Morgunblaðið - 29.07.2006, Qupperneq 60
60 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UNDIRRITAÐUR hefur gert
fleiri en eina og fleiri en tvær til-
raunir til þess að setja saman
„best of“-disk með skosku hljóm-
sveitinni Belle og Sebastian. Það
hefur hins vegar aldrei tekist að
ljúka verkefninu, enda ómögulegt
að velja úr tíu eða fimmtán lög af
lagalista sveitar sem er farinn að
telja um 140 frábær lög og skilja
hin 125–130 eftir. Níutíu og níu
prósent laganna eru í svo háum
gæðaflokki að það er ómögulegt að
skipta einu út fyrir annað þótt
vissulega standi eitt og eitt upp úr.
Af sömu ástæðu má færa rök
fyrir því að það skipti ekki höf-
uðmáli nákvæmlega hvaða lög
Belle og Sebastian kjósa að leika á
tónleikum hverju sinni, það er
nokkurn veginn gulltryggt að laga-
úrvalið samanstendur af hnökra-
lausum poppslögurum, ýmist hröð-
um og fjörugum, eða fögrum og
melankólískum frásögnum eins og
þeim er einum lagið. Sveitin kaus
að fara fyrri leiðina á nýafstöðnum
tónleikum á Nasa.
Lagalistinn samanstóð að mestu
leyti af efni af nýjustu (og einni
bestu) plötu sveitarinnar, The Life
Pursuit. Smáskífurnar „White
Collar Boy“ og „The Blues Are
Still Blue“ framkölluðu hvað mesta
hrifningu í salnum, og sömuleiðis
ballaðan „Dress up in You“. En
þótt stór hluti tónleikagesta hafi
þekkt þessi lög best, þá voru enn
fleiri í salnum sem hafa fylgst með
hljómsveitinni í hartnær tíu ár og
líta á Tigermilk og If You’re Feel-
ing Sinister sem hinar einu sönnu
Belle og Sebastian-plötur. Þessir
gestir fengu líka nóg fyrir sinn
snúð; um þriðjungur laganna var
af plötum sveitarinnar frá 1996 og
1997. Sérstaklega var ánægjulegt
að heyra sveitina leika lög eins og
„A Century of Fakers“, en það
kom einvörðungu út á smáskífu.
Sú ákvörðun að leika B-hliðarlagið
„The Loneliness of a Middle Dist-
ance Runner“ innsiglaði síðan end-
anlega að Belle og Sebastian
gleymdu ekki sjóaðri aðdáendum
sínum, heldur pössuðu sig á að
muna eftir einhverju dálítið sér-
stöku, ef svo má að orði komast.
Hvorugur hópurinn varð fyrir
vonbrigðum, enda var bandið gríð-
arlega þétt; trommu- og bassa-
leikur mynduðu óbrjótanlegan
grunn sem var skreyttur með
hljómborðum, fiðlu, sellói, trompet,
fjölda gítara og blásturshljóð-
færum á borð við melódiku og
flautu þegar tími gafst. Gítarleikur
var vandaður og oftar en ekki sáu
þrír gítarar um að halda hljómnum
við. Raddanir Söru Martin og Ste-
vies Jacksons við auðþekkjanlega
rödd forsprakkans Stuarts Mur-
dochs voru alveg jafn fallegar (og
sykursætar) og á plötunum, og
smáatriði sem höfðu bæst við út-
setningar á eldri lögum voru kær-
komin viðbót við sundurspilaðar
stúdíó-útgáfurnar. Vönduð spila-
mennskan kom undirrituðum örlít-
ið á óvart, því Belle og Sebastian
var þekkt fyrir einstaklega los-
aralegan flutning á tónleikum fyrir
hálfum áratug.
Persónutöfrar Stuarts og Ste-
vies höfðu mikil áhrif á hversu vel
tónleikarnir tókust. Þeir áttu þó
nokkur samskipti við salinn, fengu
m.a. unga stúlku úr salnum til þess
að taka þátt í flutningi lagsins „Jo-
nathan David“ með því að leika
stúlkuna sem báðar aðalpersónur
söngtextans sækjast eftir. Þeir
hlustuðu eftir uppástungum að
næstu lögum utan úr sal (þó að
þeir hafi sjaldnast orðið við þeim),
og Stevie Jackson tók því fagnandi
þegar röndóttum trefli var fleygt
upp á svið til hans. Stuart lék á als
oddi, hoppaði og dansaði um sviðið
milli þess sem hann reytti af sér
brandara. Stevie myndaði full-
komið mótvægi við hann; var örlít-
ið til baka, vandaði orð sín betur
og gat þ.a.l. oftar en ekki bætt
skemmtilega við athugasemdir
Stuarts.
Eins og kom fram hér að ofan
samanstóð stærstur hluti lagalist-
ans af hressilegum og dansvænum
lögum. (Í því ljósi saknaði gagn-
rýnandi reyndar sárlega þriggja
hressilegra laga: „We Are the
Sleepyheads,“ „Your Cover’s
Blown“ og „Legal Man“). Hljóm-
sveitin var mjög lifandi í sínum
flutningi, en sama er ekki hægt að
segja um alla áhorfendur. Margir
virtust taka Belle og Sebastian
alltof alvarlega og ekki treysta sér
til þess að syngja með og hoppa og
skoppa af kæti – jafnvel þótt það
sé allt að því ómögulegt að standa
kyrr undir lögum eins og „Me and
the Major“ og „Electronic Rena-
issance“. Mér dettur helst í hug að
einhverjir hafi verið að spara sig
fyrir tónleika sveitarinnar á
Bræðslunni í kvöld.
Að sjá Belle og Sebastian á sviði
er sérstök upplifun. Margir aðdá-
endur sveitarinnar hafa varla hug-
mynd um hvernig meðlimir líta út,
og áralangt sjálfskipað fjölmiðla-
bann sveitarinnar hefur búið til
sérstaka og mystíska áru í kring-
um bandið. Að sjá þessari dulu
skyndilega svipt burt, og komast
að því að Belle og Sebastian eru
ofar öðru ósköp venjulegt og glað-
lynt fólk (að því er virðist) er
ákveðin uppgötvun. Stuart Mur-
doch er ekki sárkvalinn og hnytt-
inn snillingur, heldur temmilega
skemmtilegur og hæfileikaríkur
náungi sem gæti hæglega búið í
næsta húsi við mann. Hann er hins
vegar náungi sem geislar af, og
hann getur auðveldlega fengið
mann til að tárast við það eitt að
syngja um ævintýri ráðvilltra ung-
linga sem hafa áhuga á biblíulestri
og masókisma, eða til að svitna
ótæpilega undir sögunni af
drengnum með arababindið (hvað
sem það nú er).
Það er endalaust hægt að ræða
lagaval sveitarinnar á tónleik-
unum. Auðvitað saknaði maður
nokkurra laga, en það er óumflýj-
anlegt þegar svona hæfileikaríkir
lagasmiðir eiga í hlut – raunar má
segja að ég hafi allt í allt saknað
hundrað laga! Það sem er mik-
ilvægast er að Belle og Sebastian
stóðu undir væntingum, og þær
voru sko alls ekki litlar. Spila-
mennskan, jákvæð og hrokalaus
framkoman, og stórkostlegar laga-
smíðarnar tryggðu að fimmtudags-
kvöldið 27. júlí mun seint hverfa
undirrituðum úr minni. Og þá er
bara að hita sig upp fyrir seinni
umferðina í kvöld!
Hulunni
svipt burt
TÓNLIST
Nasa
Tónleikar Belle & Sebastian. Emilíana
Torrini hitaði upp. Fimmtudagskvöldið
27. júlí.
Belle & Sebastian Atli Bollason
Morgunblaðið/Eggert
„Persónutöfrar Stuarts og Stevies höfðu mikil áhrif á hversu vel tónleik-
arnir tókust. Þeir áttu þó nokkur samskipti við salinn, fengu m.a. unga
stúlku úr salnum til þess að taka þátt í flutningi lagsins „Jonathan David“
með því að leika stúlkuna sem báðar aðalpersónur söngtextans sækjast eft-
ir,“ segir Atli Bollason m.a. í umfjöllun sinni um tónleikana.
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
eeee
V.J.V, Topp5.is
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
ÞAU ÆTLA AÐ NÁ AFTUR HVERFINU...
....EINN BITA Í EINU !
S.U.S. XFM 91,9
„...EINHVER BESTA
AFÞREYING SUMARSINS...“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA
KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
H.J. MBL.
eee
JOHNNY DEPP ORLANDO BLOOM KIERA KNIGHTLEY
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
“MAÐUR HREINLEGA GARGAR AF GLEÐI
VIÐ ALLT ÞETTA SJÓNARSPIL! POTTÞÉTT
SUMARMYNDIN Í ÁR SEM ALLIR HAFA
BEÐIÐ EFTIR.”
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
PIRATES OF CARIBBEAN: DEAD MAN´S CHEST
kl. 2:30 - 4 - 5:30 - 7 - 8:30 - 10 - 11:30 B.I. 12.ÁRA.
SUPERMAN kl. 2:30 - 5:30 - 8:30 - 11:30 B.I. 10.ÁRA.
THE BREAK UP kl. 3:45 - 6 - 8:15 - 10:30 Leyfð
THE LAKE HOUSE kl. 6 - 8:15 Leyfð
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 2:30 Leyfð
CARS M/- ENSKU TAL kl. 10:30 Leyfð
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2
kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.I. 12 ÁRA
OVER THE HEDGE
ÍSL TALI kl. 2 - 4 - 6 ENSKU TAL.kl. 8 Leyfð
SUPERMAN RETURNS
kl. 10 B.I. 10 ÁRA
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2
kl. 2 - 5 - 8 - POWERSÝNING kl. 11 B.I.12 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL TALI kl. 2 - 4 Leyfð
OVER THE HEDGE ENSKU TAL kl. 8 Leyfð
SUPERMAN kl. 10 B.I.10 ÁRA
BÍLAR ÍSL TALI kl. 5:40 Leyfð
eeee
“ARR...SANNKÖLLUÐ BÍÓVEISLA
FYRIR ALLA, DEPP SJALDAN
BETRI, ÞESSI TRÍLOGÍA ENDAR Í
SÖMU HILLU OG HINAR ÓDAUÐLE-
GU INDIANA JONES MYNDIR.”
S.U.S. XFM 91,9.
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.