Morgunblaðið - 29.07.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 9
FRÉTTIR
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Laugavegi 40, s. 561 1690
Útsala
20-80%
afsláttur
Laugavegi 40 - Sími 561 1690
RALPH LAUREN
Útsala
Nú
50%
afsláttur
af dömu- og
herrapeysum
og gallabuxum
Útsala - Gott verð
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Laugavegi 80
sími 561 1330
VIÐ RÝMUM TIL
í SIGURBOGANUM!
Kíktu við
og gerðu
góð kaup
50-75%
AFSLÁTTUR AF
• PEYSUM
• BUXUM
• BLÚSSUM
• WOLFORD SAMFELLUM
• SOKKABUXUM
• O.FL. O.FL.
Aukaafsláttur
Haust 2006
ný sending
Laugavegi 51, sími 552 2201
Ps. Útsalan enn í fullum
gangi
INGIBJÖRG Þórðardóttir, stríðs-
fréttamaður hjá breska ríkisútvarp-
inu, BBC, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að grunur léki á
að Ísraelsher hefði gert sprengju-
árás á bílalest sem var á leið með
hjálpargögn inn til landsins í gær.
„Í þessari bílalest voru sjálfboða-
liðar sem voru á leið frá borginni Tý-
rus í Suður-Líbanon til að sækja
flóttamenn sem voru staddir innar í
landinu,“ sagði Ingibjörg. „Þeir voru
komnir hálfa leið að áfangastað sín-
um þegar þeir urðu að snúa við þeg-
ar þeir urðu fyrir sprengjuárás.“
„Með í för voru einnig þýskur
kvikmyndatökumaður og bílstjóri
sem urðu fyrir árásinni. Tökumað-
urinn var fluttur á sjúkrahús á veg-
um Sameinuðu þjóðanna en hann var
sem betur fer ekki alvarlega slasað-
ur. Þótt það sé óstaðfest grunuðu
sjónarvottar Ísraelsher um að hafa
staðið fyrir árásinni.“
Ísraelar loka flutningaleiðum
Ingibjörg sagði talsmann alþjóð-
legu hjálparsamtakanna Læknar án
landamæra (MSF) hafa fullyrt að
Ísraelar leyfðu ekki neinum hjálpar-
samtökum að keyra með hjálpar-
gögn inn til landsins.
„Ég ræddi við Christopher Sto-
kes, talsmann MSF, þegar hann var
nýkominn frá Týrus,“ sagði Ingi-
björg. „Hann sagði ástandið á svæð-
inu alveg hræðilegt. Hann sagði mér
líka að flutningaleiðir þær sem Ísr-
aelar höfðu lofað að hafa opnar til að
hægt væri að flytja hjálpargögn
væru það ekki.
Þess vegna taldi hann engin tök á
því að dreifa hjálpargögnum inn til
landsins. Jafnframt tók hann dæmi
af ófrískri konu sem þurfti á keis-
araskurði að halda en gat enga hjálp
fengið vegna ástandsins.“
Ræddi við þingmann Hizbollah
Spurð um nýjustu yfirlýsingar
liðsmanna Hizbollah-hreyfingarinn-
ar, sem Ísraelsher hefur sett sér það
markmið að uppræta, sagðist Ingi-
björg hafa fyrr um daginn rætt við
einn þingmann Hizbollah.
„Þetta var Ali Mokdad þingmað-
ur,“ sagði Ingibjörg. „Hann sagði
flokksbræður sína setja tvö skilyrði
fyrir hugsanlegu vopnahléi. Í fyrsta
lagi að báðir aðilar lýstu yfir algeru
vopnahléi. Í öðru lagi að fjórum
föngum úr hópi Hizbollah yrði sleppt
úr ísraelskum fangelsum. Þegar við
spurðum hann um hvað ætti að gera
við ísraelsku hermennina í haldi Hiz-
bollah sagðist hann tilheyra pólitísk-
um armi hreyfingarinnar og að málið
væri því ekki á hans snærum. Þá
spurðum við hvort hann væri fylgj-
andi því að fá fjölþjóðlegt herlið til
landsins. Hann sagðist tilbúinn að
ræða það en ekki fyrr en vopnahléi
hefði verið komið á.“
„Ástandið alveg hræðilegt“
Hjálpargögn ber-
ast ekki til sjúk-
linga í S-Líbanon
AP
Líbanskt flóttafólk leitar skjóls í kjallara kirkju í þorpi í suðurhluta Líbanons vegna árása Ísraela.
HJÁLPARSTARF kirkjunnar hef-
ur tekið við tveggja milljóna króna
framlagi stjórnvalda til neyð-
araðstoðar í Líbanon. Því verður
veitt í gegnum ACT-Alþjóðaneyð-
arhjálp kirkna til að aðstoða 6.600
fjölskyldur eða um 40 þúsund manns
á flótta í Suður-Líbanon, Líb-
anonfjall, Beirút og Beqaa. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu.
Fram kemur að aðstoðin felist m.a. í
því að útdeila vatni, hreinlæt-
isvörum, sápu, matarpökkum,
barnavörum á borð við bleium og
þurrmjólk, skólaefni, dýnum og mat-
aráhöldum auk nauðsynlegra lyfja.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hjálparstarfi kirkjunnar er það mik-
ið áhyggjuefni að mannúðarsamtök
hafi ekki getað komið neyðaraðstoð-
inni til skila í suðurhluta landsins.
Þar hafi fólk verið án aðstoðar og
ekki útséð um afdrif þess meðan
árásir haldi áfram. ACT starfar náið
með líbönskum samtökum og ætla
að verja 360 milljónum króna á
næstu þremur mánuðum til neyð-
araðstoðar á fyrrnefndum svæðum.
Ástandið versnar dag frá degi
Alþjóða Rauði krossinn hefur lagt
fram nýja neyðarbeiðni sem nemur
rúmlega 82 milljónum Bandaríkja-
dala eða sem svarar um sex millj-
örðum íslenskra króna til að bregð-
ast við ástandinu í Líbanon. Þetta er
sú upphæð sem þarf til að halda úti
hjálparstarfi Rauða krossins í Líb-
anon til áramóta. Þetta kemur fram í
tilkynningu sem Rauði kross Íslands
sendi frá sér í gær, en þar kemur
jafnframt fram að RKÍ hefur ákveð-
ið að styrkja neyðarbeiðni Alþjóða
Rauða krossins fyrst um sinn um
tvær milljónir króna. Þá hefur
Rauða krossi Íslands borist framlag
að sömu upphæð frá ríkisstjórn Ís-
lands til hjálparstarfsins í Líbanon.
„Ástandið í Líbanon versnar með
degi hverjum í harðnandi átökum
milli Ísraels og Hizbollah-samtak-
anna. Fjöldi óbreyttra borgara hef-
ur látist og enn fleiri eru særðir.
Tugþúsundir manna hrekjast frá
heimilum sínum og er nú um hálf
milljón manns á vergangi. Fjölmarg-
ir óbreyttir borgarar hafa króast af
inni í þorpum og bæjum þar sem
samgöngur hafa víða lamast vegna
árása. Matvæli og lyf eru af mjög
skornum skammti og víða er ekkert
hreint vatn að fá sökum rafmagns-
leysis. Rauði krossinn er því í kapp-
hlaupi við tímann við að veita þessu
fólki lífsnauðsynlega aðstoð,“ segir í
tilkynningunni.
Styrkja neyðarbeiðni í Líbanon
um samtals sex milljónir
Fréttir
í tölvupósti
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Allt á hálfvirði
Ennþá gott úrval af
glæsilegum sumarfatnaði