Morgunblaðið - 29.07.2006, Page 6
6 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VERÐ á bæði vöru og þjónustu er
hæst á Íslandi á öllu Evrópska
efnahagssvæðinu (EES) og miklum
mun hærra en að meðaltali í lönd-
um Evrópusambandsins (ESB).
Þannig er verð á þjónustu hér á
landi 58% hærra en að meðaltali í
ríkjum ESB og verð neysluvara á
Íslandi er 52% hærra. Verð á bæði
neysluvörum og þjónustu er um-
talsvert hærra í EFTA-löndunum
þremur, Íslandi, Noregi og Sviss en
í ríkjum ESB, eða 52% hærra á
þjónustu og 28% hærra á neyslu-
vörum.
Þetta kemur fram í útreikningum
Eurostat, hagstofu Evrópusam-
bandsins þar sem skoðað er verðlag
á fimm vöru- og þjónustuflokkum
sem að meðaltali standa fyrir um
23% af útgjöldum evrópskra fjöl-
skyldna. Í öllum flokkunum fimm er
verðlagið á Íslandi hærra en með-
altalið í ESB eða allt frá að vera 8%
og upp í að vera 91% hærra.
Þar er einnig að finna útreikn-
inga á þjóðartekjum á mann leið-
réttum fyrir verðlagi en þar er Ís-
land í fimmta sæti en efstu sætin
skipa Lúxemborg, Noregur, Írland
og Sviss.
Fram kemur í skýrslunni að yf-
irleitt sé verðlag hátt, einkum á
þjónustu, í ríku löndunum, þ.e.
löndum með mikla verga lands-
framleiðslu á mann leiðrétta fyrir
verðlagi.
Þegar hinar ýmsu tegundir þjón-
ustu eru skoðaðar nánar kemur í
ljós að Ísland sker sig algerlega úr í
verðlagi á þjónustu hótela og veit-
ingahúsa en það er 91% hærra en
að meðaltali í ríkjum ESB og verð-
lagið er raunar hvergi í námunda
við það sem hér gerist og er sér-
staklega minnst á þá staðreynd í
skýrslunni, sem annars er stuttorð.
Næsthæst er verðið í Noregi, eða
48% yfir meðaltalinu í ESB.
Orkan 8% dýrari
Verð á samgönguþjónustu er
einnig hæst á Íslandi eða 76% yfir
meðaltalinu í ríkjum ESB. Fjar-
skiptaþjónusta er 15% dýrari á Ís-
landi en að meðaltali í löndum ESB
og menningarþjónusta og afþreying
er 47% dýrari, samkvæmt útreikn-
ingum Eurostat. Undir þann flokk
falla leikhús, kvikmyndahús,
íþróttaviðburðir og fl.
Athygli vekur að á Íslandi, sem
státar sig af miklum orkuauðlind-
um, er verð á orku engu að síður
8% hærra en í ríkjum ESB.
Hótel- og veitinga-
þjónusta sér á parti
Verð á þjónustu 58% hærra hér en að meðaltali innan ESB
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
!"
#
#
$%&
'
' ()
'*+,"
-
."*
./
0/1
0/1
0&)
01 23/4
56
7138
9%
0 ::
' ; 0
3 &
- :"
<2=
!/:"
1 (*
#
>"
01
JÓHANNES Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir um óá-
sættanlegan mun á verðlagi að
ræða, jafnvel þó að inn í meðaltalið
komi verðlag á láglaunasvæðum.
Hann segir að mikið hafi verið rætt
um hátt verð á landbúnaðarvörum
hérlendis, sem sé vissulega rétt, en
niðurstöðurnar sýni svart á hvítu að
það sé margt fleira sem þurfi að
laga hérlendis. „Ég hlýt að velta fyr-
ir mér hvers vegna í ósköpunum
orkan, sem er framleidd á ódýrasta
hugsanlega máta hérlendis, er dýr-
ari á Íslandi en að meðaltali í ESB-
löndunum. Ég hlýt að heimta svör
við því. Það gengur bara ekki upp í
mínum huga.“
Jóhannes segir dapurlegt að verð-
lag á Íslandi sé alltaf hæst því það
endurspegli þann raunveruleika
sem íslenskir neytendur búi við.
Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir það slæmt fyrir
landkynningu okkar að hér mælist
verðlag iðulega með því hæsta í
þeim löndum sem samanburður taki
til.
„Veitingahúsin hafa verið að
kalla eftir lægra matarverði alveg
eins og allur almenningur. Hátt
matarverð og áfengisskattur, sem
er sá hæsti í heimi, koma auðvitað
fram í háu verði á veitingahúsum,“
segir Erna.
Óásættanlegur munur
FJÓRIR hundaþjálfarar, ásamt hundum, luku nám-
skeiði í fíkniefnaleit í gær. Námskeiðið hefur staðið yfir
í tæpan mánuð og er á vegum embættis Ríkislög-
reglustjóra og Lögregluskóla ríkisins. Guðmundur
Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra-
embættinu, segir námskeiðið bæði fyrir hunda og þjálf-
ara í lögreglunni. Hann segir að nú sé svo komið að lög-
regla og tollgæsla á Íslandi hafi mjög góða
fíkniefnaleitarhunda. Þjálfunarnámskeiðin hafa verið
gerð í samstarfi við norsk tollgæsluyfirvöld en þau
hafa sent hingað hundaþjálfara en einnig hafa íslenskir
þjálfarar fengið að sitja námskeið í Noregi.
Morgunblaðið/Júlíus
Kennararnir Steinar Gunnarsson (t.v.) og Rolf von Krogh frá norsku lögreglunni(t.h.) ásamt nemendum.
Luku námskeiði í fíkniefnaleit
AÐGERÐIRNAR vöktu athygli,
við höfum fengið ágæt viðbrögð
og þá er markmiðinu náð,“ sagði
Borgar Þór Einarsson, formaður
SUS, í gærkvöldi. Talsvert var
fjallað í gær um það uppátæki
ungra sjálfstæðismanna að meina
almenningi aðgang að álagning-
arskrám í Reykjavík. „Fólk veltir
þessu kannski fyrir sér og hvaða
upplýsingar við erum að passa;
það eru upplýsingar um hvað þú
ert með í laun,“ sagði Borgar
jafnframt. „Við skorum á fjár-
málaráðherra og Alþingi að
breyta þessu í hvelli. Það er
mjög einföld lagabreyting og við
munum ganga á þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins með að breyta
þessu.“
Félagar í SUS, um sjö eða átta
manns, sátu í afgreiðslu Skatt-
stjórans í Reykjavík og héldu
sem fastast um möppur með
álagningarskrám sem þar lágu
frammi. Borgar sagði í viðtali við
mbl.is í gær að aðgerðirnar mið-
uðu að því að vernda persónu-
upplýsingar sem yfirvöld heimti
af almenningi, vinni síðan úr og
leggi á glámbekk. „Þetta eru
persónuupplýsingar sem snerta
einkahagi einstaklinganna í land-
inu. Þetta er ekki skattaeftirlit
heldur njósnir um samborgar-
ana.“
Ekki var gripið til mótaðgerða
af hálfu Skattstjórans í Reykja-
vík.
Til minni háttar átaka kom á
milli manns sem vildi komast í
skrárnar og liðsmanna SUS. Eft-
ir að maðurinn hafði togast á við
unga fólkið um möppur með
álagningarskránum kvartaði
hann við starfsfólk Skattstofunn-
ar. Honum var þá hleypt inn fyr-
ir afgreiðsluborð þar sem hann
mun hafa fengið að skoða
skrárnar.
„Munum ganga á
þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins“
Morgunblaðið/Golli
Til lítils háttar átaka kom á milli félaga SUS og þessa manns sem vildi
nýta sér rétt sinn til að skoða álagningarskrár hjá skattstjóranum.
OSTA- og smjörsalan hef-
ur krafist þess að Mjólka
stöðvi tafarlaust sölu á
fetaosti í glerkrukkum þar
sem osturinn sé í umbúð-
um sem líki nákvæmlega
eftir umbúðum sem Osta-
og smjörsalan notar undir
sinn fetaost. Áskorun þess
efnis var send Mjólku í
gær en í fréttatilkynningu
frá Osta- og smjörsölunni
segir að tilgangur Mjólku virðist vera
sá að rugla neytendur í ríminu og
hagnast á vel þekktum umbúðum
Osta- og smjörsölunnar. Þar kemur
einnig fram að lögbanns verði krafist
á sölu Mjólku á fetaosti í umræddum
umbúðum verði fyrirtækið ekki við
kröfu Osta- og smjörsölunnar.
Magnús Ólafsson, forstjóri Osta-
Osta- og smjörsalan sakar Mjólku um eftiröpun umbúða
Segja neytendur hafa ruglast
og smjörsölunnar, segir að um sé að
ræða augljósa eftiröpun á umbúðun-
um en Osta- og smjörsalan hafi sann-
reynt að neytendur hafi nú þegar
ruglast á umbúðunum.
Vísa kröfunni á bug
Ólafur Magnús Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Mjólku, segir erindi
Osta- og smjörsölunnar vera
hlægilegt og fyrirtækið
hyggist ekki verða við þeirri
kröfu að taka fetaost í gler-
krukkum af markaði. Osta-
og smjörsalan hafi ekki
skráð sitt vörumerki líkt og
Mjólka en bæði nafn fyrir-
tækisins og vörumerkið
komi skýrt fram á umbúð-
unum.
„Það er sjálfsagt að á ein-
hvern hátt tóni þetta saman en það er
á engan hátt gert til þess að villa um
fyrir neytendum,“ segir Ólafur og
bendir á að fyrirtækin skipti við sömu
birgja vegna umbúðanna.
„Þetta er enn ein tilraun Osta- og
smjörsölunnar til þess að bregða fyrir
okkur fæti en það hafa þeir áður gert
með undirboðum á markaðnum.“
Hinar umdeildu umbúðir ostsins.