Morgunblaðið - 29.07.2006, Page 39

Morgunblaðið - 29.07.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 39 UMRÆÐAN ÞEGAR ég las Blaðið 11. júlí sl. fannst mér ég vera að lesa grein síð- an 1990. Þarna var verið að fjalla um unglingadrykkju sl. tvær helgar á undan, á Akranesi og í Ólafsvík. Þetta var kunnugleg lesning fyrir okkur sem þekktum svo vel til unglingadrykkju á ár- um áður. Vímulaus æska og Fræðslumiðstöð í fíkni- vörnum settu á stofn átak 1994 með aðstoð fjölmargra félaga og stofnana. Valdimar Jó- hannesson var fenginn til að stýra þessu átaki og með honum var kosin 17 manna stjórn. Markmiðið var að stöðva unglinga- og barnadrykkju. Þetta átak tókst mjög vel og það var ótrú- legt hvað foreldrar og félagasamtök tóku mikinn og góðan þátt í þessu, enda varð árangurinn eftir því. Á þessum tíma blasti við sú stað- reynd að drykkja meðal barna og unglinga var farin að festa sig í sessi á Íslandi og farið var að líta á hana sem lögmál. Á þessum tíma urðum við vör við drykkju barna allt niður í 11 ára aldur. Þetta þótti okkur, sem vorum að vinna með foreldrum og börnum, sorglegar staðreyndir. Við vitum að ef krakkar hefja ung neyslu áfengis þá lenda þau fyrr í neyslu annarra vímuefna og þróa með sér andfélagslega hegðun, flosna úr skóla eða vinnu og verða fyrir slys- um eða ofbeldi. Átakinu var aðallega beint til for- eldra og lögð var mikil áhersla á að taka á sölu landa til unglinga, sem var mjög mikil á þessum árum. Lögreglan tók líka vel á landasölunum og það fór svo að lítið hefur borið á þeim síðan. Eftir átakið voru útihátíðir skárri og í nokkur ár hefur ekkert gerst eins og gerðist á Akranesi um daginn. Því er spurt: Er þetta það sem koma skal í sumar? Á sl. ári urðum við vör við landasala, foreldrar fóru að hringja í Foreldrasímann og segja okkur frá partíum sem krakkarnir þeirra voru í og þar komu menn á svörtum fínum bílum á staðinn og voru með landa til sölu og síðan er það eitthvað fleira því önnur vímu- efni voru líka á boðstólum. Þannig að við höfum orðið vör við þessi við- skipti í allan vetur. Við hér í Foreldrahúsinu höfum orðið vör við mikla aukningu hjá unglingum á notkun áfengis og ann- arra vímuefna sl. tvö ár. Hassið er alltaf vinsælt hjá unglingum en fleiri og fleiri nota amfetamín og þótt ótrúlegt sé þá er hópur unglinga að nota mun sterkari efni. Þannig að málin sem koma til okkar eru yf- irleitt orðin erfiðari og ljótari en áð- ur. Þess vegna er það að það er þörf á því að foreldrar og aðrir taki hönd- um saman, eins og gert var í áð- urnefndu átaki. Við Íslendingar telj- um okkur vera vel upplýsta menningarþjóð, við getum ekki setið hjá, við verðum að taka á þessum málum. Við hjá Vímulausri æsku vinnum af öllum mætti að forvörnum og erum alltaf að auka við foreldra- samstarfið, með það í huga að bæta ástandið. Nú er verslunarmannahelgin á næstu grösum og það er betra að gæta vel að krökkunum okkar, og foreldrar, ekki láta unglingana ykk- ar fara ein á útihátíðir, farið bara með þeim og skemmtið ykkur sam- an. Vonandi fara þeir sem stjórna þessum hátíðum eftir settum reglum hvað varðar börn og unglinga. Foreldrar og börn, góða skemmt- un. Unglingadrykkja Elísa Wium skrifar um áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga ’Við hér í Foreldrahús-inu höfum orðið vör við mikla aukningu hjá ung- lingum á notkun áfengis og annarra vímuefna sl. tvö ár. ‘ Elísa Wium Höfundur er framkvæmdastjóri Vímulausrar æsku – Foreldrahúss. ÞAÐ SÝNDI sig best nú í maí í skemmtiátakinu „Hjólað í vinnuna“, að hjólreiðar geta verið góður kostur í samgöngum. Þær eru arðsömustu sam- göngur, sem völ er á í þéttbýli. Vistvænar, hljóðlátar, heilsu- samlegar og hag- kvæmar. Ekki aðeins fyrir einstaklinginn, sem hjólar, heldur líka samfélagið í heild. En yfirvöld hafa ætíð sett þessum sam- göngum þröngar skorður með aðgerða- leysi eða röngum ákvörðunum. Því gef- ast margir upp á hjól- reiðunum fyrr eða síð- ar. Þó að hjólreiðamenn hafi fullan rétt, sam- kvæmt umferð- arlögum, til að vera á akbrautum, treysta fæstir hjólreiða- menn sér til að hjóla þar, vegna slæmrar umferðarmenningar og mik- ils hraða bílaumferðar. Hröð umferð hjólreiðamanna á heldur enga sam- leið með gangandi fólki eða gæludýr- um. Samt neyðast flestir til að hjóla á gangstéttum þó að umferðarrétt- urinn þar sé takmarkaður og umferð- arreglur mjög tilviljanakenndar. Í stað þess að koma upp hjólreiða- brautakerfi, eins og tíðkast í ná- grannalöndum okkar, var í upphafi valdatíðar R-listans tekin sú ranga ákvörðun að merkja hjólareinar í gangstíga, svokallaða 1+2 stíga. Öf- ugt við það sem tíðkast í nágranna- löndunum, þar sem slíkir stígar eru til, var ákveðið, að hjólreiðamenn fengju aðeins 1 metra af 3. Hjólreiða- fólki er því gert óhægt um vik að fylgja eðlilegum umferðarreglum, því að borgin hugsaði ekki fyrir sér- sniðnum umferðarreglum með þess- ari ákvörðun. Þetta hefur valdið slæmum slysum, og því er þörf á breytingum strax. Þess skal getið, að hjólreiðamaður þarf að fylgja einni skýrri reglu á gangstéttum. Hún er sú, að hann á að sýna gangandi veg- farendum fulla tillitssemi. Dæmi um óskráðar umferð- arreglur á göngustígum borgarinnar:  Þegar engin hjólarein er af- mörkuð á göngustíg, ríkir hefðbundin hægriregla og varúðarregla eins og á akbrautum, nema gangandi vegfar- andi eða gæludýr sýni önnur við- brögð.  Ef hjólareinin er vinstra megin í ferðastefnu, þarf að taka fram úr hægra megin en vinstra megin, ef gangandi vegfaranda er mætt. Hjól- reiðamenn geta ekki mæst á hjól- areininni. Ef hjólreiðamaður mætir eða fer fram úr öðrum hjólreiða- manni, þarf hann að víkja til hægri út á göngustíginn, sem skapar óvissa réttarstöðu fyrir hjólreiðamanninn, ef slys verða.  Þegar hjólareinin er hægra megin í ferðastefnu, á hjólreiðamaður ekki að víkja fyrir umferð, sem kem- ur á móti, heldur halda sig sem lengst til hægri á stígnum. Hann þarf hins vegar að víkja til vinstri út á göngu- stíginn, þegar taka þarf fram úr öðr- um hjólreiðamanni.  Á sama stígnum getur hjól- areinin stundum verið hægra megin og stundum vinstra megin, og þess á milli er engin hjólarein, eins og sjá má á Fossvogsstígnum. Ástandið get- ur því verið mjög ruglingslegt og einkum vegna þess, að ekki hafa enn verið gefnar út neinar sér- stakar umferðarreglur á stígum sem þessum.  Á öðrum stígum getur hjólareinin birst og horfið eins og með fram Sæbrautinni, þar sem sjórinn skolar stígnum burt að hluta á hverju ári. Hjólreiða- menn þurfa því ýmist að fara fram úr gangandi eða hjólandi umferð vinstra eða hægra meg- in, allt eftir því, hvort línan er til staðar eða ekki. Þá er heldur ekki sama, hvort mætt er gangandi eða hjólandi fólki.  Þegar snjór liggur yfir stígum og merkingar eru huldar, ríkja handahófskenndar umferð- arreglur, enda ekki til neinar stað- festar reglur. Þeir sem muna hvorum megin hjólareinin er, gætu verið á „röngum“ stað í huga þess hjólreiða- manns, sem þeir mæta og ætlar að fylgja hægri reglunni. Af þessum dæmum má sjá, að mikil þörf er á skýrum umferðarreglum á göngustígum. Þá hefur ekki verið minnst á það slæma ástand, sem nú ríkir við mörg gatnamót. Nú þegar í sumar þarf að merkja göngustíga með miðjulínu, svo að koma megi á hefðbundnum umferð- arreglum. Umferð um suma stíga er orðin svo mikil, að ekki má dragast lengur að koma á hefðbundinni hægrireglu, sem allir þekkja. Það var ákvörðun Alþingis að leyfa hjólreiðar á gangstéttum, og sam- kvæmt öllum reglum ætti því sam- gönguráðuneytið að sjá um breytingu á umferðarlögum. En í dag hefur samgönguráðuneytið engan áhuga á samgöngum, sem ekki eru vél- væddar, og hefur algerlega vísað þessum málaflokki til sveitarfélaga, þar sem hvert sveitarfélag mótar sína eigin stefnu, óháða öðrum. Það ætti því að vera á valdi og í hag sveitarfélaganna að knýja á um að samgönguráðuneytið endurskoði þessa stefnu sína, svo að koma megi á heildstæðum verklagsreglum við gerð göngustíga og væntanlegra hjól- reiðabrauta. Nú, þegar Sjálfstæðisflokkurinn er kominn til valda í Reykjavík, ætti að vera lítill vandi að semja við sam- gönguráðuneytið um að samræma verklagsreglur í samgöngumálum þéttbýlisstaða. Að sama skapi er nauðsynlegt að bæði ríkisvaldið og sveitarfélögin hefji samráð við fag- og hagsmunaaðila um lagningu hjól- reiðabrauta í samræmi við það, sem er að gerast í nágrannalöndum okkar. Það hefur aldrei verið meiri þörf en nú að bjóða borgarbúum upp á vist- vænar, hollar og öruggar samgöngur, því að það hefur gleymst meira og minna undanfarin ár. Reglnarugl á göngustígum Magnús Bergsson fjallar um hjólreiðar. Magnús Bergsson ’...mikil þörf er áskýrum umferð- arreglum á göngustígum.‘ Höfundur er stjórnarmaður Lands- samtaka hjólreiðamanna www.hjo- l.org SEM íbúi á Austurlandi vil ég sérstaklega þakka Halldóri Ás- grímssyni, fv. forsætisráðherra, og Framsóknarflokknum fyrir það framfararskeið sem nú ríkir á Austurlandi. Bygging Kára- hnjúkavirkjunar og álvers Alcoa skiptir sköpum fyrir þá raunveru- lega stefnu að halda landinu í byggð, eins og allir stjórn- málaflokkar hafa í orði kveðnu boðað. Hér sýna menn í verki að þeir vilji í raun halda landinu í byggð. Halldór Ásgrímsson leiddi þar þing- mannahópinn, ásamt sínum ötula fv. iðn- aðarráðherra og kven- skörungnum Valgerði Sverrisdóttur, af mik- illi festu í gegnum grýttan jarðveg, enda þótt sótt hafi verið úr launsátri á ólíklegustu stöðum. Liðveisla hins merka stjórnmálamanns Davíðs Oddsonar, fv. formanns Sjálfstæðisflokksins, sem sá um að allir hans menn gengju í takt var mikilvæg. Enn- fremur skal ekki gleyma þýðing- armiklum stuðningi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fv. borg- arstjóra, enda þótt um hjáróma rödd hafi verið um að ræða á vett- vangi Samfylkingarfólks. Ég man sannarlega þá tíð er Halldór kom hingað austur á fundi, í kringum aldamótin síðustu, með sínum samflokksmönnum og var að kanna hug almennings hér, hvað það væri sem íbúarnir vildu sjá til nýsköpunar í atvinnumálum. Hall- dór óskaði sérstaklega eftir skoð- unum fundarmanna á því hvort fólk yfirhöfuð vildi fá álver, því engin ástæða væri til að vinna að slíku verkefni ef fólkið vildi ekki þannig atvinnustarfsemi. Almennur áhugi var svo sannarlega hér austanlands fyrir álverksmiðju, fremur en t.d. á rafmagnsútflutningi eða olíu- hreinsunarstöð. Halldór reyndist trúr og tryggur sínum kjósendum og þurfti örugglega mikið á sig að leggja, og flokkinn, til að ná málinu í gegn. Við ættum að minnast þess að á ríkisstjórnarárum Sjálfsæðis- og Alþýðuflokks 1991–1995 og er sá mæti maður Jón Sigurðsson var iðnaðarráðherra, þá ákváðu þessir flokkar að byggja álver á Keilisnesi en hins vegar átti að virkja á Aust- urlandi og flytja orkuna suður með allri þeirri sjónmengun sem orðið hefði með rafmagnsmöstrum og línum alla þessa leið frá virkj- unarstað til Álsness. Þetta fannst Austfirðingum að sjálfsögðu alveg út í hött. En svona var þetta nú. Þegar Fram- sóknarflokkurinn komst í ríkisstjórn 1995 setti Halldór það sem skilyrði að ef virkjað yrði fyrir aust- an í því skyni að út- vega orku fyrir álver þá skyldi álverk- smiðjan líka staðsett á Austurlandi. Þetta ættu menn að hafa í huga, sem nú njóta uppbyggingarinnar í tengslum við álver Al- coa á Reyðarfirði. Hins vegar eru sömu kratarnir, sem vildu ólmir fá álverið á Keilisnes um árið, nú manna mest á móti álverinu hér fyrir austan. Ég gæfi ekki mikið fyrir ástand- ið hér á Austurlandi ef Samfylk- ingin og Vinstri grænir hefðu ráðið ferðinni í landsmálunum. Þá hefði ekki komið til þeirra framkvæmda sem nú standa yfir. Síðastliðin 20 ár var stöðugur fólksflótti frá Austurlandi. Engin hús voru byggð, fasteignaverð hrapaði linnulaust, húseigendur voru bundnir átthagafjötrum og gátu sig illmögulega hreyft nema setja sig í stórskuldir, unga fólkið sem sótti langskólamenntun hafði ekki að nokkru að hverfa í heima- byggð og settist að víðs fjarri, trú fólks á framtíð sinnar heimabyggð- ar var engin. Í besta falli hefði ver- ið hægt að halda uppi merkjum staðarins í formi minjasafns um liðna tíma. Nú hefur ástandið snarbreyst. Fjölbreytt atvinna er í boði. Ungir sem aldnir hafa svo miklu meira val hvað atvinnu varðar. Sú var tíð- in að maður sá hvergi hús í bygg- ingu nema á höfuðborgarsvæðinu. En um þessar mundir má líka sjá heilu hverfin byggjast upp á Nes- kaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Egilsstöðum. Ið- andi mannlíf og byltingarkennd gróska í atvinnumálum hafa tekið við. Fasteignaverð hefur hækkað í átt til byggingarkostnaðar. Fram- sókn á öllum sviðum stendur yfir, sjálfstæði þjóðarinnar styrkt, al- menningi til góðs og komandi kyn- slóðum. Talandi dæmi um jákvæð og at- vinnuskapandi áhrif af fram- kvæmdunum hér á Eskifirði er af dugnaðarforkinum Láru Eiríks- dóttur, sem vann í rækjuverksmiðj- unni á Eskifirði en missti sína vinnu þegar verksmiðjunni var lok- að. Hún tók það til bragðs ásamt sínum eiginmanni, Björgvini Er- lendssyni, að stofna fyrirtæki sem tæki að sér hreinsun og þrif. Til að byrja með voru stafsmenn 1, 2 og 3, en í dag er starfsmannafjöldinn 20 manns, eða sem samsvarar heilli áhöfn frystitogara. Og svona er þetta á öðrum sviðum í þjón- ustugeiranum hér austanlands. T.a.m. rafmagnsverkstæði sem sett var á laggirnar og hafði innbyrðis 2–3 starfsmenn þegar stærsti at- vinnurekandinn á Eskifirði ákvað að hagræða hjá sér og leggja verk- stæðið niður, og verkstjórinn, Andrés Elísson, stofnaði sitt eigið fyrirtæki. Nú eru þar 10–12 manns í vinnu og bjart framundan. En það er eins og allir hafi gleymt því afli, sem kveikti eldana. Vitanlega ber þó að huga að athugasemdum eins og þeim sem berast frá grandvör- um mönnum á borð við Steingrím J. Sigfússon og Hjörleif Guttorms- son en varast ber þó allar öfgar. Það er mín trú að framkvæmd- irnar hér fyrir austan séu afar heppilegar og marki tímamót við að halda landinu í byggð. Síðar meir vilji allir Lilju kveðið hafa. Sanngjarnt er að þeir sem kveiktu eldana njóti þeirra í lifanda lífi. Þakkir til Halldórs Ásgrímssonar Emil Thorarensen þakkar Halldóri framfaraskeið sem nú ríkir á Austurlandi ’Ég gæfi ekki mikið fyrir ástandið hér á Austurlandi ef Samfylk- ingin og Vinstri grænir hefðu ráðið ferðinni í landsmálunum. ‘ Emil Thorarensen Höfundur er framkvæmdastjóri. Útsala Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.