Morgunblaðið - 29.07.2006, Side 30
30 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
LEIKFÉLAGIÐ Sýnir frumsýnir
leikritið Mávinn eftir Anton Tsjek-
hoff í dag klukkan 15 úti undir ber-
um himni í Elliðaárdalnum. Leik-
stjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmars-
son en hann leikstýrði einnig upp-
setningu leikfélagsins á Stútunga-
sögu í Heiðmörk fyrir tveimur árum.
Leikfélagið Sýnir var stofnað fyrir
um tíu árum upp úr leiklistarskóla
sem Bandalag íslenskra leikfélaga
starfrækir á hverju sumri í Svarf-
aðardal, viku í senn. Var þá brugðið
á það ráð að stofna leikfélag svo eitt-
hvert framhald yrði á starfinu í skól-
anum. Sýnir er því nokkurs konar
sumarverkefni sem setur aðeins upp
sýningar á sumrin en allir meðlimir
félagsins eru starfandi í öðrum
áhugaleikfélögum á veturna.
„Sýnir er í rauninni samstarfs-
verkefni áhugaleikfélaga landsins,“
segir Anna Bergljót Thorarensen,
framkvæmdastjóri sýningarinnar
sem félagið frumsýnir í dag.
Undir berum himni
Útisýningar félagsins hafa vakið
þónokkra athygli en félagið setti upp
Draum á Jónsmessunótt í Elliðaár-
dal fyrir þremur árum og Stútunga-
sögu í Heiðmörk fyrir tveimur árum
eins og áður var vikið að.
„Þessi hefð er svolítið afleiðing
þess að við sýnum á sumrin,“ segir
Anna.
„Það er sömuleiðis skemmtilegt
að prófa ný form og eitthvað öðruvísi
en það sem við erum að gera yfir
vetrartímann. Þegar við prófuðum
að sýna úti fyrir í fyrsta skipti fyrir
þremur árum þótti okkur það svo
rosalega skemmtilegt að við ákváð-
um að halda þessu áfram. Og nú er-
um við mætt aftur í Elliðaárdalinn
og ætlum að sýna Mávinn þar,“ segir
Anna og bætir við að þau óttist ekki
veðurguðina um of. „Maður verður
bara að hlýða veðurguðunum og
gera það besta úr þessu, hvernig
sem viðrar. Það verður mjög
skemmtileg útilegustemning,“ segir
Anna og bendir fólki á að koma með
teppi, regnhlífar og púða eða ferða-
stól ef fólk getur ekki setið á jörð-
inni.
Draga fram húmorinn
Anna segir hópinn nálgast Mávinn
á svolítið annan hátt en hefð hefur
verið fyrir hingað til.
„Mávurinn var skrifaður sem
gamanleikrit, allavega skrifaði
Tsjekhoff í undirtitli „gamanleikur“.
Aftur á móti hafa flestar uppfærslur
á verkinu verið í dramatískari kant-
inum enda virkar verkið mjög
dramatískt við fyrsta lestur. Við höf-
um hins vegar hugað sérstaklega að
húmornum sem við reynum að draga
fram í sýningunni. Við viljum samt
ekki taka tragedíuna alveg í burt
heldur setjum við fram blöndu af
þessu tvennu þannig að sýningin
verður nokkurs konar kómísk tra-
gedía.“
Leikritið verður sýnt í stóra rjóðr-
inu í hólmanum í Elliðaárdalnum en
farið er göngustíginn frá Rafveitu-
heimilinu, yfir bogabrúna og þar
blasir rjóðrið við. Þar verða þrjár
sýningar á verkinu en frumsýning
er, sem fyrr segir, klukkan 15 í dag.
Önnur sýning verður svo á mánu-
deginum 31. júlí klukkan 20 og
þriðja sýning fimmtudaginn 10.
ágúst klukkan 19. Miðaverð er þús-
und krónur. Þar að auki verður sýn-
ingin sett upp á Fiskideginum mikla
á Dalvík hinn 12. ágúst en þangað
hefur hópurinn komið tvisvar sinn-
um áður með sýningar.
Leikhús |Leikfélagið Sýnir setur upp Mávinn í Elliðaárdalnum
Tsjekhoff undir berum himni
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
„Sýningin er nokkurs konar kómísk tragedía,“ segir Anna Bergljót Thor-
arensen framkvæmdarstjóri sýningunnar á Mávinum eftir Tsjekhoff.
Jæja, þá er búið að taka upp síð-asta Top of the Pops-þáttinn.Sú sögulega stund átti sér
stað síðastliðinn miðvikudag í upp-
tökuveri breska ríkissjónvarpsins
en þangað voru mættir dyggir
aðdáendur þáttarins, margir hverj-
ir í gervi sinna uppáhalds tónlistar-
stjarna. Í gegnum tíðina hafa ýmsir
tekið að sér að stjórna þættinum en
í þeim síðasta, sem sendur verður
út í Bretlandi annað kvöld, verður
aðalkynnirinn enginn annar en Sir
Jimmy Savile en hann er nokkurs
konar goðsögn í bresku sjónvarpi.
Mér dettur helst í hug að líkja hon-
um við Hemma Gunn eða jafnvel
Ómar Ragnarsson, en nei annars
það er eiginlega ekki hægt að líkja
honum við neinn. Savile kynnti
einnig fyrsta þáttinn sem sendur
var út árið 1964. Karlinn hefur ver-
ið langlífari en flestir í hörðum
heimi sjónvarpsins og það sama má
segja um þáttinn. Það voru nú ekki
allir sem höfðu trú á Top of the
Pops á sínum tíma, en þeim ætti að
hafa snúist hugur nú, eftir alls
2.204 þætti í heil 42 ár.
Fyrsti þátturinn var sendur útbeint frá Manchester og voru
það Rolling Stones sem stigu allra
fyrstir á svið og fluttu lagið „I
Wanna Be Your Man“. Fyrir þá sem
ekki þekkja til þáttarins þá var
hann sjónvarpskynning á breska
smáskífuvinsældalistanum. Hljóm-
sveitir og sólólistamenn mættu í
sjónvarpssal og sungu lögin sín fyr-
ir framan fáa heppna aðdáendur
sem urðu þess heiðurs aðnjótandi
að fá að vera í nærveru goða sinna.
Tilkynnt var í hvaða sæti lagið
hafnaði þá vikuna og þættinum
lauk svo að sjálfsögðu ævinlega á
því að topplagið var kynnt og flutt,
en í fyrsta þættinum voru það Bítl-
arnir sem vermdu fyrsta sætið með
lagið „I Wanna Hold Your Hand“.
Síðasti þátturinn verður nokkurs
konar „best of“-þáttur þar sem
mikið verður sýnt frá þeim tímum
þegar Top of the Pops var risavaxið
menningarfyrirbæri. Þetta var
þátturinn. 15 milljónir horfðu að
meðaltali á hann í Bretlandi þegar
hann var upp á sitt besta.
Breska ríkis-sjónvarpið
hefur verið dug-
legt að endursýna
gamla Top of the
Pops-þætti undan-
farið og eru þeir
langt því frá að
vera eitthvað í lík-
ingu við það sem
þátturinn breyttist í hin seinni ár.
Ef maður slysaðist til að skipta yfir
á hann þá mátti þar sjá þvögu af
unglingum sem annaðhvort hopp-
aði og skoppaði öll í takt við eitt-
hvert Jessicu Simpson-popplag eða
eitthvað af þessum endalausu
bandarísku háskólarokklögum, nú
eða þvagan dillaði sér öll í takt við
r’n’b-lag iðulega flutt af léttklæddri
söngkonu eða hún
vangaði öll í takt
við James Blunt,
Dido eða eitthvað
álíka. Hin síðari
ár heyrði það til
undantekninga ef
flytjendur „mæm-
uðu“ ekki og tóku
þeir það oft sér-
staklega fram í
viðtölum baksviðs.
Hér áður fyrr sungu tónlistar-mennirnir „live“ og það voru
engar risavaxnar þvögur. Eða alla-
vega ekki í þeim gömlu þáttum sem
ég hef séð. Fólki var oft stillt upp á
mismunandi stöðum í salnum og
það var í svo töff fötum að það gat
vart verið til sökum eigin töffleika.
Það dansaði svo að sjálfsögðu sam-
kvæmt nýjustu tískunni. Mynda-
vélamennirnir voru duglegir að
ferðast um salinn og mynduðu fólk í
bak og fyrir. Þetta var ekki bara
tónlistarþáttur. Þetta var líka
tískuþáttur. Þetta var lífsstíls-
þáttur. Ýmsir menningarfræðingar
og aðrir fræðimenn hafa lengi
rannsakað fyrstu árin sem þáttur-
inn var sýndur (og einhver árin á
undan) og fært rök fyrir því að ný
tegund af manneskju hafi fæðst á
þessu tímabili … unglingurinn. Þau
öfl sem stýrðu hinum kapítalíska
auglýsingamarkaði og poppkúltúr-
markaðinum almennt eiga að hafa
staðið fyrir sköpun þessarar veru.
Hina nauðsynlegu uppreisn á milli
barnæsku og fullorðinsára var
hægt að kaupa. Hvort sem þetta er
rétt eða ekki þá var unglingurinn
allavega mættur fram á sjónar-
sviðið á þessu tímabili og mátti
finna ítarlegar leiðbeiningar um
nýjustu og mest töff tónlistina,
tískuna, danssporin o.s.frv. í Top of
the Pops.
Vinsældir þáttarins fóru smámsaman að dala á níunda ára-
tugnum, reynt var að fríska upp á
hann nokkrum sinnum en allt kom
fyrir ekki. Tónlistarmyndbandið og
tónlistarstöðvar á borð við MTV
voru helstu sökudólgar þess að
þátturinn hætti að vera málið að
margra mati. Til hvers að ferðast
til Bretlands og koma fram í sjón-
varpssal þar í hvert sinn sem þú
gefur út nýja smáskífu þegar þú
býrð til myndband sem er sýnt allan
sólarhringinn þar í landi og um all-
an heim?
Tónlistarstöðvar framleiða sífelltfleiri þætti þar sem tónlist
kemur lítið sem ekkert við sögu.
Myndbönd eru sýnd í heild þegar
þau eru frumsýnd en eftir þá sýn-
ingu er oft klippt mínúta framan af
myndbandinu og mínúta í lokin
þannig að eftir stendur miðjubútur
myndbandsins, kannski ein til ein
og hálf mínúta. Nú er oft talað um
að þróunin sé á þann veg að ungt
fólk haldi athyglinni í sífellt styttri
tíma. Það á að hafa bitnað á löngum
þáttum líkt og Top of the Pops. Á
tímum þar sem lagabútar ganga
manna á milli á netinu, hringitónar
eru oft vinsælli en lögin sjálf og
stutt heimatilbúin skemmtimynd-
bönd (oft við vinsæl lög) njóta sífellt
meiri vinsælda á heimasíðum eins
og YouTube verður athyglisvert að
fylgjast með því hvað verður um
tónlistarmyndbandið.
Unglingurinn í sjónvarpinu
’Fólki var oft stillt upp ámismunandi stöðum í
salnum og það var í svo
töff fötum að það gat vart
verið til sökum eigin töff-
leika. Það dansaði svo að
sjálfsögðu samkvæmt
nýjustu tískunni. ‘
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Það var alltaf dansað samkvæmt nýjustu tísku í Top of the Pops. Íslend-
ingar voru að sjálfsögðu engir eftirbátar í danslistinni eins og sjá má.
jongunnar@mbl.is
AF LISTUM
Jón Gunnar Ólafsson
Í LISTHÚSI Ófeigs við
Skólavörðustíg 5 verður í dag
opnuð sýning listmálarans
Sigurðar Örlygssonar. Sýn-
ingin opnar kl. 15.
Sýndar verða 120 vatns-
litamyndir sem Sigurður vann
í tengslum
við það að
hann varð
nýlega sex-
tugur.
„Þetta eru
mjög litrík-
ar myndir,“
segir Sig-
urður. „Ég
sýni tvær
myndaserí-
ur eða tvö
verk sem eru samsett hvort
um sig úr sextíu myndum.“
Hver mynd er aðeins 25 sentí-
metrar á kant en saman mynda þær
verk sem þekja heilan vegg. Mynd-
irnar í öðru verkinu eru geómetr-
ískar og unnar með reglustiku og
sirkli samkvæmt ákveðinni skipt-
ingu. Myndirnar í hinu verkinu eru
mun frjálsari í sniðum, en í þeim má
greina tvö form sem kallast á við
hvort annað.
Nýbreytni að fást við vatnsliti
„Vatnslitamyndir eru svolítið nýj-
ar fyrir mér en ég hef oftast unnið
með olíuliti. Það er svolítið erfitt að
breyta svona til en það er mjög
gaman að fást við þetta,“ segir Sig-
urður.
Hann hefur áður sýnt í Listhúsi
Ófeigs, síðast rétt fyrir áramót. Þá
sýndi hann einnig vatnslitamyndir,
en viðfangsefnin voru fuglar í það
skiptið.
„Verkin sem ég sýni núna voru öll
unnin á aðeins 6 mánuðum frá
morgni til kvölds. Þetta er svolítið
skylt því sem ég var að mála fyrir
um 20 árum síðan. Ég fór að mála
portrettmyndir fyrir um 10–15 ár-
um síðan en það var svolítill út-
úrdúr.“
Sigurður hefur málað í 35 ár og
er búinn að halda um 50 sýningar.
Hann nam við Myndlista- og hand-
íðaskólann frá 1967–1971 og stund-
aði eftir það framhaldsnám í Kaup-
mannahöfn og New York. Sigurður
hlaut menningarverðlaun DV árið
1988 og hefur fengið starfslaun úr
Listasjóði.
Myndlist | Sigurður Örlygsson opnar
myndlistarsýningu í Listhúsi Ófeigs
Sýnir 120 verk í
tilefni 60 ára afmælis
Vatnslitamynd frá sýningu Sigurðar
Örlygssonar í dag. Myndin er úr geó-
metrísku myndaröðinni á sýningunni.
Sigurður
Örlygsson
myndlistarmaður