Morgunblaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 29
DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ
British Airways hefur aukiðhlutfall lágra fargjalda íflugi aðra leiðina frá Evr-
ópulöndum til Gatwick-flugvallar
við London og einnig frá Gatwick.
Frá Keflavík til London kostar
farseðill aðra leiðina nú frá 6.045
kr. með sköttum og gjöldum inni-
földum. Þessi breyting British
Airways hefur í för með sér enn
frekari lækkun á verði fargjalda
til London auk þess sem far-
seðlaverð til baka aftur til Íslands
verður svipað og frá Keflavík. Í
fréttatilkynningu frá British Air-
ways kemur fram að mögulegt sé
því að fljúga til London með Brit-
ish Airways og heim aftur fyrir
rúmar tólf þúsund krónur með
sköttum og gjöldum inniföldum.
British Airways er þekkt fyrir
samkeppnishæft fargjaldaverð en
veitt er þjónusta um borð í vélum
félagsins, þar sem farþegar
greiða ekki fyrir máltíðir eða
drykki.
Innritað í flug heima í stofu
Meðal annars hefur British Air-
ways einfaldað og lækkað
verðskrár vegna farseðlakaupa,
einfaldað farangursreglur til mik-
illa muna með afnámi ýmissa skil-
yrða, og aukið þjónustu á vefsetri
sínu, þar sem nú er hægt að kaupa
farseðla og ýmsa viðbótarþjónustu
sem tengist ferðalaginu. Þá geta
flugfarþegar á vegum British Air-
ways innritað sig á netinu í tölv-
unni heima allt að tuttugu og fjór-
um klukkustundum fyrir brottför.
Með því að skrá sig inn með lyk-
ilorði sínu á vefsetrið ba.com er
hægt að innrita alla í flugið til
London á þægilegan og einfaldan
hátt, velja sæti í flugvélinni fyrir
fjölskylduna og velja að auki
barnamáltíð fyrir börnin.
Að þessu loknu eru innrit-
unarspjöldin prentuð og höfð
meðferðis til Keflavíkur, þar sem
þau eru afhent við sérstakt hrað-
afgreiðsluborð við hlið innrit-
unarborðs British Airways í Leifs-
stöð.
Þeir sem eingöngu hafa hand-
farangur meðferðis ganga beint
að öryggishliðinu án viðkomu við
afgreiðsluborð flugfélagsins.
Ísland spennandi markaður
Ísland er eini markaður British
Airways þar sem eingöngu er
unnt að kaupa farseðla á netinu.
Ríkir mikil ánægja meðal stjórn-
enda hjá flugfélaginu með það
hversu jákvæðir landsmenn eru
gagnvart sölufyrirkomulaginu og
er skemmst frá því að segja að
nær undantekningarlaust eru vél-
ar félagsins fullbókaðar til og frá
Íslandi.
Farið til London
frá 6.045 krónum
FLUG | British Airways
Morgunblaðið/Ómar
EF ÞÚ ert á leiðinni til Los Angeles
er um að gera að kíkja inn á jap-
anskan „izakaya“-stað. Það er bar
sem selur litla japanska smárétti sem
er skolað niður með sake eða köldum
bjór. Þessir staðir eru nýjasta tískan í
Los Angeles og eru farnir að ýta
sushi-stöðunum af stallinum segir á
vefsíðu The New York Times.
Diskarnir af izakaya eru litlir og
vanalega deilt með öðrum. Þeir eru
upphaflega hannaðir þannig að skrif-
stofumenn geti fengið sér drykk og
snakk með samstarfsmönnum eftir
vinnu en samt ekki verið svo saddir
að þeir geti ekki borðað kvöldmat
heima hjá sér seinna um kvöldið.
Izakaya-staðir eru barir svo aðal-
áherslan á þeim er drykkirnir og því
er bjór skylda með smáréttunum.
Eins er sagt er að há tónlist, mikið af
fólki og bjór sé einkenni japanskra
izakaya-staða.
FERÐALÖG
Ný matartíska
í Los Angeles
Þrátt fyrir blómstrandiveitingahúsaflóru á Íslandihefur enn enginn grískur
veitingastaður skotið rótum á eyj-
unni. Kannski er of vindasamt hér
fyrir gríska veitingahúsafræið og
hefur það þess vegna flogið framhjá
og sáð sér á flestum öðrum stöðum í
heiminum. Allavega hefur blaða-
maður víða fundið ágæta gríska
veitingastaði á ferðalögum sínum og
rakst nýlega á einn í London.
Á stefnumóti við alþjóðlegan hóp
vina, sem hafði mælt sér mót í
Primrose Hill í London, var ákveðið
að upplifa gríska matarmenningu
og snæða á veitingastaðnum Lem-
onia sem er staðsettur í þessu fal-
lega hverfi. Lemonia er stór staður
og þangað koma greinilega grískar
fjölskyldur sem búa í nágrenninu,
og eru það óneitanlega meðmæli
með staðnum.
Þjónninn Andrew var eldhress og
kátur, bar fram matinn af alúð og
vildi allt fyrir gestina gera. Pantað
var sjávarrétta-„meze“ – þ.e. úrval
smárétta af margvíslegum toga, svo
bragða mætti á sem flestu. Græn-
metisætan lenti heldur ekki í nein-
um vandræðum við að finna úrval
grænmetis- og baunarétta við hæfi.
Bragðað var á kolkrabba, tún-
fiski, rækjum, smokkfiski, grill-
uðum osti og fjölmörgu öðru og um
tíma leit út fyrir að Andrew ætlaði
aldrei að hætta að bera mat á borð-
ið, enda réttirnir vel úti látnir og
fjölmargir eins og einkennir gott
„meze“. Ekki var þá hægt að stand-
ast eftirréttina, þrátt fyrir að blaða-
maður stæði á blístri, og gæddi
hann sér bæði á ferskum jarð-
arberjum og klassískri baclava, þ.e.
nokkurs konar hnetusmjördeigs-
köku sem enginn skyldi láta
framhjá sér fara á góðum grískum
stað. Eftir máltíð sem þessa á held-
ur ekkert betur við en ferskt pip-
armyntute til þess að fríska upp á
andann og hjálpa meltingunni.
Sem dæmi um verðlagið á Lem-
onia kostaði sjávarrétta-„meze“
rúm £18 á mann og flaska af Pinot
Grigio £16.
Það er vissara að panta borð á
Lemonia því t.d. í hádeginu á
sunnudögum er fullt út úr dyrum,
en þá streyma grísku fjölskyldurn-
ar á staðinn.
LONDON | Á veitingastaðnum Lemonia má upplifa gríska matarmenningu
Staður sem Grikkir sækja
Lemonia er vinsæll hjá Grikkjum sem búa í London.Það er fjölbreytt úrvalið af veitingahúsum í London.
Grískur matur nýtur
mikilla vinsælda víða um
heim og í London má
finna skemmtilegan stað
við Primrose Hill. Sigrún
Sandra Ólafsdóttir
fékk sér bita.
Lemonia er staðsettur í Primrose
Hill-hverfinu og næsta neðan-
jarðarlestarstöð er Chalk Farm á
Northern Line (í átt að Edgware).
Lemonia
89 Regents Park Road
NW1 8UY
London
Sími: +44 020 7586 7454
Ljósmynd/ SSÓ
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com