Morgunblaðið - 29.07.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 49
FRÉTTIR
Atvinnuauglýsingar
Mælingar og sýnataka
Efnarannsóknastofa í Reykjavík óskar eftir að
ráða áreiðanlegan mann til starfa við sýnatöku
og mælingar. Æskilegt er að viðkomandi sé
talnaglöggur, sjálfstæður og skipulagður í
vinnubrögðum og geti hafið störf sem fyrst.
Öll tæknimenntun, á borð við vélfræði eða vél-
virkjun, kemur sér vel en er ekki skilyrði fyrir
ráðningu. Drjúgur hluti vinnunnar er úti við.
Um er að ræða fullt starf en vinnutími er
óreglulegur.
Áhugasamir sendi uppl. til Morgunblaðsins, Há-
degismóum 1, 110 Reykjavík, eða á box@mbl.is
merktar: „LAB - 101“ fyrir 10. ágúst nk.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu
52, Eskifirði, miðvikudaginn 2. ágúst 2006 kl. 10:00 sem
hér segir á eftirfarandi eignum:
Austurvegur 7, Reyðarfirði (217-7395), þingl. eig. Logi Steinn Karls-
son, gerðarbeiðendur Fjarðabyggð og Íbúðalánasjóður.
Bleiksárhlíð 32, Eskifirði (217-0109), þingl. eig. Kristján Valur Sigurðs-
son, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Eskifirði.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (216-9104), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (216-9106), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (223-6318), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (223-6319), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (223-6320), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8817), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8818), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8819), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8820), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8821), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8822), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8823), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað (227-8824), þingl. eig. Tröllaborgir ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 2, Neskaupstað. (216-9101) og (216-9103), þingl. eig.
Tröllaborgir ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Hafnarbraut 50, Neskaupstað, ásamt rekstr.tæk. (216-9147) , þingl.
eig. Trölli ehf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Lambeyrarbraut 12, Eskifirði (217-0314) (223-1151), þingl. eig. Eðvarð
Þór Grétarsson og Auðbjörg Elísa Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., Og fjarskipti
hf., Olíufélagið ehf. og Regula - lögmannsstofa ehf.
Nesgata 18, Neskaupstað (216-9572), þingl. eig. Sveinn Þór Gíslason,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Réttarholt 1, Stöðvarfirði, (217-8363), þingl. eig. Borghildur Jóna
Árnadóttir, gerðarbeiðandi Leifur Árnason.
Skólavegur 92, Fáskrúðsfirði (216-9234), þingl. eig. Sesselja Loftsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Strandgata 61, n.h., Eskifirði ( 217-0477 ), þingl. eig. Sölvi Þór Birgis-
son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn á Eskifirði.
Þiljuvellir 31, Neskaupstað (216-9862), þingl. eig. Eiður Waldorff
Karlsson, gerðarbeiðandi Fjarðabyggð.
Sýslumaðurinn á Eskifirði,
30. júní 2006.
Uppboð
Framhald uppboðs á neðangreindri eign í Bolungarvík verður
háð á henni sjálfri miðvikudaginn 2. ágúst 2006 kl. 14:30.
Þjóðólfsvegur 5, fastanr. 212 1756, þingl. eig. Birna Hjaltalín Pálsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík,
28. júlí 2006.
Félagslíf
30.7. Sunnudagur. Skógfella-
vegur.
Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Vega-
lengd 15 km. Hækkun óveruleg.
Göngutími 5-6 klst. Fararstjóri
Ragnar Jóhannesson. V. 2.300/
2.700 kr.
2.-6.8. Laugavegurinn.
Brottför frá BSÍ kl. 8:30. Fararstj.
Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir.
V. 27.200/30.700 kr.
3.-6.8. Strútsstígur.
Brottför frá BSÍ kl. 8:30. Farar-
stjóri Friðbjörn Steinsson.
V. 23.500/27.400 kr.
3.-7.8. Fjalllendi Tröllaskaga.
Brottför auglýst síðar. Fararstj.
Martin Guðmundsson.
V. 10.800/12.800 kr.
5.-6.8. Fimmvörðuháls.
Brottför frá BSÍ kl. 8:00.
V. 11.000/13.700 kr.
5.-12.8. Laufrandarleið – Jeppa-
ferð
Brottför kl. 9:00. Fararstj. Jón G.
Snæland. V. 11.900/13.900 á bíl.
11.-13.8. Fjölskylduferð í
Bása.
Brottför frá BSÍ kl. 17:00. Básar
iða af lífi þegar börn, mömmur,
pabbar, afar, ömmur, frændur
og frænkur skemmta sér saman.
Í þessari árlegu og vinsælu ferð
eru börn á öllum aldri í aðalhlut-
verki þegar brugðið verður á
leik, sagðar sögur, föndrað,
sungið og farið í ógleymanlegar
gönguferðir.
Skráningar í ferðir á skrif-
stofu Útivistar í síma 562 1000
eða utivist@utivist.is
Sjá nánar á www.utivist.is
Á HÁTÍÐ verndardýrlings Ís-
lendinga, Þorláks Þórhalls-
sonar, hélt kaþólski söfnuður-
inn á Íslandi messu í Skálholti.
Messan fór fram á Þorlákshá-
tíð sem haldin er á hverju ári á
þeirri helgi sem er næst Þor-
láksmessu að sumri. Auk þess
að votta hinum forna biskupi
Þorláki virðingu var messan
einnig haldin í tilefni af 950 ára
afmæli Skálholts sem biskups-
seturs á Íslandi.
Skálholt hefur verið bisk-
upssetur frá árinu 1056, þegar
Ísleifur Gissurarson, sonur
Gissurar hvíta, höfðingja í
Skálholti, var útnefndur bisk-
up. Á staðnum var biskupsset-
ur óslitið þar til skömmu eftir
aldamótin 1800 þegar ákveðið
var að færa biskupsstólana frá
Hólum og Skálholti til Reykja-
víkur. Á 20. öld var ákveðið að
endurreisa Skálholtsstað og
var núverandi kirkja vígð þar
árið 1963 og situr þar nú
vígslubiskup.
Þorlákur Þórhallsson,
verndardýrlingur Íslendinga,
var biskup í Skálholti frá 1178
til dauðadags árið 1193. Hann
var tekinn í helgra manna tölu
á fundi á Þingvöllum fimm ár-
um síðar og voru bein hans þá
grafin upp og sett í skrín sem
var haft til sýnis í Skálholts-
kirkju í mörg hundruð ár.
Skrínið var talinn einn mesti
helgigripur íslensku þjóðar-
innar og kom fólk víða að til að
sjá það enda var talinn fylgja
því lækningamáttur.
„Við skulum í dag þakka
Guði fyrir hina mörgu ágætu
og kappsömu biskupa, sem á
liðnum tímum sátu biskups-
stóla Skálholts og Hóla. Við
skulum ákalla sérstaklega
heilagan Þorlák, að hann megi
biðja góðan Guð fyrir öllum
kristnum mönnum á Íslandi
og staðfesta þá og styrkja í
trúnni, eins og hann gerði á
ævidögum sínum,“ sagði herra
Jóhannes Gijsen, biskup kaþ-
ólskra, í niðurlagi predikunar
sinnar.
Kaþólsk Þorláks-
messa í Skálholti
Ljósmynd/Hörður Arinbjarnarson
Séra Jakob Rolland og herra Jóhannes Gijsen biskup við guðsþjónustuna á Þorlákshátíð í Skálholti.
Í TENGSLUM við Hólahátíð
um miðjan næsta mánuð
verða gengnar pílagríma-
göngur heim til Hóla úr
þremur áttum laugardaginn
12. ágúst. Gengnar verða
gamlar þjóðleiðir úr Svarf-
aðardal yfir Heljardalsheiði
og úr Hörgárdal yfir Hjalta-
dalsheiði og einnig gömul
biskupaleið frá Flugumýri að
Hvammi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skipuleggjendum
eru þetta áhugaverðar en
jafnframt langar og stundum
erfiðar göngur. Eru göngu-
menn því hvattir til að vera
vel útbúnir og hafa með sér
nesti. Undir lok dags verður
tekið á móti pílagrímunum
með helgistund í dómkirkj-
unni kl. 18:00.
Eins og fyrr var getið verð-
ur gengið úr þremur áttum.
Þau Guðrún Edda Gunnars-
dóttir og Einar Sigurbjörns-
son munu leiða göngumenn
yfir Heljardalsheiði, en í
þeirri ferð er gengin gömul
þjóðleið úr Svarfaðardal yfir
Heljardalsheiði. Reiknað er
með átta stunda rólegri
göngu. Gengið verður eftir
ruddum vegarslóða sem er
nokkuð brattur yfir háheiðina
og þarf að vaða nokkrar smá-
ar ár.
Önnur leiðin sem hægt er
að velja um er yfir Hjaltadals-
heiði og er alls 30 km, en ekki
erfið yfirferðar. Samkvæmt
upplýsingum skipuleggjenda
má gera ráð fyrir að hún taki
um 11 tíma. Fararstjóri er
Bjarni Guðleifsson.
Þriðja leiðin liggur frá
Flugumýri, upp með
Hvammsgili sunnanverðu,
upp í Ranghala, eftir endi-
löngum Austurdal og upp á
fjallið milli Austurdals og
Hvammsdals og þaðan niður
Hvammsdal að Hvammi í
Hjaltadal. Leiðsögumaður er
Þórarinn Magnússon. Áætl-
aður heildargöngutími er um
níu klst. og telst hér um erfiða
göngu að ræða.
Allar nánari upplýsingar
um gönguleiðirnar sem og
hvar og hvenær lagt er af stað
má nálgast á vefslóðinni:
www.holar.is/900/gongur.-
htm. Þátttaka tilkynnist til
Málfríðar Finnbogadóttur í
síma 455-6334 og 899-6303
eða með tölvupósti malfridur-
@holar.is.
Þrjár pílagrímagöngur
tengdar Hólahátíð
Morgunblaðið/Einar Falur
ÞINGFLOKKUR Vinstri-
hreyfingarinnar – græns
framboðs skorar á íslensk
stjórnvöld að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til þess
að stöðva frekari manndráp
og eyðileggingu í Líbanon.
„Alþjóðasamfélagið verður
að koma Ísrael í skilning um
að frekari stríðsglæpir og
mannréttindabrot verði ekki
liðin. Öll ríki Sameinuðu þjóð-
anna geta haft áhrif í þessu
efni og leggur þingflokkur
Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs til að ís-
lenska ríkisstjórnin beini
þeim tilmælum til forseta alls-
herjarþings Sameinuðu þjóð-
anna að þingið verði kallað
saman (skv. ályktun SÞ nr.
377) þegar í stað með það fyr-
ir augum að samþykkja kröfu
um að vopn verði lögð niður.
Fyrir þessu eru fordæmi.
Þingflokkur VG hefur þeg-
ar sent forseta Alþingis erindi
með ósk um að utanríkismála-
nefnd komi saman hið bráð-
asta til þess að ræða þá stöðu
sem nú er uppi og á hvern hátt
Íslendingar geti lagt sitt af
mörkum til að stöðva mann-
drápin og eyðilegginguna.“
Allt verði gert til að
stöðva manndráp