Morgunblaðið - 29.07.2006, Page 44

Morgunblaðið - 29.07.2006, Page 44
44 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ynjur til að verja sína konu. Fyrir hönd okkar eldri sjálfstæð- iskvenna og fjölskyldu minnar þakka ég henni samfylgdina og sendi börn- um hennar, tengdabörnum, bróður og afkomendum innilegar samúðar- kveðjur. Sigurbjörg Axelsdóttir. Kveðja frá fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum Fallinn er frá einn af máttarstólp- um sjálfstæðismanna í Eyjum, Ingi- björg Johnsen. Imba Johnsen, eins og hún var oft- ast kölluð, var mikil sjálfstæðiskona og ötull liðsmaður fyrir flokkinn. Óhætt er að segja að fáir fóru í henn- ar spor hvað það varðar, ævinlega tilbúin að starfa fyrir flokkinn og í framvarðarsveit hans um áratuga skeið. Mörg ár var hún formaður Eygló- ar, félags sjálfstæðiskvenna í Eyj- um, og þar af leiðandi í stjórn full- trúaráðsins. Ómældur er sá tími sem hún lagði fram við þessi störf og er eiginlega með ólíkindum hvað hún hafði tíma til þess ofan á öll önnur störf sín. Var með stórt heimili í Ás- nesi þar sem oftast var mjög gest- kvæmt, bindindisfrömuður af lífi og sál, lagði mikið af mörkum varðandi barnaverndarmál í Eyjum, rak blómaverslun um áratuga skeið og svona ætti lengi telja. Af þessu sést að Imba var forkur duglegur og mikil hugsjónamann- eskja. Öll störf sem hún innti af hendi fyrir flokkinn vann hún af heilindum og alúð og vildi honum allt það besta, enda fékk hún orð fyrir að vera „blá í gegn“. En þannig var Imba að hverju sem hún gekk, allt var gert eins og hún best gat. Ófáar ferðirnar átti hún „upp á fasta landið“ fyrir flokkinn; á lands- fundi, á kjördæmisþing og á fundi hjá sjálfstæðiskonum. Allt var þetta unnið í sjálfboðavinnu og ekki nóg með það, allur kostnaður greiddur úr eigin vasa. Þannig var Imba. Imba var líka ákaflega félagslynd manneskja og mikil driffjöður þegar efnt skyldi til mannfagnaðar og þá var ekkert til sparað. Verður lengi í minnum haft þegar Imba tók sig til við að drífa fólk með sér t.d. á lands- fundi flokksins eða aðrar slíkar sam- komur – hún var ekki í rónni fyrr en hún hafði fengið fullt af fólki með sér og oft reyndist það ekki erfitt því all- ir löðuðust að henni og ekki skemmdi hennar létta skap. En að leiðarlokum vilja sjálfstæð- ismenn í Eyjum færa henni innilegar þakkir fyrir öll hennar störf og sam- veru og um leið senda börnum henn- ar og ættingjum öllum samúðar- kveðjur, því þeirra er missirinn mestur. Guð blessi minningu Ingibjargar Johnsen. Kveðja frá Góðtemplarareglunni Í dag er kvödd frá Landakirkju í Vestmannaeyjum Ingibjörg Á. John- sen kaupmaður, mikil heiðurskona, hugsjónarík, hjartahlý, göfug og góð. Hún gekk ung til liðs við bræðralagshugsjón Góðtemplara- reglunnar og vann henni allt það gagn er hún mátti um langan ævidag á meðan heilsan leyfði. Um árabil áttum við samleið í framkvæmda- nefnd Stórstúkunnar. Oft var það ævintýri líkast að starfa með henni þar. Hún kom eins og hvítur storm- sveipur á fundina okkar. Fyrr en varði var hún stundum búin að skreyta salinn okkar blómum, sem hún hafði meðferðis. Stundum kom hún líka með „æskublóm“, þ.e.a.s. unglinga, með sér að heiman og þeir höfðu á takteinum eitthvað skemmti- legt og uppbyggilegt, sem þeir fluttu okkur fundargestum. Hún var nefni- lega æskulýðsleiðtogi af lífi og sál. Þá verða þær ógleymanlegar, mót- tökurnar sem við fengum hjá henni þegar við komum út í Eyjar í skóla- heimsóknir. Þar mætti okkur opinn faðmur á heimili hennar, og allt var undirbúið af hennar hendi á þann veg, að erindi okkar, bindindisboð- unin, mætti fá sem bestan framgang. Alltaf var Ingibjörg að hugsa um, hvað við templarar gætum gert til þess að stemma stigu við sívaxandi ásókn Bakkusar á íslenskt þjóðfélag, sérstaklega æskulýðinn. Hún var svo bjartsýn og hugmyndarík, að hún sá alls staðar tækifæri til að láta að sér kveða. Það var aldrei nein lognmolla í návist hennar. Orð og at- höfn skyldu fylgjast að. Og alls stað- ar vildi hún láta gott af sér leiða. Hún unni Góðtemplarareglunni. Og um stefnu hennar hafði hún vissu- lega getað gert þessi orð reglubróð- ur okkar að sínum: Hún biður hvorki um glys né gervihylli, hún girnist metorð ei, né hefðarsess, en þráir mest að heift og hatur stilli og hverfi að eitri og táli ljómi þess. Hún treystir því, að sá er okkur sendi, er sjálfur með í frelsisstríði manns: Að styðja veikan, verma kalda hendi og vígja hjörtun samúð kærleikans. (H. Kr.) Við templarar kveðjum eina okkar mætustu og bestu félagssystur, með þökk fyrir drengskap, heillyndi og órofa tryggð við þann málstað bind- indis og bræðralags, sem sameinar okkur í baráttunni við þann vágest, sem vímuefnaneyslan er. Í þeirri baráttu er nú það skarð fyrir skildi, sem vandfyllt verður á komandi tíð. Guð blessi þá ljúfu og björtu minn- ingu, sem myndin af okkar hjart- fólgnu Reglusystur vekur í hugum okkar. Ástvinunum öllum sendum við einlægar samúðarkveðjur. Björn Jónsson, fv. stórtemplar. Ég var svo lánsöm að kynnast eld- huganum Ingibjörgu Johnsen. Á sviði bindindismála lágu leiðir okkar saman. Hún gat ekki annað en vakið athygli þessi glæsilega kona sem alltaf talaði af eldmóði og lagði sig fram um að tala til barna og unglinga og lá ekki á þeirri skoðun sinni að farsælast væri að velja leið bindind- is. Hún orðaði það svo að maður ætti að vera hreykinn af því að vera templari. Ingibjörg starfaði ötullega á öllum stigum Góðtemplarareglunnar og voru falin ýmis trúnaðarstörf á þeim vettvangi. Við sátum á tímabili sam- an í framkvæmdanefnd Stórstúku Íslands I.O.G.T. Þar var Ingibjörg góður liðsmaður. Hún hlustaði lítið á úrtöluraddir sumra okkar í barátt- unni, eggjaði menn áfram og hafði óbilandi trú á að þetta gengi nú allt. Lengi var t.d. rætt um áfengislausan dag og ekki síst fyrir orð Ingibjargar varð Bindindisdagur fjölskyldunnar að veruleika árið 1991. Hún var gæslumaður í barnastúk- unni Eyjarós nr. 82 um áratuga- skeið. Þegar haldin voru unglinga- regluþing skipti tæpast máli hvar á landinu það var: Ingibjörg var mætt og oftar en ekki með hóp unglinga með sér. Henni þótti það ekki til- tökumál. Fyrir kraftmikið starf hennar að æskulýðsmálum bindind- ishreyfingarinnar í Eyjum og á landsvísu er ljúft og skylt að þakka. Sjá framtíðarvonirnar vekja’ okkar dug, á varðbergi trúir að standa. Og brosandi geislarnir benda okkar hug til bjartari hugsjónalanda. Þar stýrir sá fundi er stóð oss við hlið í starfinu, ríkari’ og máttugri en við. (Guðm. Guðm.) Ingibjörg Johnsen hefur nú haldið til funda á eilífðarlendum Drottins. Ég er þess fullviss að þar talar hún máli hugsjóna sinna af sama eldmóði og fyrr. Blessuð sé minning hennar. Mjöll Matthíasdóttir, fv. stórgæslum. Unglingareglu I.O.G.T. Elsku vinkona, hvað ég á eftir að sakna þín. Mér finnst ég hafa misst svo mikið og mér finnst ég vera svo miklu meira ein þegar þú ert farin. Öll gleðin og gjafmildin sem þú dreifðir í kringum þig var engu lík. Allt sem þú gerðir var gert af innri fegurð sem þú hafðir svo mikla. Minningarnar streyma fram. Ég minnist þess þegar við vorum börn og mér var boðið í afmælið þitt. Allt var svo flott og fínt. Mamma þín var í íslenskum búningi og með gulldropa í eyrunum. Mér varð starsýnt á ger- semarnar og fegurð móður þinnar. Við sippuðum og klifruðum fjöll í Eyjum, syntum frá Löngu og að nýju bryggju (sem þá var) og aftur til baka og munaði sko ekki um. Ég leit svo mikið upp til þín, þú varst hávax- in og grönn með liðað fallegt hár og hafðir allt til að bera sem hægt var að óska sér. Við lékum marga bolta- leiki og einnig parís þar sem við not- uðum skósvertudós fulla af sandi. Þér hafði hugkvæmst þetta snjall- ræði, enda ætíð úrræðagóð. Þegar ég var 14 ára og þú u.þ.b. 15–16 ára, þá áttum við báðar smá aur. Þú stakkst upp á því að við keyptum okkur efni í kjóla í Dríf- anda, sem við og gerðum. Þú sneiðst báða kjólana eins og ekkert væri og svo saumuðum við hvor á sína saumavélina. Þetta var á föstudegi og við mættum í kjólunum á ballið á laugardagskvöldinu. Þetta er dæmi um drifkraftinn og dugnaðinn í þér, allt sem þér datt í hug var framkvæmt og klárað. Þegar við uxum úr grasi fórum við hvor sína leið, eignuðumst fjölskyld- ur okkar en vorum alltaf í góðu sam- bandi hvor við aðra, áfram sömu Eyjastelpurnar báðar tvær. Í gegnum öll okkar ár hef ég verið þeirrar blessunar aðnjótandi að geta kallað þig vinkonu mína, sama á hverju hefur gengið. Ekkert gat nokkurn tímann klippt á þráðinn sem hefur verið á milli okkar. Nú kveð ég þig, kæra vinkona, hinstu kveðju og finn hvað ég hef misst mik- ið. Ég votta öllum börnum þínum og öðrum afkomendum mína dýpstu samúð og bið að þau njóti áfram Guðs blsssunar. Þín vinkona Sigríður Inga í Skuld. Þegar við hugsum til Imbu vekur það upp hlýjar endurminningar. Hún bjó í Ásnesi við Skólaveginn, en við í nágreninu á Faxastígnum. Ás- laug dóttir hennar er æskuvinkona okkar og Imba var líka góð vinkona. Með glaðværð sinni tók Imba okkur fagnandi og vorum við ætíð velkomn- ar inn á heimili hennar. Heimilið bar þess vott að húsráðendur voru góðir heim að sækja, þar var oft margt um manninn og gestrisni í hávegum höfð þrátt fyrir miklar annir hjá Imbu í blómabúðinni sem var á neðri hæð hússins. Blómabúðin var ævintýra- heimur út af fyrir sig . Verðlagið var einstaklingsbundið og stundum heyrðum við Imbu segja: „Þú mátt bara eiga þetta!“ Ekki gafst alltaf tími til elda- mennsku þegar ný vörusending kom í búðina, en því var stundum bjargað með því að opna Libby’s ávaxtadós sem Bjarnhéðinn keypti í siglingu, rjómi þeyttur með og sagt: „Gjörið þið svo vel.“ Þvílík veisla. Oft styttum við okkur leið í gegn- um lóðina hjá henni til að komast á Stakkó og þá kom fyrir að hún var stödd í garðinum, með skóflu að stinga upp beð, stórglæsileg eins og ítölsk leikkona, í hælaháum skóm í stíl við flottan sparikjólinn og hárið stíftúberað, nýkomin heim úr boði, þurfti aðeins að laga kantinn á blómabeðinu. Þegar Imba eignaðist Skódann var okkur reglulega boðið á rúntinn til að skoða mannlífið í bænum og eigum við okkar ljúfu minningar um þær ferðir. Þegar við höfðum flutt frá Eyjum og komum í heimsókn þangað varð það ómissandi þáttur að heilsa upp á Imbu. Með sinni einstöku framkomu og lífssýn kenndi hún okkur að taka brosandi á móti lífinu og bera virð- ingu fyrir öðru fólki. Við kveðjum hana með þakklæti og sendum fjöl- skyldu hennar innilegar samúðar- kveðjur. Anna, Ásdís og Guðrún. Fyrir 30 árum fluttist ég á fallegu eyjuna Heimaey. Fljótlega kynntist ég þér, Imba mín, vegna þess að dóttir þín Áslaug og ég urðum ein- staklega góðar og nánar vinkonur, og ég var tekin eins og ein af fjöl- skyldunni. Minningarnar eru marg- ar, kirkjuferðirnar með ykkur Ás- laugu á hverjum sunnudegi í Landakirkju á tímabili, ferðirnar til Svölu systur þinnar í Suðurgarði og allar morgunstundirnar á Hilmis- götu hjá Áslaugu áður en þú opnaðir magasínið þitt eins og þú orðaðir það svo skemmtilega (blómabúðina þína). Þú kenndir mér að þó að drægi ský fyrir sólu í lífinu væri sól í hverju horni og sól í hjarta. Þú varst ein- staklega jákvæð og bjartsýn, upp- gjöf var ekki til í þinni orðabók. T.d. þegar ég eignaðist elstu dótt- ur mína og þú komst einn morgun og ég var ekki farin að fara út með hana. Það var sól og blíða og þú vildir drífa hana í vagninn og út að ganga en ég var ekki búin að fá svuntuna á vagninn og vildi ekki fara. En þú sagðir: „Lóa, þú átt heilbrigt, ynd- islegt barn og orðin mamma og það er aðalmálið,“ og út fórum við með hana í svuntulausum vagninum því þú minntir mig á að gera ekki smá- mál að stórmáli. Það var aldrei lognmolla í kring- um þig, þú hafðir alltaf tíma fyrir alla sem leituðu til þín og hjálpaðir fólki, fórst ekki í manngreinarálit. Ég get talið endalaust upp hvað þú varst dugleg, t.d. þegar þurfti að mála KFUM-húsið þá fórstu og málaðir húsið. Við stofnuðum Díönu, félagið okkar sem við gátum endalaust skemmt okkur yfir. Það var alltaf hressandi að koma við í blómabúð- inni eftir vinnu í smáspjall á leiðinni heim og nú kem ég við í Áslaugar búð á leiðinni heim. Mér þótti vænt um þegar þú sagðir við mig að þú værir svo ánægð með að við Áslaug ættum hvor aðra að í lífinu. Síðustu tvö árin dvaldir þú á sjúkrahúsinu hér og alltaf var sól í þínu hjarta, elsku Imba mín. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og fjölskyldu mína. Ég kveð þig með þakklæti og virðingu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Innilegar samúðarkveðjur, elsku Áslaug, Árni, Þröstur, Elías og fjöl- skyldur. Lóa og fjölskylda. Með fáeinum orðum vil ég kveðja kæra vinkonu, Ingibjörgu Johnsen, sem kvaddi þessa jarðvist föstudag- inn 21. júlí eftir rúmlega tveggja ára erfið veikindi. Ingibjörg, eða Imba, eins og hún var ætíð kölluð af Eyja- mönnum og öðrum vinum sínum, setti svo sannarlega svip á samfélag- ið hér í Eyjum, myndarleg, einatt vel til höfð og glæsileg. Imba stóð vakt- ina í blómabúð sinni áratugum sam- an og sá Eyjamönnum fyrir blómum til að tjá ástir sínar, gleði og sorgir og tók af innileik þátt í öllu með sín- um viðskiptavinum með hvatningu, einlægni eða samúð eftir því sem við átti. Sérstakt andrúmsloft vináttu ríkti í búðinni hennar Imbu. Ég átti því láni að fagna að njóta elskulegheita Imbu á erfiðu tímabili í lífi mínu. Þá opnaði þessi hjartahlýja kona heimili sitt fyrir mér og varð ég upp frá því fastagestur í Ásnesi. Í Ásnesi ríkti glaðværð og gestrisni, þar var alltaf lagt á borð fyrir fleiri en fasta heimilismenn, ef einhver skyldi reka inn nefið, en þá voru hús- ráðendur, Bjarnhéðinn og Imba, ánægðastir, ef þétt var setinn bekk- urinn af gestum, og alltaf voru allir jafn velkomnir. Nú líður að þjóðhátíð okkar hér í Eyjum, en Imba hafði mikið yndi af þeim hátíðahöldum, og hennar tjald- búð stóð auðvitað opin öllum gestum og gangandi, þar var Imba í essinu sínu veitandi og að gleðjast með glöðum. Það er mikill sjónarsviptir að Ingibjörgu Johnsen. Ég vil þakka henni öll elskulegheit í minn garð og einlæga vináttu. Skáldið Vilhjálmur frá Skáholti yrk- ir minningarljóð um unga stúlku, en upphafserindi ljóðsins minnir mig á mína kæru vinkonu, þar sem ég sé hana fyrir mér prúðbúna og brosandi innan um blómin sín: Af hvítum liljum ilmur um mig fer og angan berst frá rós að vitum mínum. Það minnir mig á myndina af þér. Guð blessi minninguna um góða og elskuríka manneskju. Sandra. Mig langar að senda nokkur kveðju- og þakkarorð um Ingibjörgu Johnsen. Hún var dugleg, góð og samviskusöm. Það fékk ég að reyna gegnum okkar samskipti í bindindis- og kristniboðsmálum. Meðan hún hafði krafta stóð ekki á hennar at- fylgi í að vinna þeim málum sem mest gagn. Við hittumst oft á Stór- stúkuþingum og höfðum við bæði ánægju af því starfi. Hún var tillögu- góð og alltaf tilbúin að berjast gegn vá áfengisins. Benti hún æskunni á veginn til ljóss og lífs. Þá var Reglan í sínum blóma og gaman að geta gert gagn landi og þjóð. Sú kynslóð sem við störfuðum með mat þetta starf og notfærði sér þá leiðsögn sem þar var í boði. Við áttum bréfaskipti saman og hresstum hvort annað upp í bar- áttunni, sem var oft erfið en þó skemmtileg og allir ávinningar metn- ir og þeim fylgt eftir, svo sem getan leyfði. Ég er þakklátur fyrir að hafa feng- ið að kynnast þessari baráttukonu og þakka henni nú, á kveðjustund, fyrir farsæl og góð kynni sem við áttum saman á þessum góða vettvangi. Ég bið henni blessunar á nýjum áfanga og sendi ástvinum hennar mínar innilegustu samúðarkveðjur. Árni Helgason, Stykkishólmi. Gömul samstarfs- og baráttukona er látin. Kynni okkar Ingibjargar hófust með því að ég sem gæslumað- ur barnastarfs Stórstúkunnar fór til Vestmannaeyja í heimsókn. Forystu- menn Stórstúkunnar höfðu ekki mik- ið álit á Ingbjörgu né bindindisstarfi hennar. Ég fór fljúgandi til Eyja og ætlaði að koma fljótt til baka. Atvikin höguðu því á aðra lund. Flug lagðist niður vegna veðurs og eftir nokkra daga fór ég með Herjólfi heim. Strax á fyrsta degi blasti við mér ný mynd. Eftir vel sóttan barnastúkufund sá ég að þarna höfðu verið haldnir fund- ir en fundargerðarbækur voru ekki til. Litlu síðar segir Ingibjörg heima í eldhúsinu: „Við bindindismenn í Eyj- um eigum stórfé inni hjá Stórstúku Íslands.“ Þetta voru nýjar fréttir fyr- ir mig. „Hefurðu eitthvað sem stað- festir þetta?“ spurði ég. Ingibjörg játti því og kom að vörmu spori með bréf frá að mig minnir sænskri konu sem spurði hvort hún hefði fengið álitlega fúlgu sem stúka hennar hafði sent Stórstúkunni til styrktar bind- indisstarfi í Vestmannaeyjum í tilefni af gosinu 1973. Strax á fyrsta fundi framkvæmdanefndar Stórstúkunnar lagði ég fram fyrirspurn um málið. Jafnframt bað ég vini mína, Kristin Vilhjálmsson, Ólaf Jónsson í Hafn- arfirði og Svein og Arnfinn á Akur- eyri, að ganga í málið. Ég væri sann- færður um að Ingibjörg segði satt. Þetta meðal annarra mála var upp- haf harðra átaka innan hreyfingar- innar sem lyktaði með kjöri mínu sem stórtemplars og Kristins sem stórgæslumanns Unglingareglunnar 1980. Ætíð síðan reyndist Ingibjörg mér tryggur stuðningsmaður í bind- indishreyfingunni og hún setti það mál oft á oddinn. Dæmi: Ég hlustaði til dæmis á hana lesa einhverjum framámanni í KFUM í Reykjavík pistilinn fyrir að breyta kaffihúsi í vínveitingahús og einu sinni fór ég með henni á fund heilbrigðisnefndar hjá Sjálfstæðisflokknum. Ekki var síður eftirminnilegt að sjá blóma- skreytingar hennar á Unglinga- og Stórstúkuþingum. Ingibjörg var eft- irminnileg persóna sem hafði sann- arlega mikinn áhuga á æskulýðs- og trúmálum. Við hjónin sendum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur vegna frá- falls þessarar merku konu. Hilmar Jónsson rithöfundur. INGIBJÖRG Á. JOHNSEN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.