Morgunblaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 22
Fréttir í tölvupósti
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
TÆKIFÆRI FYRIR FJÖLSKYLDU
EÐA FÉLAGASAMTÖK
Vandað 127 fm einbýlishús, eða
frístundahús, ásamt 60 fm bíl-
skúr, samtals 187 fm, á 1400 fm
jaðarlóð miðsvæðis í byggðar-
kjarnanum á FLÚÐUM í Hruna-
mannahreppi.Fremri forstofa,
eldhús með borðkrók, búr, stór
stofa, þvottahús og á sér gangi
eru 3 góð svefnherbergi og ný-
standsett baðherbergi, flísalagt í
hólf og gólf. Aðkoma að húsinu er snyrtileg og umhverfis húsið er
fallegur gróinn garður með heitum potti o.fl. Bílskúrinn er 60 fm.
Öll þjónusta er í göngufæri s.s. grunnskóli, leikskóli, íþróttahús og
2 golfvellir eru í næsta nágrenni. Verð 24,5 millj.
Breiðafjörður | Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra telur
að búseta í nokkrum eyjum á
Breiðafirði, aukin ferðaþjónusta
og síaukin umferð skemmtibáta
útheimti ákveðnar úrbætur á
hafnarmannvirkjum. Kom þetta
fram í ferð hans um Breiðafjörð
fyrr í vikunni.
Samgönguráðherra kynnti
sér aðstöðu í nokkrum höfnum
og lendingarstöðum og ræddi
við heimamenn um hvaða verk-
efni væri brýnast að ráðast í.
Ráðherra kom m.a. við í Flat-
ey. Á bryggjunni heilsuðu
Sturla og Pétur Ágústsson Jó-
hannesi Gíslasyni úr Skáleyjum.
Morgunblaðið
Kynnti sér hafnir við Breiðafjörð
Samgöngur
Suðurnes | Akureyri | Árborg
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þau börn sem fæðast á árinu 2006 íGrundarfirði fá afhentan gjafa-pakka með ýmsum nytsamlegum
hlutum sem nýtast bæði barninu sem og
foreldrum. Átta börn eru þegar fædd,
þar af tvennir tvíburar, og var þeim og
foreldrum þeirra boðið í morgunkaffi í
samkomuhúsinu á dögunum.
Björg Ágústsdóttir, fráfarandi bæj-
arstjóri, greindi frá því við þetta tæki-
færi að við vinnu í tengslum við mótun
fjölskyldustefnu fyrir Grundarfjörð hefði
sú hugmynd fæðst sem nú væri orðin að
veruleika, að færa nýburum samfélags-
ins sængurgjöf frá íbúunum, og tók bæj-
arfélagið að sér að standa fyrir því.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Sængurgjöf samfélagsins
Í kvöld mætast hag-yrðingar á Vopna-firði og síðan verður
ball með sveitinni Í svört-
um fötum. Davíð Hjálmar
Haraldsson frétti af því:
Undirbúa átök hörð
ólmir, hraustir peyjar.
Vítt um fagran Vopnafjörð
verjur höndla meyjar.
Sigrún Haraldsdóttir
mun troða upp og yrkir:
Við þykjum svo fagrar um bak og
bóg,
og blíðar og fullar af hlýju,
að víkingasveit yrði varla nóg
til að verja okkur Fíu.
Friðrik Steingrímsson
var vant við látinn þegar
kunningi kom í heimsókn
í vikunni og þegar kunn-
inginn leit aftur við um
kvöldið heyrði Friðrik
hann segja: „Er helvítis
níðskáldið heima núna?“
Friðrik gekk fram og
orti:
Ekki nokkurn fæ ég frið
fátt sem bætir haginn
að mér sækir illþýðið
allan heila daginn.
Vopnaskak
í kvöld
pebl@mbl.is
♦♦♦
Öxarfjörður | Skipulagsstofnun hefur fallist
á lagningu nýs Dettifossvegar vestan Jök-
ulsár. Hún telur þó að tillaga Vegagerðar-
innar um færslu vegarins að Jökulsá, á milli
Dettifoss og hringvegar, sé ekki ásættan-
leg.
Vegagerðin lét vinna skýrslu um mat á
umhverfisáhrifum 50 kílómetra vegar vest-
an Jökulsár á Fjöllum, frá hringveginum á
Hólsfjöllum að Norðausturvegi í Öxarfirði.
Sveitarfélögin á svæðinu og ferðaþjónustu-
aðilar hafa lagt áherslu á lagningu þessa
vegar og samráðshópur vegamálastjóra
lagði til að byggður yrði upp góður vegur
með bundnu slitlagi vestan Jökulsár. Nú er
vondur moldarvegur vestan ár, í Vesturdal,
að Hljóðaklettum, í Hólmatungur og að
Dettifossi. Landvernd og fleiri aðilar hafa
lagst gegn þessum nýja vegi.
Skipulagsstofnun telur að Vegagerðin
hafi sýnt fram á nauðsyn nýs Dettifossvegar
í ljósi ferðaþjónustu- og byggðarsjónar-
miða. Fellst stofnunin á hugmyndir Vega-
gerðarinnar um veglínur í öðrum og þriðja
áfanga, sem liggja frá Dettifossi í Vesturdal
og þaðan að Norðausturvegi, með tilteknum
skilyrðum, enda valdi hann ekki verulegum
skaða á umhverfinu.
Skipulagsstofnun telur hins vegar að
hugmynd Vegagerðarinnar um að færa veg-
inn nær Jökulsá á fyrsta áfanga, sem liggur
frá Hringvegi að Dettifossi, sé óásættanleg
vegna verulegra neikvæðra, varanlegra og
óafturkræfra áhrifa á jarðmyndanir, lands-
lag og ásýnd svæðisins. Vill stofnunin að
valin verði tillaga sem miðast við lagningu
vegarins í nágrenni núverandi vegar.
Fallist á nýj-
an Dettifoss-
veg vestan ár
Snæfellsnes | Biskup Íslands vísiterar
Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi í sum-
ar. Í gær hófst fyrri hluti vísitasíunnar með
heimsókn á Hellissand og heldur hún
áfram í dag í Ólafsvík.
Á sunnudag og mánudag verður biskup í
Grundarfirði, á Setbergi og heimsækir auk
þess Kvíabryggju. Á þriðjudag og miðviku-
dag fer hann í Staðarstaðarprestakall.
Í þessum hluta vísitasíunnar mun biskup
skoða þrettán kirkjur, messa fimm sinnum
og halda átta helgistundir. Hann heimsæk-
ir einnig dvalarheimili og fangelsi. Þá ræð-
ir hann við sóknarnefndir og starfsfólk
kirkna og fer yfir ástand muna og bóka.
Biskup vísiterar
á Snæfellsnesi
Í sumar hefur ferðamannastraumurinn
verið með betra móti hér í Bolungarvík,
sérstaklega á þetta við um júlímánuð enda
tíðarfarið framan af sumri ekki með besta
móti. Besta mælingin á fjölda ferðamanna
hingað eru aðsóknartölur í sjóminjasafnið
í Ósvör sem á hverju ári dregur til sín
fjölda ferðamanna enda gefur safnið
glögga og skýra mynd af lífinu í verbúðum
hér fyrr á öldum. Það sem af er sumri hafa
rúmlega sex þúsund manns heimsótt safn-
ið og þar af á fimmta þúsund í júlímánuði.
Þarna vegur mjög þungt mikil aukning
á viðkomu skemmtiferðaskipa á Ísafjörð
en farþegar þeirra sækjast eftir því að
skoða safnið í Ósvör þar sem vermaðurinn
tekur á móti gestum og leiðir þá um safnið
íklæddur skinnklæðum, að hætti þess
tíma sem safnið segir sögu um.
Samgöngumál Bolvíkinga hafa mikið verið
í umræðunni undanfarin misseri. Með
ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá sl. hausti
um að ráðast í jarðgangagerð sem leysti
veginn um Óshlíð af hólmi var af hennar
hálfu viðurkennd sú staðreynd að á akst-
ursleiðinni um Óshlíð verði ekki hægt að
tryggja viðunandi öryggi vegfarenda sök-
um grjóthruns og skriðuhættu. Síðan þá
hefur verið unnið að því að leita bestu
framtíðarlausna á samgöngumálum Bol-
víkinga. Nýjar upplýsingar um aukinn
hraða á gliðnun sprungu í Óshyrnu, sem
fylgst hefur verið með frá 1982, sem og
skýrslur fræðimanna, staðfesta að lausn á
samgöngubótum Bolvíkinga þolir enga
bið. Bolvíkingar munu ekki sætta sig við
frestun á lausn þessara mála, sem rök-
studd er með þenslu í þjóðfélaginu, enda
er engin þensla hér fyrir vestan nema ef
til vill í téðri sprungu í Óshyrnu.
Um helgina stendur yfir hér í bæ árlegt
Vestfjarðamót í fótbolta þar sem saman
koma lið frá nálægum sveitarfélögum auk
liða frá HK í Kópavogi. Um 170 þátttak-
endur í 5., 6. og 7. flokki eru skráðir á mót-
ið. Auk keppni er boðið upp á dagskrá sem
lýkur með fjölskylduskemmtun þar sem
m.a. Stuðmenn koma fram.
Úr
bæjarlífinu
BOLUNGARVÍK
EFTIR GUNNAR HALLSSON FRÉTTARITARA