Morgunblaðið - 29.07.2006, Side 24
24 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
7
7
8
AKUREYRI
GRÓÐRARSTÖÐIN í Kjarna á Akureyri hefur verið
lýst gjaldþrota. Mikil áföll hafa dunið yfir starfsemina
á undanförnum misserum. Á árunum 2003–2004 eyði-
lagðist um ein milljón plantna eða sem svarar til árs-
framleiðslu stöðvarinnar. Allt frá þeim tíma hafa ver-
ið miklir rekstrarörðugleikar hjá gróðrarstöðinni.
Í tilkynningu segir að reynt hafi verið til þrautar að
koma rekstrinum á réttan kjöl, en ekki tekist. Því hafi
verið óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Stærstu hluthaf-
ar Gróðrarstöðvarinnar í Kjarna eru Skógræktar-
félag Eyfirðinga og Upphaf ehf. Stærstu kröfuhafar
eru Landsbankinn og KB-banki.
Hjá félaginu starfa nú fimm fastráðnir starfsmenn
auk sumarfólks.
Kjarni gjaldþrota
Akureyrarvaka | Nú styttist í hina árlegu
hátíð Akureyringa, Akureyrarvöku, en
hún verður haldin eftir tæpan mánuð,
laugardaginn 26. ágúst. Á Akureyr-
arvöku er haldið upp á afmæli bæjarins
og einnig lýkur á sama tíma tíu vikna há-
tíð Listasumars. Fjöldi viðburða verður í
boði fyrir alla fjölskylduna. Sem dæmi
má nefna að Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands heldur tónleika undir berum himni
og sýningin „Bitið í skjaldarrendur“
verður opnuð í Ketilhúsinu.
Akureyrarvökunefnd hefur nú tekið til
starfa og hvetur þá sem ætla að standa
fyrir viðburðum á vökunni til að tilkynna
um þá og einnig tekur nefndin við hug-
myndum og ábendingum um hugsanleg
atriði á vökunni. Hafa má samband á net-
fangið akureyrarvaka@akureyri.is.
DRÁTTARBÁTUR frá Hafna-
samlagi Norðurlands togaði í
norska skipið Steines, en það tók
niðri á Hörgárgrunni í gærmorg-
un. Engin hætta var á ferðum og
vel gekk að koma skipinu á sigl-
ingu á ný að sögn lögreglu á Ak-
ureyri. Á myndinni kemur skipið í
höfn við Krossanes.
Engin hætta
á ferðum
MIKIL starfsemi hefur verið á Gás-
um, skammt norðan Akureyrar, í
kringum árið 1300. Fornleifarann-
sókn sem staðið hefur yfir í sumar
leiðir það í ljós. Gásir voru miðstöð
fyrir útflutning á brennisteini, sem
var ein dýrasta og jafnframt fágæt-
asta verslunarvaran á miðöldum.
Minjasafnið á Akureyri, Þjóð-
minjasafn Íslands og Fornleifa-
stofnun Íslands hafa staðið fyrir
fornleifarannsóknum á Gása-
kaupstað síðan árið 2001, nú í sumar
hefur síðasta uppgraftarlotan í
þessu verkefni staðið yfir, rannsókn
á svæðinu lýkur 12. ágúst næstkom-
andi. Gásakaupstaður, sem er um 11
kílómetra norðan Akureyrar, þykir
meðal merkustu minja á landinu,
svæðið allt er um 14 þúsund fer-
metrar að stærð og þar eru um 60
búðartóftir. Búið er að opna um
1.100 fermetra af minjasvæðinu.
Orri Vésteinsson og Howell Ro-
berts fornleifafræðingar hafa
stjórnað uppgreftrinum á Gásum en
að sögn Orra hefur nú í sumar eink-
um verið unnið við kirkjurúst sem á
svæðinu er, en einnig á svæði sem
opnað var þegar rannsókn hófst,
sumarið 2001.
Orri kynnti helstu niðurstöður
verkefnisins í gær, en komið hefur í
ljós að mikil starfsemi hefur verið á
staðnum í kringum árið 1300. Á
Gásum fór m.a. fram járn- og brons-
smíði, líklega í tengslum við skipa-
og bátaviðgerðir. Heimildir eru um
viðskipti nafnkunnra höfðingja í
kaupstaðnum og vitað er að Hóla-
biskupar fóru þar um á leið sinni til
útlanda og heim aftur. Búðirnar í
kaupstaðnum eru byggðar til nokk-
urra vikna búsetu í senn og end-
urbyggðar með stuttu millibili.
Merki um mataræði búðverja gefa
til kynna að kaupstaðurinn var
markaður fyrir úrvalskjöt úr hér-
aðinu, en þar hafa einnig fundist
ummerki um útlendan kost, selkjöt
og skinku.
Kirkjan á Gásum var veldistákn
norsku kaupmannanna á staðnum,
hún var um 112 fermetrar að grunn-
aðstöðu fyrir ferðamenn og leggja
stíga um nærliggjandi sögustaði,
sem eru margir í nágrenni Gása. Þá
eru uppi hugmyndir um að end-
urgera hluta af kaupstaðnum, koma
upp lifandi sögumiðlun og loks að
setja upp varanlega sýningu um
verslun og iðnað á miðöldum.
Von á spennandi niðurstöðum
„Ég á von á að niðurstöður þessa
verkefnis verði mjög spennandi,“
segir Orri og getur þess að nú í
sumar sem og á liðnum sumrum
hafi fundist mikið magn beina, spen-
dýra- og fiskibeina. Það hafi vakið
upp spurningar um hvort slátrun og
neysla á kjötvöru á Gásum eigi sér
innlendar eða erlendar rætur. Í
tengslum við beinarannsóknir
fékkst styrkur frá Fornleifasjóði til
samanburðarrannsókna á öskuhól
hins forna höfuðbóls á Möðruvöll-
um. Það er fyrsta skrefið til að víkka
rannsóknina á Gásakaupstað út.
fleti, önnur stærsta kirkja sem
rannsökuð hefur verið með forn-
leifauppgreftri hér á landi. Svæðið
innan kirkjugarðsins var notað til að
sjóða mat og jafnvel til iðnaðar eftir
að kirkjan fauk, enda var nokkurt
skjól af kirkjugarðsveggnum.
Eftir að rannsókn lýkur nú eftir
hálfan mánuð hefst uppgröftur á
Möðruvöllum í Hörgárdal. Þar
verður rannsakaður öskuhaugur frá
miðöldum en tilgangurinn er að
safna efni til samanburðar. Ösku-
haugar innihalda aflagða gripi og
brot úr þeim gefa oft góða mynd af
áhaldaúrvali heimilanna.
Vonast er til að Gásakaupstaður
verði byggður upp eftir að rann-
sóknum lýkur og að hann verði að-
gengilegur fyrir gesti sem geta þá
tileinkað sér sögu hans. Fyrirhugað
er að leggja stíga um minjasvæðið,
setja upp fræðsluskilti um sögu
staðarins, fornleifarannsóknina og
náttúruna og að auki að koma upp
Mikil starfsemi var á Gásum í kringum árið 1300
Staðurinn var miðstöð
útflutnings á brennisteini
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Kirkjan var veldistákn norskra kaupmanna. Dr. Orri Vésteinsson stendur í kirkjutóftinni og fornleifafræðing-
arnir Oddgeir Hansson og Rúnar Leifsson eru við mælingar og skráningu.
FIMMTU og síðustu Sumartónleikar í
Akureyrarkirkju þetta sumarið verða
haldnir á morgun, sunnudaginn 30.
júlí, kl. 17.
Auk þess sem í ár er tuttugasta
starfsár Sumartónleikanna eru þessir
tónleikar hinir eitthundruðustu í tón-
leikaröðinni í Akureyrarkirkju frá
upphafi tónleikahaldsins árið 1987.
Flytjendur verða upphafsmenn tón-
leikanna, þau Margrét Bóasdóttir sópr-
an og Björn Steinar Sólbergsson org-
elleikari, en auk þeirra leikur Nicole
Vala Cariglia á selló. Á efnisskrá eru
verk eftir J.S. Bach og tónverk eftir ís-
lensk tónskáld s.s. Þorkel Sigurbjörns-
son, Jón Hlöðver Áskelsson, Smára
Ólason, Elínu Gunnlaugsdóttur, Hildi-
gunni Rúnarsdóttur og Pál Ísólfsson
og munu þau verk verða útgefin á
geisladiski þegar líða tekur á haustið.
Tónleikarnir standa í klukkustund
án hlés og er aðgangur ókeypis.
Sumartónleikar í
hundraðasta sinn
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
TENGLAR
.....................................................
www.akureyrarkirkja.is/sumartonleikar