Morgunblaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 33
Tónlistarhátíðin Reyk-holtshátíð fer nú fram í tí-unda sinn í Reykholti. Afþví tilefni er í ár borið sér-
staklega mikið í hátíðina. Steinunn
Birna Ragnarsdóttir píanóleikari
er stjórnandi hátíðarinnar og hefur
verið frá stofnun hennar árið 1997.
„Hátíðin hefur tekist mjög vel öll
árin og flest árin afburðavel. Stein-
unn Birna átti hugmyndina að því á
sínum tíma að koma til samstarfs
hérna fast. Það var auðvitað vel
þegið af sóknarinnar hálfu, að fínn
tónlistarmaður eins og Steinunn
tæki að sér tónlistarhluta hátíð-
arinnar,“ segir Geir Waage, sókn-
arprestur í Reykholti.
Á hátíðinni eru fernir tónleikar
auk messu á sunnudeginum. Venju-
lega á Reykholtshátíð er fyrirlestur
á laugardeginum í Snorrastofu, en
að sögn Geirs fellur hann niður að
þessu sinni.
Mikil eftirspurn
Er Reykholtshátíð stærsti viðburð-
urinn ársins hér?
„Við gætum verið með tónleika
hérna tvisvar til þrisvar í viku mið-
að við listamennina sem vilja koma,
en markaðurinn leyfir það ekki.
Reykholtshátíðin er toppurinn þótt
hér sé meira og minna eitthvað í
gangi allt árið.
Þegar við vorum að skipuleggja
vígslu kirkjunnar hugsuðum við um
það að við vildum hafa hátíð, árlega,
í kringum kirkjudaginn en kirkju-
dagshald var reglan á miðöldum og
hefur verið að færast í aukana aft-
ur.
Við ákváðum að vígja kirkjuna á
sumri svo þægilegt yrði að ferðast
og veður gott, vonandi. Ólafsmessa
varð því fyrir valinu, en eðlilegast
hefði verið að vígja kirkjuna á Pét-
ursmessu, sem er að vetri til, þar
sem þetta er Péturskirkja.
Það hefði einnig verið freistandi
að vígja kirkjuna á jólaföstu þar
sem gamla kirkjan var á sínum
tíma vígð á jólaföstu.“
Skilar þjóðmenningunni og
héraðinu verulegum arði
Hvaða þýðingu hefur hátíðin fyrir
svæðið í kring?
„Reykholt eins og það hefur
þróast undanfarin ár, það er að
segja endurreisn staðarins og sú
starfsemi sem er hér núna, skiptir
miklu meira máli en virðist vera í
fljótu bragði. Það er ekki bara út af
atvinnusjónarmiði, þeirri atvinnu
sem starfsemin hér veitir, beint og
óbeint. Heldur er þetta spurning
um – er ekki mikið í tísku að tala
um ímynd.
Reykholt hefur um aldirnar verið
menningarlegt höfuðból, allar göt-
ur frá því að staðurinn byggðist um
kristnitöku og hér var stofnað til
kirkju og kristnihalds.
Kirkjan var mjög auðug á mið-
öldum og var í hópi auðugustu
kirkna. Sá auður skilaði ekki bara
þjóðmenningu okkar verulegum
arði, heldur hefur það mikið að
segja fyrir héraðið allt. Þannig er
það orðið aftur, varðandi menning-
arlega reisn, að hér er verið að
halda því áfram sem verið hefur um
aldir.“
Steindir gluggar vígðir
Á hátíðinni eru formlega teknir í
notkun steindir gluggar eftir lista-
konuna Valgerði Bergsdóttur. Að
sögn Geirs var ákveðið þegar í upp-
hafi skipulagningar á byggingu
kirkjunnar að gluggarnir skyldu
vera steindir.
Lokuð samkeppni um gluggana
fór fram árið 1991 og vann Val-
gerður keppnina. Hefur hún unnið
að gluggunum síðan þá og hafa þeir
nú allir verið settir upp.
„Ég held að flestum beri saman
um að þeir hafi tekist mjög vel
gluggarnir. Þeir eru mjög marg-
breytilegir, þeir eru gjörólíkir á
nóttunni, þegar búið er að kveikja
inni í kirkjunni. Í sterku sólskini
eru þeir mjög bjartir, í morg-
unbirtu og kvöldbirtu er mikið lita-
spil í þeim, það koma litir fram í
glerinu sem virðast á daginn vera
gegnsæir. Ljósið í náttúrunni ræð-
ur því algjörlega hvernig litirnir
eru.“
Til stóð að opna gömlu kirkjuna í
Reykholti á hátíðinni en sú opnun
dregst í um hálfan mánuð. Við-
gerðir hafa staðið yfir á kirkjunni
og verður hún opnuð sem hluti af
húsasafni Þjóðminjasafnsins.
Tvennir tónleikar í dag
Opnunartónleikarnir fóru fram í
gærkvöldi þar sem flutt var tónlist
eftir Mozart. Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir sópran söng með hljómsveitinni
Virtuosi di Praga.
Tvennir tónleikar verða haldnir í
dag. Steinunn Birna og Sigrún
Hjálmtýsdóttir flytja klukkan 15:00
ítölsk og íslensk lög og aríur. Á
kvöldtónleikum klukkan 20:00 flyt-
ur Trio Polskie verk eftir Haydn,
Beethoven og Brahms.
Virtuosi di Praga flytja verk eftir
Respighi, Janácek og Dvorák á
lokatónleikum sem fara fram
klukkan 16:00 á morgun.
Tónleikarnir verða allir haldnir í
Reykholtskirkju. Nánari upplýs-
ingar má nálgast á síðunni
www.vortex.is/festival. Miðapant-
anir eru í síma 891-7677 og 664-
8181.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Geir Waage segir að eins og Reykholt hafi þróast undanfarin ár með endurreisn staðarins hafi það orðið menn-
ingarlegt höfuðból á nýjan leik eins og það hafi verið um aldirnar. Gamla kirkjan í Reykholti er í bakgrunni en
hún verður opnuð aftur á næstunni, þó ekki um helgina, en viðgerðir hafa staðið yfir á henni undanfarin ár.
Endurreisn staðarins
skiptir miklu meira máli
en virðist í fljótu bragði
Reykholtshátíð er um
helgina haldin hátíð-
leg í tíunda sinn. Jó-
hann Magnús Jó-
hannsson og Jim
Smart heimsóttu
Reykholt þar sem
Geir Waage sókn-
arprestur sagði þeim
frá hátíðinni og þýð-
ingu starfsins sem
unnið er á staðnum.
Morgunblaðið/ Jim Smart
„Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika“, úr Jó-
hannesarguðspjalli, er letrað á austurglugga Reykholtskirkju. Val-
gerður Bergsdóttir hannaði steindu gluggana í kirkjunni sem formlega
eru teknir í notkun á Reykholtshátíðinni sem stendur yfir um helgina.
álverum fá ekki háa einkunn hjá Fischer.
„Þeir fá greiðslur frá álfyrirtækjunum,“
segir Fischer en vill þó ekki tiltaka hvað
hann hafi fyrir sér í því.
Aðspurður hvort hann hafi fylgst eitt-
hvað með þjóðmálaumræðunni hér á landi
að undanförnu segir hann svo ekki vera.
Þegar blaðamaður færir honum þau tíðindi
að bandaríski herinn sé á förum hýrnar yf-
ir heimsmeistaranum gamla. „Ég vona að
það sé satt.“
konur í heimi,“ segir Fischer og hlær.
nn segist hafa náð að ferðast aðeins
ndið og meðal annars farið til Ak-
ar og ferðast um Vesturland.
ftið er miklu hreinna á landsbyggð-
n í borginni,“ segir Fischer og bætir
honum sé ákaflega illa við uppbygg-
liðnaðar hér á landi og tilheyrandi
un. Verið sé að eyðileggja ímynd
ns með þessum virkjunum og iðnaði.
er segist ekki sjá tilganginn með
og spyr hverjir vilji þetta eiginlega.
órnmálamenn sem hafa barist fyrir
elgason hitti heimsmeistarann fyrrverandi og ræddi með-
ð og tilveruna á Íslandi og hvernig gangi að læra íslensku.
el við mig hér
Morgunblaðið/Sverririð í ströngu eftir að svissneskur banki ákvað að loka reikningi hans í apríl í fyrra.
ulegum dómstólum heldur dómstóli almenningsálitsins.
arnihelgason@mbl.is
Þar að auki segist Fischer ekki vilja binda eigur sínar á Ís-
landi um aldur og ævi, hann geti vel hugsað sér að ferðast í
framtíðinni og vilji geta nýtt sér þjónustu UBS.
Aðspurður hvort hann ætli sér í mál við bankann segist
Fischer efast um það enda telji hann sig ekki eiga mikla
möguleika gegn svo stórum banka. „Ég fer í mál við þá fyrir
dómstóli almenningsálitsins,“ segir hann.
Lögmaður Fischers leitaði með mál hans til embættis um-
boðsmanns svissneskra banka en í svarbréfi frá embættinu
kemur fram að ekki sé talið að bankinn hafi brotið á Fisc-
her, þar sem fyrirvari sé í almennum skilmálum bankans og
að nokkur tími hafi liðið frá því að fyrsta tilkynning kom þar
til reikningnum var lokað.
Þegar Fischer er inntur eftir því hvaða ástæður hann telji
að liggi að baki ákvörðun bankans segir hann augljóst að
ákvörðunin beinist gegn persónu sinni.
„Gyðingarnir standa að baki þessu, þetta er hluti af atlögu
þeirra gegn mér,“ segir Fischer og bætir við að einn yf-
irmanna hjá bankanum hafi gefið sér þau svör að það sé
þrýstingur innan bankans á að gera þetta en að hugsanlega
geti hann opnað reikninginn síðar.
Þegar hann er inntur eftir því hvernig þetta tengist gyð-
ingum segist hann ekki þekkja nákvæmlega hvað yfirmenn
bankans séu að hugsa en augljóst sé að bankinn sé hræddur
við að hafa hann sem viðskiptavin. Hann segist ekki sjá mun-
inn á því hvort bankinn taki við skipunum frá utanaðkom-
andi aðilum um að loka reikningi sínum eða sé að reyna að
losna við hann af eigin frumkvæði til að þóknast gyðingum
eða bandarískum stjórnvöldum. „Þetta er algerlega siðlaust,
ólöglegt og ósanngjarnt af þeim,“ segir Fischer.
bankareikning í
er óskaði eftir því við
færð til baka inn á
bankinn við þeirri ósk.
schers og banka-
gna málsins og hefur
s, tekið við málinu af
ir útskýringum frá
i verið að loka reikn-
r bankans ekki feng-
n bankans hafi komið
ann hana ólögmæta.
ann hafi rétt til að slíta
i þar sem ekki hafi
að ræða heldur vörslu-
itt fjármuni hans.
u og Fischer telur
agslegt gildi í sjálfu
það veiti honum ákveð-
að íslensku bankarnir
g að láta ekki undan í
að hann sætti sig við
þjóðlegir bankar fari
ta banka heims