Morgunblaðið - 29.07.2006, Side 26

Morgunblaðið - 29.07.2006, Side 26
Daglegtlíf júlí Í ÍBÚÐUM fyrir aldraða að Hæðargarði í Reykjavík láta íbúar ekki sitt eftir liggja til að komast í sum- arferðalagið. Undanfarin fimmtán ár hafa þeir safnað dósum og flöskum og lagt peninginn sem fæst fyrir þessar einnota umbúðir í ferðasjóð. „Það eru þrjú hús í Hæðargarði sem taka þátt í þessu. Kristinn Óskarsson, einn íbúinn, átti forgönguna að flöskusöfnuninni og hefur séð um hana síðan,“ segir Jóhanna Þórhallsdóttir sem sér um fjármál ferðasjóðsins. „Það safna allir íbú- ar flöskum, Kristinn fer með þær í endurvinnsluna og allur peningurinn sem fæst fyrir þær fer í sameig- inlegan sjóð. Við höfum svo notað peninginn til að fara í eina til tvær skemmtiferðir á ári og halda grillveislu einu sinni yfir sumartímann fyrir íbúa þessara þriggja húsa. Þessi flöskupeningur hefur nægt að stórum hluta en reyndar höfum við líka fengið smá styrk frá fé- lagsþjónustunni á móti auk þess sem smá áheit og gjafir hafa tínst til. En peningurinn fer í að leigja rútu og kaupa kaffi fyrir allan hópinn á einum stað á ferða- laginu.“ Fóru um uppsveitir Árnessýslu Íbúarnir fóru nýlega í sumarferðina í ár og segir Jó- hanna hana hafa verið einstaklega vel heppnaða. „Við fórum austur fyrir fjall, upp Skeið og hreppa, stopp- uðum í kaffihlaðborð á Geysi, skoðuðum nýju kirkjuna í Úthlíð, ókum um Laugarvatn, Lyngdalsheiði og Þing- velli. Það var 41 íbúi sem fór í ferðina núna en yfirleitt hafa þetta verið á milli 40 og 50 manns sem hafa farið, það eru alltaf einhverjir það lélegir að þeir komast ekki með,“ segir Jóhanna og bætir við að þau fari að- eins í dagsferðir frá höfuðborginni því flestir þoli ekki við í rútu lengur en það. Lengsta ferðin sem íbúarnir hafa farið er til Stykkishólms en annars fara þau yf- irleitt hinar ýmsu leiðir um Suðurland, Borgarfjörð og Suðurnes. „Það er mjög mikil ánægja með þessar ferð- ir. Í þær getur fólk farið þótt það sé orðið heldur lé- legt, því þarna þekkjast allir og hjálpa hver öðrum. Þetta er svolítið annað en að fara í almennar ferðir þar sem eru ekki einhverjir kunnugir til hjálpar.“ Gott samfélag í Hæðargarði Jóhanna segir afskaplega góða stemningu myndast í ferðunum. „Við syngjum saman í rútunni, það eru sagðar skemmtisögur og svo hefur fólk mjög gaman af því að tala saman. Þetta eru kannski einu hópferðirnar sem margir fara í yfir sumarið svo það fylgir þessu mikið fjör og spenna. Ferðirnar hafa gefist mjög vel og ánægjan er almenn.“ Jóhanna hefur sjálf farið í allar ferðirnar og segir þær yfirleitt hafa verið skemmtilegar. „Samfélagið hér í Hæðargarði er afskaplega gott og ýmislegt svona skapar samstöðu. Það er alltaf hreyfing á íbúðum og fólki sem kemur nýtt fellur þetta vel, það verður meiri samkennd hjá fólkinu við að geta farið svona saman. Félagsstarfið hér er annars talsvert mikið og góð þátt- taka í því.“ Jóhanna segist ekki vita til þess að aðrir séu að standa í þessu eins og þau. „Það þykir kannski skrítið að maður sé að tína upp flöskur sem liggja einhvers staðar en við látum það ekkert á okkur fá, við komumst í skemmtiferð fyrir ágóðann af flöskunum og svo hjálp- ar þetta til við að halda umhverfinu hreinu.“  FERÐALÖG | Rosknir íbúar í Hæðargarði eru snjallir Fara í skemmtiferðir fyrir dósapening Morgunblaðið/ Jim Smart Hluti af íbúunum að Hæðargörðum að leggja af stað í skemmtiferðina í ár. Lengst til vinstri er Jóhanna Þórhallsdóttir og við hlið hennar stendur Kristinn Óskarsson sem er frumkvöðullinn að söfnuninni. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÞAÐ var heldur óskemmtilegur gestur sem Alda Steinarsdóttir fékk í maísbaunadósinni sem hún keypti um daginn. Hún var að búa sér til eggjaköku í kvöldmatinn og þar sem hún mokaði maísbaununum úr dósinni á pönnuna mætti hún allt í einu tveimur svörtum og sorg- mæddum augum. Þar var á ferðinni lítill og látinn grasmaðkur sem hafði fengið að fljóta með maísnum um heimsins höf. „Ég var að gera mér eggjaköku, opnaði dósina og tíndi hægt og rólega úr henni með skeið og í miðri dósinni sé ég maðkinn. Þetta var rúmlega sentimetra langur grasmaðkur, steindauður og mér sýndist það á honum að hann hafi ver- ið soðinn með baununum því hann var svo gul- ur og aumingjalegur. Ef ég hefði hellt beint úr dósinni á pönnuna efast ég um að ég hefði orð- ið vör við hann,“ segir Alda. Maísbaunadósin var frá Euroshopper en það er innflutt lág- vörumerki sem selt er í Bónus. Aðspurð hvernig hún brást við maðkinum svarar Alda að hún hafi ekki eldað eggjakök- una með maís. „Ég fór strax og kvartaði við Bónus, þeir brugðust mjög vel við, síðan hafði ég samband við fyrirtækið sem flytur Euros- hopper-vörurnar til Íslands og kvartaði síðan til fyrirtækisins úti sem framleiðir þessar vörur. Þetta hefur aldrei komið fyrir áður að þeirra sögn. Það vilja allir bæta fyrir þetta og eru búnir að vera mjög almennilegir,“ segir Alda. Morgunblaðið/ÞÖK Alma rakst á orm þegar hún opnaði dós með gulum baunum frá Euro- shopper.  NEYTENDUR Maðkur í maísnum AÐ eignast barn breytir lífi flestra og því er mikilvægt að finna tíma til að rækta sam- bandið við makann, það má nefni- lega ekki vanrækja hann þrátt fyrir nýjan fjölskyldumeðlim. Á vefnum www.bbc.co.uk má finna sjö góð ráð um hvernig má bæta sambandið. 1. Eyðið tíma saman ein. Finnið stuttan tíma á hverjum degi til að deila hugsunum og tilfinn- ingum um litlu hlutina jafnt og þá stóru. Ákveðið að gera eitt- hvað saman í hverri viku sem þið bæði hafið gaman af. Að fá pössun fyrir barnið eða elda sérstaka máltíð heima getur látið gamanið og rómantíkina blómstra áfram. 2. Gerið eitthvað sameiginlegt með fjölskyldunni. Þið gætuð notið þess að skipuleggja eitt- hvað saman eins og að fara út eða í frí. Deilið hugmyndum um afmælisgjafir eða skipu- leggið fjölskylduhátíð. 3. Deilið vonum og draumum. Það getur kveikt líf í hug- myndum og gert ykkur nánari. 4. Biddu um það sem þig vantar. Þið getið ekki lesið huga hvors annars, verið því skýr varðandi hvað þið viljið hvort frá öðru. 5. Talið um tilfinningarnar. Það geta komið stundir þegar öðru hvoru ykkar líður eins og það sé skilið út undan í fjölskyld- unni, kannski þarf sá aðili að vinna mikið og missir t.d. af því þegar barnið gengur og talar eða kemst ekki á skólaleikritið. Talið um þetta, deilið því hvernig ykkur líður og vinnið í því að taka meiri þátt. 6. Talið um fjármálin. Gerið raunhæfa fjárhagsáætlun sam- an. 7. Endilega munið að hlægja saman. Að deila brandara eða fyndnu atviki getur hresst alla við.  FJÖLSKYLDAN Ekki vanrækja makann Reuters Tom Cruise og Katie Holmes þurfa að huga vel að sam- bandinu nú þegar þau eiga orðið barn saman. SELASETUR Íslands var opnað þann 25. júní sl. og þann sama dag var í húsnæði sela- setursins opnuð upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Selasetrið er staðsett á nýuppgerðri fyrstu hæð hins sögufræga verslunarhúss Sigurðar Pálmasonar kaupmanns, sem byggt var árið 1926, en húsið telst vera eitt fallegasta stein- hús landsins frá þeim tíma. Í Selasetrinu geta gestir fræðst um seli við Ísland í máli og myndum, nýtingu þeirra og ýmsa þjóðtrú þeim tengda. Í afgreiðslu Selasetursins er einnig til sölu handverk tengt hafinu og fjörunni, ásamt ýmsum minjagripum. Upplýsingamiðstöð í Selasetrinu  HVAMMSTANGI Selasetrið er staðsett á nýuppgerðri fyrstu hæð hins sögufræga versl- unarhúss Sigurðar Pálmasonar kaupmanns. Upplýsingamiðstöðin í Selasetrinu er opin daglega á opnunartíma Selaseturs, frá kl. 9–18 yfir sumartímann. Þar geta ferðamenn fengið allar upplýs- ingar um þjónustu í héraðinu. Síminn er 451 2345 eða 898 5233. Eftir sem áður er einnig starfrækt upplýsingamiðstöð í Stað- arskála.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.