bassaleikara sem spil-
ar austan lands í dag
á Reyðarfirði og í
Skaftfelli.
irvara þegar ég er blankur. Þá læt
ég bara pottlok ganga til að fá inn
peninga.“
Í sama flokki og grínistar hjá
Félagi íslenskra tónlistar-
manna
Þótt Dean Ferrell sé kontrabassa-
leikari með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands hefur honum reynst erfitt að
fá skilning hjá samstarfsmönnum.
Hann sótti til að mynda um styrk hjá
Félagi íslenskra tónlistarmanna
(FÍT) til að geta flutt umrædda dag-
skrá, en fékk ekki. Úthlut-
unarnefndin lét þess getið að það
sem Dean væri að gera hentaði bet-
ur á krám og kaffihúsum en á hefð-
bundnum tónleikastöðum. Gamla
grýlan um hámenntun og lág-
menntun er hvergi nærri dauð.
„Þetta er nákvæmlega sama nið-
urstaða og menn fengu á Englandi
fyrir 400 árum. Og ég var svolítið
móðgaður að hafa verið flokkaður
svona eftir að hafa rannsakað forn-
stillingar í 20 ár. Ég er einn af fáum
mönnum í heimi sem kunna þessa
stillingu, en er síðan flokkaður sem
uppistandsgrínisti.“ Hann klykkir út
með því að benda á að „theoreti-
cally“ vel menntaðir tónlistarmenn
ættu að vita betur.
Dean er ekki lengur félagsmaður í
FÍT; segist ekki þurfa á þeim að
halda. En í staðinn fyrir að sitja
heima í fýlu settist Dean upp í bílinn,
skellti sér í ferðalag að hætti trúba-
dúra og í dag fá tónlistarunnendur á
Reyðarfirði og í Skaftfelli að njóta
krafta hans á kontrabassann.
Tónlist | Dean Ferrell kontrabassaleikari á túr fyrir austan
stillingu, litlum og stórum þríundum
í bland við ferundir.“
Austrænir tónar og djass undir
textum Allens Ginsbergs
Á meðan Ferrell leikur verk bar-
okktónskáldsins í fornstillingum fer
Dean með ávarp sem Hume flutti
fyrir breska þinginu árið 1642. Auk
þess syngur Dean undir frægu „tób-
akslagi“ Humes og segir það vera
erfitt. „Kannski það sé einum of
raunverulegt að láta reykingamann
syngja tóbakslagið svona hátt uppi,“
segir Ferrell sposkur.
Útkomuna úr þessu mætti kalla
tónlistargjörning, en sjálfur segist
Dean vera að blanda saman barokk-
tónlist á upprunahljóðfærið við
gjörningalist, eða „performance
art“.
Auk verka Humes flytur Dean
ljóð eða texta eftir bítskáldin Allen
Ginsberg og Lawrence Farlinghetti
en einnig sig sjálfan undir austræn-
um tónum eða djassundirleik á
kontrabassann. Á tónleikunum með
honum syngur einnig frönsk leik-
kona, Anne Corte, sem hann gerði
ekki upphaflega ráð fyrir í dag-
skránni en kom henni þar fyrir. „Ég
fann hana á leiðinni,“ segir Dean án
allra útskýringa. Þetta hljómar enda
svo einfalt að þarf engar málaleng-
ingar.
Áður hefur tónlistargjörningurinn
fengið að hljóma við góðan orðstír í
Menningarsmiðju Populus Tremula
á Akureyri, en þar mun Dean spila á
menningarnótt í ágúst. „Ég hef líka
oft spilað í Kaffi Hljómalind án fyr-
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111