Morgunblaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.lyfja.is
- Lifið heil
FLJÓTVIRKT VERKJALYF VIÐ M.A. TÍÐAVERKJUM.
INNIHELDUR ENGIN ÁVANABINDANDI EFNI.
VoltarenDolo
FÆST ÁN LYFSEÐILS
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
L†
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
LY
F
33
20
4
06
/2
00
6
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn
Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði
Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd
Selfossi - Laugarási
Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem
höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum skal
leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu
að ráðfæra sig við lækni áður en lyfið er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur bólgu-
eyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði
við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfja- fræðings um milliverkanir við önnur
lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
EINUNGIS eitt tilboð barst í bor-
anir könnunar- og vatnsleitarhola á
Norðausturlandi fyrir Landsvirkjun
og Þeistareyki ehf. Tilboðið hljóðaði
upp á rúmar 86 milljónir en kostn-
aðaráætlun gerði ráð fyrir að verkið
myndi einungis kosta rúmar 35
milljónir.
Bjarni Pálsson, verkfræðingur
hjá Landsvirkjun, segir að það hafi
komið nokkuð á óvart að einungis
eitt tilboð hafi borist og að það hafi
verið svo miklu hærra en kostn-
aðaráætlun hljóðaði upp á. Það var
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
ehf. sem átti tilboðið en Bjarni segir
að nokkur fyrirtæki hér á landi
gætu tekið verkefni sem þetta að
sér. Tilboðið var opnað á þriðjudag-
inn og segir Bjarni að Landsvirkjun
sé ekki bundin af því en nú verði
skoðað hvort einhverja þætti í
kostnaðaráætluninni eða tilboðinu
megi endurskoða.
Aðspurður hvort lítill áhugi bor-
unarfyrirtækja útskýri hvers vegna
ekki bárust fleiri tilboð segir Bjarni
að svo þurfi ekki að vera. „Ég hef
heyrt að sum fyrirtæki hafi misst af
auglýsingunni og aðrir ekki getað
tekið verkefnið að sér vegna þröngs
tímaramma. Ég veit líka að það er
mikið um að vera á markaðnum.“
Markmið borananna er að rann-
saka grunnvatnsstrauma á svæði
sem nær frá Námaskarði og norður
fyrir Þeistareyki með ítarlegri hætti
en gert hefur verið áður, en til stóð
að hefja boranir í haust. Lands-
virkjun hefur staðið að borun
djúpra rannsóknarholna í Bjarna-
flagi og Kröflu. Einnig ætlar fyr-
irtækið Þeistareykir ehf. að hefja
djúpboranir við Þeistareyki í næsta
mánuði.
Tilgangur djúpborananna er að
rannsaka virkjunarkosti jarðvarma
á svæðinu en Bjarni segir að þær
rannsóknarholur sem nú hafi verið
boðnar út séu annars eðlis. Þær séu
mun umfangsminni og lítið um-
hverfisrask fylgi þeim. Boranirnar
geti gagnast ef farið verði út í virkj-
un jarðvarma á svæðinu en niður-
stöðurnar hafi einnig fræðilegt gildi.
Einungis eitt tilboð barst
í rannsóknaboranir
Morgunblaðið/Rax
Frá Námaskarði í Mývatnssveit.
NOKKUR fjöldi Íslendinga flýgur
á milli landa til að komast til og
frá vinnu og eru dæmi um að fólk
fljúgi einu sinni í viku að með-
altali. Dæmi eru um að sjómenn
landi í Kanada og fljúgi heim á
milli túra, lögfræðingar búsettir í
Svíþjóð fljúgi heim til Íslands til
að vinna, læknar fljúgi til Norður-
landanna eða Bandaríkjanna til að
sinna störfum þar og öfugt.
Morgunblaðið ræddi við tvo Ís-
lendinga sem búa í einu landi og
starfa í öðru og láta þeir vel af
þessum aðstæðum þrátt fyrir álag
á köflum.
Munar litlu í verði
Bjarki Helgason, stýrimaður á
Málmey SK 1, hefur undanfarin ár
verið búsettur í Svíþjóð ásamt
konu sinni en starfað sem sjómað-
ur á íslenskum skipum. Áður var
hann á skipi sem landaði í Kanada
en Málmeyin landar á Íslandi.
Hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þetta fyrirkomulag
hefði komið til þegar þau hjónin
ákváðu að fara til Svíðþjóðar í
nám: „Ég er búinn að vera sjó-
maður og stýrimaður um alllanga
hríð. Konan ákvað svo að fara í
nám haustið 2002 þannig að við
tókum okkur upp og fluttum út,“
segir Bjarki. Hann flutti út með
fimm manna fjölskyldu og var í
námi sjálfur fyrsta árið en hefur
verið til sjós frá árinu 2003. Hann
segist ekki þurfa að ferðast oft á
ári til að komast heim.
„Ég fer svona fimm til sex túra
á ári, þannig að það eru jafn-
margar ferðir til Svíþjóðar.“ Hann
sagði að þetta væri ekkert erfiðara
en að fara beint í land og bætti því
við, að hann hefði áður verið á
skipi sem landaði í Kanada og því
nokkru styttra að fara heim núna
og hann væri því öllu vanur.
Bjarki sagði að nokkuð væri um
það að íslenskir sjómenn byggju
erlendis en væru á skipum sem
lönduðu á Íslandi: „Við erum
nokkrir sem búum á Norðurlönd-
unum. Margir sem fylgja maka í
nám og svo ílengist fólk. Það
skiptir litlu máli, þegar þú ert 30–
40 daga úti í einu, hvar þú býrð,
hvort sem þú þarft að koma þér til
Reykjavíkur til Kaupmannahafnar
eða norður í land,“ sagði Bjarki og
bætti því við að það væri ekki mik-
ill munur á verði þegar fljúga ætti
til Kaupmannahafnar eða til Húsa-
víkur: „Það þarf að fljúga til Ak-
ureyrar frá Reykjavík og síðan
taka rútu til Húsavíkur, það kost-
ar oft minna að fljúga með Iceland
Express til Kaupmannahafnar.“
Aðspurður hvort þau hjónin ætl-
uðu að halda þessu fyrirkomulagi
áfram sagði Bjarki að ekkert liti
út fyrir að þetta væri að breytast.
Um það hvort hugurinn leitaði
heim sagði hann: „Já og nei, það
eru bæði kostir og gallar og síðan
þarf maður bara að gera þetta upp
við sig.“ Spurður um lífið í Svíþjóð
sagði hann það gott: „Það er bara
gott, hlýtt. Mikill munur á veðr-
áttu og verðlagi.“
Flýgur fram og til
baka í hverri viku
Sólveig Hafsteinsdóttir barna-
læknir hefur undanfarin ár starfað
sem barnalæknir í Lundi í Svíþjóð
en kemur ætíð heim til fjölskyld-
unnar um helgar. Hún segist
starfa í Svíþjóð vegna þess að hún
fái ekki slíka sérhæfingu hér á
landi: „Ég er að sérhæfa mig í
krabbameinslækningum barna, en
ég er búin að vera erlendis nú í
fimm og hálft ár,“ segir Sólveig en
hún flutti út í byrjun ársins 2001
og þá hafi fjölskyldan búið á Ís-
landi. Hún hafi þá verið í mánuð í
burtu og komið heim í tvær vikur
og synir hennar komið í heimsókn
um sumarið. Fjölskyldan hafi svo
flutt út í rúmt ár frá 2002 til 2003
en þá hafi fjölskyldan komið heim
og hún starfað sem sérfræðingur á
Ísland til ársins 2004 þegar hún
flutti aftur út og hefur verið þar
síðan.
Hún segist koma heim allar
helgar: „Ég flýg út á sunnudögum
og kem heim á fimmtudags-
kvöldum,“ og segir hún þetta vera
töluvert ferðalag: „Ég flýg til
Kaupmannahafnar, fer í lest til
Malmö og þaðan með lest til
Lundar,“ og segist hún vera komin
heim til sín þar um hálfellefu á
sunnudagskvöldi. Þrátt fyrir þetta
ferðalag segir hún þetta vera ein-
falt líf en þreytandi: „Maður bara
skiptir um gír og sættir sig við
þetta. Ég geri þetta fyrir strákana
heima, ég á einn 10 ára auk þess
sem ég á annan sem er í mennta-
skóla en sá elsti er í háskólanámi í
Kaupmannahöfn,“ en eiginmaður
hennar býr hér ásamt tveimur
yngstu sonum þeirra.
Aðspurð hvaða áhrif þetta hafi á
syni hennar segir hún þá ekki
þekkja neitt annað: „Synir mínir
þekkja ekki neitt annað. Ég vann
mikið þegar ég bjó heima. Pabbi
þeirra sinnir þeim að mestu en
þegar ég er heima þá er ég heima.
Ég las annars staðar en ekki
heima og hef haldið því.“
Sólveig segist þekkja til fleiri
Íslendinga sem búa við sömu að-
stæður en þeir fljúgi ekki jafn títt
á milli og hún gerir. Einnig sé
mikið um að fólk sem fylgi útrás
íslenskra fyrirtækja ferðist á milli
auk þess sem íslenskir lögfræð-
ingar starfi á Íslandi en búi í Sví-
þjóð og eigi sænskan maka og seg-
ist hún hafa tekið eftir því að
þessu fólki hafi fjölgað mikið á síð-
ustu þremur árum.
Sólveig segist myndu vilja starfa
hér á landi ef það stæði til boða:
„Já ég kem heim seint í haust og
þá er ég búin að vera sex ár í mínu
sérnámi og þá er ég að vona að
kraftar mínir nýtist hér,“ sagði
Sólveig og jafnframt að hún myndi
ekki vilja halda þessu fyr-
irkomulagi áfram til frambúðar og
hún hlakki mikið til að geta komið
og búið með fjölskyldu sinni.
Nokkur fjöldi Íslendinga býr í öðru landi en fólkið starfar í og virðist þessi hópur fara stækkandi
Flýgur heim
frá Svíþjóð
einu sinni í
viku hverri
Morgunblaðið/Eggert
Sólveig Hafsteinsdóttir er í Svíþjóð á virkum dögum en á Íslandi með fjölskyldunni um helgar.
Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson
Tveir skipverjar á Málmey SK 1 frá Sauðárkróki búa erlendis.
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is